Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Móðir ábyrg fyr- ir hrað- akstri í æf- ingaakstri LÖGREGLAN stöðvaði í bvrjun vik- unnar bifreið sem ekið var á 95 km hraða á klst. á Reykjanesbraut þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km á klst. Bíllinn var merktur til æf- ingaaksturs og ökumaðurinn 16 ára gamall. Með piltinum í bflnum var móðir hans. Að sögn lögreglu er móðir piltsins ábyrg fyrir hraðakstrinum og getur því átt von á sekt frá lögreglu. Hún verður þó ekki svipt ökuréttindum þar sem bifreiðin mældist rétt undir þeim hraða þar sem gripið er til slíkr- ar refsingar. Lögreglán lítur það al- varlegum augum þegar sá sem er ábyrgur fyrir æfingaakstri tekur hlutverk sitt ekki alvarlegar en svo að hann leyfi hraðakstur. Ekki er þó lík- legt að atvikið hafi áhrif á framvindu þess að pilturinn fái ökuréttindi þegar að því kemur, að sögn lögreglu. Sjálfstæðu leikhúsin reka á eftir Samkeppnisstofnun Dregist hefur í heilt ár að afgreiða erindið ur á sóma- heimili ÞRÁTT fyrir að kettir hafi níu líf hætti þessi köttur sér ekki út í rokið. Hann lét sér nægja að fylgjast með út um gluggann enda mun vistlegra innandyra. Á slikum dögum er hvort sem er lít- 111 friður til veiða og bráðin hefur yfirleitt hægt um sig. Jölahlaðborðin vinsæl nú sem fyrr Nær allar helgar bók- aðar tiljóla MIKIL eftirspurn er eftir þvi að komast í jólahlaðborð á veitingahús- unum í ár eins og undanfarin ár og eru staðirnir nú þegar fullbókaðir nær allar helgar fram til jóla. Ber forsvarsmönnum staðanna saman um að það borgi sig að bóka tímanlega. Hinn svokallaði jólahlað- borðstími landsmanna hefst í kring- um 16. nóvember og stendur til og með 23. desember. Einnig er boðið upp á hlaðborð milli jóla og nýárs. I samtölum Morgunblaðsins við forsvarsmenn ýmissa veitingahúsa kemur á daginn að verðhækkun hef- ur orðið á jólahlaðborðum frá síðasta ári og nemur sú hækkun frá 5% til 23%. Hjá mörgum veitingahúsanna er ódýrara að borða á mánudags-, þriðjudags- og miðvikudagskvöldum en öðrum kvöldum vikunnar en þó virðist ávallt ódýrast að borða í há- deginu. ■ Verð/39 SJÁLFSTÆÐU leikhúsin hafa sent frá sér athugasemd þar sem fram kemur að Samkeppnisstofnun hefur ekki enn lokið afgreiðslu erindis sem leikhúsin skiluðu til stofnunar- innar 16. nóvember í fyrra. í erind- inu var farið fram á að stofnunin tæki afstöðu til aðstöðumunar at- vinnuleikhúsa á Islandi og meintra undirboða stofnanaleikhúsanna tveggja, Þjóðleikhússins og Borgar- leikhússins, á aðgöngumiðum á markaði þar sem samkeppni ríkir. í athugasemd sjálfstæðu leikhús- anna segir einnig að greint hafi ver- ið frá því í fjölmiðlum að Dagvist bama keypti fjölda aðgöngumiða af Þjóðleikhúsinu og greiddi 1.200 kr. fyrir hvern miða. Markaðsverð leik- húsmiða sé hins vegar 2.200 til 2.300 krónur og segja sjálfstæðu leikhúsin að þarna fáist „enn staðfest hvernig Þjóðleikhúsið býður aðgöngumiða langt undir markaðsverði". Telja sjálfstæðu leikhúsin gagnrýnivert og óeðlilegt að opinberir styrkir Þjóðleikhússins séu notaðir til að undirbjóða önnur leikhús og koma þannig í veg fyrir eðlilega sam- keppni. Magnús Geir Þórðarson, leikhús- stjóri Leikfélags íslands, segir að sjálfstæðu leikhúsin vilji jafnframt taka það sérstaklega fram að þau telji virðingarvert að Dagvist bama skuli umbuna starfsfólki sínu með því að bjóða því í leikhús. „Betur hefði þó farið á því að fyr- irtækið hefði staðið fyrir útboði og þannig hefði verið hægt að leita lægstu tilboða,“ segir Magnús Geir. Ekki tekist að afgreiða erindið vegna anna Guðmundm- Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs hjá Sam- keppnisstofnun, segir að vegna anna hjá stofnuninni hafi ekki tekist að afgreiða umrætt erindi, en stefnt sé að því að ljúka því sem fyrst. „Frá því að erindið barst er búið að leita upplýsinga bæði hjá Borgar- leikhúsi og Þjóðleikhúsi en það hef- ur dregist að afgreiða málið,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að mikill fjöldi er- inda berist stofnuninni og því verði mörg erindi að bíða afgreiðslu í ein- hvern tíma. „Stundum verðum við að for- gangsraða málum vegna þess að í sumum málum höfum við, lögum samkvæmt, ekki nema afmarkaðan tíma til þess að vinna þau. Til dæmis þarf að afgreiða öll samrunamál á mjög skömmum tíma og þá verður annað oft að bíða á meðan,“ segir Guðmundur. Rikissjónvarpið og Sambíóin undirrituðu samning í gær GENGIÐ hefur verið frá samningi milli Sambíóanna og Ríkisútvarps- ins um kaup Sjónvarpsins á 100 kvikmyndum sem sýndar hafa verið eða verða sýndar í Sambíóunum á næsta ári. Er með því verið að tryggja Sjónvarpinu kvikmyndir sem ekki hafa verið sýndar á öðrum sjónvarpsstöðvum að sögn Lauf- eyjar Guðjónsdóttur, dagskrár- stjóra erlendrar dagskrár Sjón- varpsins. Er miðað við að myndimar verði sýndar um einu og hálfu til tveimur 100 nýjar bíó- myndir keyptar árum eftir að þær hafa verið frumsýndar í bíóhúsum Sambíóanna eins og alþjóðlegar reglur kveða á um. Bjöm Ámason, framkvæmda- stjóri Sambíóanna, segir að ekki hafi verið seldar svo margar myndir í einu til sjónvarpsstöðvanna en þær em flestar frá Bandaríkjunum. Einnig er um að ræða myndir frá Spáni, Frakklandi, Bretlandi ogöðr- um löndum Evrópu. Segir hann að elstu myndirnar hafi verið sýndar í bíóunum fyrir tveimur ámm en þær nýjustu verði sýndar eftir ár eða svo. Hann segir jafnframt að elstu myndimar hafi verið famar að safn- ast saman á lager hjá Sambíóunum og því hafi verið ákveðið að bjóða svo margar myndir til sölu í einu lagi. Að sögn Laufeyjar má búast við að fyrsta myndin verði tekin til sýning- ar í Sjónvarpinu fljótlega. Arnar byrjaður að leika á ný með Leicester/C4 ^ *** BiVgiV Leifur Hafþórsson komst áfram/Cl Sérblöð í dag Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is JliftySÍWfi i „I ju.u C7 JIV ÁLAUGARDÖGUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.