Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 EGILSTAÐIR MORGUNBLAÐIÐ Egilsstaðabúar minnast þess að fimmtíu ár eru liðin frá stofnun kauptúnsins Þjónustubær á krossgötum Morgunblaðið/Helgi Bjamason HELGI Halldórsson, bæjarsljóri og formaður afmælisnefndar Egilsstaðabæjar, er bjartsýnn á áframhaldandi uppbyggingu. Egilsstaðir vaxa jafnt og þétt og íbúunum fjölgar þrátt fyrir al- mennan byggðavanda á Austfjörðum. Helgi Halldórsson bæjarstjóri segir þróunina sýna að þar sé gott að búa og fólk sæki í þjónustuna. Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá stofnun kauptúnsins. Helgi Bjarnason kynnti sér söguna og ræddi við bæjarstjórann. STOFNUN Egilsstaðakauptúns bar að með nokkuð sérstæðum hætti fyrir fimmtíu árum. Ríkisstjómin fékk samþykkt lög um að sjö jarðir í Vallahreppi og Eiðahreppi skyldu verða sérstakt sveitarfélag og nefn- ast Egilsstaðahreppur. í lögunum em ákvæði um að ríkisstjórnin gangist fyrir stofnun kauptúns í þessum nýja hreppi og að henni sé heimilt að veija fé úr ríkissjóði til ýmissa framkvæmda svo af þessu megi verða, meðal annars til að kaupa land, skipuleggja, koma upp gatnakerfi, vatnsveitu, skolpveitu og rafveitu. Lögin um stofnun kauptúnsins voru samþykkt á Alþingi 24. maí 1947 og tóku gildi 1. júlí það ár. Fyrsti fundur hreppsnefndar var síðan 8. júlí. Um þessar mundir eru einnig liðin 10 ár frá því Egilsstað- ir fengu bæjarréttindi. Egils- staðabúar minnast tímamótanna með margvíslegum hætti á afmælis- árinu. Einhveijir atburðir tengdir afmælinu eru í hveijum mánuði. Hátíðahaldið nær hámarki 27.-29. júní, rétt fyrir afmælisdaginn, þá verður hátíðardagskrá á Egilsstöð- um sem forseti Islands, Olafur Ragnar Grímsson, sækir ásamt konu sinni Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur. Frumbyggjarnir Þéttbýli var farið að myndast þegar Egilsstaðakauptún var form- lega stofnað. í sögu Egilsstaða sem Bjöm Vigfússon hefur ritað kemur fram að í lok ársins 1947 vom íbúar kauptúnsins orðnir 69 og risin um Fyrstur að flytja inn „ÉG var fyrstur til að setjast hér að,“ segir Steinþór Eiríksson list- málari og vélsmiður á Egilsstöð- um. Hann byggði íbúðarhús sitt Bjarmaland sumarið 1945 og flutti inn um haustið, fyrstur frumbyggjanna. Hann er Iiðlega áttræður og býr enn á Egilsstöð- um, nú á dvalarheimili aldraðra. Steinþór var vélsmiður á Reyð- arfirði, vann mest við að laga bíla fyrir kaupfélagið og var búinn að ná sér í tæki til þess, þegar Sveinn Jónsson bóndi á Egilsstöðum á Völlum hringdi og bað hann að koma til að leggja miðstöð í sjúkrahúsið sem þá var í byggingu. Steinþór segir að Sveinn hafi fljótlega fært það í tal við sig hvort hann vildi ekki setjast að í þorpinu sem menn vildu stofna á Egilsstöðum og boðið fram lóð fyrir sama og ekkert. Sveinn hafði áhuga á að Steinþór kæmi upp vélaverk- stæði til að gera við vélar sem bændur voru að fá en fáir kunnu að gera við. Hann gerði það og þáði Ióðina. Steinþór segist hafa unnið langan vinnudag við sjúkrahúsið og læknabústaðina um sumarið en við byggingu ibúðarhússins á kvöldin og nóttunni. „Ég skil ekki hvernig mér tókst að lifa af þetta sumar. Ég svaf lítið, kastaði mér niður í tjald yfir blá- nóttina, en þetta tókst og 20. september var íbúðarhúsið kom- Morgunblaðið/Helgi Bjarnason TRÉN sem Steinþór Eiríksson gróðursetti fyrstu ár sín í Bjarmalandi hafa vaxið vel. ið undir þak. Þá sótti ég fofeldra að en við vorum ánægð því þetta mína á Reyðarfjörð og við flutt- var fyrsta raunverulega heimili um inn í húsið. Það var hálfklár- okkar,“ segir Steinþór. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason OLGA Óla Bjarnadóttir og Sigurður Eymundsson reka kaffi- hús í einu af elstu húsum Egilsstaða. Kaffísala í elsta húsinu FYRSTA íbúðarhúsið sem byrj- að var að byggja á þeim stað sem síðar varð Egilsstaða- kauptún er Lyngás, hús Os- valds Nielsen sem þá var danskur vinnumaður á Egils- staðabúinu. Byijað var á hús- inu árið 1944, að því er fram kemur í Egilsstaðabók, en ekki flutt inn í það fyrr en síðla árs 1946 og á meðan fluttu nokkrir aðrir frumbyggjar inn í hús sín. Núverandi eigendur Niels- enshúss, Olga Óla Bjarnadóttir og Sigurður Eymundsson, reka þar kaffihús, Café Nielsen. Olga og Sigurður fluttu til Egilsstaða fyrir sjö árum. „Þegar við komum til að skoða húsnæði vegna þess starfs sem Sigurður var þá að taka við hér kom ég auga á þetta hús og sagði við Sigurð: Er þá ekki draumahúsið mitt hér? Ef þetta hús verður einhvern tímann til sölu þá skal ég kaupa það, hvernig sem ég fer að því,“ segir Olga í samtali við blaða- mann. Þegar hún flutti á staðinn var henni sagt að Nielsenshús yrði aldrei til sölu en það var í eigu dóttur Friðborgar og Osvalds Nielsen. Síðar kom í ljós að það var á misskilningi byggt, húsið var auglýst og Olga og Sigurður festu kaup á því. Húsið var þá ekki í góðu ásigkomulagi. „Ég keypti húsið fyrst og fremst til þess að fá útrás við að gera það upp. Mér fannst við ekki ekki geta búið hér því húsið yrði að vera opið almenningi enda hef ég orðið vör við að það skipar mjög sér- stakan sess í huga Egils- staðabúa." í upphafi hafði Olga hug á að gera það að kaffi- og handverkshúsi en fljótlega kom í ljós að ekki var pláss nema fyrir annað. Eftir gagngerar endurbætur á húsinu var Café Nielsen opn- að fyrir tæpu ári. Olga segir að raunverulegt kaffihús hafi ekki áður verið rekið á Egils- stöðum og fólk þurfi að venjast því að nota þjónustuna. „Þegar ég hófst handa við þetta var mér ljóst að ég yrði að vinna nætur og daga og sætta mig við að vera launalaus fyrstu þijú árin. Ég ætla að láta þetta ganga,“ segir hún. það bil 20 hús í landi þéttbýlisins og þar af 8 íbúðarhús. íbúar nýja sveitarfélagsins í heiid voru 110 í lok þessa árs. Af þessum 69 frum- byggjum búa enn 16 á staðnum. Björn Vigfússon segir: „Ekki ber mönnum saman um hvert er fyrsta húsið í Egilsstaðakauptúni og hverj- um beri heiðurstitillinn frumbyggj- ar númer eitt. Allt fer þetta svolítið eftir því við hvað er miðað og hugs- anlega því hver segir söguna.“ Björn segir að árið 1944 hafi verið tekinn grunnur að fyrsta íbúðarhús- inu á þeim stað sem seinna varð Egilsstaðakauptún, það er húsinu Lyngási sem Friðborg og Osvald Nielsen reistu og nú hýsir Café Nielsen. Lyngás var hins vegar lengi í byggingu og ekki flutt inn í það fyrr en síðla árs 1946. Fjórir menn hófu framkvæmdir á eftir Osvald en fluttu allir inn á undan þeim hjónum, fyrstur Steinþór Ei- ríksson, iistmálari og þúsundþjala- smiður, en hann flutti inn í Bjarma- hlíð haustið 1945. Eftir að læknisbústaðurinn í Fljótsdal brann var ákveðið að færa embættið á Mið-Hérað og því valinn staður á Egilsstöðum. Kauptúnið myndaðist síðan í kringum læknis- bústaðinn og sjúkrahúsið enda unnu margir frumbyggjarnir við upp- bygginguna. Fljótlega reis búvéla- verkstæði í Egilsstaðakauptúni og Kaupfélag Héraðsbúa sem var með höfuðstöðvar sínar á Reyðarfirði kom sér þar upp aðstöðu. Miðstöð samgangna og þjónustu Frá þessum tíma hefur verið stöðug fjötgun á Egilsstöðum, í fimmtíu ára sögu kauptúnsins hefur fjölgað öll ár nema þrjú og Helgi Halldórsson bæjarstjóri telur að áframhald verði á því. Hann segir að styrkur Egilsstaða byggist á legu bæjarins, miðsvæðis í héraði og fjórðungi og þar skerast leiðir. Bærinn hefur byggst upp sem þjón- ustumiðstöð fyrir miðhluta Austur- lands og að sumu leyti fjórðunginn allan. Helgi segir að nú sé svo kom- ið að aðeins tveir staðir á lands- byggðinni hafi meiri opinbera þjón- ustu en _ Egilsstaðir, það er Akur- eyri og ísafjörður. Asamt opinberu umsýslunni hefur verið efnt til iðn- aðar og úrvinnslu landbúnaðarvara, þjónustu og verslunar. Sem dæmi um þetta nefnir Helgi að í kauptún- inu séu yfir 30 verslunar- og þjón- ustuaðilar. Hornafjarðarbær er fjölmennasta sveitarfélagið í Austurlandskjör- dæmi en Egilsstaðabær er nú næst fjölmennastur með 1642 íbúa um síðustu áramót. Þar býr nú í fyrsta skipti fleira fólk en í Neskaupstað. „Það gerðist vegna fækkunar þar, því miður finnst okkur. Við lifum á þjónustunni og hún byggist á því að byggð haldist á svæðinu og eflist fremur en hitt,“ segir Helgi. „Við höfum aldrei gert kröfu um það en hins vegar eru Egilsstaðir samgöngu- og þjónustumiðstöð, Austurlands," segir bæjarstjórinn þegar hann er spurður að því hvort hann líti svo á að Egilsstaðir hafi tekið við því hlutverki að vera höf- uðstaður Austurlands. Hann segir að aðrir hafi gert kröfu um höfuð- staðarnafnbótina og hafi sín rök fyrir því. „Þessi nafnbót skiptir okkur ekki máli en við viljum efla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.