Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 48
Bítlaæðið cboADW/C LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 VERÐ I LAUSASÖLU 20 KR. Lánskjaravísitala hækkuð um 1,83%: FH-ingar í átta liða úrslit Morgunblaðið/ Friöþjófur FM-ingar verAa að teljast komnir í átta liöa úrslit Evrópukeppninnar í handknattleik eftir stórsigur á ísraelska liðinu Maccaby Tel Aviv í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hér skorar I»orgils Óttar Mathiesen eitt af mörkum FH í leiknum. Enn dregur úr verðbólguhraða SEÐLABANKI íslands hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir desember- mánuö og reyndist hún vera 836 stig, en hún var 821 stig í nóvembermánuði. Hækkunin milli mánaða er 1,83%, sem jafngildir tæplega 24,2% árshraða verðbólgunnar. Lánskjaravísitala er saman sett af framfærsluvísitölu að % hlut- um og byggingarvísitölu að Vi hluta. Framfærsluvísitala hækk- aði á dögunum um 2,74%, en bygg- ingarvísitala var hins vegar áætl- uð 0,11% í vikunni. Verulega hefur dregið úr verð- bólgu undanfarna mánuði, en hraði hennar, miðaður við hækkun lánskjaravísitölu, er nú um 24,3% eins og áður en sagt. Verðbólgu- hraðinn var hins vegar töluvert á annað hundrað prósent á fyrri hluta ársins. Sérfræðingar gera ráð fyrir að framfærsluvísitala hækki nokkuð minna í næsta mánuði, en í nóv- ember, þannig að enn muni draga úr verðbólgu. Skoðanakönnun Hagvangs hf.: 64,1% telja aukna stór- iðju efla atvinnulífið RÚMLEGA 64% þjóðarinnar eru þeirrar skoðunar, að aukning stór- iðju frá því sem nú er muni efla íslenskt atvinnulíf. Kemur þetta fram í skoöanakönnun, sem Hag- vangur hf. hefur framkvæmt og Morgunblaðið hefur birtingarrétt á. Hins vegar svarar tæplega fjórðung- ur þeirra sem spurðir voru eöa 24,1% þessari spurningu neitandi. Karlar hafa meiri trú á stóriðju að þessu leyti en konur. I»annig svöruðu 69,8% karla spurningu um þetta efni játandi en 58,5% kvenna. Aðspurðir um það, hvort aukn- ing stóriðju mundi stuðla að hag- kvæmari nýtingu okkar eigin orku, svöruðu 65,5% játandi en 18,5% neitandi. Yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda taldi, að aukin stóriðja mundi skapa mögu- leika á auknum gjaldeyristekjum eða 75,8% en 8,8% svöruðu þeirri spurningu neitandi. Af þeim sem spurðir voru svör- uðu 46,5% neitandi spurningu um það, hvort aukin stóriðja mundi leiða til hærra orkuverðs til al- mennings en 38% svöruðu þeirri spurningu játandi. Tæplega helmingur þátttakenda eða 49,3% taldi, að aukning stór- iðju mundi gera okkur of háða er- lendum aðilum en 39,4% svöruðu spurningu um það neitandi. Loks taldi liðlega helmingur eða 50,8%, að aukning á stóriðju mundi hafa í för með sér óhagkvæma fjárfest- ingu en 27,5% svöruðu þeirri spurningu neitandi. Skoðanakönn- un Hagvangs hf. náði til landsins alls og voru 1.300 þáttakendur valdir úr af handahófi úr þjóðskrá af Reiknistofnun Háskóla íslands •fneð leyfi Hagstofu íslands og tölvunefndar. Svarprósenta af brúttóúrtaki var 76,9% en af nettóúrtaki 85,7%. Könnunin fór fram í gegnum síma og stóð yfir frá 28. október til 6. nóvember sl. Sjá nánar yfirlit um skoöanakönnun Hagvangs hf. um stóriðju á miðopnu. Breyttur afgreiöslutími verslana í Reykjavík: Breyting- arnarí gildi í dag REGLUR um breyttan afgreiðslu- tíma verslana í Reykjavík taka gildi í dag, föstudag, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti breytingar þessar á fimmtudagskvöld og voru breyt- ingarnar síðan staðfestar j fé- lagsmálaráðuneytinu í gærmorg- un. Þá var og í gær gefin út hin nýja reglugerð í Stjórnartíðind- um, þannig að breytingarnar taka gildi í dag. Samkvæmt reglunum er heim- ilt að hafa verslanir opnar til klukkan 20, mánudag til fimmtu- dags, til klukkan 22 föstudaga og laugardaga til kl. 16. Hæstiréttur: Skylt að framreikna veðlán í kaupsamningi HÆSTIRÉTTUR hafnaði, i dómi sem kveðinn var upp nýlega aði'kaupanda fasteignar væri skylt að'gefa út skulda- bréf fyrir þeim hluta láns frá Veðdeild Landsbanka íslands, sem stofnað hafði verið til vegna verðtryggingar láns, frá þeim tíma sem lánið var tekið og þar til eignin var seld. Eins og venja er í fasteignavið- skiptum greiddi kaupandi út tals- verðan hluta kaupverðs, gaf út skuldabréf fyrir eftirstöðvum og tók að sér áhvflandi skuldir á fasteign- inni. í kaupsamningi segir um fyrr- greint veðdeildarlán: „Kaupandi tek- ur að sér að greiða eftirtaldar eftir- stöðvar áhvílandi veðskulda: Á 1. veðrétti: Upphaflega krónur Fjórir menn sluppu naumlega er krani valt í Örfirisey: Mikil mildi að allir sluppu ómeiddir FJÓRIR menn sluppu naumlega, er krani valt úti í Órfirisey í gærmorgun, þar sem unnið er við byggingu viðlegukants fyrir olíuskip. Ekkert var í gær hægt að segja um orsakir slyssins, en Vinnueftirlit ríkisins hefur rannsókn málsins með höndum. Unnið var við að rífa utan af tveim stöplum sem steyptir höfðu verið út í sjó. Krani, sem stóð á bryggjunni, hífði tvo menn í körfu frá stöpli sem búið var að rífa utan af, að öðrum sem hefja átti störf við, þegar slysið varð. Einn maður vann við stöpulinn á fleka og fjórði maðurinn var uppi á stöplinum. Þegar karfan átti skammt eftir að stöplinum hvolfdi krananum fram af bryggjunni og karfan með mönnunum tveimur fór i sjóinn. Bóma kranans féll á flekann og hvolfdi honum og mað- urinn sem á honum var kastaðist í sjóinn. Mennirnir komust um borð í flekann og á honum í land. Sá sem var á flekanum marðist á upphandlegg, en að öðru leyti sluppu mennirnir ómeiddir að öðru leyti en því, að þeir voru kaldir eftir volkið. Þeir voru flutt- ir á slysadeild, en fengu að fara heim að rannsókn lokinni. „Það er ljóst að það hefur farið undan einum stuðfætinum, þeim sem lá næst því, þar sem verið var að hífa,“ sagði Reynir Hjálmtýs- son, einn eigandi kranans sem hvolfdi, en hann er í eigu Orra. Hann sagði það mikla mildi að engin slys hefðu orðið á mönnum og þeir allir sloppið óskaddaðir. Slysið varð um klukkan 8.30. ístak vinnur að þessum fram- kvæmdum og var kraninn í leigu hjá þeim. Sjá viötöl á miösíðu. Platan undir stuðfæti kranabílsins sem fór undan, þannig að kraninn valt út af bryggjunni. Morgunblaftið/ RAX. 1.700.000 (gkr. innsk. Mbl.), vísitölu- tryggðar samkvæmt 3 veðbréfum dagsettum 17.9.’75, 1.6.’76 og 5.10.’76, eftirstöðvar án vísitölu ca. 1.630.000.“ Kaupverð fasteignarinnar var 57 milljónir gkr. t dómi Hæstaréttar segir, að í kaupsamningnum séu engin ákvæði sem gefi ótvírætt til kynna að samið hafi verið um annað og hærra heild- arsöluverð, en fyrrgreindar 57 millj- ónir gkr. Hækkun höfuðstóls lána veðdeildar Landsbanka fslands vegna umsaminnar vísitöluhækkun- ar hafi ekki verið reiknuð út við gerð kaupsamningsins, en áætlunarfjár- hæð tilgreind varðandi eftirstöðvar án vísitöluhækkana. Þá segir Hæsti- réttur: „Þar sem ákvæðin gefa ekki ótvírætt til kynna að söluverð skyldi vera hærra, og stefnda (seljanda, innsk. Mbl.) hefur ekki með öðrum hætti tekist að færa sönnur að því að samið hafi verið um annað söluverð en 57.000.000 gkr., sem greinir í kauptilboði frá 13. maí 1980 og framangreindum kaupsamningi, verður að leggja þá fjárhæð til grundvallar sem heildarsöluverð eignarinnar." Lögmenn málsaðila voru þeir Gunnar Sólnes, sem fór með mál selj- anda eignarinnar, og Othar Örn Pet- ersen, sem var lögmaður kaupanda. Varðandi fordæmisgildi þessa dóms Hæstaréttar sagði Othar Örn Petersen, að kaupsamningar gætu verið mismunandi, þannig að þessi dómsniðurstaða væri ekki algild, en i málum sem jafna mætti til þessa máls, hlyti dómurinn að hafa for- dæmisgildi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.