Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 fWs>r0iwi Útgefandi ní>Tní>it> hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 12 kr. eintakiö. Neyð Pólverja Amorgun, mánudaginn 13. desember, er eitt ár liðið frá því, að herinn tók öll völd í Póllandi í því skyni að „verja sósíalískan ávinning" þjóðar- innar, svo að vitnað sé í hefð- bundið sovéskt orðalag, þegar óhæfuverkin eru varin og rökstudd. Það sem í raun gerð- ist í Póllandi var það, að í þessu „alþýðulýðveldi" sigaði kommúnistaflokkurinn hern- um á fólkið til að koma í veg fyrir að alþýðan gæti starfað í verkalýðsfélögum. Herlögin voru sett til að róa Kreml- verja, sem höfðu af því áhygg- ur að sú frelsishreyfing sem skotið hafði rótið í Póllandi vegna starfsemi Samstöðu myndi teygja anga sína til annarra kommúnistaríkja, en ekkert óttast marxistarnir- lenínistarnir í Kreml jafn mikið og fólkið, vilja þess og óskir. Með herlögum var öll stjórnmálastarfsemi í Pól- landi fryst, þúsundir manna voru teknir til fanga og hafin var skipuleg upprætingarher- ferð gegn öllum þeim sem sættu sig ekki við hlekki ófrelsins eða stjórnvöld héldu að hefðu þrek til þess að mót- mæla harðræðinu. Setning herlaganna átti að sögn þeirra, sem að þeim stóðu að koma í veg fyrir sult og gjald- þrot pólsku þjóðarinnar en eftir þriggja áratuga komm- únistastjórn blasti ekkert annað við landsmönnum en ófrelsi, fátækt og almenn neyð. Efnahagsstarfsemin í Póllandi hefur síður en svo náð sér á skrið. Á fyrra helm- ingi þessa árs var iðnaðar- framleiðsla 6% minni en á ár- inu 1981, síðan hefur náðst sama framleiðslumagn og í fyrra en öll atvinnustarfsemin er á brauðfótum og þetta fjöl- menna ríki á í raun allt undir því að lánardrottnar gangi ekki of hart að því. Fyrir skömmu var Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, sleppt úr haldi og látið er í veðri vaka, að ekki muni líða á löngu þar til herlögum verði aflétt. Hins vegar liggur alls ekki fyrir, hvaða stjórnmála- lausn er á vanda pólsku þjóð- arinnar. Herstjórn Jaruzelskis getur haldið pólskum almenn- ingi í skefjum, en hins vegar er af og frá að herstjórnin njóti þess víðtæka stuðnings, sem er forsenda að þjóðarsátt náist og atvinnu- og efna- hagsstarfsemin færist í eðli- legt horf. Ef til vill táknar frelsun Walesa, að Jaruzelski telji sér fært að sýna vott af umburðarlyndi en hitt er ljóst, að þessi afstaða herstjórans og hugsanleg frekari skref hans í frelsisátt höggva alls ekki á hnútinn í Póllandi. Kjarni málsins er sá, að pólska þjóðin þolir ekki lengur fátæktina og ofríkið sem af kommúnismanum leiðir. Aðrar þjóðir og þar á meðal við íslendingar höfum sýnt Pólverjum samúð í verki með því að veita þeim aðstoð. Út- vegun á nauðþurftum fyrir Pólverja og vinsemd í garð flóttamanna þaðan er auðvit- að sjálfsögð og eðlileg, en ann- að er þó mikilvægara, þegar staða Pólverja er metin: að gefa þeim von í neyð sinni. Það gerum við best með því að standa vörð um lýðræðislega stjórnarhætti okkar sjálfra, varðveita frelsi okkar og veita ofríkisöflum kommúnismans viðnám. Líklega gerist það hvergi á byggðu bóli í lýðræð- isríkjum, að almenningur þurfi að sitja undir því, að í sjónvarpi sitji fulltrúar þeirra tveggja flokka, sem fara með stjórn landsins og deila um það sín á milli, hvort kenna eigi atbeina þeirra að lausn á lífshagsmunamáli þjóðarinnar við rússneskt hænsnahús eða búlgarskt! Þetta máttum við þó þola á föstudagskvöldið þegar þeir Hjörleifur Gutt- ormsson og Guðmundur G. Þórarinsson þráttuðu um ál- málið í Kastljósi. Firringin í því rifrildi og virðingarleysið fyrir almennri skynsemi minnir á það, þegar Neró lék á fiðlu á meðan Róm brann. Davíð Oddsson, borgar- stjóri í Reykjavík, hefur kynnt þá stefnu, sem hann tel- ur skynsamlegt að fylgt verði við lóðaúthlutun á næsta ári. Hann vill að alls verði úthlut- að 1617 lóðum í Reykjavík á árinu 1983. Með því er punkta- kerfi vinstri manna við lóð- aúthlutun úthýst, vonandi í eitt skipti fyrir öll. Þetta ópersónulega skrifræðiskerfi vinstrimennskunnar hefur alls ekki fallið borgarbúum í geð. En í stórhuga stefnu borgar- stjóra fellst annað og meira en að jarða punktakerfið. Með hinu mikla lóðaframboði skap- Ofríki kommúnismans í Pól- landi leiddi til hyldýpis á milli vilja fólksins og áætlana stjórnarherranna, sem þóttust þó hafa höndlað stóra sannleik í stjórn þjóðfélagsins. Verði ekki spornað við fæti hér á Iandi getum við lent í sömu vandræðum. Til dæmis hefur margsinnis verið bent á það hér, að grundvallarstefna Al- þýðubandalagsins í efna- hagsmálum minnir aðeins á stjórnkerfið í Póllandi, sem fólkið þar hefur andmælt og herinn neyðir það nú til að þola. Við þurfum því að líta í eigin barm, þegar við metum hvað við getum best gert til að hjálpa Pólverjum í neyð þeirra — við þurfum að koma í veg fyrir þá íslehsku neyð sem Al- þýðubandalagið vill leiða yfir þjóðina og er nú tekið til við að boða vafningalaust. ast allt annað viðhorf til hús- bygginga í höfuðborginni en áður hefur ríkt. Nú geta þeir sem í nágrenni Reykjavíkur búa sótt um lóð í borginni og fengið úrlausn. Þá verða tekn- ar upp nýjar reglur varðandi greiðslur lóðarhafa fyrir rétt sinn og gengið þannig frá hnútum, að úthlutunarhafi tapi ekki fjárhagslega á því þótt hann afsali sér lóð eftir að hann byrjaði að greiða borginni fyrir hana. Morgun- blaðið hvetur eindregið til þess að hin stórhuga stefna í lóðamálum, sem Davíð Oddsson, borgarstjóri, hefur kynnt, nái fram að ganga. Stórhuga stefna Rey kj avíkurbréf Laugardagur 11. desember- Af spástefnu Stjórnunarfélag íslands gekkst fyrir þriðju spástefnu sinni á fimmtudaginn. A þessum árlega fundi reyna hagfræðingar frá Þjóðhagsstofnun, bönkum, háskól- anum og stórfyrirtækjum að geta sér til um efnahagsþróun næsta árs. Enginn var bjartsýnn um framvindu íslenskra efnahags- mála á næsta ári á þessum fundi. Ólafur Davíðsson forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, færði að því rök, að við værum verr í stakk búnir núna til þess að takast á við efnahagsörðugleika en 1967 og 1974. Verðbólgan myndi vaxa og leiða til atvinnuleysis. En i raun snerist vandinn ekki um það að sigrast á verðbólgunni til að kom- ast hjá atvinnuleysi, því að fyrr þyrftum við að bregðast við þeirri staðreynd, að ekki væri lengur unnt að halda uppi atvinnu með erlendum lántökum. „Við höfum ekki efni á að lifa í voninni og ekki lifum við á voninni," sagði Olafur Davíðsson í lok máls síns. Tryggvi Pálsson, forstöðumaður hagfræði- og áætlanadeildar Landsbanka Islands, gerði grein fyrir því hve mjög hefði hallað undan fæti vegna «korts á inn- lendu sparifé. Litlar líkur eru á að það aukist á næsta ári og óhjá- kvæmilegt er, að erlendir lánar- drottnar líti til þess, hvernig við Íhöldum á stjórn eigin mála og nýt- ingu auðlinda okkar við mat á því, hvort óhætt sé að veita okkur frekari lán, sem auðvitað er óskynsamlegt að taka en kann að | reynast nauðsynlegt. Við blasir, að fram á mitt næsta ár að minnsta kosti, mun ríkja hér stjórnmálaleg ringulreið og öllum er ljóst — nema stjórnarherrunum — að óskynsamlega hefur verið staðið að auðlindanýtingu. Dr. Þráinn Eggertsson prófess- or, var á sama máli og Ólafur Davíðsson um það, að við stefnd- um inn í nýtt og hærra verðbólgu- skeið og sýndi Þráinn línurit um þróun verðbólgunnar í ísrael máli sínu til stuðnings, en þar hefur hún mest orðið 130%. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor, sagði að út- færsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur 1975 hefði verið „mesti búhnykkur sögunnar", sjávarafli hefði verið 90% meiri 1981 en 1975. Verðbólgan og stjórnleysið sem henni fylgdi hefði hins vegar leitt til rangra ákvarðana í fjár- festingu, ekki síst í sjávarútvegi. Færði Gylfi rök fyrir því, að ekki ætti að skammta mönnum ókeypis aðgang að sjávarafla. Sú auðlind ætti ekki frekar að vera gefin en aðrar. Vísaði hann til þess þegar innflutningshöft voru afnumin með réttri skráningu á gengi krónunnar við upphaf viðreisnar og sagði að skömmtun á fiskveið- um ætti að aflétta með því að hætta að gefa fiskinn í sjónum. Valgerður Bjarnadóttir, for- stöðumaður Hagdeildar Flugleiða hf., Eggert Ágúst Sverrisson, full- trúi Sambands íslenskra sam- vinnufélaga, og Jóhann Pétur Andersen, fjármálastjóri Slipp- stöðvarinnar á Akureyri, voru samstiga í mati sínu á forsendum fyrir rekstraráætlunum næsta árs. Verðbólgan verður 60% og þar yfir á næsta ári. Miðað við það að dollarinn verði jafngildi 17 króna 1. janúar 1983 verði hann um 28 krónur í árslok. Engar grunnkaupshækkanir verði um- fram þær, sem þegar hefur verið um samið og koma til 1. janúar og 1. mars 1983. Hins vegar ráðist það af því, hvað stjórnvöld verða iðin við að skerða verðbætur á laun, hve þær verða háar á næsta ári. Karl Kristjánsson, fjármála- og hagsýslustjóri Kópavogs, sagði, að bæjarfélagið myndi ekkert fé hafa til framkvæmda, ef verðbólg- an færi yfir 70% á árinu 1983. Hörður Sigurgestsson, formað- ur Stjórnunarfélagsins, stýrði þessari fjölmennu spástefnu og minnti á það í upphafi, að menn hefðu reynst nokkuð sannspáir fyrir ári. Metnað- urinn Þegar bréfritari kom af spá- stefnunni fékk hann í hendur nýja bók, þar sem meðal annars eru rifjaðir upp þeir atburðir, sem hæst bar við myndun þeirrar rík- isstjórnar, sem enginn reiknar lengur með, þegar hann reynir að geta sér til um hvað gerast muni á næsta ári. í grein, Býsnavetur, sem rituð var skömmu eftir stjórnarmyndunina hér í blaðið veltir höfundurinn fyrir sér, hvers vegna svo mikið kapp hafi verið lagt á að stofna til þessa stjórn- arsamstarfs. Hann minnist á freistingarnar og segir: „Margir hafa fallið fyrir metnaði sínum á íslandi undanfarnar vikur og mánuði, ekki síður en annars stað- ar.“ og síðar í greininni spyr hann: Frá spástefnu Stjórnunarfélagsins „En af hverju var þetta gert? Fyrir þjóðina, sem á í vændum meiri skattpíningu og sér ekki fram á annað en áframhaldandi óðaverðbólgu? Eða var það gert fyrir sjálfstæðisstefnuna? Eða kannski Sjálfstæðisflokkinn? Eða var þetta kannski gert vegna þeirra freistinga, sem fyrr eru nefndar?" Sé leitað svara við þessum spurningum nú þegar tæp þrjú ár eru liðin síðan hinir sögulegu at- burðir gerðust, sem leiddu til þess að ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen var mynduð, verða svörin á einn veg. Engin þjóð vill stjórn sem þyngir skatta, safnar erlend- um skuldum og stuðlar að óða- verðbólgu. Allt þetta hefur gerst undir þessari stjórn. Ríkisstjórnin hefur hvorki gert neitt fyrir sjálfstæðisstefnuna né Sjálfstæð- isflokkinn. En hvað um metnaðinn? Er for- sætisráðherra ánægður með stöðu stjórnarskrármálsins? Finnst Steingrími Hermannssyni, að út- gerð og fiskvinnsla standi betur nú en þegar hann settist í sjávar- útvegsráðherrastólinn? Er Tómas Árnason í sjöunda himni yfir því, að alþýðubandalagsmenn kenna setu hans í viðskiptaráðuneytinu um verðbólgu og gjaldeyriseyðslu? Er Ólafur Jóhannesson, utanrík- isráðherra, himinlifandi yfir Rússasamningnum, sem hann undirritaði? Hver er menntamála- ráðherra? Finnst Friðjóni Þórð- arsyni, dómsmálaráðherra, mikið til þess koma, að sjálfstæðismenn á Akranesi krefjast tafarlausrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.