Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 48
t8 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Við flutningana í Skeifuna 6 kom ýmislegt eigulegt í ljós úr kjallaranum; stólar, lampar, sófar, borð, efnisbútar o.fl. Allt selt á ótrú- lega hagstæðu verði. i opið laugardag kl. 10-14 CfXll Skeifunni 6, sími 568 7733. > Trjáplöntur - runnar j - túnþökur - sumarblóm Veröhrun á eftirtöldum tegundum meðan birgðir endast: Ruhnamura kr. 340. Gljámispiil kr. 160-180. Alparifs kr. 190. Blátoppur kr. 220-380. Birki kr. 240-290. Hansarós kr. 390. Rifeberjarunnar kr. 650. FjallaPura kr. 1.200. Birkikvistur kr. 290. Sírena kr. 390. Yllír kr. 350. Sólbroddur kr. 300. Skriðmispill kr. 340. Rauðblaðarós kr. 300. Himalayaeinir kr. 900-1.600. Gljávíðir kr. 85-110. Dökk viðja kr. 79. Brekkuvíðir kr. 79. Hreggstaðavíðir kr. 79-110. Aspir kr. 490. Verðhrun á Alaskavíði, brúnn, (tröllaviðir) kr. 69. Einnig túnþökur, sóttar á staðinn kr. 80 eða fluttar heim kr. 110. Mjög hagstætt verð. Verið velkomin. Trjáplöntu- og túnþökusalan, Núpum, öitusí. (Beygt til hægri við Hveragerði). Sími 892 0388 og 483 4388. Opiðtil kl. 17 Fk V Kynnum í dag allt það nýjasta frá /. a. E ye works SJAÐU 'fr t\VV Laugavegi 40 s. 561 0075 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ábending til atvinnu- rekenda ÞRÖSTUR hafði samband við Velvakanda og var hann óhress með að at- vinnurekendur, sem hann hefur sótt um vinnu hjá og farið í viðtal til, hafa ekki sýnt þá kurteisi að láta hann vita um árangur viðtalsins eða svara at- vinnuumsóknum. Hann segir að oft þurfi hann að bíða dögum saman eftir að vita hvemig farið hafi og sæki jafnvel ekki um vinnu hjá öðrum á meðan. Hann vill beina þeim til- mælum til atvinnurekenda hvort ekki sé hægt að sýna þá kurteisi að láta fólk vita eins fljótt og hægt er um árangur viðtals eða um- sóknar. Skrif um landbúnað og landeyðingu ÞÓRUNN vildi koma að athugasemd til þeirra sem eru að skrifa um landbún- að og gróðureyðingu. Hún vill að þeir sem skrifi um þessi mál kynni sér þau betur. Hún er mest óánægð með að sauðfénu sé kennt um allt, þótt það eigi mikla sök á gróðureyð- ingu eigi það ekki alla sök. Eins vildi hún koma því að, að henni fínnst bændur hafa gert mikið í því að rækta upp landsvæði. Hún er mikið á móti þessum skrifum og fínnst þau ekki rétt, landbúnaður sé það sem við höfum lifað af í margar aldir. Þórunn. Tapað/fundið Karlmannsgler- augu töpuðust KARLMANN SGLER- augu í hörðu hulstri töpuð- ust á leiðinni úr Skeifunni að Laugavegs Apóteki eða frá Lækjartorgi að Mjódd. Skilvís finnandi vinsam- lega hringið í síma 564-3329. Hver tók hattinn? GRÁR hattur var tekinn í misgripum í Laugames- kirkju miðvikudaginn 4. júní, annar mjög líkur skil- inn eftir. Viðkomandi er góðfúslega beðinn að at- huga hattinn sinn og hringja í Elsu í síma 568-5278 eða 588-9422, eða Daníel í síma 554-0322. GSM-sími tapaðist GSM-sími, Orbitel 905, tapaðist 24. maí annaðhvort á Bíóbamum eða í nágrenni. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 553-7749. Fundarlaun. Kerra fannst REGNHLÍFAKERRA fannst við Básenda í lok maí. Uppl. í síma 553-5796. Dýrahald Kettlingar NÍU vikna kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 564-2128. Kul Morgnnbladið/Árni Sæberg Hringbraut malbikuð í blíðviðrinu í gær Víkveiji skrifar... > IMORGUNBLAÐINU á fimmtu- dag er ágæt grein eftir fimm hjúkrunarfræðinga um hlutskipti foreldra fatlaðra barna. Það vakti hins vegar athygli Víkverja að rann- sóknin, sem greinin segir frá, er byggð á viðtölum við fimm mæður fatlaðra barna. Af hveiju fimm mæður en engan föður? Eiga börn- in ekki feður? Víkveiji virðir þó við hjúkrunarfræðingana að þær skuli birta Ijóð eftir föður í lok greinar- innar. í nýju hefti Nýs lífs er líka grein með góðum ráðleggingum fyrir mæður ungbarna sem eru svefn- lausar af því að sinna þeim á nótt- unni. Samkvæmt þessari grein er það hlutverk feðra barnanna að „hjálpa“ mæðrunum. Víkverji þekk- ir nú engu að síður marga feður, sem vakna ekki síður til barnanna á nóttunni en mæðurnar og er það kappsmál að taka þátt í umönnun þeirra til jafns við konur sínar. Stundum eru þeir líka svefnlausir, ekki sízt af því að þeir fá ekki fæð- ingarorlof og verða að mæta í vinn- una að morgni. xxx AÐ er undarlega útbreitt við- horf að það séu nánast ein- göngu mæður barna, sem bera ábyrgð á þeim, uppeldi þeirra og umönnun. Það er hugsanlega hægt að réttlæta efnistök hjúkrunarfræð- inganna, ritstjórnar Nýs lífs og allra hinna, sem hafa ekki breytt þessu viðhorfi sínu, með því að á meiri- hluta heimila sé það ennþá konan, sem axlar meginábyrgðina á börn- unum. En þeim fjölskyldum fjölgar, þar sem foreldrar skipta ábyrgðinni jafnt. Og sannarlega er ekki stuðlað að því að karlar sinni umönnun barnanna sinna með því að horfa fram hjá þeim, tala ekki við þá eða setja þá í hlutverk aðstoðarmanna. xxx KUNNINGI Víkveija hafði á orði við hann að betl væri farið að setja leiðinlegan svip á fjöl- farna staði á borð við Lækjartorg og Kringluna. Víkveiji hváði í fyrstu og útskýrði kunninginn þá að ung- lingar, sem halda til á þessum stöð- um, gengju gjarnan að fullorðnu fólki og bæðu um „lán“ til að borga far með strætisvagni eða um að fá „lánaða" sígarettu. í ljósi þess að einkar ólíklegt væri að bláókunnugt fólk fengi „lánið“ nokkurn tímann endurgreitt væri þetta í raun ekki annað en betl. xxx ENDURBÆTUR þær sem gerð- ar voru á Ingólfstorgi fyrir nokkrum árum heppnuðust að flestu leyti mjög vel og vonandi verður endurgerð Austurstrætis, sem nú er unnið að, til að auðga mannlíf í gamla miðbænum. Eitt er það þó sem torveldar fólki mjög að njóta mannlífsins á Ingólfstorgi. Torgið hefur bókstaflega verið hernumið af unglingum, sem virð- ast líta á þennan blett í miðbænum sem æfingastað fyrir hjólabretta- kúnstir. Víkveiji hefur í sjálfu sér ekkert á móti því að þessir krakkar leiki sér á hjólabrettum. Það er hins vegar með öllu óviðunandi að eitt helsta torg miðbæjarins sé lagt undir þessa iðju og þannig að oft stafar vegfarendum stórhætta af, ekki síst börnum. Unglingarnir virðast ekkert tillit taka til annarra vegfarenda og bruna um torgið eins og þeim sýnist. Jafnvel kemur fyrir að sorptunnur úr nágrenninu séu teknar ófijálsri hendi og notaðar sem hindranir til að stökkva yfir. Tunnunum er komið fyrir á braut- um sem alla jafna á að nota fyrir barnavagna, hjólastóla eða reiðhjól. Varð Víkveiji vitni að því um síð- ustu helgi að hjón með barn, sem voru úti að spóka sig í góða veðr- inu, ýttu ruslatunnu frá til að kom- ast niður á torgið. Var veitzt að þeim með skömmum og dónalegu handapati af hjólabrettaliðinu. Er ekki komin tími til að borgaryfir- völd grípi í taumana?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.