Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 33

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 33
31 Hér hefir nú verið bent á nokkur atriði, er sýna, hvernig mið- bik sögunnar, saga fyrstu kynslóðarinnar í dalnum, er í öndverðu til orðið við samtíning svarfdælskra sagna, sem margar höfðu varðveitzt vegna staða og örnefna. Þetta varð svo kjarninn í okkar Svarfdælu, sem samin var upp úr þeirri gömlu á 14. öld. Hins vegar var það nauðsynlegt að byrja sögu Svarfdæla með hetjusögum um forfeðnr þeirra í Noregi, og þessa byrjun skáldar svo endursemjandinn í stíl annarra íslendingasagna. B. M. Ólsen hefir sýnt fram á, að þar kennir áhrifa frá Egils sögu, Laxdælu og fornaldarsögum, t. d. Ragnars sögu loðbrókar. Að lokum hefir svo endursemjandinn fellt inn í sögu sína þátt Karls unga, sem vafalaust hefir verið alþekkt, svarfdælsk þjóð- saga, sem ber mjög sterkan keim af fornaldarsögum. (Sjá fyrirlestur Björns M. Ólsens um Svarfdæla sögu í Safni til sögu íslands, 6. bd.). Það hefir nú verið tekið fram, að höf. Svarfdælu lýsi mjög nákvæm- lega og samvizkusamlega sviði atburðanna og bent á, að hann notar staða- og örnefna-sögur mjög sem heiniildir. En sannar það nokkuð um sögulegt gildi sagnanna? Oátu ekki þessar staða- og örnefna-sögur verið hugarburður einn eða misskilningur, ekki síst þar sem svo langt var liðið á aldirnar? Það er alkunna, að fólk í, öllum sveitum landsins h.ddur sig vita um hauga fornmanna og fornkvenna, nafngreindra eða óþekktra. En oftast kemur í Ijós við rannsókn, að þetta er úr lausu lofti gripið. Margur er sá álögubletturinn, sem sagður er geyma forn- manns bein, en hefur í raun og veru aldrei verið hreyfður af manna- höndum. Og getur höf. Svarfdælu ekki loks hafa fellt atburði sögu sinnar eftir eigin geðþótta inn í það umhverfi og landslag, sem hann þekkti vel, án þess að skevta um, hvort svo hafi verið í veruleikanum? Aðeins ein leið er fær til þess að komast eftir, hvort atburðirnir hafa raunverulega gerzt þar sem sagan segir, og hún er sú, að rann- saka sögustaðina og freista, ef þar kynni að finnast nokkuð það, er sannað geti eða afsannað söguna. Oft og tíðum er hverfandi lítill mögu- leiki á, að þetta takist, en hitt kemur þó fyrir, að nokkur árangur næst. Ef nú t. d. mannabein finnast á stað, sem sagan segir, að barizt hafi verið á og menn fallið, eins og á Jarðbrú, eða dysjar finnast nákvæm- lega þar sem sagan segir, að fornmenn hafi verið heygðir, eins og á Hofi og Blakksgerði, verður því ekki móti mælt, að líkur eru til að höfundar sögunnar hafi fyrir sér sögulega sannar sagnir. Sama máli gegnir með skálann á Klaufanesi. Höf. Svarfdælu veit það með sanni, hvar Klaufi byggði fyrst, að hann hafði þar skamma dvöl, og hvers vegna hann flutti þaðan. Um öll þessi atriði verður ekki annað séð en að áþreifanlegar staðreyndir sanni orð sögunnar. Af því má þó auðvitað ekki draga þá ályktun að óreyndu, að aðrar frásagnir sögunnar séu líka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.