Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 1
64 SIÐUR 293. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétríkin: Alþýðan andsnúin glasnost? Moskvu, Reuter. SOVÉSKI leikstjórinn Tengiz Abuladze sagði í viðtali við Moskvufréttir i gær, að hin svo- nefnda umbótastefna Míkhaíls Gorbatsjovs ætti milljónir óvina og gaf í skyn að yfirgnæfandi meirihluti íbúa Sovétríkjanna væri henni mjög andstæður. Þetta kom fram í viðtali við leik- stjórann, en hann var meðal þeirra sem beðinn var að segja fyrir um horfur á árinu, sem senn fer í hönd. Abuladze vitnaði í Vladímír Lenín, stofnanda ríkis kommúnista eystra, og sagði að skrifkeramir væru mestu óvinir alþýðunnar. „Því miður er þessi óvinur í sömu aðstöðu nú; her skrifkera telur 18 milljónir, en hann ætti, eins og margoft hefur verið sagt, að skera niður um tvo þriðju,“ sagði Abul- adze. „Þetta fólk er helsti óvinur „perestrojku", bætti hann við, en leikstjórinn hlaut heimsfrægð fyrir mynd sína „Iðrun“, sem íj'allaði um glæpi þá sem framdir voru í Sov- étríkjunum á Stalínstímabilinu. Abuladze virtist telja að um 200 milljónir Sovétmanna væru and- stæðar breytingum Gorbachevs, en í Sovétrílq'unum búa alls um 283 milljónir. Bretland: Drottningin vinsælli en Díana London, Reuter. ELÍSABET Bretadrottning nýt- ur örlítið meiri vinsælda meðal breskrar alþýðu en tengdadóttir hennar Díana prinsessa af Wal- es. Kemur þetta fram í skoðana- könnun sem birt var á Bretlandi í gær. Breska sjónvarpsstöðin ITV býð- ur áhorfendum upp á sérstaka dagskrá þar sem fjallað verður ítar- lega um hvað Bretadrottning og ættmenni hennar aðhafast yfir jóla- hátíðina. Þótti því við hæfi að kanna vinsældir einstakra fjölskyldumeð- lima meðal þegnanna. í ljós kom að Játvarður prins, yngsti sonur drottningar, er í hvað minnstum metum en Elísabet drottning sigraði Díönu naumlega. 71 prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni kváðust telja að ávinn- ingurinn af konungdæminu væri miklu þyngri á metunum en kostn- aðurinn sem væri því samfara. Er þetta öllu lægra hlutfall en í sam- bærilegri könnun sem gerð var árið 1981. I báðum þessum könnunum voru 22 prósent þátttakenda á gagnstæðri skoðun. Vínþjófnaður í Frakklandi: Enginn vill leggja lög- reglunni lið Bordeuax. Reuter. LÖGREGLAN í Bordeaux í Frakklandi, því mikla vínræktar- héraði, stendur nú ráðþrota frammi fyrir líflegri verslun með stolin eðalvín. Veldur það mest- um erfiðleikum, að sönnunar- gögnin hverfa óðara niður um kverkarnar á þorstlátum kaup- endum. Þegar líður að jólum leggja Frakkar mikið á sig til að komast yfir góð og gömul vín á lágu verði og það vita þjófamir, sem hafa í nokkur ár stundað það að stela úr birgðageymslum hvorki meira né minna en 4.000 vínframleiðenda. Hefur lögreglan verið á hælum þeim í þrjú ár en kaupendumir kæra sig ekkert um að létta henni róðurinn enda fá þeir flösku, sem kostar allt að 20.000 ísl. kr., fyrir hlægilega lágt verð. „Þegar þjófar reyna að losa sig við annað þýfi verður alltaf einhver til að láta okkur vita en þótt eðal- vínin stolnu renni út eins og heitar lummur höfum við aldrei fengið eina einustu upphringingu," sagði Jean-Louis Casties, lögreglustjóri í Bordeaux. Finnsku forseta- kosningarnar: Koivisto spáð öruggumsigri Helsinki, Reuter. MAUNO Koivisto, forseti Finn- lands, virðist öruggur með að bera sigur úr býtum í forseta- kosningunum, sem verða í landinu í næsta mánuði. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í gær, hefur Koivisto fylgi 55% kjósenda, einum af hundraði minna en fyrir mánuði. Harri Holk- eri forsætisráðherra, sem einnig býður sig fram, hafði aðeins stuðn- ing 14% kjósenda og þriðji fram- bjóðandinn, Paavo Várynen, formaður Miðflokksins, 13%. Vaxandi ólga í Svíþjóð vegna kafbátaferða Sovétmanna Stokkhólmi, Reuter. SVÍAR og Sovétmenn hafa und- anfarna daga skipst á harðorðum yfirlýsingum vegna meintra ferða sovéskra kafbáta í sænska skerjagarðinum. Nikolaj Ryzh- kov, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, sem væntanlegur er í heimsókn til Sviþjóðar í næsta mánuði, sagði í viðtali við dag- blaðið Dagens Nyheter í gær að deila þessi gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir samskipti ríkjanna. Ryzhkov neitaði því harðlega að sovéskir kafbátar væru á sveimi nærri ströndum Svíþjóðar. „Leggið fram sönnunargögnin ef þið þá hafið þau. Þá getum við rætt mál- ið,“ sagði Ryzhkov í viðtalinu við Dagens Nyheter og var að sögn blaðsins hinn reiðasti því hann barði í borðið að þessum orðum slepptum. „Ég vil að það komi skýrt fram að sovöskir kafbátar hafa ekki siglt innan sænskrar landhelgi utan einu sinni árið 1981,“ sagði hann en það ár strandaði sovéskur kafbátur nærri flotastöðinni við Karlskrona. Ryzhkov er væntanlegur til Svíþjóð- ar þann 11. janúar og hefur svo háttsettur sovéskur embættismaður ekki sótt Svía heim í 14 ár. Ingvar Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, hefur fyrirskipað flotanum að sökkva óvinveittum kafbátum í stað þess að freista þess að neyða þá upp á yfirborðið. Háttsettur sænskur embættismað- ur sagði í gær að Carlsson hygðist ræða þetta mál við Ryzhkov og gera honum ljóst á „skýran og ótví- ræðan hátt“ að stjórnvöld í Svíþjóð hygðust veijast þessum ágangi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.