Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 29

Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 29 Ferð á Ólympíuleikana Ferðaskrifstofan Útsýn hf. mun bjóða upp á hópferð á Ólympíu- leikana í Seoul i september 1988 í samvinnu við Handknattleiks- samband íslands. Innifalið i ferðinni eru miðar á alla leiki íslenska handknattleikslandsliðs- ins. Lagt verður af stað frá íslandi þann 14. september, og komið til Morgunblaðið/Einar Faiur Seoul daginn eftir. Þann 16. septem- ber verður farið f kynnisferð um Seoul, en daginn eftir verður opnun- arhátíð Ólympíuleikanna, og fyrsti leikur íslenska landsliðsins í hand- knattleik er þann 20. september, og eru andstæðingamir þá Bandaríkja- menn. Síðan keppir ísland við lið Alsírs, Svíþjóðar, Júgóslavíu og Söv- étríkjanna, en úrslitaleikir hand- knattleikskeppninnar eru þann 30. september, þegar leikið er um 5.-12. sætið, og þann 1. október, þegar leik- ið er um _ fyrstu fjögur sætin. Lokahátíð Ólympíuleikanna er 2. október, og daginn eftir halda íslensku ferðalangamir heim. Ferðin kostar 120-150 þúsund krónur eftir tegund gistingar, en það verð er miðað við gengi og flugfar- gjöld í desember 1987. Aðalfarar- stjóri verður Hermann Gunnarsson, sem var íþróttafréttamaður og lands- liðsmaður f mörg ár. Ganga þarf frá pöntunum á leiki fslenska landsliðsins og aðra viðburði á leikunum fyrir janúarlok 1988, segir í frétt frá Útsýn. íslenska landsliðið i handknatt- leik hefur oft sýnt frábæran árangur á undanförnum misser- um, og verður vonandi í topp- formi á Ólympíuleikunum í Seoul. Hér sést Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði landsliðsins, reyna markskot í leik íslands og gestgjafanna á næsta ári, Suður- Kóreu, sem fram fór í Laugar- dalshöllinni i vikunni. Krabbameinsfélagið: Gjöf til minningar um Stefán Jónsson í TILEFNI af afmæli Stefáns Jónssonar rithöfundar þann 22. desember færðu erfingjar hans krabbameinsfélaginu fimm hundruð þúsund króna gjöf til minningar um Stefán og konu hans, Onnu Aradóttur. Stefán var fæddur 22. desember 1905 og eru því 82 ár frá fæðingu hans. Hann lést í maí 1966 og Anna árið 1978. Krabbameinsfélagið þakkar þessa höfðinglegu gjöf sem rennur til bóka- safns krabbameinsfélagsins og kemur í góðar þarfir. (Fréttatilkynning) Stefán Jónsson Aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir lengt Vestmannaeyjum. AFLASKIPIÐ Þórunn Sveinsdótt- ir VE, sem verið hefur aflahæsti bátur í Eyjum undanfarin ár, er nú í lengingu i Skipalyftunni í Vestmannaeyjum. Ekki ætti því burðargeta að standa þvi fyrir þrifum að báturinn haldi áfram að slá aflamet. Eins og flestum er kunnugt heim- ila lög ekki að menn kaupi sér nýtt skip frá útlöndum, nema að viðkom- andi eigi bát fyrir, sem hægt er að láta upp í eða í staðinn fyrir. Menn hafa því brugðið á það ráð að láta breyta gömlu skipunum hér heima. Bátar eru lengdir, þeim lokað, þeir hækkaðir og skipt um innvols. Útkoman er oft því sem næst nýr bátur. Mikið hefur verið um þessar breytingar á bátum og togurum í Skipalyftunni hér í Eyjum. Eyjamenn unna þessu að vonum vel, enda skap- ar þetta mikla atvinnu. Núna stendur uppi í Skipalyftunni hf. mesti aflabátur Eyjanna síðustu tíu árin, Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Af því tilefni var aflakóngur Vestmannaeyja í tíu ár í röð, Sigur- jón Óskarsson, skipstjóri á Þórunni, tekinn tali. „Það er verið að lengja bátinn úr 29,3 metrum og 128 tonnum í 34,1 m og 154 tonn. Svo er verið að setja nýtt aðgerðarkerfí í bátinn og lifrar- tanka og dælu, auk annara breyt- inga.“ Verða þú og báturinn tilbúnir í slaginn um aflakónginn fyrir næstu vertíð? „Báturinn á að verða tilbúinn 24. janúar og vonandi kemst ég út með hann þann 25. Með aflakónginn þá skaltu spyija mig um það í lok ver- tíðar." Lengist kvótinn með aukinni lengd bátsins? „Nei, mér heyrist að hann muni frekar styttast." Hvemig líst þér á kvótakerfið? „Að mörgu leyti vel, það þarf að vera stjóm á fískveiðum. Hvemig til tekst er svo annað mál. Menn kom- ast upp með alltof mikið smáfíska- dráp, sóknarmarksskipin hafa of rúma heimild og það þarf að klípa af trillunum, þeim íjölgar og fjölgar og það er á kostnað aflakvóta okkar.“ Svo var Siguijón þotinn í burt. Kannski verður ástæða til að taka hann tali í lok vertíðar. — Bjarni. Morgunblaðid/Sigurgeir Jónasson Þórunn Sveinsdóttir VE er nú í lengingu í Skipalyftunni í Vestmanna- eyjum. ör IJ PION SJÓNVÖRP EER Einingabréf ótvíræð hagkvæmni ■ Með því að fjárfesta í Einingabréfum Kaupþings hf. tryggirðu þér og þín- um staðfestu og hagkvæmni í fjár- málum. Sparifé verður vart betur ávaxtað og það á einfaldan, tryggan hátt. Einingabréfin eru fyrsti verðbréfa- sjóður landsins og nú bjóðast Ein- ingabréf III, handhafabréf með 46%-48% nafnávöxtun, sann- kölluð öndvegisávöxtun. Kaupþing hf óskar ykkur gleðilegrar hátíðar og þakkar viðskipti ársins sem er að kveðja. Opið aðfangadag 09.00-13.00 Opið gandársdag 09.00-13.00 SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 24. desember 1987 Einingabréf 1 Einingabréf 2 Einingabréf 3 2.522,- 1.474,- 1.566,- Lífeyrisbréf 1.268,- SS SlS Lind hf. Kópav. 11.249,- 19.078,- 10.747,- 10.898,- . KAUPÞÍNG HF Húsi verslunarinnar • sími 68 69 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.