Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 41 FRÉTTIR HELGA Guðjónsdóttir, Gerður Gústavsdóttir og Hope Knútsson iðjuþjálfar ásamt Einari Signrðssyni landsbókaverði. Fyrirlestur um áhrif sýk- inga á fitu- Islands gefa bækur efnaskipti INGIBJÖRG Harðardóttir heldur fyr- irlestur um áhrif sýkinga á fituefna- skipti fimmtudaginn 11. apríl kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í Læknagarði (fyrirlestrarsalur á þriðju hæð). í fréttatilkynningu segir m.a.: „Ingibjörg mun kynna niðurstöður rannsókna sinna við Læknadeild Kaliforníuháskóla í San Francisco en þær beindust að áhrifum endótoxíns og cýtókína á framleiðslu apólípópró- teins J og kólesterýl ester flutning- spróteins (CETP) í hömstrum. Apólí- póprótein J og kólesterýl ester flutn- ingsprótein gegna mikilvægu hlut- verki í fítuefnaskiptum líkamans en rannsóknir hafa sýnt að sýkingar valda aukinni blóðfitu og auka magn lípópróteina í blóði. Þessar breytingar á fítuefnaskiptum eru taldar jákvæð- ar þar sem lípóprótein binda endótox- ín og veirur og hamla gegn eitur- áhrifum þeirra." ------» »..♦----- „Eru þið ekki spennt?“ FYRIR skömmu fór fram verðlauna- afhending í samkeppni Sambands íslenskra tryggingafélaga og Hins hússins meðal ungs fólks um áhrifa- ríka setningu varðandi umferðarör- yggismál. Eftirfarandi setningar hlutu verðlaun og viðurkenningar: Aðalverðlaun: Eruð þið ekki spennt? Lífið er framundan. Höfund- ur: Emma Marie Swift. Aukaverðlaun. íslensk rúletta? Nei takk. Höfundur: Róbert S. Róberts- son. Glannaakstur eða gætni? Þitt er valið! Höfundur: Guðrún Fossdal. Beltið! Umgjörð lífsins. Höfundur: Haukur Claessen. í TILEFNI af því að 20 ár eru liðin frá stofnun Iðjuþjálfafé- lags Islands færði félagið Landsbókasafni Islands - Há- skólabókasafni fagbókasafn fé- lagsins að gjöf, alls um 200 titla auk tímarita. Við sama tæki- færi afhenti Hope Knútsson, formaður Iðjuþjálfafélags ís- lands, Landsbókasafni persónu- lega tímaritið American Jo- urnal of Occupational Therapy frá árinu 1967 til þessa dags, auk 13 bóka. í frétt frá Lands- bókasafni íslands - Háskóla- bókasafni segir að þegar bóka- safn Iðjuþjálfafélagsins hafi verið flutt í Þjóðarbókhlöðu batni aðgengi að fagtímaritum í iðjuþjálfun til muna. Foreldraverðlaunin ’96 veitt í fyrsta sinn LANDSSAMTÖK foreldra, Heimili og skóli, veita í fyrsta sinn á þessu vori viðurkenningu sem hlotið hefur heitið Foreldra- verðlaunin. í fréttatilkynningu segir að tilgangur Heimilis og skóla með þessari viðurkenningu sé að vekja jákvæða eftirtekt á grunn- skólanum og því gróskumikla starfi sem þar er unnið á fjöl- mörgum sviðum. Foreldraverðlaunin verða út- hlutað árlega til þess eða þeirra sem á yfirstandandi ári hafa unnið góð störf í þágu foreldra. og barna. Sérstaklega verður litið til verkefna sem efla tengsl heimila og skóla og auka virkni foreldra, kennara og nemenda í því mikilvæga samstarfi. Óskað er eftir ábendingum um einstaklinga eða hópa sem hafa unnið vel á þessu sviði. Hver sem er getur sent inn til- nefningu s.s. foreldrar, kennar- ar, nemendur og sveitarstjómar- menn en sérstaklega verður leit- að til foreldrafélaga og skóla efitr ábendingum. í dómnefnd sitja: Axel Eiríks- son, Heimili og skóla, Jón Ás- bergsson, Útflutningsráði, Ólöf Rún Skúladóttir, fréttamaður RÚV, Ragnhildur Bjarnadóttir, lektor í Kennaraháskóla íslands, og Rannveig Jónsdóttir, Heimili og skóla. Tilnefningar sendist skriflega fyrir 10. maí til Lands- samtakanna Heimili og skóli. Hjálparstofnun kirkjunnar Nýtt verkefni á Ind- landi til að draga úr barnaþrælkun „Á INDLANDI eru um 110 milljón- ir barna sem verða að vinna fullan vinnudag og fá ekki að ganga í skóla. Af þeim er nærri helmingur hreinir þrælar, þau eru látin vinna 12 tíma á dag við vefnað, sígarettu- gerð, höggva gijót eða við eld- spýtnaframleiðslu _ og fá. fyrir það 5-6 rúpíur (10-20 ÍSK) á dag.“ Þetta segir séra Martin, kaþólskur prestur frá Indlandi, um bamaþrælkun þar í landi. Hann var nýlega staddur hérlendis á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar til að kynna starf sam- takanna Social Action Movement eins og þegar hefur verið greint frá hér í Morgunblaðinu og er hann að undirbúa nýtt starf meðal bama í borginni Kanchipuram í Suður-Ind- landi sem er skammt frá Madras. Páskasöfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar stendur nú yRr og hef- ur landsmönnum á aldrinum 41 til 75 ára verið sendur gíróseðill með ósk um stuðning við starfið á Indlandi. „Borgin Kanchipur- am er mikil miðstöð hindúa sem flykkjast þangað í pflagrímsferð- ir og þangað koma líka mjög margir ferða- menn,“ segir séra Martin í samtali við Morgunblaðið. „Hún er líka þekkt fyrir silki- vefnað sinn á sari og þar er framleitt fyrir allt landið og til útflutnings. Þarna vinna um 30 þúsund böm við fram- leiðsluna hjá litlum fjölskyldufyrir- tækjum með einn eða tvo vefstóla eða á vegum stórra framleiðenda með margt fólk í vinnu en tiltölulega fáir fullorðnir vinna þessi störf. Bömin era yfirleitt úr fjölskyldum hinna stéttlausu, óhreina fólksins sem allir líta niður á og þau era eftirsótt vinnuafl af þvi þau hafa litlar hendur og era lagin við að eiga- við grannan þráðinn og það er hægt að bjóða þeim nánast hvaða kjör sem er.“ Hvað getur breytt þessum kjöram barnanna? „Hugmynd mín er sú að leigja hús í borginni, komast í samband við börn á þessum vinnustöðum, bjóða þeim að kynnast öðra en vinnu með því hreinlega _að reka eins kon- ar félagsmiðstöð. í framhaldi af því getum við undirbúið þau fyrir grann- skólanám og vonandi boðið einhveij- um þeirra styrki til að hefja nám og þarf nokkurt fjármagn til þess. Þessi barnaþrælkun er ólíðandi og við verðum að geta bjargað þessum bömum. Það geram við best með því að útvega þeim skólavist, koma þeim gegnum grannskólann sem gefur þeim kost á öðrum störfum,“ segir séra Martin ennfremur. Oftast bytja börnin að vinna 8 til 9 ára gömul og fram til 14-15 ára aldurs þegar þau hætta og halda til starfa við landbúnað sem er heldur betur launað. En af hveiju lenda bömin í þessari þrælkun? Vinna fyrir skuldum „Ástæðan er yfirleitt skuldasöfn- un foreldranna og þá verða öll börn- in að vinna til að geta greitt skuld- irnar en oft hefur lánið verið fengið gegnum yfirstéttimar. Algengasta ástæðan er kostnaður við heimanmund dóttur sem hefur verið gift og þá hafa foreldrarnir ? kannski steypt sér í tvö til þijú þúsund rúpía skuld. Það getur líka verið til dæmis vegna kostnaðar við læknis- hjálp. Það tekur mörg ár að vinna upp slíkar skuldir og yfirleitt kreljast lánardrottn- amir þess að börnin séu látin vinna upp í skuld- ina og þannig neyðast foreldrarnir til að sjá „ af þeim í þessa þrælk- un. Ef menn gerast svo djarfir að stinga af era yfirstéttimar ekki í vandræðum með að láta elta fólkið uppi.“ Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar segir að fé sem kemur inn í páskasöfnun- inni muni meðal annars verða notað í þetta nýja verkefni. Hjálparstofnun hefur síðustu árin stutt 400 til 500 skólabörn með tilstyrk fósturfor- eldra og lagt fram nokkurt íjármagn til stuðnings starfi Social Action Movement í baráttu samtakanna fyrir bættum kjöram og landréttind- um hinna stéttlausu: „Ef þeim tekst að fá land til ræktunar matvæla og koma sér upp híbýlum era þeir ekki lengur háðir vinnu eða duttlungum yfirstéttanna sem vilja nýta út úr vinnuafli þeirra eins og þræla. Með því móti batna kjör þessa fólks smám saman og þó að við hjálpum ekki miklum fjölda fólks af öllum þeim milljónum í Indlandi sem búa við . örbirgð megum við ekki gleyma því að hér eram við að hjálpa einstakl- ingum og gjörbreyta aðstæðum þeirra til batnaðar.“ SÉRA Martin frá Indlandi. I I I auglýsingar I.O.O.F. 5 = 1774288 = Br I.O.O.F. 11 = 17704118'* = Dagsferð sunnud. 14. apríl kl. 10.00 Landnámsleiöin, 7. áfangi. Unglingadeild er hvött til aö taka þátt (gögnunni á nýju starfsári. Myndakvöld verður haldið fimmtud. 11. apríl kl. 20.00 í Fóstbræðraheimilinu. Leifur Jónsson sýnir myndir af Fimm- vörðuhálsi og eru allir sem geng- ið hafa hálsinn hvattir til að mæta því fjallað verður um þessa fornfrægu leið og sögu Fimmvörðuskálans. Einnig verða sýndar myndir úr hálend- isferð sem farin var í mars sl. og sýnir hálendið sunnan jökla í ægifögrum vetrarbúningi. Útivist. Frá Sálarrannsóknafélagi islands Opiðhús verður í Garða- stræti 8 kl. 20.30 í kvöld 11. aprfl. Þar mun velski miðillinn oq kennarinn Colin Kingshott fjalla um náttúruna og heil- un. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Námskeið Næst komandi helgi 13. og 14. apríl verður Colin Kingshott með námskeið þar sem fjallað verður um hugleiðslutækni, eiginleika vitundarinnar, þróun, hug- læga miðilshæfileika, skynj- un og stjórnun trans, and- lega heilun og orkuheilun, notkun tóna og lita við heil- un o.fl. í framhaldi af nám- skeiðinu mun Colin koma af stað hópvinnu fyrir þá sem vilja halda áfram. í vet- ur hefur verið í gangi viku- lega.undir handleiðslu Sim- on Bacon, þrónunarhópur sem komið var af stað eftir námskeið hjá Colin sl. haust. Colin Kingshot verð- ur hér að landi til 30. aprfl og þýður upp á einkatíma í heilsun, kristal- og hljóðheil- un, einnig miðilsfundi og áruteikningu. Bókanir og upplýsingar í sima 551 8130 milli kl. 10-12 og 14-16 og á skrifstofunni Garðastræti 8 frá kl. 9-17 alia virka daga. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 ( kvöld kl. 20.30 kvöldvaka í umsjá Gils og Binna. Veitingar og happdrætti. Allir velkomnir. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Aðalfundurinn verður í félags- heimilinu á Baldursgötu 9, fimmtudaginn 18. apríl kl. 18.30. Stjórnin. Bláfjallagangan íslandsganga — verður i Bláfjöllum laugardaginn 13. apríl nk. kl. 13.00. Skráning í Borgarskálanum kl. 11.00- 12.30. Þetta er almennings- ganga þar sem gengnir eru 20 km (íslandsgangan) 10 km og 5 km (trimmganga). Skautaskrefið er bannaö i almenningsgöngum þeim, sem standa að íslands- göngunnni. Upplýsingar í síma 557 5971. Ef veðurútlit er ótryggt verða upplýsingar á sím- svara Bláfjalla 580 1111 á móts- daginn. Skíðaráð Reykjavíkur. 'w- KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Bibliulestur úr spádómsbók Jónasar. Umsjón: Gunnar Jóhannes Gunnarsson, lektor. Upphafsorð hefur Bjarni Gunnarsson. Allir karlmenn velkomnir. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn 11 april. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.