Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1914, Page 93

Skírnir - 01.04.1914, Page 93
I)ómur Dr. V. Gr. um „Hrannir11. 205 Hvað er »heimur styttuhljóðsins ? Og hvernig er hægt að tala um »hátign loddarans« spyr Dr. V. G. er hann minuist á vísuna »Bál vors lífs og listar« (í kvæðinu »Eldur«). »Heimur styttu- hljóðsins« er hinn þöguli heimur líkneskjanna. »Hljóð« þýðir með al annars þögn : »Hljóðs biðk allar helgar kindir«, segir völvan í »Völuspá«. »Gefið hljóð!« befir Dr. V. G. o. fl. oft sagt á fund- um. — »Hátign loddaraus« kannast eg vel við, er eg minnist þess, að eg þykist aldrei hafa sóð meiri tignarsvip á manni en á línu- dansara einum meðan hann var að leika listir sinar á strengnum, svo mikil göfgi lá í valdi hans yfir hverri taug líkamans, og skáld- ið, sem í þessari vísu er að sýna hvernig sami eldurinn brennur í öllum greinum listanna, gleymir ekki loddaralistinni, þó hún só minst metin, heldur minnir á að einnig hún á sína hátign, sem getur ljómað eins skært og erfðatignin í »sölum kóngsins«. »Moldarbarmsins steindu taugar« er ein af hinum djörfu sam- líkingum skáldsins. Hann sér yfirborð jarðar eins og lifandi barm, undir þeim barmi leynist taugakerfi, og að taugar jarðar séu úr steini og ekki einhverjum mýkri efnum, er ekki óeðlilegt. Ekki skal eg þrátta mikið um eriudið úr kvæðinu »Dagurinn mikli«, sem Dr. V. G. reynir að gera sór mikinn mat úr. Við vit- um sjálfsagt báðir jafnmikið um það hvernig guð er vaxinn eða búinn og hvernig lífsstörfum hans er háttað, og þar sem Dr. V. G. hneykslast á höfuðfaldinum og beltinu, er bendi á að skáldið hugsi sér guð sem konu, þá finst mér það ekki meiri goðgá en ef skáldið hefði látið guð hafa harðan hatt og axlabönd eins og okkur Dr. V. G. Má og minna á það sem Jafnhárr mælti forðum: »Eigi eru ásynjurnar óhelgari ok eigi megu þær minna«. — Með heilanum Egill hataði og unni. Hans hróður spratt inst af þankanna brunni. »Er nú ekki dæmalaust að segja slíkt um einhvern hinn mesta tilfinningamann og tilfinningaskáld, sem ísland hefir áttl« spyr Dr. V. G. Ó, nei, nei. Eða heldur Dr. V. G. að hatur og ást Egils hafi verið blind tilfinning ? Mór finst kvæðin hans mæla þar í gegn. Einmitt þau kvæðin þar sem tilfinning Egils kemur bezt í ljós, föðurástin í »Sonatorreki« og vináttan f »Árinbjarnarkviðu«, sýna það, að hann gerði sór ljósa grein fyrir bvað það var sem hann unni í fari sonar síns og Arinbjarnar, hann telur upp hvers hann saknar, þar sem sonurinn fórst, og eiginleikana sem honum þykir Arinbjörn ágætur fyrir. — Þeim sem hann hatar eða fyrir- litur lýsir hann í vísum sínum með vel völdum orðum er sýna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.