Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 1

Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913 254. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogafundur hugsanlega haldinn í Washington í næstu viku Andstaða við alþjóðlegt gæslulið Washington, SÞ, Gazaborg. AP, AFP. BILL Clinton Bandaríkjaforseti von- ast til þess að eiga fund með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, og Ehud Barak, forsætisráðherra ísra- els, í lok næstu viku en forsetakosn- ingar eru á þriðjudag vestra. ísra- elskú' hermenn skutu að sögn sjón- arvotta flugskeytum á hús í bænum Khan Yunis á Gazasvæðinu í gær eft- ir að komið hafði til bardaga við Pal- estínumenn. Ekki var vitað um manntjón en fyrr um daginn særðust að minnsta kosti 45 Palestínumenn í bænum í átökum við hermenn. Saeb Erekat, einn af helstu samn- ingamönnum Palestínumanna, átti í gær klukkustundar fund með Made- leine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington. Sagði Erekat eftir fundinn að Arafat væri að búa sig undir að halda til Wash- ington á miðvikudag eða fimmtudag. Talið er fullvíst að Barak fari til Bandaríkjanna undir lok næstu viku. Albright ekki hrifín af hugmyndinni Erekat reyndi að fá Sandy Berger, öryggismálaráðgjafa Clintons, og AI- bright til að fallast á þá hugmynd Palestínumanna að sent verði alþjóð- legt friðargæslulið til að halda uppi gæslu á sjálfsstjórnarsvæðunum en hafði ekki erindi sem erfiði. Albright „var á þessu stigi málsins ekki hrifin af hugmyndinni", að sögn Erekats sem lýsti viðræðunum sem „afar hreinskilnislegum“. Á máli stjórnar- erindreka merkir þetta yfirleitt að hart hafi verið deilt. ísraelar eru eindregið á móti því að sent verði al- þjóðlegt lið til friðargæslu á svæð- inu. Albright ræddi við Shlomo Ben- Ami, utanríkisráðherra Israels, á miðvikudag og hvatti til þess að framfylgt yrði ákvæðum friðarsam- komulagsins í Sharm el-Sheikh fyrir skömmu en deiluaðilar saka hvor annan um að hafa brotið samkomu- lagið. Bílsprengja sem palestínsk sam- tök komu fyrir varð tveimur ísrael- um að bana í Jerúsalem á miðviku- dag og varð atburðurinn til þess að nýtt vopnahlé sem samið hafði verið um kom ekki til framkvæmda. Bandaríski utanríkisráðherrann sagði meðal annars í viðræðunum við Erakat að Arafat hefði ekki gert nóg af því að hvetja Palestínumenn til að hætta ofbeldisaðgerðum. Erekat svaraði þvi til að Arafat hefði á fimmtudag tvívegis hvatt til þess op- inberlega að ákvæði samningsins í Sharm el-Sheikh yrðu haldin. Ástæðan fyrir átökunum væri að Israelar hefðu ekki hlítt fyrirmælum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að kalla heri sína heim frá svæð- um Palestínumanna. Einnig reyndu þeir að gera út af við efnahag Palest- ínumanna með því að banna alla um- ferð til og frá borgum á sjálfsstjórn- arsvæðunum. Keuters Palestínumenn biðjast fyrir við Musterishæð í Jerúsalem í gær, eftir að þeim var meinaður aðgangur að al-Aqsa-moskunni á hæðinni, en þar hófust óeirðirnar fyrir fimm vikum. Fjarar uiidan forseta Filippseyja Stefnir í málshöfðun til embættismissis Manila. AFP. FORSETAR beggja þingdeildanna á Filippseyjum og a.m.k. 47 þing- menn sögðu sig úr flokki Josephs Estrada forseta í gær vegna ásak- ana um að hann hefði þegið mútur af ólöglegum veðmálafyrirtækjum. Manuel Villar, forseti fulltrúadeild- ar þingsins, sagði að ljóst væri að tillaga um að höfðað yrði mál á hendur forsetanum til embættis- missis nyti nú nægilegs stuðnings í deildinni. 45 þingmenn í fulltrúadeildinni og tveir öldungadeildarþingmenn sögðu sig úr flokki Estrada, auk Villars og Franklins Drilons, forseta öldungadeildarinnar. A.m.k. þriðjungur fulltrúadeildar- innar, eða 73 þingmenn, þarf að samþykkja málshöfðunartillöguna til að öldungadeildin geti hafið rétt- arhöld í málinu. Stjómarandstaðan segir að 130 fulltrúadeildarþing- menn styðji nú tillöguna. Verði málshöfðunin samþykkt þurfa a.m.k. 16 af 24 þingmönnum öldungadeildarinnar að dæma for- setann sekan til að hann verði svipt- Ólíklegt að ölvunarakst- ur dragi úr fylgi Bush Grand Rapids, Milwaukee, Washington. AFP, AP. NYJUSTU skoðanakannanir í Bandaríkjunum benda til að forsetaframbjóðandi repúblikana, George W. Bush, hafi 3-4% forskot á frambjóð- anda demókrata, varaforsetann AI Gore, en kosn- ingarnar fara fram á þriðjudag. Stjómmálaskýr- endur töldu í gær ólíklegt að uppljóstranir um að Bush hefði verið handtekinn fyrir ölvunarakstur myndu draga úr fylgi hans. Talsmaður Bush staðfesti á fimmtudagskvöld að hann hefði verið handtekinn fyrir ölvunarakst- ur í bænum Kennebunkport í Maine fyrir 24 ámm, eftir að sjónvarpsstöð í ríkinu birti frétt þess efnis. Bush kvaðst í gær aldrei hafa dregið dul á að hann hefði átt við áfengisvanda að stríða á ámm áður og sagðist sjá eftir að hafa keyrt undir áhrifum áfengis. „Ég hef gert ýmis mistök á lífsleiðinni en ég get sagt með stolti að ég hafi lært af þeim,“ sagði frambjóðandinn á kosningafundi í Grand Rapids í Michigan-ríki í gær. Bush sagðist hafa þagað um handtökuna til þessa þar sem hann hefði ekki viljað setja dætram sínum slæmt fordæmi. Atvikið átti sér stað í september árið 1976 þegar Bush var þrítugur. Hann hafði eytt kvöldinu á krá með vinum sínum, skammt frá sumarhúsi fjölskyldunnar, og vakti athygli lögreglumanns er hann ók „of hægt“ á leiðinni heim. Hann ját- aði sig sekan um ölvunarakstur, greiddi 150 dollara sekt og var sviptur ökuleyfi í einn mánuð. Bush hefur áður lýst því yfir að hann hafi tekið ákvörðun um að George W. Bush hætta að drekka áfengi daginn eftir að hann varð fertugur, 6. júlí 1986. Demókratar segjast ekki hafa staðið að uppljóstruninni Bush sagði á fréttamannafundi vegna málsins í gær að það væri „athyglisvert" að fréttinni hefði verið lekið til fjölmiðla nú, aðeins nokkmm dögum fyrir kosningar. Tom Connolly, lögmaður og fram- bjóðandi demókrata í kosningum til embættis rík- isstjóra í Maine fyrir tveimur ámm, lýsti því yfir í gær að hann hefði greint sjónvarpsstöð- inni í Maine frá málinu. í viðtali á CNN- sjónvarpsstöðinni kvaðst Connolly hafa fengið vitneskju um handtöku fram- bjóðandans á miðvikudag og sagðist hafa fundið sig knúinn til að gera málið opin- bert. Hann sagðist ekki vera í neinum tengslum við kosningabaráttu Gores og kvaðst hafa fengið upplýsingar um málið í starfi sínu sem lögmaður. Talsmenn Gores vísuðu því alfarið á bug í gær að Demókrataflokkurinn hefði staðið að uppljóstmninni. Gore sagði sjálfur að ekki væri við hæfi að hann tjáði sig um málið. Stjómmálaskýrendur drógu í gær í efa að málið myndi hafa teljandi áhrif á val kjósenda, þar sem svo langur tími væri liðinn frá handtökunni og Bush hefði strax í upphafi kosningabaráttunnar viðurkennt að hann hefði átt í vandræðum með áfengi og neytti þess ekki lengur. ■ Hvar er Clinton?/30 Joseph Estrada ur embættinu. Tíu öldungadeildar- þingmenn eru nú taldir hlynntir því að Estrada láti af embætti. Forsetinn áréttaði í gær að hann hygðist ekki segja af sér. Noregur Sjúklingar í aðgerð eriendis YFIRVÖLD heilbrigðismála í Noregi em um þessar mundir að ganga frá samningum við heilbrigðisyfirvöld í Þýskalandi, Hollandi og Frakklandi um að þau taki að sér ýmis læknisverk og aðgerðir á norskum sjúkling- um. I Noregi em biðlistamir mjög langir og lengjast stöðugt. Næstum 290.000 manns era á biðlista eftir aðgerð á norskum sjúkrahúsum og hefur þeim fjölgað um 20.000 á fáum mán- uðum að því er fram kemur í Aítenposten. Um 25.000 þeirra eiga að hafa tryggingu íyrir því að aðgerðin fari fram innan þriggja mánaða en við það hefur ekki verið unnt að standa. Á það til dæmis við um 29% þeirra sem bíða eftir bæklunaraðgerð. Mikil umræða var um þessi mál á norska Stórþinginu í fyrradag. MORGUNBLAÐIÐ 4. NÓVEMBER 2000 5 690900 090000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.