Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Hvað getum við gert? ÞAÐ ER staðreynd að flest alvarleg of- beldisverk eru framin af körlum. Spyrja má hvernig standi á þess- um kynjamun, en því miður höfum við ekki einfalt svar við því. Leitað hefur verið skýringa á ýmsum sviðum, m.a. innan líf- fræðinnar, en ekki komist mjög langt. Rannsakað hefur verið hvort þetta tengist karlmannshormónum og vissulega eru til margar rannsóknir á dýrum sem sýna að ef aukning verður á karlkynshormónum verður dýrið árásargjarnara. í umræðum um steranotkun karlmanna hefur verið komið inn á það að íþrótta- menn sem neyta mikilla stera verða uppstökkir og árásargjarnari en endranær. Aðrir hafa rannsakað hvort of- beldi liggi í kynlitningunum. Þar hafa menn ekki heldur komist mjög langt. Bandarískir og hol- lenskir vísindamenn sem rannsök- uðu stóra hollenska fjölskyldu þar sem karlmennirnir voru þekktir fyrir ofbeldi fundu galla í kynlitn- ingi sem þeir töldu geta tengst hegðun þeirra. Litningur þessi stjórnar m.a. fram- leiðslu monoamime oxidasa, ensími sem stuðlar að framleiðslu boðefnis milli heila- fruma. Vísindamenn- irnir vita ekki ná- kvæmlega gang truflunarinnar, en telja að í heila þessara mana safnist saman of mikið af ýmsum boðefnum s.s. serótóníns, dópamíns og noradrenalíns. Sjúk- dómur þessi hrjáir aðeins 1 af hverjum 100.000 svo ekki kom- umst við langt í að skýra ofbeldi karla með þessari rannsókn. Á meðan við karlmenn bíðum eftir því að vísindamenn flnni út hvort við í eðli okkar séum gallað- ir, getum við gert ýmislegt í því að breyta því sem við gerum. Margt ofbeldisverkið er framið í Fyrsta skrefið er að hemja reiðina, segir —j------------------- Asþór Ragnarsson, sem hér fjallar um ofbeldi karla. reiði. Reiði er sú tilfinning sem karlmönnum hefur einna helst ver- ið „leyfð“ og þeir jafnvel hvattir til að sýna í gegnum tíðina. Því miður fer það oft svo að aðrar til- finningar.sem ekki er jafn „leyfi- legt“ að sýna eru bældar og síðar breytt í reiði, sem getur orðið að ofsa og leitt til ofbeldis. Stundum beinist ofbeldið að öðrum körlum, en oftar beinist það að konum sem við oft ómeðvitað viljum að sinni eða taki mið af „þörfum“ okkar. Ef hlutirnir þróast ekki eins og við viljum, refsum við konunum. Dæmi um þetta getur verið einfalt. Ég hef talsverðan áhuga á tölvum. Þeir sem þekkja tölvuáhuga vita að tölvur taka mikinn tíma, tíma sem ella færi í að tala, við konuna, Ásþór Ragnarsson börnin eða í ýmislegt nytsamlegt innan heimilisins. Ég hef sektar- kennd yfir tölvuáhuganum, því ég geri mér fulla grein fyrir því að ég gæti verið að gera annað gagn- legra en sitja fyrir fram- an skjáinn, Það er aftur á móti ekki karlmann- legt að viðurkenna að maður hafi samviskubit eða sektarkennd. Því fer það svo að þegar konan kemur og spyr mig hvort ég ætli að vera í allan dag í tölvunni, segi ég henni ekki að ég hafi sektarkennd yfir því, heldur breyti ég sektar- kenndinni í reiði og helli mér yfir hana með ræðu um það að maður fái aldrei að vera í friði við að sinna áhugamálum sínum. Eflaust getur þetta gilt um ýmis önnur áhugamál karla. í stað þess að beina reiðinni að sjálfum mér, sem væri rökrétt, beini ég henni að konunni, sem skilur ekk- ert í því hvað ég get rokið upp út af einfaldri spurningu. Þetta er ofbeldi, andlegt ofbeldi sem særir og það er aðeins stigsmunur á því og að bæta við höggi. Það merki- lega í þessu er svo það að eftir svona atburð gæti ég komið fram með sektarkenndina, ekki sektar- kennd yfir því að hafa varið of miklum tíma í áhugamál, heldur yfir því að hafa verið vondur við konuna. Það er samrýmanlegra karlmannsímyndinni að sektar- kenndin tengist slíku athæfi en því að verja of miklum tíma í áhugamál. Að vissu leyti er eins og ég með hegðun minni sé að skapa eitthvað sem betur réttlætir sektarkennd- ina. En hvað get ég gert? Fyrsta skrefið væri náttúrlega að hemja reiðina. Gamla góða hús- ráðið að telja upp að 10 er enn í fullu gildi og meira að segja viður- kennt af fræðimönum að með því að draga viðbrögð í mikilli geðs- hræringu, eins og reiði, aukast lík- ur á skynsamlegri hegðun. Það væri spor í rétta átt ef ég viðurkenndi fyrir sjálfum mér og öðrum að ég hefði sektarkennd yfir því að „helga mig“ áhugamál- inu. Það væri líka spor í rétta átt að ræða við konuna um samskipti okkar og fjölskyldunnar. Með því gæti ég bætt einum lit við í lita- flóru tilfínningalífs míns og stuðlað að betra lífi okkar. Höfundur er sálfræðingur. KARLAR gegn OFBELDi Stóra mann- réttindamýflugan UMRÆÐAN um skylduaðild að Stúd- entaráði Háskóla ís- lands snýst ekki lengur um meint mannrétt- indabrot á stúdentum eins og hún gerði í upp- hafi. Umræðan um mannréttindabrot á stúdentum hefur alla tíð verið byggð á mis- skilningi. Því hefur verið hald- ið fram að Stúdentaráð Háskóla íslands skyldi stúdenta til aðildar að félagsskap með því að neyða þá til að greiða félagsgjöld, burtséð frá því hvort þeir vilji það eða ekki. Auðvitað hafa alltaf verið takmörk fýrir því hversu áhugaverð þessi umræða getur orðið, enda er stúdentaráð vissulega enginn nas- istaflokkur. Staðreyndin er hins veg- ar sú, og menn virðast smám saman vera famir að átta sig á því, að stúd- entaráð innheimtir ekki félagsgjöld af stúdentum. Þannig er í pottinn búið, að há- skólinn innheimtir svokölluð skrá- setningargjöld af stúdentum þegar þeir skrá sig í háskól- ann. Skrásetningar- gjöldin eru tekjur há- skólans og það er hann sem ákveður hvað hann gerir við þau. Hins veg- ar, til þess að láta hluta af þessum tekjum renna til stúdenta- ráðs,eins og háskólinn hefur gert í áratugi, þarf háskólinn sérstaka heimild í lögum. Þessa heimild hefur alltaf vantað, eins og Um- boðsmaður Alþingis hefur bent á. Þessi skortur á heimildar- ákvæði er aðeins galli á formsatriðum, enda hefur háskólinn þegar samþykkt að breyta skuli lögunum til þess að bæta úr þessu. Með þessari samþykkt háskóla- ráðs er búið að taka af allan vafa og umræðan um það hvort verið sé að neyða einhvern til aðildar að stúd- entaráði ætti að vera liðin tíð. Af þessu tilefni vil ég jafnframt nota tækifærið og mælast til þess að menn geymi orð eins og mannrétt- indi og ásakanir um mannréttinda- Stúdentahluti skrásetn- ingargjalda Háskólans gengur, að mati Guð- mundar Steingríms- sonar, til þarfra hluta. brot þangað til menn þurfá raun- verulega á því að halda. Er stúdentaráð peninganna virði? Núna hefur minnihlutinn í stúdenta- ráði breytt málflutningi sínum. Núna heldur minnihlutinn því fram, að háskólinn eigi ekki veija peningum sínum til stúdentaráðs. Þetta er ákveðið lykilatriði: Stúd- entar eru stór hluti af háskólanum. Stóra spurningin er sú, hvort að stúdentar eigi að gera eitthvað í háskólanum að eigin frumkvæði, eða hvort þeir eigi einungis að borða það sem upp í þá er látið. Ef svarið er það, að þeir eigi að gera eitthvað, þá er spurningin hvernig. Svarið við þeirri spurningu er Guðmundur Steingrímsson Frá 15. september verður skrifstofa okkar opin frá kl. 9 til 17 alla virka daga. FJARMOGNUN HF - fyrir betri tíma SP-Fjármögnun, Vegmúli 3, Sími 588 - 7200 auðvitað löngu fundið. Það er í raun ekkert annað en ákaflega gömul hugmynd sem kallast fulltrúalýð- ræði. Stúdentar hafa með lýðræðisleg- um hætti áhrif í háskólanum. I krafti lýðræðis hafa stúdentar komið sér upp leið sem tryggir að það sé tekið mark á þeim. Stúdentar hafa vilja. Ef það er svo, að það eru til í háskólanum lýðræðislega kjörnir fulltrúar stúdenta, getur þá ekki háskólinn með góðri samvisku styrkt með peninguriT starfsemina sem er á þeirra vegum? Það er líka vel þess virði að skoða hvaða starfsemi þetta er. Stúdenta- ráð útvegar námsmönnum atvinnu á sumrin og veturna, húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og barnapöss- un. Einnig tilnefnir stúdentaráð meirihluta í stjórn Félagsstofnunar stúdenta, sem sér m.a. um Stúdenta- garðana, tilnefnir fulltrúa í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna og rekur sérstaka lánasjóðsþjónustu. Ég vil halda því fram, að starfsemi af þessu tagi stuðli með beinum hætti að jafnrétti til náms. Og stúdentaráð gerir miklu meira. Stúdentaráð sér t.d. um að ráðstafa umtalsverðum fjármunum til nem- endafélaganna í háskólanum í gegn- um svokallaðan Stúdentasjóð. Upp undir helmingur af þeim hluta sem rennur til stúdentaráðs af innritun- argjöldunum rennur beint í þennan sjóð og þaðan áfram til nemendafé- laganna. Stúdentaráð gefur út Stúd- entablaðið með þriggja vikna miili- bili yfir skólaárið, það starfrækir Réttindaskrifstofu stúdenta, hefur sérstakan kvennafulltrúa og dag- vistunarfulltrúa og það hefur umsjón með sjóði sem heitir Nýsköpunar- sjóður námsmanna. Þá ætla ég einmitt að nefna eitt mjög mikilvægt atriði. Nýsköpunar- sjóður námsmanna veitti á þessu sumri um 25 milljónum til rann- sóknaverkefna í háskólanum. Og fyrst ég er byrjaður að nefna tölur, þá má benda á það, að stúdentaráð aflaði annarra 25 milljóna í svokall- aðan Þjóðbókasjóð núna rétt fyrir jólin seinustu. Af þessu leiðir, að einungis á seinustu níu mánuðum hefur stúdentaráð safnað a.m.k. 50 milljón krónum í þágu háskólans. Ég vona að ég hafi sýnt með þess- ari upptalningu, að þeim hluta af skrásetningargjöldum sem er varið í starfsemi stúdenta er ekki varið í vitleysu. Það er hins vegar mjög at- hyglisvert að það eru ekki háskóla- yfirvöld sem hafa haldið fram slíkum sjónarmiðum, heldur eru það stúdent- ar. Það er hópur fólks á meðal stúd- enta sem heldur því fram, að tekjum háskólans verði betur varið í eitthvað annað og sá hópur heitir Vaka og hefur einmitt boðið sig fram til setu í stúdentaráði um sextíu ára skeið. Fjárframlög háskólans eru kjöl- festan í starfi stúdentaráðs og eru algjör forsenda þess að ráðið geti reicið skrifstofu, sem er aftur nauð- synlegt til að ráðið geti gert eitt- hvað yfir höfuð. Stúdentaráð þarfn- ast vitaskuld peninga í þennan grunnrekstur. Tekjuöflun stúdenta- ráðs hefur aukist mjög á undanförn- um árum. Stúdentaráð aflar í síauknum mæli styrkja til einstakra viðburða og þátta í þjónustunni. Ég sé hins vegar ekki að það sé beinlín- is raunhæft að ætla öðrum aðila en háskólanum að styrkja stúdentaráð til grunnreksturs á skrifstofu. „Stúdentaráð í boði Snickers" er ekki eitthvað sem ég sé fyrir mér eða finnst á nokkurn hátt aðlaðandi tilhugsun. Upphæðin sem háskólinn inn- heimtir af stúdentum, um 24 þúsund krónur, er ein og óskipt. Gagnvart stúdentum snýr málið þess vegna þannig, að ef stúdentaráð, sem er ráðið þeirra, fær ekki hluta af þess- um peningum, þá fara þeir í eitthvað annað. Það stendur í lögum að kennsla sem ríkið veitir verður að standa til boða endurgjaldslaust, þannig að peningunum má ekki veija til þess að bæta kennsluna. Pening- arnir myndu þvert á móti renna til stjórnsýslu háskólans ef stúdentaráð myndi ekki þiggja þá. í öllu falli, þá spyr maður sig óhjákvæmilega, hvers vegna kjörnir fulltrúar í stúd- entaráði vilja frekar að peningarnir sem þeir fá til starfsemi sinnar renni í eitthvað annað. Mér er það gjörsamlega hulin ráð- gáta. Frelsi til að velja Frelsi til að velja. Undir þeim fána háir minnihlutinn baráttu slna. Ég er að hugsa um að tileinka mér þetta slagorð í öðru og mikilvægara sam- hengi. Kosningar til stúdentaráðs hafa farið fram á hveiju einasta ári, undantekningalaust, í sjötíu og fimm ár. Á hveiju einasta ári geta stúdentar valið hvort þeir Bjóða sig fram í'stúdentaráð og einnig valið um það hveijir eigi að sitja í stúd- entaráði. Og jafnframt velja stúdent- ar óhjákvæmilega hvað á að gera í stúdentaráði. Það er þetta frelsi sem á eitthvað erindi í þessa umræðu. Frelsi er rétt- ur. Stúdentum er fijálst að kjósa og bjóða sig fram. Þetta er ákaflega mikilvægt. Þeir hafa rétt til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt og jafnvel bæta það. Ef stúdentar réðu hvort þeir borg- uðu e.k. félagsgjöld til ráðsins eða ekki, þá hefðu þeir sem borga meiri rétt. Og þannig virkar ráðið einfald- lega ekki. Stúdentaráð er fyrir alla. Höfundur er formaður Stúdenta- ráðs Háskóla Islands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.