Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 9 HUGVEKJA Aðfanga- dagurjóla eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON Jóh. 1: 1.-4. Fæðing Bam að fæðast. Alltaf er það sama undur og kraftaverk — þetta einfalda en þó jafnframt stórbrotna, að Drottinn Guð gefur, skapar og blessar. Á þeirri stundu kallar hann for- eldra til ábyrgðar. Það er ekki alltaf auðvelt fyrir væntanlega foreldra að horfast í augu við það sem verður með breytingum á lífsháttum og aðstæðum. Væntanlegt barn kallar svo skilyrðislaust á ýmislegt sem foreldrar eru ekki tilbúnir að gefa, mæta eða að horfast í augu við. Þegar bam bíður þess að fá að fæðast virðist í dag vera um valkosti að ræða. Væntanleg móðir getur mætt lækni og fé- lagsráðgjafa og sagt að hún treysti sér ekki til að eiga bam- ið. Hún getur ákveðið að fæða það en síðan að gefa það hjón- um sem hafa þráð það lengi mest af öllu að geta eignast bam og hún getur ákveðið að eiga bamið. Við þá foreldra sem er þetta erfítt vil ég segja: Fóstureyðing getur aldrei bætt, hún getur skilið eftir nístandi samvizkubit og einnig það að konan getur ef til vill aldrei orðið móðir á ný. Hinir tveir valkostimir geta sýnst erfiðir en þeir geta aldrei orðið verri og þeir geta síðan veitt svo ómælda gleði og ham- ingju. Orðið heilög jól í orðanna fyllstu merkingu. Bam fæddist í jötu og það urðu hin fyrstu jól. Höfðu þau ekki kviðið því sem yrði? Áreið- anlega. Ung kona með köllun í bijósti sem hún trúði á og vildi hlýða og væntanlegur faðir, sem efaðist um svo margt, en hafði fengið vitmn í draumi. Þau urðu á versta tíma að hlýða kalli keisarans, sem lét skrá- setja alla þegnana til þess að tryggja skattlagningu og hver og einn varð að fara til sinnar heimaborgar, hvemig sem á stóð. Unga stúlkan, sem var komin að því að fæða bam, varð því að leggja af stað með manni sínum út í óvissuna. Og þegar stundin kom fundu þau ekkert húsaskjól. Bamið fæddist í jötu og unga konan varð móðir og karlmað- urinn varð faðir. Allur kvíði, ótti og þjáning var á braut og ekkert nema gleði og fögnuður, kærleikur og umhyggja var í huga þeirra beggja. Við tóku árin hans, þegar þau fengu að sannreyna köllunina og vitrun- ina, ekki aðeins með gleðinni, heldur einnig með sorginni og þjáningunni. Bam fæddist og helg urðu jól. í Jóhannesarguðspjalli er sagt frá þvi með þessum orðum: „í upphafí var orðið og orðið var hjá Guði og orðið var Guð; það var í upphafí hjá Guði. All- ir hlutir em gjörðir fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. í því var líf og lífíð var ljós mannanna og ljósið skín í myrkrinu og myrkrið hef- ur ekki tekið á móti því.“ Jóhannes guðspjallamaður tengir fæðingu Jesú Krists við sköpunina, fyrstu orð biblíunn- ar í fyrstu Mósebók: „í upphafí skapaði Guð himin og jörð.“ Jesús var Messías, sonur Guðs og Guð. Sköpunin er tengd N líkingu hins talaða orðs, sem við sköpum frá hinum ósýnilega heimi, sem hugsun okkar er, til orðsins, sem aðrir heyra og verður á þeirri stundu hluti hins sýnilega og áþreifanlega. Þessi sköpun Guðs varð eins og ljós sem lýsir í myrkri. Myrkrið er ímynd allra erfíðleika, alls kvíða, sorgar og þjáningar og við getum aðeins með einu móti hmndið myrkrinu á braut: Með því að kveikja ljós. „Ljósið skin í myrkri.“ Það em jól. Sá fögnuður sem við lifum á dýrmætustu stundum lífs okkar, þegar við skynjum nálægð Guðs blessunar og tök- um á móti gjöfum hans, orði hans og leiðsögn hans. Ég held að sú stund sé stærst gefín og bezt þegin við fæðingu bams. Þá opnast allar tilfínningar til fómar og kærleika, vemdar og umhyggju. Bamið, svo vamar- laust í stómm myrkum heimi, kallar á allt það bezta sem með okkur býr og á þeirri stundu er eigingiminni hrandið á braut. Þá skín ljósið. Myrkur áhyggna og kvíða og þeirrar hugsunar að bamið taki frá okkur tíma og tækifæri til að lifa lengur áhyggjulausu lífí er fjarri. Og fóstureyðing er fjarlægust af öllu. Jólin koma til okkar með misjöfnum hætti. Þau reyna alltaf að kveikja okkur trúar- ljós. Þau minna á allt sem er okkur dýrmætt, sem getur tengst gleði og sorg, hamingju og eftirsjá. Þau gefa okkur tækifæri til að skilja hversu stutt er þar í rhilli og hvemig sorgin getur verið okkur dýr- mæt. Jólin em okkur einnig tækifæri til að lifa sáttargjörð — að sættast við Guð og sætt- ast við þann sem maður er í ósátt við og sé hann náinn ætt- ingi, þá umlykur boðskapur jólanna þá sátt sem að heilind- um er unnið að. Barn fæðist. Þar er upphaf jóla. Frá Guði á himnum komu þau og urðu í hjarta móðurinn- ar og föðurins sem áttu ekkert að gefa nema ást og kærleika en í þeirri gjöf vom jólin sjálf. Því hlýtur að vera erfítt að lifa jól dagsins í dag af svo miklum nægtum með svo dýmm, keypt- um gjöfum. Það em jól hins dekraða bams, en ekki jól bamsins, sem biður um að fá að fæðast, biður um kærleika og vemd, biður um tíma for- eldra, biður um að því séu kenndar bænir og signing, sem leiði það í trú á Drottin Guð, þannig að það sé fært um að taka á móti honum í ljósum jólanna, frásögnum guðspjall- anna, söng og lögum sálmanna og að með innri augum sjái þau fyrir sér fjárhirðana, vitringana og englana sem sungu: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á.“ í dag klukkan sex hringja klukkumar inn jólin. Guð gefí þér hæfíleika bamsins að taka á móti jólunum, að taka á móti Jesú Kristi með trúartrausti og opnum huga. Guð gefí þér heilög jól. FERÐASKRIFST 0 FAN SAGA ÓSKAR LANDSMÖNNUM ÖLLUM VIÐ VEITUM ALHLIÐA FERÐAÞJÓNUSTU HVAR OG HVERT SEM ER: Viðskiptaferðir, einstaklingsferðir, vörusýningar, innanlandsferðir, rútuferðir, hópferðir og leiguflug. Leitaðu ekki langt yfir skammt því ferðaúrvalið hjá okkur er meira en þig grunar. Costa del Sol, Italía, Portúgal, Frakkland, Þýskaland, Túnis, Marokkó, Egyptaland, Ástralía, Kína, Indland, Bandaríkin, Austurlönd fjær og Karabíska hafið. Þetta eru þau lönd m.a. sem við bjóðum ferðir til árið 1988.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.