Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 66

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 66
64 og vera á árið 1700. Hafi lögrjetta verið færð 1594, kemur |oað heim í katastasis, að hún hafi verið færð »um tíð Pórðar Guðmundssonar og Jóns Jónssonar lögmanna.« Peir voru lögmenn til 1605. Hafi konungur ætlað að spara sjer með brjefi sínu 1574, um flutning alþingis frá Pingvelli, ferðakostnað höfuðsmanns þangað, og það ekki tekizt, sakir mótþróa íslendinga móti flutningum, kann það að hafa, eitt með öðru, verið ástæðan til þess, að í veitingarbrjefi því, sem konungur gaf út til handa Jóhanni Bockholt 7. maí 1582, var það ttxið fram, að hann skyldi sjálfur kosta ferðir sínar í konungserindum.1) — Fimm árum síðar ljet Bockholt af hirðstjórn; Friðrik 2. fjell frá 1588, og enn nokkrum árum síðar, 28. febrúar 1591, varð Henrik Krag hjer hirðstjóri aftur og var nú 4 ár, tii 1595. Hann var hjer kunnugur, og það er ekki ólíklegt, að einmitt í hans tíð og með hans ráði hafi lögrjettan verið færð af þeim óhentuga stað, sem konungur hafði leyft, að hún yrði færð af í tíð hálfbróður hans, 1563. Krag var vel kunnugt um málavexti alla og þetta leyfi konungs. Kristján 4. var að eins 11 ára, er faðir hans dó. Mun Krag, er átti stjórnarherrunum að þakka hirðstjórn sína, hafa þóizt nokkru frjálsari nú en fyrrum, og nú gerðust ýmsar nýjungar og breytingar, og sumar til bóta. Jón prófastur Halldórsson segir í Hirðstjóra-annál,2) að Krag hafi verið »einn af þeim hinum nytsamlegustu« hirðstjórum hjer, og Páll E. Ólason telur í riti sínu, Menn og menntir, óvíst, »hvort nokkur höfuðsmaður á þessu tímabili (16. öldinni) hafi viljað landsmönnum betur bæði í tillögum og verki, það er hann mátti.«3) Hann sat hjer á hverju alþingi, meðan hann var hirðstjóri, og dvaldi hjer oftast, sigldi 1593 eftir þing, en kom aftur fyrir næsta þing. Skal hjer að öðru leyti vísað til þeirra rita, er nú var bent til. Sumarið 1592 fór Jón lög- maður á fund stjórnarherranna í Danmörku til að bera fram bænarskrá, ýms (alls 8) erindi fyrir landsmenn4.) Þótti sumum raunar ekki mikið gagn hljótast af þeirri för, en þess er vert að minnast í þessu sambandi, að fyrirskipað var næsta vor, 9. maí, að alþingi skyldi sitja að minnsta kosti 8 daga á hverju sumri, og að höfuðsmaður var beðinn að skipa landþingsskrifara. Hafði verið kvartað yfir því, að al- þingi sæti ekki lengur en 1—2 daga árlega, og beðið um, að það sæti í 8 daga eða lengur, eftir því, sem nauðsyn krefðist, og að skipaður yrði lögþingsskrifari. Andsvör og brjef stjórnarinnar voru gerð heyr- inkunn á alþingi um sumarið (1593). 1) Sbr. P. E. Ó., Menn og menntir, 111., bls. 318. 2) Safn, II., bls. 723. 3) Menn og menntir, 111., bls. 330. 4) Sbr. Alþb. fsl., 11., bls. 252-54, og e. fr. bls. 343-63.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.