Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 25

Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 25 Hvað er Morgunblaðið margspningið? Vegna skrifa Ólafs M. Jóhannessonar eftirHelga Pétursson Ágæti Ólafur! Stutt athugasemd við pistil þinn laugardaginn 12.12., ætluð til birt- ingar: Við sem stöndum að þættinum 19:19 gerum okkur vel grein fyrir því, að auglýsingar eru margar í þættinum. Teljum reyndar auðsætt, að það fylgi þessum árstíma og þeirri staðreynd, að auglýsendur telja auglýsingatma okkar skila miklum árangri. Ólafur, — það er ýmislegt nýtt og framandi að ger- ast á flölmiðlasviði, — meðal annars það, að sjónvarpsstöð verður að standa á eigin fótum, — með eigin tekjum. Við — eins og aðrir auglýs- endur, gerum okkur einnig grein fyrir því, að besti möguleiki okkar til þess að ná til áhorfenda er í gegnum 19:19. Þar vekjum við at- hygli á lífsakkeri stöðvarinnar, myndlyklum, rétt eins og Morgun- blaðið hvetur til áskriftarkaupa á síðum sínum. Stöð tvö er algjör nýjung fyrir fólk í þessu tilliti, einn- ig kollega í fjölmiðlun. Við erum ekki einhver ríkisrekin rödd af himnum, heldur er okkur mikil nauðsyn á að hafa samband við áskrifendur okkar, sem hafa tekið sjálfviljuga ákvörðun um kaup á áskrift og myndlykli. Og líttu þér nær, Ólafur: Blaðið þitt, Morgunblaðið, þennan sama dag og þú býsnast yfir auglýsinga- flóði hjá okkur, er 96 síður. Þar af eru auglýsingar og fréttatilkynn- ingar 67 síður. Morgunblaðið sjálft er því 29 síður þann dag. Ég efast um, að fjárhagsdeild Morgunblaðs- ins vildi breyta þessu og skil það vel, því öll verðum við jú að lifa. En umræða um auglýsingar, beinar og óbeinar, er þörf og nauðsynleg. Hvenær erum við að auglýsa menn eða málefni eða vörur eða fyrirtæki í fréttum, greinum eða auglýsingum og hvenær ekki? Þakka annars mörg hlý orð í okkar garð og málefnalega umfjöll- un. . Höfundur er umsjónarmaður 19:19 á Stöð 2. Vestur á Melum hér í Reykjavík eiga þær heima vinkonurnar Margrét Erla Hróðmarsdóttir og Þóra Jónsdóttir. Efndu þær til hlutaveltu tíl ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða krossins og söfnuðu 550 kr. I 70 AR =k'ÁHI JMFTTTT — GERIÐ VERÐSAM AIMBURÐ 1200* 000- * Ví'>' V*.ff'j?', ............ < ♦ > X <♦•£»■<•<!> » * ****.'-*•••♦*-* *<*♦*>I*íí <,(} - •♦***••>w ÍNNÍ-BOMBUR mm Íií: [SVÍFBLYS ÍKULUBLY S *'**■ • SÓLf R ::::::: MgLao-li Ihanoblys ■ 'TS »«.x* ♦♦*! ....... [14 00« imu.s.. sSSsSiif*? Íj:::]::::; OPIÐ 28., 29., 30. DES. TIL KL. 18.30, GAMLÁRSDAG TIL KL. 12.00. wH Ananaustum, Grandagarði 2, símar 28855 Til skipa: Pains Wessex línubyssur, svifblys og handblys - vörur með gæðastimpli. FariÖ varlega. GleÖilega hátíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.