Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 41
VIKII LM Dulinn drsLumur DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns Mynd/Kristján Kristjánsson Draumurinn hclgi eða var það hel? ENDALAUST má grúska í gömlum skræðum draumaheims- ins og finna nýjan sannleik, nýja vitneskju um sjálfan sig, heiminn og þau öfl sem halda honum á sporbaug. Draumaheimurinn snýst sem eitt af hjólunum í þessum eilífa hring og innan þess hringheims er veröld búin til úr táknum og merkingum sem virð- ast óræð vegna duldar umbúð- anna en verða ótrúlega skýr og skilmerkileg þegar slæðunum er svift af leyndinni sem hvílir á myndbrotumum. Kúnstin við slíkar hamflettingar er fyrst og fremst opinn og virkur hugur. Það sem kemur í ljós þegar draumur er skoðaður er að tákn- ið getur sýnst klárt, meining þess augljós og draumurinn þar með álitinn útlistaður og ráðinn. En taki maður táknið og velti því á ýmsa kanta eða snúi því jafnvel á hvolf eins og myndinni sem fylgir þessum pistli, kemur eitt- hvað allt annað í ljós. Sakleysið uppmálað verður skratti málaður á vegg og draumurinn tekur allt aðra stefnu en í upphafi túlkun- ar, allt önnur Ella er mætt á staðinn og vandi er að spá. Túlk- un á draumi er því ekki bara samsvörun við hlutbundna þætti og kennileiti sem kunnug eru vökunni heldur einnig leit í innri vistarverum mannsins þar sem sjálfið speglar sig í myndhverf- ingum raunverulegs óraunveru- leika, einskonar „súrrealískum" raunveruleika þar sem allt er gert til að blekkja skynjunina en segja samt satt. „í húsi mínu eru margar vistarverur" segir Guð í Biblíunni og vísar væntanlega til síns innra lifs, sama má segja um drauminn en að auki mætti heim- færa tilvitnunina á „StarTrek" sjónvarpsþættina og segja: „í heimi draumsins vistast margar sýndarverur." Draumur „Góu“ Þennan draum dreymdi mig nú síðsumars. Eg gekk upp kirkjutröppumar (í bænum mínum). Eg var í mjög fallegum kjól. Hann var síður, hvítur og skreyttur blúndum, perlum og fleira skrauti (líktist helst brúðarkjól). Á meðan ég gekk upp tröppumar í þessum fína kjól kom hellirigning. Ég varð rennandi blaut en það angr- aði mig ekkert. Fljótlega eftir að ég kom inn í kirkjuna þomaði kjóllinn. Allt fólkið sem statt var í kirkjunni var mjög fínt, rétt eins °g égv þar á meðal besta vinkona mín. Ég settist niður hjá þessu vel klædda fólki og fannst ég vera að bíða eftir einhverju. Rétt í því kom djákni og bað mig að koma aðeins inn með sér. Ég gerði það en langaði samt ekkert til þess. Ég fór með djáknanum upp á kórloftið í kirkjunni. Hann sagði við mig að hann gæti gefið mér vín til þess að ég yrði glaðari. Ég þáði það ekki. Við komum að löngum gangi með mörgum dyr- um. Það var allt mjög dimmt, ekkert Ijós logaði. Djákninn sýndi mér inn í þrjú herbergi og nefndi einhverjar þrjár mismunandi víntegundir. Ékkert sá ég í þess- um herbergjum nema svarthol. Mér fannst þetta frekar ónotaleg tilfinning og h]jóp niður hið snar- asta. Þegar niður var komið sá ég að verið var að sýna leikrit. Ég horfði á góða stund. Margir léku í þessu leikriti og var presturinn okkar leikstjórinn. Allir leikararn- ir héldust í hendur og sungu og dönsuðu. Skynjaði ég brátt að leikritið snerist um að deyða dauðann svo lífið gæti lifað. Mað- urinn sem var í hlutverki dauðans hneig allt í einu niður og dó skömmu síðar. Dauðinn var síðan læstur inni. Þá lifnaði sá sem var í hlutverki lífsins við. „Lífið“ tók í hönd mína og ég ásamt öllum leikurunum dönsuðum og sungum og fögnuðum. Mér leið vel og ég var ánægð. Ráðning Þegar draumar eru skoðaðir er oft betra að vita einhver deili á dreymandanum til að ná áttum í innihaldi draumsins. Stundum má draga saman ákveðinn sann- leika draumsins af aldri dreym- andans líkt og hér. Draumurinn bendir til þess að dreymandinn sé ungur að árum og eigi eftir að mynda sér skoðanir (kjóllinn, rigningin og biðin) á ýmsum hlut- um, taka félagslega (kirkjan) af- stöðu og lýsa upp vistarverur (herbergin) í eigin sál og „mubl- era“. Draumur þinn snýst um þessa þætti en einnig tilfmninga- legt athvarf sem þú virðist eiga í basli með að stíla. Leikritið gefur í skyn að þér finnist þú eins og „fljóta með“ í lífinu og takir ekki þátt (neitaðir víninu). Það sem þú ert svo að grufla og kemur fram í lok draumsins er að þú sért á höttunum eftir einu stykki upp- reisn og ætlir þér að yfirgefa svæðið og breyta um stfl. • Þeir lcsendur sem vifja fá drauma sína birta og ráðna sendi þá mcð fullu nafni, fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni til birtingar til: Draumstafir Kringlunni 1 103 Rcykjavík eða á heimasfðu Draumalandsins h ttp://www. dream land.is. LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 41 (j Lti G G ■lAlk'A.'P oq Z~BRAtJTlR Snriðaðar eftlr ffiátí I, W ©g Hl O o o OB Oð tn AUt l^T*rgh1^íann /V i r I. i r): Heilsulatexdýnur og rafmagnsrúmbotnar Þegar kemur að því að velja rúm -'40Í eða dýnu eru gæðin, úrvalið og /Æí reynslan okkar megin. /ÍM Iðjuþjálfi veitir ráðgjöf milli kl. 11 og 15 í dag. ÁTAK GEGN BRJÓSTAKRABBAMEINI í OKTÓBER 2000 Þökkum öllum þeim sem studdu þetta ESTEE LAUDER CLINIQUE arami s átak ORIGINS Hmbl l.is -A LLTAf= e!TTH\TAO A/YT7— Apstekið íipurð og /ægrc verd 2568.-' Aðeins kr. 184 - pr.dag ApótekiðSmáratofgi-S.564 5600 ApótekBNýkaup Mosfellsbæ*-S. 5667123- ApótekiðSmiðjuvegi-S. 5775600 ApótekiðIðufelli -S. 577 260(t Apótekið Firði Hafnarf.-S. 565 5550 ApótekiðHagkaupSkeifunni-S. 563 5115 Apótekið Suðurströnd - S. 56?4600 Apótekið Spönginni - S. 577 3S00 Apótekið Nýkaup Kringlunni - S. 568 1600 Apótekið Hagkaup Akureyri -S.461 3920
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.