Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 15 Hagnaður Bang & Olufsen jókst um 15% á síðasta ári: Næsta ár verður það bezta í sögu okkar - segir Berge Nilsen, aðalforstjóri fyrirtækisins REKSTRARHAGNAÐUR danska fyrirtækisins Bang & Olufsen á síöasta reikningsári, sem endaði 31. maí sl., var um 72 milljónir danskra króna, en var til samanburðar um 62,6 milljónir danskra króna árið á undan. Aukning- in á rekstrarhagnaði milli ára er því liðlega 15%. Á blaðamannafundi sem for- ráðamenn fyrirtækisins boðuðu til á dögunum kom fram, að heildar- velta Bang & Olufsen var á síðasta ári um 1.302,1 milljón danskra króna, en var árið á undan um 1.159,7 milljónir danskra króna. Veltuaukningin milli ára er því tæplega 12,3%. Rekstrarhagnaður sem hlutfall af heildarveltu var um 5,5% á síð- asta ári, en til samanburðar var þetta hlutfall 5,4% árið þar á und- an, en það hefur verið á bilinu 5,1—5,4% síðustu árin. Forystu- menn fyrirtækisins sögðust vera mjög ánægðir með að hlutfall þetta færi hækkandi, sem sýndi að stefnt væri í rétta átt. Börge Nilsen, aðalforstjóri Bang & Olufsen, sagði á fundi með blaðamönnum að forystumenn fyrirtækisins væru bjartsýnir hvað framtíðina áhrærði, því öll teikn bentu til þess, að efnahagslíf Vesturlanda væri að færast til betri vegar. „Við höfum stöðugt verið að auka veltu og rekstrar- hagnað okkar og gerum ráð fyrir að næsta ár verði það bezta í sögu fyrirtækisins." Gjaldeyrisstaða banka hefur rýrnað verulega GJALDEYRISFORÐI í Seðlabank- anum í lok septembermánaðar sl. var um 3.882 milljónir króna og hafði hann aukizt um liðlega 47% milli ára, en hann var um 2.639 milljónir króna í lok september 1982. Hækkun umreikningsgengis á þessu tímabili er hins vegar liðlega 91%, þannig að gjaldeyrisforðinn hefur rýrnað verulega milli ára. Á umræddu tólf mánaða tíma- bili jókst frjáls gjaldeyrir um lið- lega 55,5%, en hann fór úr 2.464 milijónum króna í lok september 1982 í 3.832 milljónir króna í sept- emberlok sl. Skuldir í frjálsum gjaldeyri námu í septemberlok sl. um 1.672 milljónum króna, en til saman- burðar um 1.105 milljónum króna fyrir ári síðan. Aukningin milli ára er því liðlega 51%. Nettógjaldeyrisstaðan í Seðla- bankanum var í septemberlok sl. an í innanlandsfluginu betri en oftast áður og reyndar hefðum við verið í nágrenni við núllpunktinn þar ef ekki hefði komið til um- ræddur samdráttur í fluginu." Um flugið almennt á næsta ári sagði Sigfús: „Við verðum með svipaða áætlun bæði innanlands og á Evrópuleiðum, en munum hins vegar auka ferðatíðnina á Norður-Atlantshafinu. Við gerum ráð fyrir um 18% aukningu á haf- inu, en farnar verða 18 ferðir á viku yfir háannatímann, en þegar verst lét flugum við aðeins 9 ferðir í viku.“ Aukningin í Atlantshafs- fluginu hefur verið veruleg undan- farin misseri. Á árinu 1982 fjölg- aði farþegum um 32%, væntan- lega um 23% í ár og síðan gera áætlanir ráð fyrir um 18% aukn- ingu á næsta ári. Að síðustu kom það fram hjá Sigfúsi Erlingssyni, framkvæmda- stjóra markaðssviðs Flugleiða, að svokölluðum „stop over“ farþegum hefði fjölgað verulega á þessu ári. „Fjölgunin verður væntanlega í kringum 30%. Þessir farþegar stoppa stutt við, en þetta er eigi að síður góður túrismi. Þetta fólk eyðir miklum gjaldeyri í landinu. Við höfum undanfarin misseri minnzt sérstaklega á Keflavík og fríhöfnina í öllum okkar auglýs- ingum og það virðist vera að skila sér í vaxandi mæli.“ um 2.210 milljónir króna, en til samanburðar um 1.534 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Staðan hefur því aðeins batnað um liðlega 46,3% milli ára. Erlendar eignir viðskiptabanka námu um 552 milljónum króna í septemberlok, en til samanburðar um 397 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Þær jukust því um 39%. Erlendar skuldir námu um 778 milljónum króna í september- lok sl., en um 317 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Þær hafa því aukist um liðlega 145,4% milli ára. Nettóstaða viðskiptabank- anna er af framansögðu neikvæð um 226 milljónir króna, en var jákvæð um 80 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Gjaldeyrisstaða bankanna nettó er af framansögðu um 1.984 millj- ónir króna, en var til samanburð- ar um 1.614 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er því aðeins tæplega 23%, en gengið hækkaði hins veg- ar um liðlega 91%, eins og áður sagði. Gjaldeyrisstaðan hefur því rýrnað verulega milli ára. Fer í mál við Flug- leiðir og Sun-Time vegna bágborins veðurfars á íslandi! „ÉG borgaði 1.000 dollara fyrir ferð til íslands. Þegar ég kom til íslands var þar rigning og landsmenn'sögðu mér, að rignt hefði síðustu tvö árin,“ sagði maður einn sem mætti í rétt í Chicago í septembermánuði sl. og sagði farir sínar ekki sléttar. „Ég sneri hið snarasta heim á leið og vil kæra Flugleiðir fyrir að flytja mig til íslands og Sun- Times fyrir ferðadálk blaðsins, en þar sagði að ísland væri huggu- legur staður." Frétt um þennan atburð er að finna í bandaríska blaðinu Chic- ago Tribune 18. september sl. Þar segir að ákærandinn, sem heitir Phil Kozlowski, sé þekktur fyrir ýmsa skringilega tilburði fyrir rétti, en hann hefur komið fram með furðulegustu ákærur. BVGGMGAR HAPPDRCm SAÁ1983 Vegna mikillar þátttöku og fjölda áskorana hefur verið ákveðiðaðframlengjatil 6. des skilafrest í verðlauna- samkeppni SÁÁ um nafn á nýju sjúkrastöðina. Dregið verður í happdrættinu þann sama dag. BJARNI DAGUR AUGL TEIKNISTOfA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.