Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 39 NEYTENDUR Víða uppbókað flestar helgar fram til jóla Verð á jólahlaðborðum hefur hækkað frá í fyrra Morgunblaðið/Kristinn Mikill áhugi er meðal landsmanna á jólahlaðborðum. FLEST veitingahús byrja að bjóða jólahlaðborð þegar síga fer á nóv- embermánuð og víðast hvar standa þau fram til jóla. Þó eru dæmi þess að veitingahús bjóði upp á jólahlað- borð milli jóla og nýárs. I samtali við forsvarsmenn ýmissa veitingahúsa kom á daginn að verð- hækkun hefur orðið frá síðasta ári og virðist hún nema frá rúmlega 5% til 23%. Það veitingahús sem hækk- aði verðið mest var með þeim ódýr- ustu í fyrra og er þrátt fyrir hækk- unina ekki með hæsta verðið í ár. Hjá mörgum veitingahúsum er ódýrara að borða á mánudags-, þriðjudags- ogmiðvikudagskvöldum en á öðrum kvöldum vikunnar en þó er ávallt ódýrast að fara í hádeginu. Veitingastjóri Hótel Borgar, Magn- ús Rafnsson, sagði fyrirtækið hafa ákveðið að lækka hádegishlaðborðið hjá sér úr 2.500 krónum í 2.200 krón- ur til að reyna að fá fleiri til að koma í hádeginu en þess skal þó getið að ekki bjóða öll veitingahús upp á jóla- hlaðborð í hádeginu. Líkt og undanfarin ár er áhugi landsmanna á jólahlaðborðum veit- ingahúsa mikill. Öllum forsvars- mönnum bar saman um að það borg- aði sig að bóka snemma, sérstaklega fyrir helgar, en á flestöllum veiting- astöðunum voru allar helgar upp- bókaðar fram til jóla. Borðapantanir með árs fyrirvara „Allir föstudagar og laugardagar eru uppbókaðir fram að jólum, “ seg- ir Freyja Kjartansdóttir, sölustjóri Perlunnar. „Jólahlaðborðstíminn hefst 16. nóvember og er tii og með 23. desember. Þá munum við einnig bjóða upp á hlaðborð milli jóla og nýárs og þess má geta að enn er laust þá sem og virka daga og Dæmi eru um að þegar gestir borga fyrir jólahlaðborð panti þeir borð að ári. Hrönn Indriðadóttir komst að því að víða er uppselt á jólahlaðborð allar helgar í desember. nokkra sunnudaga." Að sögn Freyju verður hlaðborðið eingöngu á kvöld- in nema á Þorláksmessu en þá verð- ur boðið upp á skötu og jólahlaðborð í hádeginu. „Það hefur orðið verðhækkun frá í fyrra. Jólahlaðborð frá mánudögum til miðvikudaga kostar nú 3.690 krónur en kostaði í fyrra 3.300 krón- ur og verðhækkunin nemur því tæp- lega 12%. Frá fimmtudögum til sunnudaga kostar það 4.150 krónur en var 3.750 krónur í fyrra og er það tæplega 11% hækkun," segir Freyja og bætir við að mikilvægt sé að panta tímanlega enda dæmi um að fólk panti með árs fyrirvara þannig að þegar það greiðir fyrir jólahlað- borðið panti það um leið borð fyrh- næsta ár. Gæs og hörpuskel meðal nýjunga Hinn 1. desember hefst jólahlað- borðstíminn hjá Hótel KEA. Að- spurð segir Gréta Björnsdóttir, að- stoðarveitingastjóri Hótel KEA, að mikið sé búið að panta enda vinsælt meðal Akureyringa að fara á jóla- hlaðborð. Enginn dagur er þó upp- bókaður enn. „Fyrsta helgin í desember er vin- sælust en þess má geta að við bjóð- um eingöngu upp á jólahlaðborð á föstudögum og laugardögum.“ Að sögn Grétu kostaði jólahlað- borðið 3.400 krónur í fyrra en 3.790 krónur í ár og hefur það því hækkað sem nemur rúmlega 11%. „Ýmissa nýjunga er að vænta hjá okkur í ár og meðal þess sem við munum bjóða upp á er hvítlauks- marineruð hörpuskel og gæs.“ Möndluleikur ásamt vinningi Nýlega tók matreiðslumeistarinn Sigurður L. Hall við rekstri veit- ingahússins á Hótel Óðinsvéum. „Það er mikið búið að panta og nú er svo komið að allar helgar eru upp- bókaðar fram til jóla en svo eru alltaf einhverjar afpantanir svo ekki er öll von úti enn,“ segir Sigurður. „Við verðum með opið í hádeginu í des- ember á virkum dögum og ætlum okkur að vera með glæsilegasta jóla- hlaðborð á Islandi. Við munum breyta jólahlaðborðsforminu nokk- uð þannig að nú gefst gestum einnig kostur á að fá afgi'eitt beint á borðið. Þá ætlum við að vera með möndlu- leik og sá sem fær möndluna fær vinning frá okkur. Jólahlaðborð er jákvæður siður sem tíðkast víða á Norðurlöndunum, þetta léttir des- embermánuð og á fyrst og fremst að vera gaman.“ Að sögn Sigurðar kostar jólahlað- borðið á Óðinsvéum 4.500 krónur en ef pantað er á virkum dögum geta hópar og starfsmannafélög leitað til- boða. „Eg ákvað að vera frekar með aðeins hærra verð og vera með fyrsta flokks hráefni og gæði, ég spara ekkert til. Stefnan er að vera með villibráð og fyrsta flokks ís- lenskt hráefni." Frítt lyrir börn tíu ára og yngri Veitingaskipið Thor er nýr veit- ingastaður við Norðurbakkann í Hafnaríirði en það opnaði í febrúar síðastliðnum. „Jólahlaðborðstíma- bilið hefst 24. nóvember og stendur til jóla,“ segir Maríus Helgason, framkvæmdastjóri Veitingaskipsins Thors. „Við verðum með hlaðborð um helgar en ef stórir hópa óska er einnig hægt að vera með það á virk- um dögum. Við verðum með hefð- bundið jólahlaðborð með alls 22 rétt- um fyrir utan meðlæti. Verðið er 3.700 krónur og frítt er fyrir böm, tíu ára og yngri.“ Filmum skilað þegar bensín er sett á bflinn Tollstjórinn annast nú tollafgreiðslu póstsendinga Dýrara að láta senda sér pakka í vinnuna en heim Morgunblaðið/Þorkell Um leið og fólk lætur senda sér vörur í fyrirtæki fellur sendingin ekki lengur undir smásendingar til einstaklinga og þá þarf að fylla út inn- flutningsskýrslur. OLÍUVERZLUN íslands hf. og Heimsmyndir ehf. bjóða upp á nýja tegund af framköllunarþjónustu. Þjónustan felst í því að hægt er að leggja inn filmur til framköllunar hjá öllum Olís Uppgrips-bensínstöðvum á Stór-Reykjavíkursvæðinu, mynd- irnar eru framkallaðar hjá Heims- myndum og viðskiptavinurinn fær myndirnar síðan sendar heim í pósti u.þ.b. tveimur dögum síðar. Við- skiptavinurinn fyllir út upplýsingar um sjálfan sig á framköllunarpoka, sem hann fær hjá viðkomandi Olís- bensínstöð, gefrn- þar upp kredit- kortanúmer sitt, en einungis er hægt að greiða með greiðslukorti eða gegn póstkröfu. Heimsmyndir sjá um að sækja filmumar daglega á bensín- stöðvarnar, framkalla þær og senda myndirnar heim til viðskiptavinar- ins. Þá er hægt að fá myndimar á geisladisk, velja um noklo-ar mynd- astærðir og óska eftir aukasetti. Yfir- litsmynd fylgir öllum framköllunum. Bjarni Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Heimsmynda, segir að fyllsta öryggis sé gætt varðandi allar upp- lýsingar um viðskiptavininn og greiðslukort hans, enda sjái engir hvað stendur á framköllunarpokun- um nema starfsmenn Heimsmynda. „ Nú er hægt að skila af sér Ijós- myndafilmum um leið og bensín er sett á bílinn og fólk þarf ekki að koma aftur á sama staðinn til að sækja NÝLEGA vora tvö ný Nesti opnuð á þjónustustöðvum ESSO við Geirs- götu í Reykjavík og Lækjargötu í Hafnarfirði. Nestin era þá orðin fimm talsins - en fyrir vora þau við Artúnshöfða, Gagnveg og Stóra- hjalla Kópavogi. Meðal helstu nýjunga á öllum stöðunum er bakarí - þar sem allt er bakað á staðnum, til dæmis klein- uhringir, vínarbrauð og rúnstykki - Morgunblaðið/Þorkell myndirnar, því þær berast inn um bréfalúguna tveimur dögum síðar,“ segir Bjami. Jóhannes Davíðsson, forstöðu- maður smásöludeildar hjá Olís, segir að framköllunarþjónusta með þessu sniði sé þægileg fyrir nútímafólk og eigi heima á þjónustustöðvum Olís. Hann segir að þjónustustöðvar Olís á Stór-Reykjavíkursvæðinu séu ellefu talsins þannig að þjónustan sé að- gengileg. og pylsubar með pylsuréttum, svo sem beikonvafinni ostapylsu, franskri pylsu og sterkri grillpylsu. í tilefni af opnun nýju staðanna verður boðið upp á ýmsa pylsurétti á tilboðsverði ásamt „tveir fyrir einn“ í bakaríinu á kleinuhringjum, sérbök- uðum vínarbrauðum og ósmurðum rúnstykkjum. Tilboðin gilda í öllum fimm Nestunum til og með miðviku- dagsins 8. nóvember. EINSTAKLINGAR sem panta smávörur á við bækur eða geisla- diska frá útlöndum ættu ekki að láta senda sér vöruna í vinnuna þannig að hægt sé að líta á hana sem sendingu á vegum fyrirtækis heldur beint heim til sín. Með því spara þeir bæði tíma og peninga. Nýlega keypti neytandi bækur hjá fyrirtækinu Amazon á Netinu og lét senda sér þær í vinnuna. Hann fékk tilkynningu um að bækumar væm komnar tii lands- ins og væm hjá íslandspósti á Stórhöfða. Bókakaupandinn lagði leið sína þangað en þar var hon- um sagt að fylla þyrfti út innflutn- ingsskýrslu og fara með hana á skrifstofu tollstjóra í Tryggva- götu ásamt því að hafa meðferðis fylgireikning sem kemur með vörusendingu. Að því búnu þurfti hann að fara á ný upp á Stórhöfða til að sækja bækurnar. Viðskiptavininum var tjáð að til að komast hjá þessum út- réttingum fram og til baka byði íslandspóstur upp á þá þjónustu að sjá um tollskýrslugerðina og senda pakkann til hans fyrir 1.500 krónur. Mistök bókakaupandans vom að láta senda sér bækurnar í vinnuna. Við það fær sendingin ekki einfalda tollmeðferð heldur þarf að gera aðflutningsskýrslu. „Smásendingar sem þessar til einstaklinga eða sem nema allt að 25.000 króna verðmætum era af- greiddar á sama hátt og verið hefur hjá íslandspósti," segir Héðinn Gunnarsson, deildarsijóri flutningaþjónustu milli landa hjá Islandspósti. Hann segir að ekk- ert gjald sé tekið fyrir þá þjón- ustu að tollafgreiða vömna og hún er keyrð heim til viðkomandi. Tollar em greiddir á afhending- arstað með greiðslukorti eða pen- ingum. 250 króna afgreiðslugjald er lagt á allar tollskyldar póst- sendingar eins og verið hefur um árin.° Ef fólk er ekki heima þá er gerð önnur tilraun. Ef ekki tekst að koma sendingu til viðkomandi þá er skilin eftir tilkynning um hvar hægt er að ná í pakkann sem oftast er þá á næsta pósthús. „Það flækir málin að láta senda sér vömrnar í fyrirtæki. Um leið og sá sem pantar lætur senda sér vömrnar í fyrirtæki fellur send- ingin ekki lengur undir smásend- ingar til einstaklinga heldur fyr- irtækis og þá þarf viðkomandi að fylla út innflutningsskýrslur eða láta gera það fyrir sig.“ Karl F. Garðarsson vararíkistollstjóri segir að samkvæmt breyttri reglugerð um póstsendingar frá því í byijun október sl. annist Tollstjórinn í Reykjavík tolla- fgreiðslu póstsendinga í stað fsl- andspósts. Hann segir að í kjölfar þess sé íslandspóstur nú cinkavæddur sem flutningsmiðlari og vörslu- hafl ótollafgreiddra póstsendinga eins og aðrir farmflytjendur. „Pósturinn sér ekki Iengur um tollafgreiðslu póstsendinga fyrir hönd tollyfirvalda heldur vinnur eins og hver annar flutningsmiðl- ari.“ Héðinn segir að í kjölfar þessara reglugerðarbreytinga bjóði Pósturinn nú skilvirkari þjónustu á tollafgreiðslu og hægt sé að velja um tvo kosti falli send- ingar ekki undir smásendingar. Hægt er að skila tollskýrslu til Tollstjórans í Reylyavík. Um leið og tollafgreiðsla fer fram er Islandspósti hf. sent SMT-skeyti úr tölvukerfl tollsins um að send- ing sé laus til afgreiðslu og Póst- urinn sendir pakkann á áfanga- stað. Þá getur fólk fyllt út umboð til tollskýrslugerðar og sent til Islandspósts. Pósturinn sér þá um að gera skýrsluna fyrir fólk fyrir 1.500 krónur, sendir til tollstjóra og pakkinn er sendur til viðkom- andi. N estis-verslanir orðnar fímm talsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.