Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 56

Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 56
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125’KR. MEÐ VSK Utifundur ASI krefst afnáms á hækkunum til þingmanna og embættismanna Góður leik- ur KR-inga KR-INGAR sýndu góðan leik þrátt fyrir tap gegn ensku bikarmeisturunum Everton 2:3 í Evrópukeppni bikarhafa á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Þormóður Eg- ilsson fyrirliði KR og Daniel Amokachi, Nígeríumaður- inn í liði Everton, berjast hér um boltann í leiknum. ■ íþróttir/Bl-4 Hannes með vinn- ingsforskot HANNES Hlífar Stefánsson hefur vinningsforskot á Margeir Pétursson fyrir síðustu umferð Friðriksmótsins sem tefld verður í dag og nægir jafn- tefli í skák sinni við Smyslov til sig- urs á mótinu. Úrslit í lO.umferð, sem tefld var í gær, urðu þau að Hannes Hlífar vann Larsen, Friðrik Ólafsson og Margeir gerðu jafntefli, Jóhann Hjartarson vann Helga Áss Grétars- son, Jón L. Ámason og Smyslov gerðu jafntefli, Helgi Ólafsson vann Þröst Þórhallsson og Sofía Polgar og Gligoric gerðu jafntefli. I dag tefla saman, auk Hannesar og Smyslovs, Margeir og Polgar, Helgi Áss og Friðrik, Þröstur og Jóhann, Larsen og Helgi og Jón L. og Gligoric. Sömu kjarabóta verður krafíst við fyrsta tækifæri UM tíu þúsund manns voru á úti- fundi Alþýðusambands íslands á Ingólfstorgi í gær að mati lögreglu og fjölmenni var einnig á fundum sem boðað var til á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Harðorð ályktun vegna ákvarðana um launahækkan- ir til handa alþingismönnum, ráð- herrum og helstu embættismönnum þjóðarinnar var einróma samþykkt og fram kemur að ef ákvarðanir um launahækkanir verði ekki felld- ar úr gildi krefjist launafólk sömu kjarabóta sér til handa við fyrsta tækifæri. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagðist vera mjög ánægður yfír við- tökum almennings við áskorun ASÍ. Tónninn hefði alls staðar verið sá sami. Hann sagðist vonast til þess að í framhaldinu myndu stjórn- völd breyta til þeirrar stefnu sem mörkuð hefði verið í vetur og sem hefði verið grundvöllur þeirra kjara- samninga sem gerðir hefðu verið, að efnahagsbatinn yrði fyrst og fremst nýttur til að jafna kjörin, bæta kjör þeirra lægstlaunuðu og tryggja atvinnustigið. Benedikt sagðist ekki vilja segja stjórnvöldum hvernig þau ættu að gera þetta, en það væri bráðnauð- synleg^ að bregðast við. „Ef það gerist ekki núna alveg næstu daga, þá eru menn að safna glóðum elds að höfði sér. Þá er bara spursmál um hvenær stóra sprengingin verð- ur, en hún verður,“ sagði Benedikt ennfremur. Ekkert nýtt kom fram „Eg fylgdist að sjálfsögðu eins og aðrir landsmenn með fundar- höldunum. Það kom í sjálfu sér ekkert nýtt fram á þessum fundum. Gagnrýnin beinist að mínu mati fyrst og fremst að skattfijálsum kostnaðargreiðslum til þingmanna og mér er kunnugt um að forsætis- nefndin og formenn þingflokka munu ræða ræða það mál á fundi sínum á morgun [í dag],“ sagði Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra og starfandi forsætisráð- herra. Hann sagði að sér sýndist að Kjaradómur mætti draga þann lær- dóm af umræðunni á undanfömum dögum að hafa úrskurði sína tíðari og láta þá fylgja almennum kjara- samningum til að koma í veg fyrir þau uppsöfnunaráhrif sem verði þegar langur tími líði á milli úr- skurða. Kraftmesti fundurinn í áratugi Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja, sagði í samtali við Morgunblaðið að fundurinn í gær sé fjölmennasti og kraftmesti fundur sem verka- lýðshreyfíngin í Eyjum hafí haldið í áratugi. Talið er að yfír 300 manns hafí verið á fundinum, en fleiri kom- ust ekki í húsið og varð fjöldi fólks að hverfa frá. ■ Víðtæk mótmæIi/2/11-12/28 FUNDARMENN á Ingólfstorgi samþykktu allir sem einn ályktun fundarins Morgunblaðið/Þorkell Víðtæk leit að týndri flugvél — Lítil flugvél með þrem mönnum hóf sig á loft frá Akureyri kl. 17.30 í gær og var lending áætluö í Reykja- vík kl. 19.15. Um miðnætti var flugvélin ekki komin fram... EINS hreyfíls flugvélar af Cessna gerð, með þremur mönnum innan 'borðs, var saknað í gærkvöldi. Vélin lagði af stað frá Akureyrar- flugvelli kl. 17:30 í gær og var áætlað að hún myndi lenda í Reykjavík kl. 19:15. Leitarflokkar úr Reykjavík, Eyjafírði og af Vest- urlandi lögðu af stað til leitar laust fyrir miðnætti og mun allsherjar- leit hefjast í birtingu. Þegar síðast fréttist var ekkert vitað um örlög vélarinnar. Flugturn hafði samband við vél- ina skömmu eftir flugtak frá Akur- eyrarflugvelli og virtist þá allt vera í góðu lagi. Ekkert hefur heyrst frá vélinni síðan. Farið var að svip- ast um eftir flugvélinni þegar hún kom ekki fram í Reykjavík á áætl- uðum lendingartíma. Flugvél Flug- málastjómar fór í loftið um kl. 21 og flaug yfír flugleið vélarinnar í nærri þrjá klukkutíma. Vélin varð einskis vör og engin merki bámst frá neyðarsendi týndu vélarinnar. Flugvélin, sem saknað er, hafði flugþol til kl. 22.00. Allgott flug- veður var í gærkvöldi, skýjað og hægur vindur. Allsherjarleit í birtingu Um klukkan 23 var tekin ákvörð- un um að senda björgunarsveitar- menn af stað til leitar, Ekki er þó gert ráð fyrir að þeir hefji leit fyrr en í birtingu. Ákveðið hefur verið að beina meginþunga leitarinnar á hálendið enda þykir líklegt að ein- hver hefði orðið var við vélina ef hún hefði lent nálægt byggð. Nokk- uð skýjað var í ofanverðum Borgar- fírði, á Arnarvatnsheiði og í ná- grenni Langjökuls. Leitarhópar frá Reykjavík og af Vesturiandi munu leita á þessu svæði. Víðtæk leit úr lofti hefst strax í birtingu ef veður leyfir. Morgunblaðið/PPJ FLUGVÉLIN sem saknað er, TF-ELA, er af gerðinni Cessna Skyhawk 172, eins hreyfils vél. Þrír menn eru um borð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.