Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.06.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 21 URVERINU ur hefur tekist að snúa vörn í sókn enda tel ég að engir nema heimamenn sjálfir séu þess megn- ugir að snúa við byggðaþróun, efla atvinnu og byggðir. Lykillinn að því er að styrkja og efla fyrir- tækin. Þetta er skref í þeirri þró- un þó ég telji að við hefðum fyrir löngu átt að hafa tækifæri til þess að eignast öflugt fyrirtæki í sjávarútvegi. Nýja félagið er mjög sterkt og öflugt og í því býr mikill innri kraftur. Mjög mikilvægt er að við sameiningu fyrirtækja veljist sam- an félög sem hæfa saman, efla og styrkja hvort annað enda mark- miðið að ná fram hagræðingu í útgerðarmynstrinu og betri nýt- ingu á framleiðslutækjum. Leitað verður allra leiða til að hámarka afraksturinn. Að mínu mati ætti félagið að hafa alla burði til þess að standa sig vel í íslenskum sjáv- arútvegi þar sem samsetning fyrir- tækjanna hæfir mjög vel hvort öðru. Öflug rækjuvinnsla, bolfisk- vinnsla, góð skip, fjölbreytileg kvótasamsetning og uppsjávark- vóti gefur mjög mikil tækifæri. Þau sjávarútvegsfyrirtæki, sem hafa átt mestri velgengni að fagna, hafa einmitt haslað sér völl í sem flestum greinum útgerð- ar. Mikilvægt er að fyrirtækið hafi fleiri en færri fætur til að styðjast við eftir því hvernig árar í hverri grein,“ segir Ágúst. Landvinnslan getur annað meira hráefni Ekki eru uppi fastmótaðar hug- myndir um breytt rekstrarform fyrirtækisins frá því sem verið hefur þótt ekkert sé útilokað í því efni. Þær ákvarðanir bíði nýrrar stjórnar sem kemur til með að skoða alla rekstrarþætti vandlega ofan í kjölinn. Aukin sjófrysting er hvorki útilokuð né efling bol- fiskvinnslunnar í landi með fram- leiðslu á verðmeiri afurðum á markaði erlendis. í samstarfi við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem fyrirtækið er stór eignaraðili að, er slík framleiðsla hafin með ágætum árangri. Ljóst er að bæði bolfiskvinnslan í Hnífsdal og rækjuverksmiðjan í Súðavík geta annað mun meira hráefni en sem nemur afla skipanna. Reynt verður að ganga til samstarfs við út- gerðaraðila án vinnslu um aukið hráefni. „Þetta gengur allt út á það að skapa einhver verðmæti," segir Einar Valur. Rætt um að Gunnvör kaupi Togshlutann Viðræður hafa að undanfömu verið við forsvarsmenn Gunnvarar hf. og íshúsfélags ísfirðinga um samvinnu, sérstaklega á sviði út- gerðar. Gunnvör hefur yfir að ráða sjö þúsund tonna þorskígildiskvóta og þremur togurum, Júlíusi Geir- mundssyni, Stefni og Framnesi. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur komið til greina að Gunnvör kaupi hlut Togsmanna í hinu nýja fyrirtæki ef af samein- ingu verður þar sem ljóst þykir að fimmmenningarnir, sem að baki Togi hf. eru, koma ekki til með að standa undir afborgunum af lánum hjá Landsbanka Islands með því að greiða úr eigin vasa eða með arði af félaginu. Þeir munu því eiga fáa aðra kosti en þann að selja eitthvað af sínum eignarhluta. Tog hf. var skráð fyrir 45% eignarhluta í Frosta hf. sem færir fimmmenningunum um 20% hlut í hinu nýja félagi. Að mati heimildarmanns úr hópi Hnífsdælingar liggja hagsmunirn- ir fyrst og fremst Hnífsdalsmegin þar sem peningarnir í hinu nýja fyrirtæki verða til. „Ef illa fer, þá eru það fyrst og fremst eigendur Hraðfrystihússins í Hnífsdal sem tapa. Þeir hljóta því að þurfa að hugsa sinn gang mjög vel. Eigin- fjárstaða Hraðfrystihússins í Hnífsdal er mjög góð og skuldir óverulegar miðað við Frosta sem skuldar hálfan annan milljarð. Þar fyrir utan hefur talsverð óeining ríkt milli meiri- og minnihluta í • Frosta.“ Menn eru ekkert hættir að ræðast við „Við fetum okkur bara áfram hægt en örugglega eitt skref í einu. Þetta er fyrsta skrefið," sagði Einar Valur Kristjánsson aðspurður um frekari sameiningu. „Menn eru hinsvegar ekkert hætt- ir að ræðast við. Eins og er eru engar frekari sameiningar uppi á borðinu. Við klárum þetta mál og að því búnu eru allar leiðir opnar. Við útilokum ekkert. Markmiðið er aðeins eitt, að skapa hér afkomu og atvinnu.“ Hefur þú áhuga á ad vinna ERLENDIS? Hjá EES-vinnumiðlun getur þú fengið upplýsingar um störf í boði á Evrópska efnahagssvæðinu sem og upplýsingar um atvinnu- og lífsskilyrði í löndunum. Haföu samband við Evrórdðgjafa hjá EES-vinnumiölun sem mun veita þér allar nánari upplysitigar. tmme$ EES VIWI UIDI I A Engjatelgur 11 • 105 Reykjavík Síwi: 588 2580 • Fax: 588 2587 Krefjast dauðadóms yfir Timothy McYeigh HONK TO Reuter ÚTVARPSSTÖÐ í Denver setti mann í eftirlík- ingu af rafmagnsstól út á götu og bað bíl- sljóra að flauta vildu þeir að Timothy McVeigh yrði dæmdur til dauða. Flautinu linnti ekki. eða hengja hann upp í tré: „Ég veit Denver. Reuter RÉTTARHÖLDIN yfir Ti- mothy McVeigh, sem fundinn hefur verið sekur um að myrða 168 manns með því að sprengja Alfred P. Murrah-bygginguna í Okla- homa-borg, eru nú á lokastigi og má búast við því að kvið- dómnum verði falið að ákveða hver refsing hans eigi að vera í upphafi næstu viku. Saksóknarinn hefur krafist þess í málflutningi sínum að hann verði dæmdur til dauða og í réttarsalnum hefur hvert vitnið á fætur öðru lýst hryll- ingnum eftir sprenginguna í Oklahoma-borg 19. apríl 1995. „Mér líður sem hjarta mitt líti út eins og byggingin og á því sé stórt gat, sem aldrei muni lagast," sagði Diane Leonard, sem missti mann sinn í sprengingunni. Vitnisburðurinn hefur á köflum verið svo átakanlegur að kviðdómendur hafa grátið og á miðvikudag áminnti dómarinn, Richard Matsch, kviðdóminn um að halda aft- ur af tiifinningunum: „Við erum ekki hér til að hefna okkar á McVeigh.“ Krafan um að McVeigh verði tekinn af lífi heyrist hins vegar víðar en í réttarsalnum og margir vilja ganga lengra. Arlene Blanchard, sem lifði sprengjutilræð- ið af, sagði að liflát væri „of gott“ fyrir McVeigh, annaðhvort ætti að setja hann í einangrun til æviloka að það hljómar ekki siðmenntað, en ég vil að hann fái að finna þótt ekki sé nema brot af kvölunum og þjáningunum, sem hann hefur látið okkur ganga gegnum." „Ég held að það ætti ekki að nota hefðbundnar aðferð- ir,“ sagði William Baay, björgunarstarfsmaður, sem hjálpaði til við að fjarlægja lfldn úr rústum skrifstofu- byggingarinnar. „Þeir ættu að taka af honum lappimar án deyfíngar... og hengja hann síðan upp yfir bambus- runnum og leyfa þeim að vaxa inn í hann þar til hann deyr.“ Trúarleiðtogar í Oklahoma hafa lýst yfir áhyggjum af þeirri hefnigirni, sem virðist hafa hreiðrað um sig í huga margra. Samkvæmt skoðanakönn- un Gallup-stofnunarinnar, sem gerð var fyrir dagblaðið USA Today og sjónvarps- stöðina CNN, er rúmlega 61% Bandaríkjamanna þeirr- ar hyggju að dæma eigi McVeigh til dauða og 31% segja að hann eigi að sitja æviiangt í fangelsi. Útvarpsstöð í Denver, þar sem réttarhöldin yfir McVeigh fóru fram, gerði óformlega könnun á afstöðu fólks. Stillti hún upp manni, sem líkist McVeigh, úti á götu í eftirlíkingu af raf- magnsstól og bað bílstjóra að láta vita hvað þeir vildu að gert yrði við McVeigh. „Flautið til að setja mig í sam- band,“ stóð á spjaldi fyrir ofan hann og stóð ekki á viðbrögðum. Meira að 'segja lögreglan þeytti óspart bíl- BÍLASÝNING UM H E LG I N A Komdu og sjáðu betur búna BMW bíla um helgina Sýningin verður í sýningarsal B&L að Suður- landsbraut 14, laugardaginn 7. júní kl. 9 til 17 og sunnudaginn 8. júní kl. 12 til 17. Sýndir verða bílar úr 3-línunni, bæði Saloon og Touring og Saloon úr 5-línunni. Bílar úr 3- llnunni eru betur búnir en hefðbundnir bílar. T.d. em bliamir með spólvöm, læstu drifi, tveimur loftpúðum, fjarstýrðum samlæsingum og fleiru. BMW bllar úr 5-llnunni hafa vakið mikla athygli fyrir fallegar llnur og fágaða hönnun. Má þar nefna loftpúða bæði fyrir framan ökumann og farþega og til hliðar I hurðum. Skoðaðu BMW á heimasiðu B&L; www.bl.is B&L, Suðurlandsbraut 14, S1mi: 568 1200, Beinn simi: 553 8636, Fax: 568 8675, Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.