Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 17 ! ...................... — vfjstrænna ríkja í kjölfar innrásar Sovétmanna í Afganistan. „Tíminn er að renna út“ „Það er komið að úrslitastundu. Við skulum horfast í augu við það. Tíminn er að renna út, ekki aðeins fyrir okkur, heldur einnig fyrir flokkinn." Sá, sem þetta sagði, var fulltrúi á þingi Samstöðu í Gdansk laugardaginn 12. desem- ber. Trúlega hefur hann ekki órað fyrir því hve nærri hann fór sannleikanum. Herinn lætur til skarar skríða Fyrsti fyrirboðinn um að eitthvað óvenjulegt væri á seyði var, að um kl. sex síðdegis á laug- ardag var allt síma- og skeyta- samband við Pólland rofið. Skömmu fyrir miðnætti sama dag var svo tekið fyrir símasamband milli Gdansk og Varsjár og ann- arra hluta landsins samtímis því sem mörg þúsund hermanna komu sér fyrir á mikilvægum stöðum. Aðrir héldu til höfuð- stöðva Samstöðu, lokuðu nær- liggjandi götum og lögðu undir sig skrifstofur samtakanna. Að því búnu var hafist handa um skipulegar handtökur á forystu- mönnum Samstöðu, sem lang- flestir voru samankomnir á þing- inu í Gdansk. Um 3000 þeirra voru teknir fastir þá um nóttina og næsta dag og í þeirra hópi var Lech Walesa. Nokkuð hefur verið um það deilt hvers vegna pólski kommún- istaflokkurinn lét til skarar skríða einmitt á þessum tíma en þó má benda á ýmislegt í því sam- bandi. Þar ber hæst þing Sam- LtiMtfir Samstööu voru langflestir tsknir höndum og haföir í sérstökum fangabúöum. Þsssi mynd var tskin í janúar á þessu ári. Neðanjarðarstarf- semi og mótmæli Til allsherjarverkfalls hefur ekki komið í Póllandi eftir að herlögin voru sett þótt víða hafi verið efnt til staðbundinna verk- falla. Herstjórnin sýndi það líka strax, að engum vettlingatökum yrði tekið á þeim, sem hefðu uppi einhvern mótblástur. Fólk var fangelsað, rekið úr vinnu í stórum hópum og síðast en ekki síst voru allir vinnustaðir settir undir her- aga, sem þýddi, að mál hinna brotlegu voru dæmd af herdóm- stóli. Þrátt fyrir þetta gáfust Samstöðumenn ekki upp. Leyni- legar útvarpsstöðvar voru starf- ræktar lengi vel og í litlum prentsmiðjum, sem tekist hafði að koma undan, voru prentaðir flugmiðar, sem dreift var um borgir og bæi. Þrettánda hvers mánaðar hefur fólk verið hvatt til að mótmæla herlögunum og oft 31. ágúat 1980 Stjórnin hefur fallist á kröfur verkamanna og hér sjást Jagielski, aðstoðarforsætisráðherra, og Walesa hvor meö sitt eintakiö af samningnum. Verkföllum var hætt og Samstaöa leit dagsins Ijós. Lech Walesa varö strax leiötogi verkfallsmannanna í skipasmíðastöövunum. Þessi mynd er tekin 24. ágúst 1980 og er Walesa hér að lýsa því yfir, að verkamenn séu staðráönir í að halda verkfallinu áfram þar til stjórnin hafi gengið aö kröfum þeirra. Nokkrir menn voru skotnir þegar þeir reyndu aö mótmæla setningu herlaganna. Þessi mynd var tekin eftir óeirðir, sem uröu úti fyrir skipasmíðastöðvunum í Gdansk 16. desember 1981. Fyrstu meiriháttar óeiröirnar eftir að herlögin voru sett uröu í maíbyrjun á þessu ári Þessi mynd var tekin í Varsjá þar sem fólk fór fylktu liði um götur borgarinnar með fána Samstöðu á lofti. Lögreglumenn og hermann réðust á fólkið með vatnsþrýstibyssum, táragassprengjum og kylfum. Verkfallsmenn í Lenin-skipasmíðastöðvunum í Gdansk sjást hér biðjast fyrir en utan stöðvarinnar krupu ættingjar þeirra einnig á kné. Þessi verkföll urðu upphafiö að Samstöðu. stöðu í Gdansk en segja má að þar hafi stríðshanskanum verið kast- að. Þar var því lýst yfir, að til allsherjarverkfalls yrði boðað næsta fimmtudag vegna þeirra orða talsmanns stjórnarinnar, að lögreglan myndi koma í veg fyrir mótmæli á götum úti, ákveðið var allsherjarverkfall ef þingið ákvæði að banna verkföll og síð- ast en ekki síst, hvatt var til þjóðaratkvæðagreiðslu í febrúar á þessu ári um nýtt stjórnarfyrir- komulag og frjálsar og lýðræðis- legar kosningar. Nú var mælirinn fullur. Frelsi og lýðræði. í eyrum kommúnista hljóma þessi orð eins og dauða- hringing. Það var því ekki eftir neinu að bíða enda Rússar búnir að setja pólsku stjórninni úrslita- kosti. Annaðhvort hæfist hún sjálf handa gegn Samstöðu eða þeir myndu sjá til þess sjálfir. Lýst yfir neyd- arástandi Á sunnudagsmorgni, eftir handtökurnar, flutti Jaruzelski hershöfðingi útvarps- og sjón- varpsávarp til þjóðarinnar. Þar sagði hann, að „herráði þjóðlegrar endurreisnar" hefði verið komið á fót og neyðarástandi lýst yfir í landinu. Hann sagði, að ástæð- urnar fyrir herlögunum væru þær, að þjóðin rambaði á barmi algerrar upplausnar, ríkiskerfið væri hrunið til grunna og fólk hefði verið farið að búa sig undir bein átök við hina „rauðu“, þ.e. kommúnista. Skömmu eftir ávarp Jaruzelskis var tilkynnt, að sex daga vinnuvika hefði aftur verið tekin upp í Póllandi, laugardags- frí afnumin, og að aðeins tvö helstu málgögn kommúnista- flokksins fengju að koma út. Þar með var bundinn endi á útgáfu- starfsemi Samstöðu. Fyrstu viðbrögðin Mánudagurinn 14. desember rann upp og svo virtist sem her- ráðið gæti hrósað sigri. Verkföll voru að vísu víða í landinu en þó ljóst, að um allsherjarverkfall var ekki að ræða. Forystumenn Sam- stöðu voru langflestir í fangelsi og allt var á huldu með örlög Wal- esa. Fljótt fóru þó að berast yfir- lýsingar frá þeim leiðtogum Sam- stöðu, sem fóru huldu höfði og ekki höfðu fallið í hendur lög- reglunni. Þar var þess krafist að forystumönnum Samstöðu yrði sieppt úr haldi og herlögin af- numin. „Okkar eina von er rósemi og virðing fyrir verki okkar — okkar eina von er samstaða alls vinnandi fólks í Póllandi. Svar okkar við ofbeldi er allsherjar- verkfall." hciur komið til harðra átaka milli pólskrar alþýðu og lögreglunnar á þeim degi. Mest urðu þó mótmæl- in 31. ágúst sl. á tveggja ára af- mæli Samstöðu. Þann dag söfnuðust tugþúsund- ir manna saman í borgum og bæj- um um allt Pólland. „Samstaða, Samstaða," „Frelsið Walesa," hrópaði fólkið en svörin, sem það fékk, voru barsmíð, tára- gassprengjur og handtökur. Áður en dagur var að kveldi kominn höfðu um 4500 manns verið hand- teknir og sex manns lágu í valn- um, fimm í borginni Lubin, höfðu verið skotnir í bakið, og einn í Varsjá. Þrátt fyrir þessi mótmæli tók herstjórnin nú að gerast öruggari um sinn hag enda ljóst, að al- menningur mátti sín lítils gegn hernum, gráum fyrir járnum. Fyrstu merkin um það.voru, að ákveðið var að leyfa Páli páfa að heimsækja ættland sitt í júni á næsta ári en áður hafði fyrirhug- uð heimsókn hans í ágúst sl. verið bönnuð. Mörgum leiðtogum Sam- stöðu var sleppt úr haldi og emb- ættismenn stjórnarinnar fóru að láta í það skína, að herlögum kynni að verða aflétt innan tíðar. 14. nóvember sl. var Lech Walesa svo látinn laus. Samstaða lifir Rúmlega tvö ár eru stðan Sam- staða fæddist meðal verkamanna í skipasmíðastöðvunum í Gdansk og Stettin. í rúmt ár ólu Pólverjar í brjósti sér vonir um bjartari tíð og í heilt ár hafa þeir mátt horfa upp á vonirnar deyja. Lech Wal- esa gengur að vísu laus, ef hægt er að taka þannig til örða um óbreytta borgara í ríkjum komm- únismans, en enn veit enginn hvað hann hyggst fyrir eða hve langt honum verður leyft að ganga. Þrátt fyrir það lifir Sam- staða enn, því að hún er ekki fé- lagslegt stundarfyrirbrigði heldur samnefnari fyrir vonir og þrár pólsku þjóðarinnar. Þær munu aldrei verða upprættar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.