Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 83
77 Nú er að benda á fleira, er styður það, að Ævar liafi búið í Bólstaðarhlíð, en útilokar, að hann hafi szet að upp á Laxárdal — austur í Litla-Vatnsskarði. Þegar Ævar hélt fram Langadal, hlaut hann að festa augun á skörðunum, sem þar eru í fjallgarðinn. Hefir honum eflaust strax leikið hugur á að kanna þau lönd, er þar lágu að baki. Nú vitum við ekki, livaða leið hann hefir valið. Vera .má, að hann hafi farið Strjúgsskarð, eða Auðólfsstaðaskarð, eða dalinn upp frá Ævarsskarði (Bólstaðarhlíð), þar sem nú heita Hreppar (að austan) og Höfðabrekkur (að vestan). Hverja leiðina, sem hann valdi, varð fyrir honum allvíður og grösugur háfjalladalur, sem hlaut að minna liann á hina norsku seljadali, er voru honum vísast gagnkunnugir. Ævar kastaði eign sinni á framhluta dals þessa, eða að því leyti, sem hann lá hliðstætt land- nánii hans í Langadal. Telja má og víst, að hann liafi numið fjöllin austur af honum og alt það flæmi, er heyrir undir Bólstaðarhlíð og Þverárdal fram á þennan dag í Kálfárdal að norðanverðu, Þröngadal^ Valbrandsdal að nokkru, eitthvað af Víðidal o. s. frv. Það lá Ævari í augum uppi, að vetrarríki var miklu meira í Lax- árdal en Langadal, þó víða væri þar gott undir bú. Því er þess og aðeins getið, að þar liafi bygt einn af skipverjuin Ævars, Gautr í Gautsdal, enda er þar greiðast um samgöngur við Langadal og mild- ust veðráttan, Sjálfum gat Ævari ekki hugkvæmzt að velja sér bólstað í Laxár- dal, ekki einu sinni þar sem nú er Mjóidalur og löngum hefir verið stórbýli. Það er hrein fjarstæða, að ímynda sér, að sjálfur landnáms- maðurinn slepti öllu tilkalli til allra jarða í Langadal, og ágirntist fremur seljadalinn. En þó fjarstæðast að halda, að hann reisti bú þar sem eitthvert rýrasta kotið á Laxárdal hefir staðið að fornu og nýju — Litla-Vatnsskarð. Litla-Vatnsskarð er nú í eyði. En í jarðamatinn 1932 var land þess metið einar 1300 kr. Samanber, að þá var landsverð Bólstaðar- hlíðar, þ. e. heimajarðarinnar einnar, eins og hún er nú, að undan- skildum öllum hjáleigum, talið 10.400 kr. Margeir Jónsson segir og sjálfur, að »í jarðaskiftabréfi um Láxár dalsjarðir frá 1391 sé Litla-Vatnsskarð talið með Mörk og Hvammi. En frumbréfið er glatað og yngsta afritun bréfsins er frá 1704, en sú elzta frá 1585« (Árb. 1925-26, bls. 42). Enn segir sami maður á öðrum stað: »Um 1700 er Litla-Vatnsskarð einnig talið Vb úr heimajörðinni Móbergi (Á. M., sjá Johns., 241 nm.) Og enn fremur hefir Móberg átt selstöð í Litla-Vatnsskarði frá ómunatíð. Heitir þar enn Móbergs-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.