Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR + Rósa Magnús- dóttir fæddist í Hólkoti í Sandgerði 2. september 1917. Hún lést á sjúkra- húsi Keflavíkur að morgni 30. maí síð- astliðinn. Foreldr- ar hennar voru þau Magnús Kristinn Sigurðsson, f. 15. ágúst 1891, d. 12. janúar 1968, og Rósa Einarsdóttir, f. 10. janúar 1900, d. 13. nóvember 1993. Rósa var elst í systkinahópnum, á eftir henni komu: óskirður drengur, Guð- jón f. 1920, d. 1978, Einarína, f. 1922, og Sigurður, f. 1924, d. 1931. Árið 1940 giftist Rósa Sig- urði Björnssyni skip- stjóra frá Siglufirði, f. 27. maí 1917, d. 12. febrúar 1944, og átti með honum þrjá syni, þeir eru: Sig- urður Kristinn, stýri- maður, f. 8júlí 1940, d. 4. maí 1996, Guðni Magnús, lögreglu- þjónn í Keflavík, f. 15. september 1941, og Björn Zophanías, múrari í Reykjavík, f. 29. nóvember 1942. Rósa giftist aftur Braga Björnssyni, skipstjóra í Sandgerði, f. 24.janúar 1922, d. 2. ágúst 1986 og átti með honum þijú börn, þau eru: Sigríður, bóndi á Síreksstöðum, f. 28. október 1949, Lilja, hárgreiðslu- meistari, f. 17. janúar 1951 og Guðjón f. 22. desember 1952. Útför Rósu fer fram frá Hvalsneskiiju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Drottinn, þegar þú mig kalla þessum heimi virðist frá, hvar sem loksins fæ ég falla fótskör þína liðinn á, hlífi sálu hjálpráð þitt, hold í friði geymist mitt, unz það birtist engla líki ummyndað í dýrðar riki. (Bjöm Halldórsson frá Laufási) Elsku amma okkar. Nú er komið að kveðjustund hjá okkur og við viljum þakka þér fyr- ir þær gleðiríku stundir sem við áttum með þér á Suðurgötunni í Sandgerði. Heimili þitt stóð okkur ætíð opið og þar var alltaf að finna mikla umhyggju og hlýju. Þú barst hag okkar ætíð fyrir bijósti og lést skoðanir þínar óhikað í ljós. Þú sast aldrei auðum höndum enda var alltaf til nóg af góðgæti á heimilinu þegar gesti bar að garði og enginn fór svangur úr þínum húsum. Mörgum stundum var varið við pijónavélina og ekk- ert okkar gæti nokkru sinni gleymt sokkabuxunum og ullarnærfötun- um frá ömmu. Þau hafa gert sitt gagn í kuldanum á veturna. A Suðurgötunni var oft margt um manninn enda varstu dugleg að halda utan um þessa stóru fjöl- skyldu. Það gaf jólunum sérstakan brag þegar að því kom að fara heim til þín að baka flatkökur. Þar safnaðist öll fjölskyldan saman til þess að taka þátt í bakstrinum (en flestir þó aðallega til þess að gæða sér á nýbökuðum flatkökunum). Þú varst ekki hávaxin kona en hafðir stórt hjarta og varst svo virðuleg og barst höfuðið hátt sama hvað á dundi. Þrautseigja þín og þijóska er okkur afar minni- stæð enda virðist það vera arf- gengur eiginleiki. Brosin þín og ljúfar minningar ylja okkur um hjartarætur nú þeg- ar við kveðjum þig, elsku amma okkar. Við biðjum engla Guðs að vernda þig. Ástarkveðjur. Barnabörn. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasima 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. RÓSA MAGNÚSDÓTTIR ATVINNU- AUGLÝSINGAR Grunnskólakennarar Lausar eru til umsóknar tvær kennarastöður við Dalvíkurskóla. Kennslugreinar: Handavinna, íþróttir, heimilisfræði og almenn bekkjarkennsla. í skólanum eru um 280 nemendur í 1.—10. bekk. Við auglýsum eftir metnaðarfullu og áhuga- sömu fólki sem vill vinna með okkur að þróun- ar- og uppbyggingarstarfi. Starfsfólki skólans gefst kostur á að sækja námskeið innanlands og utan. í skólanum ríkir góður starfsandi, starfsaðstaða er góð og vel ertekið á móti nýju starfsfólki. Upplýsingar um stöðurnar, húsnæði o.fl. gefur skólastjóri í síma 466 1380 (81) og í síma 466 1162. asByrgi Trésmiðir/kranamenn Byrgi ehf. óskar eftir starfsmönnum í eftirfar- andi störf: Trésmiði vana flekamótum, trésmiði í almenna trésmiðavinnu og kranamenn á byggingarkrana. Upplýsingar í símum 896 5207 og 564 3107. Atvinna óskast Reglusamur, tvítugur maður óskar eftir vinnu í Reykjavíkfrá 1. september. Hefur búfræðipróf frá Bændaskólanum á Hvanneyri og vinnuvéla- próf. Meðmæli geta fýlgt. Tekur það sem býðst. Upplýsingar í síma 478 1063 eftir kl. 19, Stefán. INIAUQUIMGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Miðbraut 12, Vopnafirði, þingl. eig. Þorsteinn Höjgaard Einarsson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands og Rafmagnsveitur ríkisins, 12. júní 1997 kl. 15.00. Miðgarður 3a, Egilsstöðum, þingl. eig. Margrét Gísladóttir og Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Kringlan hf„ fjárfestingarfélag, 12. júní 1997 kl. 11.00. Refsstaður II, Vopnafirði, þingl. eig. Ólína Valdís Rúnarsdóttir, gerð- arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, 12. júní 1997 kl. 14.00. Túngata 17, Seyðisfirði, þingl. eig. Þórarinn S. Andrésson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður Austurlands, 13. júni 1997 kl. 14.00. 6. júní 1997. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Ólafsvegi 3, Ólafs- firði, fimmtudaginn 12. júní nk. ki. 10.00 á neðangreindum eign- um: Aðalgata 32, Ólafsfirði, þinglýst eign Konráðs Þ. Sigurðssonar, eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Kirkjuvegur 13, Ólafsfirði, þinglýst eign Ragnars Þórs Björnssonar og Kamillu Ragnarsdóttur, eftir kröfu Byggingarsjóðs rikisins. Kirkjuvegur 18, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Grétars Hólm Gíslasonar, eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins, húsbréfadeild. Páls-Bergsgata 3, Ólafsfirði, þinglýst eign Stíganda hf„ eftir kröfum Byggðastofnunar og Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Ólafsfirði, 4. júni 1997. Sýslumaðurinn í Ólafsfirði, Björn Rögnvaldsson. KEMIMSLA KENNARAHÁSKÓLI ÍSLANDS Áttu erfitt með stafsetningu? Sumarnámskeið í stafsetningu í Lestrar- miðstöð Kennaraháskóla íslands. Sumamámskeiðfyrirframhaldsskólanemend- ur, sem vilja bæta sig í stafsetningu, hefst 10. júní og lýkur 17. júlí. Námskeiðsdagar eru þessir: 10., 11., 12., 19., 24. og 26. júní og 1., 3., 8., 9., 10., 15., 16., 17. júlí. Kennsla fer fram frá kl. 18:30—19:40. Námskeiðið er einkum ætlað þeim, sem eru með lestrarerfiðleika eða voru lengi að ná tök- um á lestri. Nánari upplýsingar um námskeiðið og skrán- ing á það er í síma 563 3868 mánudaginn 9. júníkl. 14.00-16.00. TILKYIMIMIIMGAR Auglýsendur athugið breyttan skilafrest! Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudag. Auglýsingadeild Sími 569 1111 • simbréf 569 1110 netfang: augl@mbl.is Styrkur til framhaldsnáms Stjórn Minningarsjóðs Karls J. Sighvats- sonar augiýsir styrk til framhaldsnáms í orgel- eða hljómborðsleik. Umsækjendur skulu tilgreina fullt nafn, kennitölu, fyrra nám, fyrirhugað nám og hvar og hvenær nám hefst. Umsóknum skal skilað til Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, Sólvhólsgötu 13, 101 Reykjavík, fyrir 1. júlí nk. Sjóðsstjórn. HÚSIMÆQI ÓSKAST 3ja—4ra herbergja íbúð Þrjú reglusöm ungmenni óska eftir íbúð í Reykjavíksem næst Fjölbrautaskólanum í Breiðholti frá og með 25. ágúst. Upplýsingar í síma 478 1063 eftir kl. 19.00, Þórey, Stefán, Ingunn. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Dagsferðir sunnudaginn 8. júní: Fjailasyrpan, 3. áfangi. Gengið á Botnssúlur frá Svarta- gili í Þingvallasveit. Verð kr. 1.500. Brottförfrá BSÍ kl. 10.30. Sunnudaginn 8. júní: Árganga. Gengið frá Svartagili inn Öxar- árdai. Verð kr. 1.500. Brottför frá BS[ kl. 10.30. í fjallaspyrpum Útivistar er gengið á valin fjöll og jafnframt er boðið upp á láglendisgöngu meðfram á í nágrenninu. Fjallasyrpan er að jafnaði á dag- skrá annan hvern sunnudag. Jónsmessuferðir 20.-22. júni: Fimmvörðuháls, sólstöðuganga. 20.-22. júní: Snæfellsnes, sólstöðuganga. Kynnið ykkur ferðaáætlunina á heimasíðu Útivistar: http://www.centrum.is/utivist FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagur 8. júní: 1) Kl. 10.30: Botnadalur — Nesjahraun — Grámelur. 2. áfangi í 70 km göngu. Verð kr. 1.200. Fararstjóri Björn Finnsson. 2) Kl. 13.00: Hengilssvæðið, eyðibýli og sel (Gamla sel við Selhól og Nýjasel við Sel- tungur). Verð kr. 1.200. Farar- stjóri: Sigurður Hannesson á Villingavatni. Brottför frá Umferöarmiðstöð- inni, austanmegin og Mörkinni 6. FERÐAFÉLAG # ÍSIANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Dagsferðir Ferðafélags íslands 1) Kl. 9.00: Á söguslóðir Njálu. Leiðsögumaður: Ragn- heiður Erla Bjarnadóttir. Atburðii í Njálu rifjaðir upp um leið og komið verður við á helstu sögu- stööum. Fróðleg ferð á vit fortíð- ar. Verð kr. 2.500. 2) Kl. 20.00: Kvöldganga á Esju (Kerhólakambur 856 m). Fararstjóri: Sigrún Huld Þor- grímsdóttir. Sunnudagur 8. júní: 1) Kl. 10.30: Botnadalur — Nesjahraun — Grámelur. 2. áfangi i 70 km göngu. Verð kr. 1.200. Fararstjóri Björn Finnsson. 2) Kl. 13.00: Hengilssvæðið, eyðibýli og sel (Gamla sel við Selhól og Nýjasel við Sel- tungur). Verð kr. 1.200. Farar- stjóri: Sigurður Hannesson á Villingavatni. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin og Mörkinni 6. lífflhjólp Opið hús í dag kl. 14—17 er opið hús í Þrí- búðum, félagsmiðstöð Sam- hjálpar, Hverfisgötu 42. Lítið inr og rabbið um daginn og veginn. Heitt kaffi á könnunni. Marc Bemmel frá Hollandi leikur einleik á píanó. Kl. 15.30 tök- um við lagið saman og syngj- um kóra. Takið með ykkur gesti. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Samhjálp. Dalvegi 24, Kópavogi Almenn samkoma í dag kl. 14.00. Allir hjartanlega velkomnir. 3Ator0niiiiIfllhtíh - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.