Morgunblaðið - 17.10.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LA.UGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
21
góð en öðrum vond. Enginn er
hlutlaus. Þessi ótvíræða afstaða
manna er erfðafræðileg og getur
verið vísbending í bamsfaðernis-
málum!
Riddarastjaman eða amaryllis,
sem réttu nafni heitir Hippeastrum
x hortorum, er garðyrlcjutegund
sem gerð er úr fjölda forfeðra og
formæðra úr sömu ættkvísl, er af
sömu plöntuætt og jólaliljan sem
getið var hér á undan, Am-
aryllidaceae, sem svo aftur hefur
fengið naftiið páskaliljuætt á
íslensku.
Riddarastjaman er á boðstólum
haust og vor. Eftirfarandi leið-
beiningar taka mið af haustrækt-
un og jólablómgun: Setjið hvem
iauk í 15 sentimetra pott. Fyllið
vel á milli rótanna með venjulegri
pottamold og látið um það bil
helminginn af lauknum. Vökvið
varlega og lítið fyrst í stað. Of
mikil vökvun á þessu skeiði getur
valdið því að blöðin taki yfírhönd-
ina og skilji blómin eftir ofan í
lauknum. Eftir að blómspírumar
eru komnar í yburðarliðinn“ er
vökvun aukin. Aburðargjöf gerir
ógagn. Látið pottinn standa í
björtum stofuglugga og það er
gott ef hann getur fengið undir-
hita frá miðstöðvarofni. Sé vökvun
í lagi og hitinn nægur, blómstra
riddarastjörnulaukamir eftir 4—6
vikur. Blómlitir em rauðir, bleikir,
hvítir eða skræpóttir. Ekki borgar
sig að hirða áfram um riddara-
stjörnulaukana eftir .jólablómg-
un“. Þeir taka mikið pláss og
blómstra treglega aftur. í næstu
viku skrifa ég um „driflauka" fyr-
ir gróðurskála og ker.
Hafsteinn Hafliðason
Prá félaginu:
Næsti fræðslufundur félagsins
verður haldinn í Holiday Inn næst-
komandi þriðjudag, 20. október,
kl. 20.30.
oktober með afgreiðslu álæktana
og annarra þingmála, ásamt kosn-
ingu forseta og varaforseta. Þá
verður einnig lýst tilnefningum í
stjóm.
Þingfulltrúar verða væntanlega
um 200 talsins frá 46 aðildarfélög-
um landssambandsins og fleiri
aðilum. Auk þess verður sérstök
dagskrá fyrir maka þingfulltrúa.
Alls er því ger ráð fyrir að hátt á
þriðja hundrað manns gisti Akur-
eyri á meðan á þinghaldinu stendur.
Skorað á
Kópavog að
neyta for-
kaupsréttar
HÓPUR áhugamanna hefur snúið
sér til Kristjáns Guðmundssonar,
bæjarstjóra í Kópavogi, og falast
eftir að ganga inn i væntanlegan
kaupsamning milli eigenda
Smárahvammslands og Sambands
íslenskra samvinnufélaga, en
Kópavogsbær hefur forkaupsrétt
að landinu.
„Þetta eru menn sem hvetja okkur
til að neyta forkaupsréttarins og selja
þeim síðan landið á hærra verði,“
sagði Kristján. Hann sagði að engin
skrifleg yfírlýsing hefði borist til
bæjarráðs sem hélt fund á fímmtu-
dag en hér væru á ferð aðilar í
byggingariðnaði.
„Við höfum átt viðræður við Sam-
bandið og höfum 28 daga til að svara
þeim og um það snýst málið núna,
en ef yfírlýsing kemur þá verður hún
einnig lögð fram á fund bæjarráðs,"
sagði Kristján.
Sjúkralíðar
útskrifaðir
Sjúkraliðaskóli íslands útskrifaði
33. hópinn 10. september sl.
Fremsta röð talið frá vinstri:_Ey-
gló H. Jóhannesdóttir, Ásta
Bjarnadóttir, Kristbjörg Þórðar-
dóttir skólastjóri, Linda B. Hólm,
Bogey R Jónsdóttir, Lilja Björg-
vinsdóttir. Miðröð: Jóna Björk
Ragnarsdóttir, Jónína I. Sigur-
vinsdóttir, Inga Helga Jónsdóttir,
Jóhanna Ó. Sigfúsdóttir, Sigurey
G. Lúðvíksdóttir, Helga H. Níels-
dóttir. Aftasta röð: Anna P.
Árnadóttir, Margrét Aðalsteins-
dóttir, María Siguijónsdóttir,
Gunnar L. Friðrikson, Anna I.
Erlendsdóttir, Þ. Ragnheiður
Ragnarsdóttir, Jóhanna Ragnars-
dóttir.
(skíðaferðum vetrarins stefnum við á gamlar og
grónar skíðaslóðir sem eru íslensku skíðafólki að
góðu kunnar um leið og við bryddum upp á ferskum
nýjungum sem vert er að veita verulega athygli.
Við höldum þó fast í nokkra gamla siði og leitum að
vanda enn betri valkosta í gistingu, treystum
einungis á færustu fararstjórana og leggjum meiri
áherslu en nokkru sinni fyrr á val bestu
skíðasvæðanna. f árskíðum við enn hærra!
SÖIDIN 0C SJUIBACH/HIHWNHIMM
- Einungis fyrsta flokks skíðasvæði
Aðal skíðastaðirnir í ár, Sölden og Saalbach/Hinterglemm,
hafa fyrir löngu skipað sér sess á meðal allra bestu
skíðalanda Evrópu. Fjölbreyttir möguleikar í gistingu, vel
staðsett hótel og vandaðir gististaðir ásamt fyrsta flokks
skíðaaðstöðu og fullkomnum aðbúnaði til leikja og hvíldar eru
dýrmæt trygging fyrir hnökralausri ferð.
SKiDiimmu
Nú liggur leiðin á skíði í Coloradofylki í Bandaríkjunum, þar
sem aðstaðan í hrikalegri náttúrufegurð Klettafjallanna gefur
bestu skíðasvæðum Mið-Evrópu ekkert eftir.
mmmísuam
Enn ein nýbreytnin er sérstakt tilboð Samvinnuferða-Landsýnar á
skíða- og listaferð til Salzburg. Þú skíðar á mörgum nafntoguðustu
skiðasvæðum Austurríkis á milli þess sem þú stundar listina að lifa
í háborg tónlistar og menningar!
Dæmi um verð:
Jólaferð til Sölden
19.des.-2.jan.
Verð frá kr.
38.540,
miðaö við gistingu með morgunverði í tveggja manna
herbergi á Haus Meier. Innifalið i verði er akstur til og frá
flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur
kr. 9.000 fyrir böm yngri en tólf ára.
Brottför:
19.des.-2vikur.
13.feb.-2vikur.
27. feb. - 2 vikur.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91-27077 & 91-28899
Hótel Sögu við Hagatorg 91-622277. Akureyri: Skipagötu 14 96-21400