Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fjárdrátt- ur á bótum bættur HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt Sjóvá-Almennar hf. til að greiða manni 992 þúsund krónur með vöxtum frá 1985, samtals um 2,5 milljónir króna í skaðabætur. Tryggingafélagið hafði áður greitt bætur vegna tjóns mannsins til lög- manns á hans vegum en sá hafði dregið sjálfum sér stærstan hluta bótanna. Dómurinn byggist á því að umboð lögmannsins hafí einung- is náð til þess að flytja skaðabóta- málið fyrir dómi en ekki til þess að taka við greiðslu bóta. Fékk aðeins 1 milljón Um var að ræða skaðabætur sem manninum voru dæmdar vegna ör- orkutjóns með dómi sem Hæstirétt- ur kvað upp í maí 1991. Með vöxt- um námu bætumar 3,6 milljónum króna og þá upphæð greiddi trygg- ingafélagið til lögmannsins sem flutt hafði málið fyrir manninn. Lögmaðurinn afhenti skjólstæðingi sinum 1 milljón króna, en dró sér afganginn. Lögmaðurinn varð gjaldþrota og hefur verið dæmdur til refsingar og sviptur réttindum fyrir fjárdráttinn og brot gegn fleiri skjólstæðingum. Maðurinn fékk hluta tjóns sins bættan úr Ábyrgðarsjóði lögmanna en Sjóvá-Almennar höfnuðu kröfu hans um uppgjör samkvæmt dómin- um þar sem lögmaðunnn hafí ekki haft umboð til að taka við greiðslu. í dómi Auðar Þorbergsdóttur hér- aðsdómara segir að umboð lög- mannsins hafí takmarkast við flutn- ing máls fyrir dómi. Ákvæði 4. grein- ar laga um málflutningsmenn hafí ekki veitt lögmanninum heimild til að taka við greiðslu tildæmdra fjár- hæða og ekkert sé fram komið um að tjónþolinn hafí veitt lögmanninum sérstakt umboð til þess. Greiðsla tryggingafélagsins til lögmannsins hafí því verið á eigin áhættu þess. Bjargað eftir boð frá neyðarsendi BJORGUNARSVEITIR björguðu síðdegis í gær manni sem verið hafði á gangi yfir hálendi íslands í tæpar þrjár vikur og sendi í gærmorgun frá sér hjálparbeiðni með neyðarsendi. Neyðarsendingar mannsins voru miðaðar út með gervihnetti og kom í ljós að hann var stadd- ur í Álftakrók austan Torfajök- uls og vestan Fjallabaksleiðar. Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins í Vík, Kirkjubæjar- klaustri, Álftaveri og Skaftár- tungum voru kallaðar út og lögðu 34 menn frá þeim af staðtil leit- ar um Pjallabaksleið og Álfta- versafrétt. Færi var erfitt vegna vatnselgs og leysinga. Að auki var þyrla Landhelgis- gæslunnar send áleiðis til leitar en þoka og skýjafar hömluðu leit úr lofti. Björgunarsveitir komu í Álftavatnskrók um klukkan 16 og fundu þá manninn, Jósef Hólmjárn, heilan á húfi. Farið var með hann áieiðis til Víkur. Jósef, sem er þaulvanur fjalla- maður, sagði að hann hefði lagt af stað úr Skagafirði á göngu- skíðum áieiðis suður yfir hálend- ið 23. mars síðastliðinn. „Fyrstu 180 km leiðarinnar var mjög gott færi og veður. En síðan kom páskahretið með miklum lausasnjó á erfiðasta kafla leið- arinnar, frá nyrðri Fjallabaks- leið til syðri Fjallabaksleiðar. Það versnaði svo heldur í því þegar það gerði asahláku. Það var stanslaus suðvestanstormur með úrhellisrigningu í tvo sólar- hringa. Allur búnaður var orð- inn gegnblautur og erfitt að draga snjóþotuna í krapanum," sagði Jósef. „í morgun [gærmorgun] var sama veðurspá, suðaustan stinn- ingskaldi og rigning, og ég sá fram á að miðað við færið yrði ég þijá daga á leið til byggða og ég var orðinn kvefaður. Ég var því í vafa um hvort það væri heilsunni bjóðandi að standa í þessu. Eg var með tæki svo hægt væri að fylgjast með ferðum mínum og gat líka Iátið vita ef aðstoðar væri þörf. Ég ákvað að skynsamlegra væri að kalla á aðstoð,“ sagði Jósef. Jósef vildi koma á framfæri þakklæti til björgunarsveitar- manna fyrir þeirra framlag. Skeljungur hf. leigir olíuskip Þjónar úthafsflota SKEUUNGUR hf. hefur tekið á leigu erlent olíuflutningaskip til að þjónusta flota íslenskra úthafs- veiðiskipa sem stunda veiðar utan íslensku lögsögunnar. Skipið, sem er leigt í Danmörku, tekur 4.000 tonn af eldsneyti og mun það bjóða tvær tegundir elds- neytis, auk smurolíu. Skipið er leigt til reynslu í þrjá mánuði. Leiguskip Skeljungs hf. lestar í Rotterdam um 20. apríl en heldur þá á Reykjaneshrygg þar sem íjöldi íslenskra og erlendra skipa er nú að karfaveiðum. Frá Reykjanes- hrygg liggur leiðin á Flæmska hattinn til móts við rækjuveiðiflot- ann. Rágðert er að hver ferð skips- ins taki 3-4 vikur. í fyrstu ferð verður seld gasolía auk smurolíu en í síðari ferðum verður einnig boðið upp á svartolíu. Birgðir verða sóttar til íslands og jafnframt boð- ið upp á flutning á varahlutum til viðskiptavina Skeljungs á úthafs- veiðum. Morgunblaðið/RAX Tröllkonan dregin til FRAMKVÆMDIR hófust í gær í garðinum við Ásmundarsafn. Gunnar B. Kvaran, forstöðumað- ur Ásmundarsafns, segir að gerð- ur verði göngustígur sem liggi frá safninu að húsi Islenskra sjávar- afurða og baklóðin verði lagfærð. Höggmyndir Ásmundar Jóns- sonar voru færðar til með stór- virkum vinnuvélum í gær en þetta er í fyrsta sinn sem hreyft er við þeim frá því Ásmundur setti þær niður í garðinn. Tröllkonuna þurfti að flytja um set og héldu menn að styttan vægi á milli 4 til 6 tonn en í Ijós kom að hún vegur yfir tíu tonn. • Þrátt fyrir að stórum vélum væri beitt tókst ekki að lyfta högg- myndinni og var hún dregin til. Skipt verður um jarðveg í garð- inum, gerðir göngustígar og plantað trjám og runnum. Fyrsta áfanga verksins á að vera lokið í bytjun sumars, þ.e. vestari hluta garðsins. Kolbrún Oddsdóttir landslagsarkitekt hannaði garð- inn. Kostnaður vegna fyrsta áfanga er fimm milljónir kr. en heildarkostnaður um 20 milljónir króna. Starfinu lýkur á næstu tveimur árum. Frosti hf. í Súðavík Kaupir eignarhalds- félagið Ragnarborg ísafirði. Morgunblaðið. FROSTI HF. í Súðavík hefur fest kaup á öllum hlutabréfum í eignar- haldsfélaginu Ragnarborg hf. á Fáskrúðsfirði. Það fyrirtæki átti allar fasteignir og hluta tækjabún- aðar sem fyrirtækið Goðaborg hf. á staðnum hafði til umráða en sömu eigendur eru að báðum fyrir- tækjunum. Að sögn Ingimars Halldórsson- ar, framkvæmdastjóra Frosta, er tilgangurinn með kaupunum sá að hefja rekstur á staðnum sem og að hagræða vinnslu á álagstímum. „Því er ekki að leyna að við höfum áhuga á að komast inn í vinnslu á þeim uppsjávarfíski sem þarna er til staðar, þ.e. loðnu og síld. Við erum búnir að gera mikl- ar breytingar á skipaflotanum og getum með kaupunum nýtt skipin og aðstöðuna fyrir austan til þess að frysta á álagspunktum en þess á milli verður þar hefðbundin vinnsla," sagði Ingimar. Ingimar var ófáanlegur til að gefa upp kaupverð hlutabréfanna en sagði að þeir hjá Frosta myndu nú setjast niður og skipuleggja framtíðina. „Við vonumst til að ná góðri samvinnu við heimamenn. Þetta er sú vinnsla sem við höfum ekki getað nýtt okkur heima og því erum við einungis að útvíkka starf- semina," sagði Ingimar. Utgáfu sérstaks dagskrárblaðs hætt VIKULEG útgáfa Morgunblaðs- ins á dagskrá sjónvarps- og út- varpsstöðva fellur niður frá deg- inum í dag að telja. Útgáfa sér- staks dagskrárblaðs með viku- legu yfirliti um efni Ijósvakamiðla var hafin á sínum tíma til þess fyrst og fremst að þjóna þeim lesendum Morgunblaðsins á landsbyggðinni, sem fengu blaðið ekki í hendur fyrr en 2-3 dögum eftir útgáfudag vegna sam- gönguerfiðleika. Gjörbreyttar og betri sam- göngur um land allt hafa leitt til þess, að langflestir kaupendur Morgunblaðsins fá blaðið sam- dægurs, ef veður hamlar ekki dreifíngu. Þess vegna eru ekki sömu rök og áður fyrir vikulegri útgáfu með dagskrá ljósvaka- miðla. Á vegum Morgunblaðsins hef- ur farið fram könnun á því, hvernig fólk notar dagskrárkynn- ingar í dagblöðum, vikublöðum, sérblöðum og ljósvakamiðlunum sjálfum. Niðurstaða þeirrar könn- unar er sú, að langflestir nota hina daglegu dagskrárkynningu í Morgunblaðinu og mun færri aðra miðla. Af þessum sökum verður viku- leg útgáfa-með dagskrá ljósvaka- miðla felld niður að öðru Ieyti en því, að hún mun birtast um stór- hátíðir. Jafnframt verður á næst- unni aukin dagleg umfjöllun hér í blaðinu um efni ljósvakamiðla, kvikmyndir, myndbönd o.fl. FISKVINNSLUFYRIRTÆKIÐ Goðaborg hf. á Fáskrúðsfirði var úrskurðað gjaldþrota hjá Héraðs- dómi Austurlands að kröfu íslands- banka sl. þriðjudag. Um 40 manns störfuðu að staðaldri hjá fyrirtæk- inu. Samdægurs var gengið frá kaupum Frosta hf. í Súðavík á hlutabréfum í eignarhaldsfélaginu Ragnarborg hf. á Fáskrúðsfírði en það fyrirtæki átti allar fasteignir og hluta tækjabúnaðar sem Goða- borg hafði til umráða og voru sömu eigendur að báðum fyrirtækjunum. Hyggst Frosti hefja fískvinnslu í húsnæðinu. Heildarskuldir Goðaborgar nema um 100 millj. króna að sögn Einars Víglundssonar framkvæmdastjóra. „Það er 33 milljóna króna skuld við íslandsbanka en við teljum að það séu alveg fullar tryggingar á bak við hana,“ segir Einar sem gagn- rýnir bankann harðlega fyrir hversu hart hann hafi fylgt kröfunni um gjaldþrotaskipti eftir. Einar segir að rekja megi ástæð- ur erfiðleikana til kaupa á tveimur skipum frá Vestmannaeyjum á sín- um tíma, Bergvík og Sigurvík, sem hafí verið alltof skuldsett. Annað skipið var sett í úreldingu en hitt var selt. Hann segir að unnið hafi verið hörðum höndum að því að fá nýja aðila inn í reksturinn en bank- inn ekki ljáð máls á að veita frest þegar ósk þess efnis var lögð fram í héraðsdómi 27. mars sl. „Seinustu viku höfum við verið á fullri ferð að vinna að því að fá sterkari aðila inn í þetta með okk- ur. Það var kannað ítarlega al ákveðnum aðilum en bankinn gaí mönnum ekki færi á því að fresta gjaldþrotabeiðninni til að gefa mönnum kost á því að skoða þae mál í botn,“ segir Einar. Búðahreppur en annar stærst: kröfuhafmn í þrotabúið en heildar- fyrirgreiðsla hreppsins við fyrirtæk- ið narn 33-35 milljónum króna formi ábyrgða og lána. Búðahreppur endurlánaði Goða b°rg fyrr í vetur 19 milljónir kr vegna erfiðleika fyrirtækisins Steinþór Pétursson sveitarstjór Búðahrepps segir gjaldþrotið áfal fynr atvinnulífið á staðnum. 35-4C manns séu nú á atvinnuleysisskrá í Fáskrúðsfirði. Framkvæmdastjóri Goðaborgar um gjaldþrot fyrirtækisins Bankinn gaf engan frest
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.