Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR • Bókmenntahátíð ’95 FYNDINN Jk MIÐVIKUDAGSMORG- UN héldu gestir bók- menntahátíðarinnar í skoðunarferð á Þingvelli og upp í Reykholt. Engin dagskrá átti því að verða um daginn en vegna seinkunar á komu enska metsöluhöfundarins Martins Amis fór spjall hans og Einars Kárason- ar fram síðdegis. Leiður á athyglinni Martin Amis er vafalaust einn launahæsti rithöfundur sem um getur, en hann hefur nýlega gert tímamótasamning við útgefanda sinn í London um 52 milljóna króna fyrirframgreiðslu fyrir næstu bók sína. Í kjölfarið hefur Amis orðið ein aðalmenningar- stjarna Bretaveldis, umtalaður og umdeildur sem rithöfundur. I spjallinu við Einar sagðist hann vera orðinn þreyttur á athyglinni, enda væri hann sjálfur miðpunktur hennar en ekki bækumar sínar og ef menn læsu verkin á annað borð væri það aðallega til þess að leita samsvarana við einkalíf hans. „Það er engin greinarmunur gerð- ur á höfundi og verki hans,“ sagði Amis. Upplestur Amis Amis las úr nýjustu bók sinni, The Information í Þjóðleikhúskjall- aranum um kvöldið. Sagan segir frá tveimur ólíkum höfundum, metsöluhöfundi og módemista, sem eiga í hatrammri samkeppni innbyrðis. Samband höfundanna verður þó hálfu verra þegar annar þeirra sængar með konu hins. Hefur það vakið mikla athygli í Bretlandi að söguþráður skáld- sögu föður Martins, Kingsley Amis, The Biographer’s Moustac- he sem kom út fyrir fáeinum dög- um er hinn sami. Lestur Martins Amis var fyndinn. Slímið og Slettan Hollendingurinn Cees Noote- boom las úr bók sinni Sagan sem hér fer á eftir, en hún er nýkomin út í íslenskri þýðingu. Sagan segir frá minningum manns á dauða- stund, ytri tími sögunnar er því Morgunblaöið/Ásdís MARTIN Amis og Einar Kárason í spjalli um verk þess fyrr- nefnda á bókmenntahátíðinni á miðvikudag. Koma Martins Amis á bókmenntahátíðina hafði vakið töluverða eftirvæntingu á meðal gesta hennar og þátttakenda. Þröstur Helgason hlýddi á hann spjalla um rítstörf sín og lesa úr verkum sínum ásamt öðrum höfundum á miðvikudaginn. aðeins tvær sekúndur. Hugurinn fer þó með hinn deyjandi mann og lesendur í langt ferðalag sem fær óvæntan endi. Upplestur Finnans Juice Lesk- inen á smásögu um þau systkini, Slímið og Slettuna, kryddaði dag- skrána. Sænski rithöfundurinn og þýðandinn Ulf Peter Hallberg las úr verki sínu, Flanörens Blick, sem íjallar um 'Þýskaland dagsins í dag. Norski höfundurinn Thorvald Steen las úr nýrri bók sinni, Gio- vanni. Að lokum spann Vigdís Gríms- dóttir tvíhyggjuvef við þijár blað- síður úr Stúlkunni í skóginum, en Vigdís var aðeins viðstödd í efni, ekki anda. Eða hvað? Hátíðin í dag í hádeginu flytur Juice Leskinen lög og ljóð. Pallborðsumræður á ensku um ferðasögur verða haldn- ar kl. 13.15. Þátttakendur eru Ulla-Lena Lundberg, Ulf Peter Hallberg, Cees Nooteboom og Stefán Jón Hafstein. Kl. 15. flytur Patrick Chamoiseau fyrirlestur á frönsku um kreólamenningu á Martiníkk. Friðrik Rafnsson snar- túlkar á íslensku. Þessir dag- skrárliðir verða í Norræna húsinu en engin upplestur verður í kvöld. EITT verkanna á sýningunni. Tindar í Djúpinu NÝTT galierí mun taka til starfa laugardaginn 16. september; Far- andgallerí Ludwigs van Hekelen. Þór Ludwig Stiefel mun ríða á vaðið með máiverkasýningu í Djúpinu við Hafnarstræti og ber sýningin titilinn „Tindar í Djúp- inu“. A sýningunni verða til sýnis olíumálverk sem öll eru unnin á þessu ári. Sýningin stendur til 7. október og er opin á opnunartíma veitingahússins Hornsins. Farandgalleri Ludwigs van Hekelen var stofnað í þeim til- gangi að setja upp listsýningar, gjarna utan hefðbundinna ramma listsýningasala. Ætlunin er að færa listsýningar til fólksins, setja upp sýningar á myndlist í daglegu umhverfi fólks; ekki síður úti á landsbyggðinni. í tilefni af stofnun gallerisins verður efnt til mannfagnaðar í Djúpinu við Hafnarstræti laug- ardaginn 16. septemer milli 2 og 4 síðdegis og eru allur velkomnir. Brotnir vængir MEXÍKÓSKA listakonan Frida Ka- hlo var eitt þekktasta dæmi listasög- unnar um það hvernig listamaður samóf líf sitt listinni. Eigið líf og þjáningar eru rauði þráðurinn í verk- um þessarar óvenjulegu myndlistar- konu sem hélt dagbók síðasta áratug ævinnar og kom hún nýlega út í danskri þýðingu. Hið svipsterka andlit Kahlo var ríkjandi þáttur í verkum hennar auk þess sem dauðinn birtist þar í ýmsum myndum. Kahlo var af mexíkósku, þýsku og gyðinglegu bergi brotin og leitaði oft í gamlar táknmyndir Az- teka í myndum sínum. Kahlo hugðist leggja læknisfræði fyrir sig en þegar hún var 18 ára gömul slasaðist hún lífshættulega í bflslysi. Hún gat ekki eignast börn eftir það og leið miklar kvalir allt sitt líf. Gekkst hún undir þrjátíu skurðaðgerðir, þá síðustu tíu dögum fyrir lát sitt. Kahlo klæddist jafnan skrautleg- um fatnaði og skreytti sig óspart með skartgripum en það var þó lítið annað en tilraun til að beina athygl- inni frá líðan hennar. Hún leið mikl- ar líkamlegar þjáningar og líf hennar með eiginmanninum og listmálaran- um Diego Rivera, var heldur enginn dans á rósum vegna afbrýðisseminn- ar sem greip hana er hann leitaði til annarra kvenna. En hann var stóra ástin í lífi hennar, opinn og áber- andi, ófríður en þó heillandi. Hann stærði sig af því að hafa barist við hlið Leníns í rússnesku byltingunni og að hafa étið mannakjöt. Rivera veitti Kahlo leiðsögn í myndlistinni auk pólitískrar upp- fræðslu. Þau kynntust síðar Leo Trptskíj er hann flýði til Mexíkó og átti Kahlo í stuttu ástarsambandi við hann. Nú hefur dagbók Kahlo, sem hún hélt frá árinu 1944 og þar til hún lést tíu árum síðar, verið gefin út. Bókin, sem er skrifuð og máluð með því sem var við höndina hveiju sinni, hefur snarlega verið þýdd á ensku og dönsku. Innganginn skrifar mexíkóska skáldið og diplómatinn Carlos Fuentes, sem sá Kahlo einu sinni, og gleymir því aldrei. Vetrarstarf íslensku óperunnar gengur í garð í byrjun október næstkomandi Galdra-Loftur og Madame Butterfiy meðalverkefna STARFSÁR íslensku óperunnar hefst 7. október næstkomandi. Á verkefnaskrá kennir margra grasa og meðal annars verður íslenska óperan Galdra-Loftur eftir Jón Ásgeirsson frumsýnd 1. júní. „Við erum að gera miklu meira núna en síðustu ár. Það stafar reyndar að hluta til af því að við endurflytjum tvær sýningar, Carmina Burana og Otello,“ segir Garðar Cortes óperustjóri, en veturinn leggst einkar vel í hann. Fyrsta verkefni vetrarins er endurflutningur frá 1990 á söngdrápunni Carmina Burana fyrir kór og einsöngvara eftir Carl Orff. Verður hún frum- sýnd 7. október. Kór íslensku óperunnar fer með stórt hlut- verk í sýningunni en helstu ein- söngvarar verða Bergþór Páls- son, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Þorgeir J. Andrésson. Hljóm- sveitarstjóri verður Garðar Cortes. Frumstæður kraftur Carmina Burana er kennd við handrit með veraldlegum kvæðasöfnum frá því á 13. öld. Að sögn Garðars einkennist söngdrápan af óviðjafnanlegri lífsorku og frumstæðum krafti sem haldið er uppi með síbreyti- legri hrynjandi. Hin ástsæla ópera Puccinis, Madame Butterfly, verður frumsýnd 10. nóvember. í aðal- hlutverkum verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ólafur Árni Bjarnason, Bergþór Pálsson og Rannveig Fríða Bragadóttir auk kórs og hljómsveitar ís- lensku óperunnar. Hljómsveit- arstjóri verður David Shaw en leikstjóri Halldór E. Laxness. Hér er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, en Madame Butterfly mun vera ein af fimm vinsælustu óperum allra tíma. „Það má segja að Madame Butterfly hafi tekið óperuheiminn með stormi frá fyrstu tíð og flogið milli óperu- húsa með hraða yóssins," segir Garðar. Jólasýningin í ár verður barnaóperan Hans og Gréta eft- ir Engilbert Humperdinck sem byggir á samnefndu ævintýri. Verður hlutverkaskipan kynnt síðar. ÖIl aðalsmerki ítalskrar óperu Um mánaðamótin febrúar/ mars verður meistarverk Ver- dis, Otello, sett á svið, en um er að ræða endurflutryng á sýn- ingu frá 1992. í helstu hlutverk- um verða Garðar Cortes, Keith Reed og Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir auk Kórs íslensku óper- unnar. Hljómsveitarstjóri verð- ur Robin Stapleton og leikstjóri Morgunblaðið/ HÚS íslensku óperunnar hef- ur fengið andlitslyftingu fyrir veturinn. Þórhildur Þorleifsdóttir. Garðar segir að öll aðals- merki ítalskrar óperu sé að finna í Otello; stormsenu, sigur- kór, drykkjuvísu, ástarsenu, af- brýðis- og brjálsenu... æðsta stig ástar, haturs og afbrýði. „Otello er meistaraverk, enginn vafi, en ... er til slík ást, slíkt af- brýði, slíkt hatur?“ Starfsárinu lýkur siðan í júní, en þá verður íslenska óperan Galdra-Loftur, leikgerð Jóns Ásgeirssonar tónskálds á verki Jóhanns Siguijónssonar, frum- sýnd. Verður það jafnframt opnunaratriði Listahátiðar í Reykjavík 1996. Með helstu hlutverk fara Þorgeir J. Andr- ésson, Elín Ósk Óskarsdóttir. Þóra Einarsdóttir og Bergþór Pálsson. Hyómsveitarstjóri verður Garðar Cortes og leik- stjóri Halldór E. Laxness. íslensk ástar- og harmsaga Galdra-Loftur er íslensk ást- ar- og harmsaga sem Garðar segir að sé samofin samvisku þjóðarinnar. Hann segir enn- fremur að það sé alltaf fagnað- arefni þegar íslenskar óperur séu settar á svið hér á landi, en sú fyrsta, Þrymskviða, kom einmitt úr smiðju Jóns Ásgeirs- sonar árið 1973. Að auki mun íslenska óperan að vanda gangast fyrir nokkr- um tónleikum í vetur. Má þar nefna tónleika styrktarfélags- ins í haust og jólatónleika 16. og 17. desember auk nýársdans- leiks á Hótel íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.