Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 Það sem hinir norrænu fræði- menn gefa til kynna er í rauninni að hinn hugmyndafræðilegi grundvöllur, sem við var miðað í RÍM, var rétt metinn. Þegar arkitektinn kemur til sögunnar birtast samsvaranir, sem eru enn ótrúlegri en samsvör- un Hjólanna. Kristensen sýnir, að Danir kunnu það sem nefnt er „squaring of the circle", kallað „hringun ferningsins" í RÍM. Er orðalagi þar snúið við, vegna þess, að gera má ráð fyrir ferningi inn- an í hring rétt eins og utan um hann. En hinu geómetríska kerfi í Trelleborg er svo háttað, að rétt- um hring er skipt í fjóra geira eft- ir megináttum, og er gert ráð fyrir ferningi innan hringsins. Fern- ingnum er skipt í fjóra minni ferninga — og eru fjögur mikil hús reist í hverjum. Þetta er ekki tilgáta byggð á hugmyndafræði — þetta er ná- kvæm mæling byggð á „vísinda- legri fornleifafræði". Sú mæling kemur fagurlega heim við 17. og 23. tilgátu Bak- sviðs Njálu. í þessu sambandi er fróðlegt að sjá, að öllum fræðimönnum ber saman um, að Trelleborg og Fyrk- at hafi verið borgir konunga — að engum hafi verið ætlandi að reisa slík stórvirki öðrum en sjálfum jöfrum Dana. En þá er að minnast þess, að 17. og 23. tilgáta Baksviðs Njálu varða einmitt setur konunga Dana. Tilgáturnar fjalla um hug- myndafræðilegan grundvöll ins danska konungdæmis. Og hvað segja þá tilgáturnar? Samkvæmt 17. tilgátunni var hjóli konungssetursins skipt í fjóra geira eftir höfuðáttum — og hver hinna fjögurra geira merkti töluna fjóra. Og það er einmitt slík skipting, sem Danir finna í framangreind- um borgum. Svo er þetta skýrt í Baksviði Njálu: „Tíma er skipt í skeið. Eitt er ár hvert, annað fjögur ár, hið þriðja átján ár. Tímaskeið átján ára er nefnt „öld“. Er því skipt í 4 tíma- skeið, sem hvert um sig er 4 ár. Tvö skotár fylla upp í myndina. Tvær talnasamstæður myndast á þennan hátt, tvisvar einn og átta.“ Geómetría Dana á víkingaöld RIM um geómetríska þekkingu landnámsmanna á þeirri for- sendu, að íslenzkir landnámsmenn hafi ekki getað kunnað slík fræði, ellegar að speki þeirrar tegundar sé í andstöðu við niðurstöður nú- tíma fornfræða. Því er þveröfugt farið: niðurstöður ritsafnsins koma heim við nýjustu þekkingu fornfræðinga í ótrúlegustu smá- atriðum. Tilgátur RÍM spáðu því beinlín- is fyrir, að það mundi finnast — sem fannst. * Alyktun Venjulegur vestrænn nútíma- maður er með öllu óvanur því, að hugtök lífs og verðandi skuli tengd tölum og geómetrískum formum. Þó virðist þetta hafa verið eitt helzta einkenni hinnar klassísku fornaldar. Eimdi eftir af slíkri notkun talna og forma langt fram- eftir miðöldum, ekki sízt í kirkju- byggingum. í fjölda kirkna var hverjum stað ætlað tiltekið atriði trúar og guðspjalla, hver súla, hver steinn, var aðlagaður píslar- sögunni. Þar sem geómetrísk hlut- föll, svo sem Gullinsnið, pí, hring- ur og teningur voru jafnan undir- skilin í byggingum, urðu þau ein- hver helztu hugtök fornra vísinda. Þeir sem voru ólæsir á bók lærðu að lesa á hús. Sú er ein ástæða þess, að tölur urðu geymslustaðir hugmynda. Nútíma íslendingur, sem lítur yfir þær tvær greinar sem hér birtast í Morgunblaðinu um mælikunnáttu Norðurlandabúa á víkingaöld, hlýtur að velta því fyrir sér, hvernig í ósköpunum unnt var að reikna út svo sérkennilega stærðfræði eftir ís- lenzkum ritleifum. Svarið er — að sjálfsögðu — tengsl hugmyndanna við tölurnar. Þegar sambandið Síðan er rætt um goðræn tákn Njarðar og Hests, en þau efni eru utan máls hér. Attavísan — tímatal Ýmsum mun koma á óvart, að slíkt skuli reiknað út eftir íslenzk- um miðaldabókum, en spurningin er ekki hvort svo var, heldur hvort tilgátan kemur heim við efnivið- inn. Og, sjá, það eru einmitt mannvirki þessarar gerðar sem Danir finna! Tilgátan íslenzka er byggð á þeirri niðurstöðu, að hring hafi að fornu verið skipt með þessum hætti til að samræma áttavísan og tímatal. Hafi hring verið deilt í fjórðunga, fjögur ár talin að hverjum — og níunda hvert ár að miðju. Með þessu móti var unnt að samræma hring svonefndri tungl- öld 18 ára. Sjóndeildarhringurinn varð einskonar „klukka", en allar þær mælingar á vog, tíma og vega- lengdum, sem forðum tengdust Ósíris, voru hér kenndar við hliðstæðu hans, Frey. Þannig krækjast vísindin fornu og goða- fræðin saman. En reiknað er með, að hinn danski konungur hafi ver- ið Freyr, þ.e. hugmyndafræðilegur staðgengill Freys á jörðu. Það nýstárlega — og óvænta — við tilgátu þessa er einkum, að hún skuli beinlínis tengd geómetr- iskum hring. Gulldjásnið frá Hornelund En nú kemur danski arkitektinn okkur á óvart. Eftir samanburð á glæstu gulldjásni frá víkingaöld og hinum frægu víkingaborgum, kemst hann svo að orði: „Et guldsmykke fra vikingetid- en fundet i Hornelund indeholder tydeligt de mindste borganlægs þannig rétt mál konungs, rétta vog. Kornið var „líkami" faraós. En talan 80 er mynduð af marg- feldinu 5 sinnum 16. Hliðarályktun varð af þessu dregin: vafalítið tengdu fornmenn jafnframt eyktir dags við miðju- hugmynd tölunnar 5. Þetta verður líklegt af helgi Pyþagórea á töl- unni 40. Hringur sem grundvallareining Vissulega var það djarft að setja fram slíkar hugmyndir tengdar geómetrískum hring — en gætum að. Hringur var heilagt tákn, ekki einasta egypzkrar held- ur og íslenzkrar heiðni. Ef gert var ráð fyrir því sem að framan greinir, fékkst fullkomið samræmi í þær heimildir er hér hafa fund- izt. En grundvallareining korns var jafnframt grundvallareining konungs. Hliðstæður sjá menn á síðari tímum er grundvallareining myntar — krónan — verður grundvallareining konungs og mynd hans á þrykkt. Hin forna hugsun byggði á því, að í réttum mælingum, réttri vog, væri rétt- læti fólgið. Og konungurinn var réttlætið holdtekið. En þar sem talan 5 var jafnan orðuð við hugmynd miðju að fornu reyndist unnt að tengja allan hugmynda- vefinn geómetrískum hring — og þar með vegalengdum og tíma. Meginatriði í hugsun miðalda var, að allt skyldi saman njörvað í heimi hér, mælingar, vog, him- inhringur, jörð, stjörnur og goð. Aldrei hefur tekizt að finna, hvernig slíku sambandi var háttað í heiðni — nú lágu tilgátur þar að lútandi frammi. Að sjálfsögðu þurfa hringlaga borgir Dana og fimmundar- djásnið frá Hornelund ekki að byggjast á þeim hugmyndavef, sem skýrður er í RÍM. En hvort tveggja sýnir ótvírætt, að það eru einmitt þau form, sem tilgáturnar sögðu fyrir um, er finnast í Dan- mörku víkingaaldar. Og það voru þau form, sem áætluð voru hug- myndafræðilegur grundvöllur hins danska konungdæmis — samkvæmt íslenzkum heimildum. Að þessu leyti er tenging djásns- ins frá Hornelund við landmæl- ingarnar forvitnileg í meira lagi: enginn getur látið sem fornleifa- fræðingar hafi ekki grafið upp borgir þessarar lögunar — og að gullmenið falli ekki að sams konar þekkingu á geómetríu. Samræmið er fullkomið. Byltingin Slík er byltingin orðin, að meg- inatriði þeirrar geómetríu sem lögð var fram í RÍM, hafa nú fund- ist á Norðurlöndum, tengd því tímaskeiði sem um ræðir. Else Christie Kielland fann að Gull- insniðið, þrívíddin og kunnátta í útreikningum á hring voru hornsteinar geómetríunnar í Nor- egi — þá er landnámsmenn sigldu þaðan. Þetta síðastnefnda sker úr — það var fyrir sömu niðurstöðu hér á Islandi, að unnt reyndist að bera saman mörkun Alþingis, geómetríu Iandnáms — og hug- myndafræði konungdæmisins. Þjóðminjavörðurinn sænski, Dr. Ráberg finnur konungssetur sem miðjuHjólsí Svíþjóð, og nú hafa þeir Axel E. Christensen og H. Gam Kristensen staðfest tilvist geómetrískra forma í Danmörku, er samsvara hinum fíngerðari þáttum hugmyndafræðinnar. Þeg- ar allt þetta kemur saman er eitt með öllu ljóst: Enginn getur leng- ur mótmælst helztu niðurstöðum geometri. Smykkefremstillingen er konstateret i vikingeborgene, saa smykket kan være fremstillet et af stederne. Guldsmeden har, som det fremgaar af smykket, kendt karrécirklernes geometriske eksistens. De forekommer ikke i det fysiske anlæg som cirkler, men har ved afsætningen af anlægget kun været markeret som karré- aksekvadraternes skæringspunkt- er paa diagonallinierene." (Ark. s. 385.) Hvað er merkilegt við þetta? Það, að djásnið frá Hornelund fellur eins og glófi að hendi 23. tilgátu RÍM. Sú tilgáta dýpkar fjórskiptingu hrings þannig, að gert er ráð fyrir tölunni 5 sem miðju-hugtaki. Og ef lesandinn virðir nú fyrir sér gullmenið góða, sér hann umsvifalaust, að hring er eigi aðeins skipt í geirana fjóra — heldur og í miðjuna fimmtu. En eigi nemur þar af, því að undir- skilið er jafnframt í 23. tilgátunni, að hring sé skipt í 8 eyktir og 8 hálfeyktir — sem voru stundir dags á víkirigaöld. Attskiptinguna sér lesandinn einnig í djásninu frá Hornelund. Þannig staðfestir Kristensen ekki aðeins vissa sam- svörun — heldur það sem meiru varðar — að öll eiga þessi hug- myndafræðilegu atriði saman, eins og spáð var fyrir í RIM. Vog kornguðs Skýringin á hinni íslenzku til- gátu er sú, að reikna mátti út hin svonefndu „sár kornguðs" af ís- lenzkum launsögnum. Þessi „sár“ voru furðu flókin hugmynd, og er ekki rúm fyrir skýringu á henni hér. En tölurnar getur hver maður skilið: annars vegar voru sárin 5, hins vegar 16. Spurningin var hvers vegna. Ég komst að ákveðn- um niðurstöðum í þeim efnum: ein var sú, að grundvallareining kornguðs hefði verið talan 80. Reyndist sú niðurstaða rétt; hér- lendis var talað um „80 merkur vegnar", í Egyptalandi inu forna var talað um „80 artaba". Má skýra frá því til gamans, að kista pýramídans mikla í Giza hafði rúmmálið 80 artaba — og bar 23. tilgáta Baksviðs Njálu. Tími samræmdur vog kornguðs. C1*8)=T8 17. tilgáta Baksviðs Njálu. Samræming tímaskciða. skýrðist milli fornrar speki og tölvísi mátti setja fram afdrátt- arlausar tilgátur um geómetrísk form — sem beinlínis voru ráðin af hugsuninni. Þegar við skyggn- umst yfir fjórðungaskiptingu hrings í Trelleborg, Fyrkat og Nonnebakken svo og fimmundina í gulldjásninu frá Hornelund, hljót- um við að spyrja sjálf okkur, hvort virkilega sé unnt að tengja hugtök fornaldar við víkingaborgir sem væntanlega voru byggðar með það að meginmarkmiði að hýsa vík- inga. Hér komum við e.t.v. að at- hyglisverðasta kafla í bók Else Christie Kielland. Hún sviptir ein- mitt af öllum vafa um tengsl inna geómetrísku hlutfalla sem finnast í Noregi — við þessi dönsku mann- virki. Þannig tekur hún undir með Dönunum og kveður borgirnar hafa verið „greinilega geómetrískt út mældar" (clearly determined geomretrically) (St. Ch. s. 87). Telur Kielland t.d. að gullin- sniðið sé augljóst í borgunum, svo og táknfræði hrings, sem raunar ætti engum á óvart að koma um hringlaga mannvirki. Gefur orða- lag hennar engin grið: „The curving walls form part of circular arcs about geometrically determined points, whose radii are also geometrically determined. The scale employed at Trelleborg is about the same as that of the great ships from Oseberg and Gokstad. Thus it is clear that the people responsible for these constructions had achieved practi- cally perfect mastery, geometric ás well as practical, of large di- mensions." (St. Ch. s 91.) Og enn segir hún: „We see at Trelleborg that in about A.D. 850 the Vikings were perfectly capable of constructing largé circles and marking large geometric patterns with absolut- ely masterly precision — the slightest error in construction would have upset the entire plan.“ (Sama síða.) Samræmt hugmynda- kerfi norrænna manna Bein tengSl eru m.ö.o. milli geómetrískrar þekkingar þeirrar er Norðmenn beittu við smíði húsa, skipa og skrautmuna — og meistaralegra landmælinga er birtast af borgunum dönsku. Þetta svarar hinni áleitnu spurningu þess efnis, hvort nokkur vegur sé að bera saman geómetrísk form hins danska konungdæmis, reikn- uð út af íslenzkum ritleifum, og byggingarafrek danskra konunga öldina fyrir landnám íslands. Svarið er ótvírætt: vissulega. Þarna verður ekkert sundur skilið. Enda væri í rauninni mjög ein- kennilegt ef svo væri. Þannig stað- festir Kielland ekki einungis, að búast hefði mátt við geómetrískri kunnáttu, er beitt var til mælinga á stóru landsvæði, heldur og þekk- ingu á hlutföllum fornaldar — meðal norrænna manna á víkinga- öld. En hafi formin verið þekkt, var þess að sjálfsögðu að vænta, að hugmyndirnar fylgdu í kjölfar- ið. Staðfestingin á helztu tilgátum RÍM er fullkomin. Eina atriðið, sem menningar- fræðingurinn, arkitektinn oe fornleifafræðingurinn hafa ekki aðstöðu til að meta eru útreikn- ingarnir hér nyrðra — hvernig goðsagnir og launsagnir voru rannsakaðar til að koma skipan á heimsmynd íslenzkra landnáms- manna og mörkun Alþingis. En í þessu felst mikilvægi hins ís- lenzka efniviðar. Skýringar á þessum atriðum hafa ekki fundizt erlendis. Mikilvægast alls, eins og nú standa sakir, er því, að íslend- ingar geta lagt fram tilgátur um notkun goðsagna og launsagna miðalda — beinlínis fært öðrum í hendur tæki sem fæstir hugðu finnanleg til rannsókna á örðug- um gátum fornfræða. Fyrir liggur, að eigi aðeins einstakar tilgátur RIM um form og hlutföll Norður- landabúa á 9. öld hafa reynzt rétt- ar, heldur að þær eiga saman sem hluti víðtæks hugmyndakerfis, er þekktist um öll Norðurlönd tutt- ugu árum áður en Ingólfur er sagður hafa numið hér land. Menningarsagan gengur upp. a í s 'í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.