Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ URVERINU t Öflugt fyrirtæki verður til með sameiningu Hraðfrystihússins í Hnífsdal og Frosta í Súðavík M ’EÐ sameiningu Hrað- frystihússins í Hnífs- dal, dótturfyrirtækis þess, Miðfells, sem gerir út ísfisktogarann Pál Pálsson IS, og Frosta í Súðavík verður til öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem leggja mun áherslu á bolflsk- og rækjuveiðar, landvinnslu og sjó- frystingu. Nýja fyrirtækið, sem nú heitir Hraðfrystihúsið hf., verð- ur næststærsta sjávarútvegsfyrir- tækið á Vestfjörðum með um sjö þúsund þorskígildistonna kvóta og tveggja milljarða króna veltu. Kvótinn kemur nánast að jöfnu frá hvoru fyrirtækinu um sig í þorsk- ígildum talið. Heildarmatsvirði nýja félagsins fæst ekki uppgefið fyrr en að afloknum hluthafafundi, en verð- mætið liggur fyrst og fremst í kvótum, skipum og framleiðslu- tækjum. Eigið fé félagsins verður yfir 65% miðað við endurmetinn efnahag. í krónum talið þýðir það 3,5 til 4 milljarða króna, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Við endurmat er kvótinn upp- reiknaður samkvæmt verðlagi kvóta á markaði, skip félagsins eru uppreiknuð samkvæmt mats- aðferðum, tekið er ákveðið hlut- fall af brunabótamati fasteigna og vélar og tæki eru reiknuð inn í samrunann samkvæmt bókfærðu verði. Könnunarviðræður áttu sér stað við fleiri félög Forsvarsmenn Hraðfrystihúss- ins í Hnífsdal hafa nú hátt í tvö ár verið að skoða með hvaða hætti hægt væri að skjóta fleiri stoðum undir rekstur félagsins. Skoðaðir hafa verið ýmsir möguleikar. Fé- lagið hefur tekið þátt í stórum viðræðuhópi fyrir vestan sem verið hefur í gangi undanfarin misseri og auk sameiningarviðræðna við Frosta í Súðavík hafa þreifingar í átt að sameiningu átt sér m.a. stað við Kamb á Flateyn, Bakka í Hnífsdal, íshúsfélag ísfirðinga og Gunnvöru. „Við lit- ------ um til þess að Frosti átti ákaflega góða rækjuverksmiðju og góð skip sem aukið gætu rekstraröryggi okkar. Ef illa gengur í einni greininni má auka þungann í hinni. Besta byggða- stefnan fólgin í efl- ingu atvinnulí fsins Samningur um sameiningu Hraðfrysti- hússins í Hnífsdal, dótturfyrirtækisins Miðfells og Frosta í Súðavík verður lagð- ur fyrir eigendur til samþykkis eða synj- unar á hluthafafundi síðar í mánuðinum. Forsvarsmenn gömlu fyrirtækjanna tjáðu Jóhönnu Ingvarsdóttur að styrkari stoðum yrði rennt undir reksturinn með því að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni. Kvótahæstu fyrirtækin Kvóti í þorskígildum 1996/97 Haraldur Böðvarsson og Miðnes tonn 21.239 Þormóður rammi Sæberg 20.000 Samherji 19.103 Grandi 16.101 Útgerðafélag Akureyringa 15.757 Vinnsiustöðin og Meitlllinn 13.510 Síldarvinnslan 10.835 ísfélag Vestmannaeyja 9.295 Hraðfrystihús Eskifjarðar 7.368 Hraðfrystihúsið í Hnífsdal og Súðavík 7.000 Einn ísfisktogari og tvö frystiskip í eigu nýja félagsins eru þijú skip, ísfisktogarinn Páll Pálsson, sem áður tilheyrði Miðfelli, og frystitogaramir Bessi og Andey sem áður tilheyrðu Frosta. í Hnífs- dal verður áfram rekin bolfisk- vinnsla og í Súðavík hefur verið byggð upp ein fullkomnasta rækjuverksmiðja landsins. Hjáfyr- irtækjunum tveimur starfa nú um 200 manns. Forsvarsmenn nýja félagsins gera ekki ráð fyrir að fækka þurfi fólki. Þvert á móti vonast þeir til að hinu sameinaða fyrirtæki megi vaxa fískur um hrygg. Allar framtíðaráætlanir bíða hinsvegar nýrrar stjórnar sem ekki verður kosin fyrr en síðar í sumar eða á fyrsta aðalfundi fé- lagsins að afloknum hluthafafundi sem að líkindum fer fram í ágúst- mánuði. Aðaluppistaðan í kvóta nýja fé- lagsins er þorskur og rækja. Sam- tals er hið sameinaða félag með 1.895 tonn af þorski, 433 tonn af ýsu, 437 tonn af ufsa, 915 tonn af karfa, 211 tonn af steinbít, 444 tonn af grálúðu, 83 tonn af skar- kola, 1.220 tonn af síld, 1.962 tonn af úthafsrækju, 112 tonn af rækju á Flæmingjagrunni og 105 tonn af úthafskarfa. HNIFSDALUR SUÐAVIK EIGNIR HRAÐFRYSTIHUSSINS OG MIÐFELLS: EIGNIR FROSTA í SÚÐAVÍK: ísfisktogarinn Páll Pálsson ÍS Frystihús Veiðafærageymsla Verkstæðishús Mjölvinnsla á móti íshúsfél. ísfirð Frystiklefi á ísafirði Frystitogararnir Bessi og Andey ÍS Rækjuverksmiðja Frystiklefi Verðbúðir á Langeyri Kassageymsla Aflaheimildir Hraðfrystihússins hf. Miðfell hf. útgerð ísfisktogarans Páls Pálssonar ÍS Þorskur 1.540 tonn Ýsa 320 tonn Ufsi 310tonn Karfi 318tonn Steinbítur 175tonn Grálúða 205 tonn Skarkoli 62 tonn Síld 1.220 tonn Úthafsrækia 170 tonn Frosti hf. útgerð frystitogaranna Bessa IS og Andeyjar ÍS Þorskur 355 tonn Ýsa 113tonn Ufsi 127 tonn Karfi 597 tonn Steinbítur 36 tonn Grálúða 239 tonn Skarkoli 21tonn Úthafsrækja 1.792 tonn Rækja á Flæminqjaqr. 112tonn Úthafskarfi 105tonn Tæplega 80 hluthafar voru eig- endur Hraðfrystihússins í Hnífsdal sem aftur átti 80% í Miðfelli. 20% í Miðfelli skiptast á einstaklinga sem eru flestir þeir sömu og eiga í hraðfrystihúsinu. Hluthafarnir skiptast að mestu upp í fjórar hlut- hafablokkir. Hnífsdælingar nokkuð stærri í samrunanum Fyrir liggurað hlutur Hnífs- dælinga verð- ur stærri en Súðvíkinga Ekki er talið æskilegt að hafa öll eggin í sömu körfunni," segir Einar Valur Kristjánsson stjómarformaður Hraðfrystihússins í Hnífsdal. Fyrir liggur hver eignarhlutur aðila verður í nýja félaginu, en sú skipting fæst ekki gefin nákvæmt -------- upp fyrr en að loknum hluthafafundi. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins má ætla að hlutur Hnífs- dælinga í samrunanum sé nokkru meiri en hlutur Súðvíkinga og má því gera ráð fyrir að eigendur Hnífsdalshússins verði með fleiri menn í stjóm félagsins en eigend- ur Frosta. Stærsti einstaki hlut- hafinn í nýja félaginu verður Súða- víkurhreppur með eignarhlut rétt innan við 20%. „Við ætlum ekki að opinbera þessi hlutföll strax enda þykir okkur eðlilegt að eigendurnir fái þau fyrst í hendur. Menn em samt búnir að skrifa undir og stjómir félaganna em sammála um skipt- inguna þótt hluthöfum hafí ekki verið kynnt sú niðurstaða lið fyrir lið. Það er aftur á móti ákveðið sammnaferli farið í gang og ber að leggja samninginn fyrir hlut- hafa í síðasta lagi fyrir 30. júní til skoðunar. Fyrr get ég ekki upplýst um skiptinguna á milli ein- stakra eignaraðila í nýja félag- inu,“ segir Einar Valur. Hömlur hafa hingað til verið á meðferð hlutabréfa í Hraðfrysti- húsinu í Hnífsdal og í Frosta þann- ig að við sölu bréfa nutu aðrir hluthafar forkaupsréttar í tiltek- inn tíma í réttu hlutfalli við eignar- aðild. Nú er hinsvegar stefnt að því að opna nýja hlutafélagið og að hlutabréf í því verði boðin til „Virði félagsins hækkar vænt- anlega við það að setja fyrirtækið á opinn markað ef við náum þeim markmiðum að hagræða í rekstri. í því sambandi felst mest hagræð- ing í útgerðinni þótt enn eigi eftir að skoða þann þátt, ------------- sem bíður nýrrar stjómar, enda göngum við alveg óbundnir í þetta samstarf. Við ætlum ekki að fá hækkun út á samein- inguna eina, heldur er, hvenær sem er, og ef við stönd- um okkur, þá er ég ekki í nokkmm vafa um að virði félagsins 'hækk- ar. Kostir þess að vera á opnum hlutabréfamarkaði eru margfalt fleiri en gallarnir. Við erum að svara kalli nútímans þótt við séum síður en svo búin að gleyma frum- heijunum, sem drógu vagninn af stað. Við trúum því að við séum að gera gott fyrirtæki betra,“ seg- ir Einar. Löngu gjaldfallin skuld upp á 60-80 milljónir sölu á Opna tilboðsmarkaðnum þegar samranaferlinu verður lok- ið. Búast má fastlega við því að í kjölfarið aukist verðmæti félags- ins, eins og dæmin hafa sannað. Erum að svara kalli nútímans Langstærstu hluthafablokkirn- ar í Frosta vom Súðavíkurhreppur með 43% eignaraðild og Togs- mennirnir svokölluðu með 45%, en Tog hf. var stofnað árið 1986 sem eignarhaldsfélag um hlut fímm- menningana svokölluðu sem verið hafa ráðandi í fyrirtækinu allt frá þessum tíma er þeir keyptu hluta- bréf Barkar Árnasonar og Krist- jáns Kristjánssonar, sem verið höfðu stórir eignaraðilar í félag- inu, en á þessum tíma óskuðu þeir eftir því að fá að ganga út. Félagið leysti til sín hlutabréfin sem lágu þar inni óseld. Þá átti félagið mjög stóran hlut í sjálfu sér þó reglum hafí verið breytt á þá lund að félög mega nú ekki eiga meira en 10% í sjálfu sér. Hlutabréfín höfðu verið auglýst til sölu og þess vænst að þorpsbú- ar myndu sýna áhuga á kaupum. Það gekk aðeins í litlum mæli eft- ir með þeim afleiðingum að fimm menn ákváðu að stofna eignar- haldsfélagið Tog hf. um hluta- bréfakaupin í Frosta. Fimmmenn- ingarnir eru: Auðunn Karlsson stjórnarformaður, Barði Ingi- bjartsson skipstjóri á Bessanum, Jóhann R. Símonarson fyrmm skipstjóri á Bessa, Ingimar Hall- dórsson framkvæmdastjóri og Jón- atan Ingi Ásgeirsson skipstjóri á Andey. Við kaupin greiddu fímmmenn- ingarnir um það bil helming af andvirði bréfanna og var afgang- urinn settur á skuldabréf, sem greiðast átti upp á sjö ámm með jöfnum afborgunum. Af því bréfí hafði aldrei verið greitt fyrr en skömmu fyrir áramót að fímm- menningarnir greiddu upp sína skuld að fullu og öllu við Frosta hf. með áföllnum dráttarvöxtum enda bréfíð löngu gjaldfallið. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þeir fjármunir fengnir að láni hjá Landsbanka íslands og hleypur upphæðin á 60-80 milljónum króna. Hreppurinn sem minni- hlutaeigandi í Frosta beitti hluta- félagalögum fyrir sig og beindi erindi til fyrirtækisins sl. haust þar sem óskað var eftir því að félagið sæi svo um að ógreitt hlut- afé yrði innheimt. „Þessum kafla málsins er sem betur fer lokið og er ég mjög sáttur við þau kafla- skipti, segir Ágúst Kr. Bjömsson sveitarstjóri í Súðavík. Nýja félagið býr yfir miklum innri krafti Virði félags- ins hækkar væntanlega á opnum hluta- bréfamarkaði ætlum við að gera fyrirtækið betra og öflugra svo það geti orðið áhugaverður kostur fyrir fjárfesta. Með því að opna það geta menn keypt og selt bréf hveijum sem | I f I t í I l i I ( ! I I I i I „Fjölbreytt samsett fyrirtæki hafa verið að standa sig vel á íslenskum markaði. Ég er mjög stoltur af þessari niðurstöðu, ekki aðeins fyrir hönd Súðvíkinga og Hnífsdælinga heldur raunar fyrir hönd allra íbúa á norðanverðum Vestfjörðum. Það er orðið mjög mikilvægt að menn stilli saman strengi innan þessa atvinnu- og byggða- svæðis. Besta byggða- stefnan er fólgin í efl- ingu atvinnulífsins. Hvergi á landinu fjölg- aði fólki jafnmikið og í Súðavík á síðasta I, f ári, eða um 11%, þrátt fyrir að snjóflóð hafi tekið sinn toll árið á undan sem leiddi jafnframt til brottflutnings aðstandenda hinna látnu frá svæðinu í kjölfarið. Okk- fl I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.