Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
45
ÞRJÁR SHÖRNUR FRÁ
MITSUBISHI
Gallerí Hallgerður:
Skálar og
vasar úr leir
GUÐNÝ Magnúsdóttir hefur
opnað sýningu á verkum unnum
f leir í Gallerí Hallgerði á horni
Bókhlöðustfgs og Laufásvegar.
Verkin á sýningunni eru aðallega
skálar og vasar mótað í ljósan leir.
Flest verkin eru unnin á þessu ári
en nokkur eru frá 1983.
Guðný Magnúsdóttir er fædd
1953 og stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1970-1974 og framhaldsnám við
finnska listiðnaðarháskólann í Hels-
inki 1981-1984.
Guðný hefur tekið þátt í samsýn-
ingum í Reykjavík, Helsinki,
Stokkhólmi og víðar. Einnig hefur
hún verið með einkasýningar í
Reykjavík og Helsinki.
Sýningin stendur til 25. október
ogeropinalladagakl. 14.00-18.00.
Guðný Magnúsdóttir við hluta
verka sinna sem hún sýnir f Gall-
erí Hallgerði.
Ársþing ungtemplara:
Stjórnvöld leggi áherslu á
forvarnir gegn fíkniefnum
ÍSLENSKIR ungtemplarar héldu
29. ársþing sitt f Hrannarskála í
Skálafelli dagana 26. og 27. sept-
ember en samtökin voru stofnuð
sumardaginn fyrsta 1958. Á
þinginu voru meðal annars sam-
þykktar ályktanir þar sem stjórn-
völd eru hvött til að standa vörð
nm gildandi áfengismálastefnu
og leggja áherslu á forvarna-
starf f fíkniefnamálum.
Auk hefðbundinna þingstarfa var
að venju fjallað um ýmis mál á þing-
inu. Til stendur að samtökin festi
kaup á húsnæði fyrir félagsstarf
sitt en þsLÖ mun hafa vantað um
árabil. Á næsta ári halda ungtempl-
arar upp á 30 ára afmæli samtaka
sinna og verður þess meðal annars
minnst með hátíðarútgáfu Sumar-
mála þar sem meðal annars verður
rakin saga og starfsemi samtak-
anna. Einnig eru áætluð stóraukin
samskipti við ungtemplara í Fær-
eyjum á næstu árum og á þinginu
kom fram áhugi á að kanna mögu-
leika á samstarfí við Grænlendinga.
í fréttatilkynningu frá ungtempl-
urum segir að mikilvægi starfsemi
ungtemplara hafí vaxið með auk-
inni fíkniefnaneyslu unglinga og
þörfín fyrir samtökin hafí líklega
aldrei verið meiri. íslenskir ung-
templarar séu vettvangur ungs
fólks sem hafni neyslu fíkniefna og
vilji vinna skipulega að því að afla
þeirri lífsstefnu fylgis meðal ungs
fólks. Ennfremur hafí samtökin
bætt friðsamlegri samskiptum á
milli þjóða á stefnuskrá sína.
Eftirfarandi ályktanir voru sam-
þykktan
29. ársþing íslenskra ungtempl-
ara skorar á alþingismenn að
standa vörð um gildandi áfengis-
málastefnu sem miðar að því að
halda áfengisneyslu í lágmarki og
fara um leið að tilmælum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar um að
draga úr áfengisneyslu um fjórðung
fram til næstu aldamóta. Því skorar
þingið á alþingismenn að beita sér
gegn því að leyft verði að selja
áfengan bjór í landinu þar sem það
myndi auka heildameyslu áfengis.
Ársþingið hvetur stjómvöld til
að leggja áherslu á forvamarstarf
í fíkniefnamálum og tryggja til þess
fjármagn þrátt fyrir áætlaðan sam-
drátt í útgjöldum ríkisins á komandi
ári._
Arsþingið fagnar áföngum í sam-
skiptum risaveldanna í afvopnunar-
málum sem miða að tryggari friði
í heiminum. Hvetur þingið stjóm-
málamenn og sérstaklega þá er
móta utanríkisstefnu landsins til að
skipa íslandi í fylkingu þeirra þjóða
sem vilja eiga frumkvæði að tilslök-
unum sem byggja á gagnkvæmu
trausti.
MITSUBISHI COLT isooglx
— Hagkvæmur í rekstri
— Auðveldur í akstri
Stjóm íslenskra ungtemplara sem kjörin var á ársþinginu: Ingiberg-
ur Jóhannsson formaður, Guðni R. Björasson, Aðalsteinn Gunnarsson,
Stefania Sæmundsdóttir varaformaður og Arndís Hilmarsdóttir.
MITSUBISHI LANCER isooglx
Kostaríkur bíll sem kostar lítiö
—■:
......—--
NYJUNG
MITSUBISHI SAPPORO
ViöhafnarbíU í sérfíokki
— Tölvustýrð innsprautun (ECI)
— Tölvustýrt fjöðrunarkerfi (ECS)
— Læsivörn á hemlum (ABS)
□ Allir meö framhjóladrif.
□ Allir meö aflstýri.
□ Allir meö snertulausa
kveikju.
□ Allir meö rafstýröa útispegla.
□ Allir meö rúllubílbelti í hverju
sæti.
□ Allir meö litaöar rúöur.
□ Allir meö tvískipt, fellanlegt
aftursæti.
Það borgar sig að bíða
eftir bíl frá Mitsubishi
HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500