Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 130

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 130
136 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS norræna menningarsvæði, því veldur m. a. myndefnið, myndefnis- röðunin og ekki síst myndstaðurinn. Enda liafa margir fræðimenn bæði innlendir og erlendir um hurðina og skurðinn fjallað. Samdóma álit þeirra flestra er að Valþjófsstaðahurðin sé gerð um eða eftir aldamótin 1200. Einn þeirra, Magnús Már Lárusson, hefur sýnt fram á að hurðin hafi í upphafi verið hærri, skipuð þrem myndkringlum í stað tveggja nú. Á sínum tíma komst sú sögn á kreik að hurðin hefði verið fyrir skála en ekki kirkju. Magnús kvað þessa þjóðsögu í kút- inn við sama tækifæri, sýndi fram á að fyrir kirkjudyrum á Valþjófs- stað hafi þessi hurð verið í ein 650 ár. Fyrst fyrir hátimbraðri staf- kirkju sem rifin var um miðja átjándu öld og síðan fyrir torfkirkju- dyrum skert og minnkuð, en hafði þó hlíf af lítilli forkirkju þangað til hún var send til Kaupmannahafnar 1851.1 Á kirkjuhurðinni frá Valþjófsstað eru tvö sjálfstæð skurðverk. Á því neðra mynda fjórir hringdrekar uppistöðu, bíta í sína eigin sporða með smáhnykk á hausum, bolir og vængir fléttast saman með reglubundnum hætti, fætur og klær einnig og mætast við lítinn knapp í miðju. Þetta er skreyti. Aftur á móti er myndsaga á efri hlutanum, saga af riddara, dreka, ljóni og fugli. Myndkringlan skiptist eftir láréttri miðju í tvennt. Sagan hefst í neðri helft. Ridd- arinn leggur sverði í kvið dreka eins mikils, sem spennt hefur ljón sporði og heldur föstu. Á sveimi yfir er fugl. Riddarinn frelsar ljón- ið og í efri hluta, sem á eru tveir myndþættir, sést að það hefur gerst honum fylgispakt og fuglinn sestur á makka hestsins. Þetta er fyrri- hluti seinni þáttar og skipar ívið meira rúm en lokaatriði sögunnar. Þar liggur ljónið á gröf bjargvættar síns, á henni er kross og þetta letur: Sjá hinn ríka lconung hér grafinn er vá drelca þenna. Yfir bak Ijónsins sér í húsgafl sem óefað á að sýna kirkju. Við þessa mynd nemum við staðar. Hvað fáum við lesið úr kirkjumyndinni á hurð- inni frá Valþjófsstað? (2. og 3. mynd). Húsið sem við sjáum er timburbygging. Sé þetta kirkja eða kap- ella, sem engin ástæða er til að efa, er hún einskipa, án útbrota. Þak- ið er með burst, nákvæmlega 90° í kverk, eða krossreist. Móta sést fyrir þakborðum efst, en vindskeiðar eru felldar undir þau og yfir skarsúðarklæðningu á bjórnum og vottar fyrir einhverskonar skreyti á endum þeirra við þakskegg. Vindskeiðarnar ganga töluvert út fyrir veggi. Undir bjór er þil með öðru sniði og kalla má standþil að fornri venju. Á því miðju eru dyr með tvíboga efst. Flöturinn umhverfis dyrnar er sléttur og myndskerinn hefur markað litla rauf báðumeg- in dyra til að skilja greinilega að dyrumbúnað og þilfjalir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.