Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 27
Smáfréttir úr Borgarnesi BorgarneHÍ, 17. nóvember. Brákarsunds- brúin aö gefa sig? Á fundum hafnarnefndar hefur verið rætt um viögerðir á brúnni „út í eyju“, þaö er Brák- arey. Mikil þungaumferð er um brúna en hún er komin til ára sinna og þarfnast viðgerðar. Hafa nefndarmenn áhyggjur af því aö járnabinding brúarinnar er stendur út úr aö hluta og voru þeir samþykkir því aö finna leiöir til aö lagfæra brúna. Minnsti árangurinn í einnl fundargerö skóla- nefndar kemur fram aö í Grunnskóla Borgarness hófu 322 nemendur nám í haust í 18 bekkjardeildum og er þaö 9 nemendum færra en síöastliö- iö ár. Kom fram aö 6 ára deild- in er minnsti bekkurinn og fámennasti árgangur sem komið hefur inn i skólann á síðustu áratugum. i fram- haldsdeild eru 19 nemendur og 20 í öldungadeild. Kennar- ar eru 33, þar af 8 stunda- kennarar og kom fram á fund- inum aö aöeins 2 nýjir kennar- ar voru ráönir aö skólanum í upphafi þessa skólaárs sem er nýlunda þar sem oftast hafa veriö örar kennarabreytingar viö skólann. Tölvubúnaöur er dýr Á skólanefndarfundi var rætt um tækjakaup fyrlr skól- ann og ýmsan búnaö. Höföu nefndarmenn áhuga á tölvu- búnaöi fyrir skólann, en þótti þeim slíkur búnaður dýr. Áætl- aö er aö slíkur tölvubúnaöur myndi kosta skólann 'h milljón sem jafngildir um 60% af öllum rekstrarkostnaöi hans nú. Lögum illa framfylgt Viö umræöur um skóla- bókasafn í skólanefndinni kom fram aö aöeins 18% skóla á Vesturlandi framfylgja lögum um skólabókasöfn. Töldu nefndarmenn aö enda þótt í Borgarnesi væri gott almenn- ingsbókasafn, væri skóla- bókasafn allt annaö mál og nauösynlegt fyrir nemendur og kennara. Hrollur í skólanefndinni Nú segir frá skoöunarferö skólanefndar í nýja viöbygg- ingu grunnskólans, þar sem tvær kennslustofur voru tekn- ar í notkun í haust. „Fundi var nú formlega slitiö en síðan gengu nefndarmenn út í ný- bygginguna og leist allvel á nýju stofurnar miöað viö ástand þeirra, en svo kalt var þar inni aö hroll setti að nefnd- inni og vildi hún ekki þurfa aö dvelja heila kennslustund viö svo lágt hitastig". Þetta bókar skólanefndin, en hvernig ætli henni myndi líða eftir heilan skóladag í þessum stofum). HBj. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 27 Danski leikstjórinn Sören Kragh-Jacobsen (t.v.) og forstjóri Háskólabíós, Friðbert Pálsson. Háskólabíó frumsýnir Gúmmí-Tarzan: Verulegur uppgangur í danskri kvikmyndagerð — segir leikstjórinn, Sören Kragh-Jacobsen HÁHKOLABÍÖ frumsýnir í dag dönsku verðlaunamyndina Gúmmí-Tarzan, sem byggð er á samnefndri sögu eftir danska rithöfundinn Ole Lund Kirke- gaard. Myndin hefur verið sýnd í 21 landi víðs vegar um heim og unnið til fjölda verðlauna. Leikstjóri Gúmmí-Tarzan er Sören Kragh-Jacobsen, en hann er talinn einn efnilegasti leikstjóri Dana um þessar mundir. Hefur hann hlotið mikla frægð fyrir þessa mynd, sem og myndina Viltu sjá sæta naflann minn, sem sýnd var á kvikmyndahátíð í Reykjavík fyrir þremur árum. Jacobsen er nú staddur á íslandi og spjallaði hann við fréttamenn í gær um kvikmyndina Gúmmí-Tarzan og danska kvikmyndagerð. Gúmmí-Tarzan segir frá átta ára snáða, ívan Oisen. Honum gengur illa í skóla, er smávaxinn og dreyminn einfari, og verður þess vegna oft fyrir barðinu á hrekkjusvínum, sem stríða honum og gera honum lífið leitt á ýmsan máta. Pabbi ívans er mikill að- dáandi Tarzans og að sama skapi óánægður með hugleysi og aum- ingjaskap sonar síns. Hann gefur honum nafnið Gúmmí-Tarzan, þegar ívan kemur heim úr skólan- um eftir að hafa pissað í sig í 117. skipti (hver taidi?). ívan fær upp- reisn æru, eins og nærri má geta, en áhorfenda vegna er rétt að segja ekki meira. Jacobsen sagði að vinsældir myndarinnar mætti hiklaust skrifa fyrst og fremst á frábæra frammistöðu stráksins sem fer með hlutverk ívans. „En myndin er tölvert frábrugðin sögunni eins og menn þekkja hana úr bókinni," sagði Jacobsen. „Við tókum þá ákvörðun að gera hana raunveru- legri, slepptum til dæmis norn- inni, sem kemur við sögu í bókinni og létum raunverulegt fólk taka við hlutverki hennar. Þá er sagan mjög stutt frá höfundarins hendi og því eru ýmsar viðbætur í mynd- inni.“ Það kom fram í máli Jacobsens að Danir framleiða i kringum 15 kvikmyndir á ári og nemur styrk- ur danska ríkisins til kvikmynda- gerðar 48 millj. danskra króna. Ríkið borgar 80% af kostnaði við gerð kvikmyndar, en setur það skilyrði að fjórði partur styrk- upphæðarinnar renni til fram- leiðslu barnamynda. Jacobsen hefur nú nýlokið við eu stóru mynd sína, sem heitir ;lar, og verður hun frumsýnd í Danmörku í desember. „ísfuglar er skáldleg, skítug Kaupmanna- hafnarsaga," sagði Jacobsen, „nokkurs konar Midnight Cow- boy-saga, sem gerist í Kaup- mannahöfn — vona ég, að minnsta kosti. Ég hef yfirleitt tilhneigingu til að fjalla um fólk sem stendur illa að vígi í lífsbaráttunni, og læt það þá gjarnan koma út í lokin sem sigurvegara. Því það er í rauninni alltaf eitthvað sem hver maður getur gert vel — það er aðeins spurning um að uppgötva hvar hæfileikar manns liggja.“ í Danmörku vinna um 600 manns við kvikmyndagerð, fyrir utan þá em starfa við sjónvarpið og auglýsingar. Danir eru þó ekki sérlega iðnir við að fara í bíó. Það er talið að hver Dani sjái að jafn- aði tvær til þrjár myndir á ári, en á íslandi er meðaltalið ellefu til tólf myndir á mann á ári. Aðeins ítalskir bíógestir eru áhugasamari en íslendingar af Evrópuþjóðum. Sagði Jacobsen að undanfarin ár hefði verið mikill uppgangur í danskri kvikmyndagerð og taldi hann að hinn rausnarlegi ríkis- styrkur ætti sinn þátt í því. Friðbert Pálsson, forstjóri Há- skólabiós, sagði að ákveðið hefði verið að gera sérstakt átak í því að kynna dönsk verk í bíóinu og hefði önnur dönsk mynd þegar verið keypt, Kundskabens Træ. Nor- ræna ráðherranefndin hefur styrkt báðar dönsku myndirnar til sýninga hér á landi. Sýningin á Gúmmí-Tarzan í dag hefst klukkan 14.30 og hefur mikl- um fjölda verið boðið á sýninguna, en stærsti hópurinn kemur frá grunnskólum og framhaldsskólum á Reykjavíkursvæðinu. Þess má geta að Gúmmí-Tarzan hefur verið sýndur á fjölunum hjá Leikfélagi Kópavogs undanfarið. Bergþóra Árnadóttir í Asmundarsal Vísnasöngkonan Bergþóra Árnadóttir leikur nokkur lög í Ásmundarsal í dag og hefjast tónleikarnir kl. 14.30. Hún flytur lög sín í tengslum við sýningu myndlistarmannsins Björgvins Björgvinssonar, sem nú sýnir verk sín í Ásmundarsal. Bandarísk þjóðlög á Crafts USA BANDARÍSKI þjóðlagasöngvar- inn Paul Halpern, öðru nafni Paul Westwind, mun leika og syngja bandarísk þjóðlög eftir Guthrie, Dylan og fleiri að Kjarvalsstöðum í dag, laugardag, 19. nóvember. Tónleikarnir eru ókeypis. Halpern mun og koma fram í Félagsstofnun stúdenta eftirtalda daga: Sunnudag 20. nóvember kl. 21.00. Fimmtudag 24. nóvember kl. 21.00. Sunnudag 27. nóvember kl. 21.00. t Málverk og teikningar í Gerðubergi í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi opna myndlistarmennirnir Birgir Andrésson og Kristján Guð- mundsson, sýningu kl. 15.00 í dag. Á sýningunni eru um 40 málverk og teikningar. Öll verkin eru til sölu. Sýningin er opin mánudag til fimmtudags kl. 16.00—22.00, en föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 14.00—18.00. Sýningunni lýkur 27. nóvember og er aðgangur ókeyp- is. TOPPmerkin í íkíóavörum öftíð d úxuc^xnAac^um ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA FALKINN 105 REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670 TYROLIA DACHSTEIN adidas ^ Yfirförum Fischer skíði og Tyrolía bindingar fyrir veturinn. Stillum Tyrolía bindingar að kostnað- arlausu. Skjót og góð þjónusta. A FISCHER Vertu klár í slaginn! Gódon daginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.