Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 3 Rás 2 byrjar 1. desember KÁS 2 hofur útsendingar kl. 10 að morgni 1. desember næstkomandi og er gert ráð fyrir að „höfundur" rásarinnar, Andrés Björnsson útvarpsstjóri, verði fvrstur manna til að taka til máls, að sögn l>orgeirs Ástvaldssonar, forstöðumaður rásarinnar. I*ann dag verður sent út í samtals átta kiukku- stundir, þar af tvær í samtengingu við „Ég hef óskað eftir því að yfir- bragð fyrsta dagsins verði íslenskt — að íslensk tónlist verði í önd- vegi,“ sagði Þorgeir Ástvaldsson í samtali við Mbl. „Þá á ég við að tónlistarflutningurinn verði bor- inn uppi af því fólki, sem hæst hefur haldið á lofti merki íslenskr- ar dægurtónlistar, allt frá Hauki Morthens til Bubba Morthens." Þorgeir sagði að fyrsti útsend- ingardagurinn miðaðist að nokkru leyti við að kynnt yrði dagskráin, stöðin og starfsmenn hennar. „Þessi fyrsti dagur hlýtur að verða með nokkuð óvenjulegum hætti en einkenni dagskrárinnar, sem við viljum byggja upp, eiga þó að koma vel í ljós,“ sagði hann. „Út- varpsráð hefur í dag (föstudag) fengið til umsagnar 25 nafna lista yfir þá, sem við höfum leitað til og boðið hafa fram krafta sína til dagskrárgerðar. Sá listi er alls ekki tæmandi, því við höfum próf- að marga óreynda hæfileikamenn og munum halda því áfram. Þessir tuttugu og fimm munu ekki allir byrja. Dagskráin verður að mótast fyrstu vikurnar og mánuðina og nauðsynlegar breytingar verða gerðar ef við teljum að annað Rás 1. muni koma betur út.“ Öll tæki eru nú komin í hús og unnið er af miklu kappi svo út- sending á Rás 2 geti hafist á til- settum tíma. „Fólk er hér að skrúfa og tengja og heilmargt fleira —■ það er alveg nóg að gera,“ sagði Þorgeir Ástvaldsson. Auglýsingareglur rásarinnar hafa verið samdar og kynntar væntanlegum auglýsendum. Aug- lýsingar verða í mesta lagi níu mínútur á klukkustund, sem skipt verður niður í þrjá þriggja mín- útna kafla, er auðkenndir verða sérstaklega. Auglýsingar munu ekki verða látnar rjúfa dagskrár- liði. Að öðru leyti munu gilda sömu reglur um auglýsingar og al- mennt gilda hjá RUV. Á nafnalistanum, sem útvarps- ráð hefur fengið, er m.a. að finna nöfn nokkurra þeirra, sem bera uppi byrjunardagskrá rásarinnar. Þeirra á meðal eru Páll Þorsteins- son, Guðjón Arngrímsson, Þórður Magnússon, Kristján Sigurjóns- son, Ásta R. Jóhannesdóttir, Helgi Már Barðason, Jón Ólafsson og Hróbjartur Jónatansson — en rétt er að leggja áherslu á, að sá nafnalisti er ekki tæmandi. SUrfsfólk Rásar 2. Morgunblaðið/ KÖE. Frá 6. landsfundi Alþýðubandalagsins sem haldinn er á Hótel Loftleiðum um helgina. Fundinn sitja 243 af 251 sem rétt eiga til fundarsetu. Landsfundur Alþýðubandalagsins: Sit ekki undir keppni við kapítalista Sjálfstæðisflokks — sagði einn fundarmanna vegna tillöguflutn- ings gegn einokun á framleiðslu og sölu eggja „ÉG GET ekki setið undir því að hingað á landsfund Alþýðubandalagsins komi sérlegir fulltrúar kapítalismans og að verið sé i keppni við kapítalistana í Sjálfstæðisflokknum í tillöguflutningi. Ég sé ekki betur en undir þessa tillögu skrifi blóminn úr verkalýðsstéttinni með Ásmund Stefánsson í broddi fylkingar," sagði Guðmundur B. Þorgeirsson, landsfundarfulltrúi á lands- fundi Alþýðubandalagsins, m.a. í gær í tilefni af framkominni tillögu sem felur í sér mótmæli við hugmyndum um framleiðslu- og sölueinokun á eggjum, kjúklinga- og svínakjöti. í tillögunni segir m.a. að Framleiðsluráð landbúnaðarins hafi sett fram þessar hugmyndir með stuðningni landbúnað- arráðherra. Flutningsmenn tillögunnar eru Jóhannes Gunnarsson, Ásmundur Stefánsson, Arnmundur Bach- man, Björn Arnórsson, Þröstur Ólafsson, Böðvar Pétursson, Guð- mundur Jónsson, Hörður Berg- mann og fleiri. Jóhannes gerði grein fyrir tillögunni og hafði á orði að tillaga sama efnis hefði verið flutt á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins nýverið, en ekki hlotið þar endanlega afgreiðslu, sem hann kvaðst vona að landsfundur Alþýðubandalagsins bæri gæfu til að gera. Rökstuðningur mótmælanna í tillögunni er svohljóðandi: „Slík einokun er skaðleg bæði fyrir neytendur og íslenska bændastétt, þar sem hún hindrar eðlilega framleiðsluþróun í þessum bú- greinum. Landsfundurinn mót- mælir sérstaklega því athæfi þess- ara aðila að nota kjarnfóðurskatt- in sem valdatæki til að knýja framleiðendur til að fallast á þess- ar hugmyndir yfirvalda um einok- un.“ Hljómflutningstækin þín vevóa aldrei betri en hátalaramir sem þú tengjr við þau! Það er næstum því sama hvað tækin þín heita - Akai, Marantz, Pioneer, Fischer, Philips, Sony, Sanyo eða Plupp - tóngæðin byggjast mest megnis upp á hátölurunum. Auðvitað skiptirtalsverðu máli hversu góð tækin eru, en þó er miklu mikilvægara hvaða hátalara þú notar. Þess vegna beröllum „stærri spámönnum” saman um að verð hátalara megi nema allt að 70% af heildarverði samstæðunnar. Þar af leiðandi hljóta flestir að kynna sér Bose, því Bose hátalarar eru viðurkenndir jafnt af áhugamönnum sem atvinnumönnum. Komdu og kíktu á okkur • og Bose ÓTRÚLEG VERÐLÆKKUN á Bose 501, Bose 601 og Bose 901 hátölurum. Opió á laugardögum í Sætúni 8. ÖSA Yfirburðir Bose felast í fullkomnu samspili beinnaog endurkastaðra tóna. eimilistæki Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.