Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Side 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Side 30
28 sjálfum, þá verður ekki séð annað iíklegra en að höfundur hafi sjálfur verið Svarfdælingur«. Þá segir Finnur í greininni »Om Svarfdæla saga« (Aarb. for nord. Oldkh. og Flist. 1884, bls. 134): »det forekommer mig nu at forfatteren har havt for sig meget gamle tildels ti! lokaliteterne knyttede traditioner om dalens ældste beboere og historie, men dunkle og usammenhængende«. Sagan telur hann, að sé rituð á fyrsta fjórðungi 14. aldar, og er hún þá með yngstu íslendingasögum. Er það almenn skoðun, að hún sé samin upp úr annari eldri sögu, því að Sturlubók Landnámu vitnar til Svarfdæla sögu. Það er nú varla rétt, að fella einn alls herjar dóm yfir Svarfdælu, svo margt sem skilur hina ýmsu kafla hennar að, bæði stíll, umhverfi og atburðir. Það er þó hvað minnst réttmætt, ef dæma á söguleg sannindi og heimildir sögunnar. Allt upphaf hennar aftur að eyðunni miklu í 10. kap. og Iokaþáttur hennar, er segir frá skiptum Karls ómála og Yngveldar, er hvort með sínu móti og hvorttveggja mjög frábrugðið miðbikinu, sögu óeirðanna í dalnum þegar eftir landnámið. Manni finnst jafnvel, að hér sé um annan höfund að ræða eða að minnsta kosti mjög ólíkar heimildir. Upphafið og endirinn er mjög óáreiðanlegt. Upphafið er stælt eftir öðrum sögum með bóklegum, hefðgrónum persónum og atburð- um. Af Landnámu má sjá, að lítið er á það að treysta sögulega. Endirinn, þáttur Karls og Yngveldar, er aftur á móti ævintýr með of miklum ósennileikablæ til þess að hægt sé að trúa því. Ef til vill er það íslenzkt afbrigði af erlendri farandsögu (Ein. Ól. Sveinsson í FFC83, bls. XX — XXI). En saga Karls unga er, þótt hún sé ósönn, bezti hluti sögunnar að stíl og skáldskap. N. M. Petersen sagði fyrir Iöngu síðan, að misþyrmingar Karls á Yngveldi mirmtu á leikrit Shakespeares »Taming of the Shrew«, en við það mætti bæta, að í Svarfdælu er einnig að finna Hamlet íslenzkra bókmennta, Karl ómála. Báðir eru þeir menn, sem látast vera afglapar til þess að geta hefnt föður síns. Björn M. Ólsen segir, að háttalag Karls minni á Amlóða hjá Saxa (Safn, 6. bd.. bls. 402). Þótt hvorttveggja þetta sé mest til gamans sagt, verður því ekki haggað, að í þeim hluta Svarfdælu, sem fjallar um Karl unga, er lang-skáldlegast efni og líka bezt á frásögn- inni haldið. Mjög ólíkt þessum tveimur köflum, upphafinu og endinum, er miðbik sögunnar, hin eiginlega Svarfdæla saga. Raunar er það rétt að höfundur veit oft harla lítið um sögupersónur sínar, og timatal hans er stundum bágborið, eins og þegar hann segir, að Ljótólfi væri kona ætluð, Þórdís, dóttir Ouðmundar ríka á Möðruvöllum. Ekki hefir hann heldur glögga hugmynd um upphaf deilnanna í dalnum, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.