Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 5 Sjávarútyegsráðuneytið: Jón L. Arnalds tekur eins árs leyfi Þorsteinn Geirsson settur ráðuneytisstjóri á meðan JÓN L. Arnalds, ráöuneytisstjóri sjávarútvegsráöuneytisins, hefur fengið leyfi frá störfum frá 1. maí nk. til 30. júní 1985. Jafnframt hefur Þorsteinn Geirsson, skrifstofustjóri í fjár- málaráðuneytinu, verið settur ráðuneytisstjóri sjávar- útvegsráðuneytisins sama tímabil. Þorsteinn Geirsson er fæddur Smáþorskur á Kögurgrunni VEGNA mikillar gengdar smá- þorsks á Kögurgrunni hefur nú þremur svæöum þar veriö lokað til hráðabirgða. Reyndist smáfiskur í afla togara þar vera verulega yfir leyfilegum mörkum samkvæmt upp- lýsingum sjávarútvegráðuneytisins. Á miðvikudag var tveimur svæðum lokað og einu á fimmtu- dag. Þessi svæði eru vestan og sunnan við Kögurhólfið. Leyfilegt magn þorsks undir 57 sentímetr- um er 30%, en þarna hefur þorsk- ur undir þessum mörkum farið upp í 59% eða tæp 30% umfram viðmiðunarmörk. Þarna voru nokkur skip að veiðum, en þau hafa nú haldið á önnur svæði. í upphafi síðustu viku fengu togarar góðan afla vestur af Pat- reksfirði og töldu menn að þar hefði verið um „Grænlandsþorsk" að ræða. Hann hvarf síðan af mið- unum og lentu togararnir þá á tímabili i þessum smáþorski. 15. febrúar 1941 í Reykjavik, stúd- ent frá MA 1961, cand juris frá Háskóla íslands 1966. Hann var fulltrúi hjá Árna Guðjónssyni hrl. frá 1. júni 1966 til ársloka 1972 og jafnframt fulltrúi í fjármálaráðu- neytinu frá 1. desember 1971. Hann varð hdl. 1967 og hrl. 1972. Hann var skipaður deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu frá 1. janúar 1973 og hefur verið skrifstofu- stjóri fjármálaráðuneytisins frá 1. ágúst 1974. Þá var Þorsteinn sett- ur ráðuneytisstjóri fjármála- ráðuneytisins í fjarveru ráðuneyt- isstjóra frá 1. mars 1981 til júní- loka sama ár. Þorsteinn Geirsson á sæti í ýmsum nefndum fyrir fjármálaráðuneytið og er m.a. for- maður samninganefndar ríkisins í launamálum frá 1977 og formaður tollskrárnefndar frá sama tíma. Hann hefur verið í stjórn Lífeyr- issjóðs starfsmanna rfkisins og er tilnefndur af fjármálaráðherra sem dómandi i Félagsdómi frá 1981 og síðan. Þorsteinn Geirsson var kvæntur Guðrúnu K. Sigurðardóttur (d. 08.03.1983) og á þrjú börn. (Fréttmtilkynning) Vigri seldi í Bremerhaven SKUTTOGARINN Vigri RE seldi í gær 148,6 lestir af fiski í Brem- erhaven. Heildarverð var 3.970.000 krónur, meðalverð 26,72. Uppi- staða aflans var karfi, en eitthvað fylgdi með af grálúðu og ufsa. Þorbjörg og Trítla stilltu sér upp á milli tveggja málverka sem biðu þess að verða hengd upp á vegg. Málverkið vinstra megin ber heitið „Gjáin" og hægra meginn er „Jökullinn". „Flæki saman mann- virkjum og landslagi" Spjallað við Þorbjörgu Höskuldsdóttur sem opnar málverkasýningu í dag „SVEI mér þá ef maður lítur ekki á verkin sín með öðrum augum þegar maður sér þau í nýju umhverfi," sagði listamaöurinn Þorbjörg Höskuldsdótt- ir, þegar blaðamaður leit inn til hennar í Listmunahúsið í gær. Þar var unnið af kappi við að Ijúka uppsetningu á verkum Þorbjargar, en sýning hennar opnar kl. 14.00 í dag. Sýningin í Listmunahúsinu er fjórða einkasýning Þorbjargar. Hún sýndi á Kjarvalsstöðum 1981 og 1977 og í Gallerí Súm 1972. Þá hefur Þorbjörg átt verk á mörgum samsýningum m.a. á „Vetrar- mynd“, sem nýlega var haldin i Listasafni ASt. Nú sýnir hún um fjörutíu málverk og teikningar, þar af nokkur samsett verk úr tveimur eða fleiri myndum. Teikn- ingarnar vinnur Þorbjörg með blandaðri tækni, olíukrít og blý- anti, en öll stærri verkin á sýning- unni eru unnin í olíu. „Grunnurinn í myndunum er landslag með ýmsum fjarvíddum," sagði Þorbjörg „það má segja að ég flæki saman mannvirkjum og landslagi. Hvað varðar samsettu verkin þá vel ég þessa lausn til að komast hjá því að enda með mjög aflanga mynd. Þegar þau eru kom- in upp á vegg er búið að brjóta upp myndflötinn en heildarmyndin heldur sér eftir sem áður.Ég á nefnilega ekki auðvelt með að mála litlar myndir og hef til- hneygingu til að teygja verkin talsvert þannig að þau enda oft stærri en áætlað var þegar fyrsta pensilstrikið var tekið." Sýningin stendur til 4. desem- ber. Hún verður opin um helgar frá kl. 14.00 til 18.00 og á virkum dögum frá kl. 10.00 til 18.00 en lokað er á mánudögu. FIA T ER MEST SELDIBÍLL íEVRÓPU EGILL VILHJÁLMSSON HF.jj /// . Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202 219.000 FIATUNO '84AKR. FIA T ER NÚ AFTUR ORÐINN MEST SELDI BÍLL í EVRÓPU. ÞESS VEGNA BJÓÐA F/AT VERK- SMIÐJURNAR SÉRSTAKT VERÐ Á ÞESSARI UNO SEND/NGU FRÁBÆR FIA T-UNO-KJÖR 1. Þú semur um útborgun, allt niður í 50.000 kr. á þessari einu sendingu. 2. Við tökum gamla bílinn sem greiðslu uppí þann nýja. Það er sjálfsögð þjónusta, því bílasala er okkar fag. 3. Við lánum þér eftirstöð- varnar og reynum að sveigja greiðslu- tímann að þinni getu. OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 19. LAUGARDAGA 10-17. SÝNINGARBÍLAR Á STAÐNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.