Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 48
DAGAFV TIL JÓLA> (§ml & j&ilfur Laugavegi 35 ^skriftar- síminn er 830 33 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 Sparisjóðsstjór- inn hljóp inn- brotsþjófinn uppi l»ingeyri, 10. desember. MIKIÐ hefur verið að gera að undaníornu hjá nýskipaðri lögreglu Þingeyr- arhrepps, svo það mætti halda, að menn hefðu áhuga á, að hún ynni vel fyrir launum sínum. Síðastliðinn þriðjudag var brot- izt inn hjá Kaupfélagi Dýrfirð- inga. Einhverjar skemmdir voru þar unnar, en litlu stolið. Málið er í rannsókn. Um klukkan 6 í morg- un mætti hinn árrisuli sparisjóðs- stjóri, Tómas Jónsson, til vinnu sinnar og sér þá hvar maður einn er á leið út um glugga á spari- sjóðshúsinu. Tómas gerði sér lítið fyrir, elti manninn og náði honum. Lögregla staðarins var síðan kvödd á staðinn og kom þá í ljós, að innbrotsþjófurinn hafði sann- anlega tekiéfrúðu úr glugga, kom- izt þannjg inn í forstofu spari- sjóðsimr og rétt búinn að brjóta upp innri hurð, þegar hann var truflaður við iðju sína af spari- sjóðsstjóra. Má því segja að það sé fullsann- að, að þörf sé á að hafa léttfættan sparisjóðsstjóra og góða lögreglu- menn hér á staðnum. Guðbjörg Skógrækt í Sogamýri: Svæðið býður upp á heilmikla möguleika — segir Sigurður Blöndal skógræktarstjóri „ÞETTA er svæði sem býður upp á heilmikla möguleiga og ég fagna þessu,“ sagði Sigurður Blöndal skóg- ræktarstjóri í samtali við Morgun- blaðið, þegar hann var inntur álits á þeirri ákvörðun borgarráðs, að af- henda Skógrækt ríkisins reit i Soga- mýri til skógræktar. Sigurður sagði að byggja hefði átt á hluta þessa svæðis, en fallið hefði verið frá því. Sagði hann að þarna væri um góðan blett að ræða, sem er um 6 hektarar að stærð og væri hann við „innganginn" að að- albyggðinni. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að það mun verða ákaflega skemmtilegt að rækta þarna skóg. Ég held að þarna séu góð ræktun- arskilyrði, þarna er mýri og gefur það mikla möguleika með val á trjátegundum, sérstaklega með not á fljótvöxnum tegundum, eins og ösp til dæmis," sagði Sigurður. „Það væri gaman að því að fá þarna reglulegan skóg, ekki beinlín- is garð heldur skóg, sem nýtast myndi eins og hvert annað útivist- arsvæði, en af annarri tegund en þau sem fyrir eru,“ sagði Sigurður Blöndal skógræktarstjóri. Lr' dagar til jóla Davíð Oddsson, borgarstjóri afhendir Páli Björgvinssyni veglegan bikar með sæmdarheitinu „íþróttamaður Reykjavíkur 1982“. Morgunblaðií/KÖE. Islandsmeistarar Víkings heiðraðir ÍSLANDSMEISTARAR Víkings í handknattleik og knattspyrnu 1982 voru heiðraðir á Höfða í fyrrakvöld af borgarstjórn Reykja- víkur. Þá var val á íþróttamanni Reykjavíkur tilkynnt og var Páll Björgvinsson, fyrirliði íslands- meistara Víkings í handknattleik valinn „íþróttamaður Reykjavíkur 1982“. Páll hefur staðið í fremstu víglínu í handknattleik í 15 ár — verið fyrirliði Víkings síðastliðin 7 ár og einnig var hann fyrirliði íslenzka landsliðsins um tíma. Jafnframt að hann hefur verið í fremstu röð handknattleiks- manna, þá á Páll feril að baki sem knattspyrnumaður, sund- maður og fimleikamaður — óvenju fjölhæfur íþróttamaður. Víkingar unnu íslandsmeist- aratitla í handknattleik og knattspyrnu annað árið í röð, af- rek sem aldrei áður hefur verið leikið. Davíð Oddsson, borgar- stjóri flutti ræðu og heiðraði íþróttamenn Víkings og afhenti Páli veglegan bikar með sæmd- arheitinu „íþróttamaður Reykjavíkur 1982“. Sveinn G. Jónsson, formaður Víkings, þakkaði borgarstjórn höfðing- legar móttökur og afhenti borg- arstjóra fána Víkings og merki. Páll Björgvinsson og félagar hans í Víkingi verða í eldlínunni í kvöld í Laugardalshöll. Þeir leika þá síðari leik sinn við Dukla Prag í Evrópukeppni meistaraliða. Atlantshafsflug Flugleiða: Farþegum hefur fjölgað um 32% FARÞEGUM Flugleiða á Norður- Atlantshafsleiðinni hefur fjölgað um liðlega 32% á árinu, en 4. des- ember sl. hafði félagið flutt alls 175.209 farþega á móti 132.666 farþegum á sama tíma í fyrra, að sögn Sveins Sæmundssonar hjá Flugleiðum. Þá hefur farþegum félagsins á flugleiðinni til Luxemborgar fjölgað um 32,4% milli ára, en í ár hafa verið fluttir samtals Aðalsamningamaður Alusuisse í skeyti til iðnaðarráðherra: 22.247 farþegar á móti 16.805 farþegum á sama tíma í fyrra. Lítilsháttar samdráttur hefur átt sér stað í Evrópuflugi félags- ins, eða um 1,7%. Fram til 4. desember sl. höfðu verið fluttir alls 137.308 farþegar á móti 139.718 farþegum á sama tíma í fyrra. Vill mæla með hækkun á raforku verði sýni ráðherra samningsvilja AÐALSAMNINGAMAÐUR Alusuis.se, dr. Paul Miiller, hefur tekið að sér að mæla með bráðabirgðahækkun á raforku til álversins í Straumsvík, ef Hjörleifur Guttormsson sýni samningsvilja sinn í verki. Er þetta staðfest í skeyti sem iðnaðarráðherra var sent á föstudag. A fundinum með fulltrúum Alusuisse þriðjudaginn 7. desember lagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar- ráðherra, fram skriflega ósk um skýringu frá Alusuisse og spurði, hvort fyrirtækið teldi óraunhæft fyrir íslendinga að leggja fram tillögu um upp- hafshækkun á raforkuverði án þess að þeir samþykktu um leið hugmynd Alusuisse um viðfangsefni frekari samningaviðræðna. Alusuisse gaf um- beðna skýringu í fyrrgreindu skeyti til iðnaðarráðherra á föstudag. Þar er vísað til þess, að hinn 10. nóvember hafi fyrirtækið lagt fyrir ríkisstjórn íslands hugmynd um heildarlausn á samningamálum við Islendinga. Þessari hugmynd hafi Hjörleifur Guttormsson hafnað en þess í stað krafist einhliða, að Alusuisse sýndi fram á, að það vildi semja með því að samþykkja strax bráðabirgðahækkun á raforkuverði, sem tæki gildi til dæmis 1. apríl 1983. I skeyti Alusuisse til iðnaðar- ráðherra, sem undirritað er af dr. Paul Múller segir, að fyrirtækið telji ekki nauðsynlegt að sanna það með þeim hætti sem ráðherr- ann krefst, að það vilji af einlægni ná samkomulagi um óleyst deilu- mál aðila. Hins vegar hafi dr. Múller samþykkt það á fundinum 7. desember að leggja til við stjórn Alusuisse, að orðið verði við ósk iðnaðarráðherra um bráðabirgða- hækkun á raforkuverði, enda sýni ráðherrann samningsvilja sinn í verki með því að fallast á eftirfar- andi: 1. Ríkisstjórn íslands samþykk- ir að stækka megi álverið í Straumsvík þannig, að tekið verði í notkun þriðja framleiðslukerfið, enda náist samkomulag um orku- sölu til þessarar nýju framleiðslu- einingar. 2. Ríkisstjórn íslands samþykki þá breytingu á aðalsamningnum um Islenska álfélagið (ÍSAL), að Alusuisse sé heimilt að selja allt að 50% af eignarhluta sínum til annarra í stað 49% eins og nú er, en með því breytast reglur um reikningsfærslur vegna ISAL í ársreikningum Alusuisse. Eins og margsinnis hafi verið lýst á und- anförnum átta árum sé ríkisstjórn íslands frjálst að gerast eignarað- ili að ÍSAL, enda náist um það samkomulag. í skeyti sínu segist dr. P.Múller vera reiðubúinn til þess að fresta viðræðum um það skilyrði Alu- suisse að létt verði af félaginu þeirri skyldu að kaupa jafnan ekki minna en 85% af þeirri raforku sem nauðsynleg er til að halda ál- verinu í rekstri og verði um það rætt í viðræðum um endurskoðun á orkusamningi. I lok skeytisins segir, að það gefi til kynna vilja Alusuisse til þess að leysa deiluna vegna álversins í Straumsvík, sem fyrst, í því skyni að samskipti að- ila verði eðlileg að nýju báðum til góðs. í innanlandsflugi hefur orðið um 2,1% aukning farþega á ár- inu, en í ár hafa verið fluttir 209.907 farþegar á móti 205.612 farþegum á sama tíma í fyrra. Sveinn sagði ennfremur, að þrátt fyrir fjöigun farþega á Norður-Atlantshafinu skilaði hún sér ekki nema að hluta til vegna þess, að fargjöld væru ennþá nokkuð of lág. Sömu sögu væri ennfremur að segja af inn- anlandsfluginu, en þar hafa hækkanir yfirleitt komið mjög seint, þannig að þær hafa alls ekki skilað sér eins og æskilegt væri. Aðspurður sagði Sveinn, að stundvísi flugvéla félagsins hefði aldrei verið betri en á þessu ári. í þeim undantekn- ingartilfellum, þegar um seink- anir hefði verið að ræða, hefði það verið af ' óviðráðanlegum orsökum, eins og vegna veðurs og seinkana í Bandaríkjunum vegna flugumferðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.