Morgunblaðið - 17.04.1982, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
Tíu Islendingar sæmdir
riddarakrossi Fálkaorðunnar
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, sæmdi í fyrradag tiu íslend-
inga riddarakrossi llinnar íslenzku
fálkaorðu.
Þeir, sem sæmdir voru, eru eft-
irtaldir:
Davíð Sch. Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, fyrir störf að iðn-
aðarmálum. Erlendur Árnason,
oddviti, Skiðbakka, Austur-
Landeyjahreppi, fyrir félagsmála-
störf. Guðgeir Jónsson, fv. bók-
bindari, fyrir félagsmálastörf. Frú
Ingibjörg Halldórsdóttir, Akur-
eyri, fyrir félagsmálastörf. Sig-
mund Jóhannsson, uppfinninga-
maður, Vestmannaeyjum, fyrir
nýjungar á sviði öryggismála sjó-
manna. Sigurður Kristjónsson,
skipstjóri, Hellissandi, fyrir störf
að sjávarútvegsmálum. Sigurður
Skúlason, magister, fyrir störf á
sviði fræðslumála. Sören Sören-
sen, þýðandi, fyrir störf á sviði
menningarmála. Úlfur Sigur-
mundsson, framkvæmdastjóri,
fyrir störf að útflutningsmálum.
Þuríður Pálsdóttir, óperusöngvari,
fyrir tónlistarstörf.
Á mjndinni er Edda Filippusdóttir ásamt börnum sínum. Frá hægri: Edda Filippusdóttir, Guðlaugur R.
Magnússon, Nanna Magnúsdóttir, Berglind J. Magnúsdóttir og Sigurður G. Magnússon. (Ljáom. K.Ö.)
Trúði þessu ekki í fyrstu
— sagði Edda Filippusdóttir sem hlaut
stærsta vinning Happdrættis DAS
EDDA Filippusdóttir, húsmóðir,
varð svo lánsöm 6. apríl sl. að
hljóta stærsta vinning Happdrættis
I)AS á því happdrættisári sem nú
er að Ijúka. Að sögn Eddu er hér
um að ræða ibúð að eigin vali að
verðmæti 700 þús. kr. Er hún var
að því spurð hver viðbrögð hennar
hefðu orðið þegar henni var til-
kynnt um vinninginn, svaraði hún
þvi til að í fyrstu hefði hún ekki
trúað því.
Loks þegar hún hefði látið
sannfærast hringdi hún í dætur
sínar og syni í því skyni að
greina þeim frá þessum tíðind-
um. En þau hefðu þó ekki lagt
trúnað á orð hennar strax og
jafnvel haldið að vinningsupp-
hæðin væri í gömlum krónum.
Samt hefðu þau fljótlega tekið
þessu sem sannleik og samglaðst
henni.
Edda kvaðst hafa átt miða í
Happdrætti DAS frá stofnun
þess. Þó hefði hún ekki hlotið
stóran vinning áður. Að hennar
dómi kæmi þessi íbúðarvinning-
ur sér mjög vel, þar sem hún
hefði fyrir skömmu orðið fyrir
miklu tekjumissi. Að lokum
kvaðst Edda vitaskuld ætla að
styrkja Happdrætti DAS til góð-
verka í þágu aldraðra með því að
halda miða sinum.
Norræna húsið:
Ljóðatónleikar í
Austurbæjarbíói
Nýtt happdrættisár
hefst hjá DAS 1. maí
NYTT happdrættisár er nú að hefj-
ast hjá Happdrætti DAS. Að þessu
sinni verða vinningar samtals
7.200 en heildarverðmæti þeirra er
23.042.000 krónur. Að sögn Bald-
vins Einarssonar, forstjóra Happ-
drættisins, eykst verðmæti vinn-
inga á þessu ári talsvert frá því
sem verið hefur. Hæsti vinningur-
inn verður húseign að eigin vali
fyrir eina milljón króna. Ennfrem-
ur verða tvö íslensk einingahús
cftir vali, að verðmæti hálf milljón,
meðal vinninga. En unnt er að
festa kaup á þessum einingahúsum
á a.m.k. 11 stöðum á landinu.
Þá verða vinningar til íbúðar-
kaupa níu talsins að upphæð 250
þús. hver. Baldvin kvað bílavinn-
inga verða 100 sem áður, en nú
yrðu tveir þeirra á 150 þús. kr.
og 98 á 50 þús: Einnig verða 300
iL'hnnl i ui ) st.-.t -Tinjl iisíi<-jí'
utanferðir, að verðmæti 15 þús.
kr. hver, meðal vinninga o.fl.
Baldvin sagði að lægsti vinn-
ingurinn á þessu happdrættisári,
sem er frá 1. maí 1982 til 30.
apríl 1983, verði eitt þúsund kr.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
formanns stjórnar DAS, er ætl-
unin að taka í notkun nýja
hjúkrunardeild aldraðra við
Hrafnistu í Hafnarfirði á vegum
Happdrættis DAS í lok þeSsa árs
aldraðra. Að dómi Péturs myndi
þessi deild án efa bæta úr einni
brýnustu þörf aldraðra. Hann
sagði að deildin muni rúma um
80—90 vistmenn. Þar verður
m.a. sérhæð fyrir endurhæfingu
aldraðra með sundlaug.
Þá er einnig ráðgert að taka í
notkun nýtt hjúkrunarheimili
jrvidóir idöaoiilul. nnl-ý;
fyrir aldraða í Kópavogi 11. maí
nk.
Pétur lagði á það áherslu að
ýmsir aðilar hefðu lagt hönd á
plóg til að koma upp þessari
hjúkrunardeild.
Mætti t.d. nefna að ýmis góð-
gerðarfélög hefðu veitt ómetan-
lega aðstoð. Hann bætti því við
að sveitarfélög hefðu einnig átt
stóran hlut að máli þegar ráðist
hefði verið í framkvæmdir fyrir
aldraða á vegum DAS. T.a.m.
væri fyrirhugað á næstu árum
að reisa raðhús fyrir aldraða
með þátttöku góðgerðarsam-
taka, sveitarfélaga o.fl.
Hann kvað þó ástandið í mál-
efnum eldra fólks enn slæmt. Af
þeim sökum þyrfti að halda
áfram að efla þjónustu í þágu
aldraðra með öllum ráðum.
---- ... ií i ;., i i
Ivar Orgland flytur
fyrirlestra um
norska málara og skáld
Myndin er tekin fyrir framan hjúkrunardeildina við llrafnistu. Á myndinni er stjórn Happdrættis DAS ásamt
Eddu Filippusdóttur, sem hlaut stærsta vinning DAS á þessu happdrættisári. Frá vinstri: Tómas Guðjónsson,
meðstjórnandi, Pétur Sigurðsson, formaður, Edda Filippusdóttir, Baldvin Jónsson, forstjóri DAS, Garðar
Þorsteinsson, ritari og Hilmar Jónsson, meðstjórnandi. Á myndina vantar Guðmund Oddsson, gjaldkera.
(l.jósm. K.Ö.)
tyret“ kynnir Ivar Orgland norsku
málarana Theodor Kittelsen
(1857—1914) og Christian Skreds-
vig (1854—1924). Theodor Kittel-
sen er frægur fyrir ævintýra-
teikningar sínar, en Christian
Skredsvig, sem lærði í Osló, Kaup-
mannahöfn, Múnchen og París,
hlaut gullverðlaun í „Salonen" í
París, og var það stærsti sigur
norsks málara til þess dags í Evr-
ópu, segir m.a. í frétt frá Norræna
húsinu.
Segir Ivar Orgland frá heim-
kynnum þeirra Kittelsen og
Skredsvig í Sigdal og Eggedal og
sýnir myndir af listaverkum
þeirra og heimilum.
Síðari fyrirlesturinn verður
þriðjudaginn 20. apríl kl. 20.30, og
nefnist „Dikter og miljo. Et mote
med noen av Norges fremste dikt-
ere og miljo de levde i“ og segir
þar frá nokkrum helstu stórskáld-
um Noregs og því umhverfi sem
þeir lifðu í. Má nefna Henrik
Ibsen, Bjornstjerne Bjornson,
Knut Hamsun, Sigrid Undset
ásamt fleirum. Með erindinu
verða sýndar litskyggnur.
lög Francis Poulence við Ijóð eftir
Guillaume Apollinarie.
í kynningu Tónlistarfélagsins,
en þetta eru tíundu tónleikar þess
þennan starfsvetur, segir svo um
listamennina:
„Baritónsöngvarinn William
Parker vann til fyrstu verðlauna í
alþjóðakeppni í flutningi á amer-
ískri tónlist á vegum Kennedy-
Center og Rockefeller-stofnunar-
innar 1979. í keppninni tóku þátt
yfir 300 tónlistarmenn og var úr-
skurður dómnefndar að Parker
hlyti verðlaun vegna „glæsilegra
raddeiginleika, öruggrar sviðs-
framkomu og mikils hugarflugs í
túlkun“. Fyrstu verðlaun voru þó
ekkert nýnæmi fyrir Parker, því
hann hafði unnið til slíks í Toul-
ouse-alþjóðasöngkeppninni og
Múnchen-keppninni og einnig
hlaut hann sérstök Poulenc-verð-
laun í alþjóðlegri söngkeppni í
París.
William Huckaby hefur unnið
lengi með Parker og var m.a. und-
irleikari hans þegar Parker fékk
Kennedy-Center verðlaunin. Fyrir
utan að vera frábær píanóleikari
er Huckaby þekktur hljómsveitar-
stjóri og hefur verið aðalstjórn-
andi Western Opera Theater í San
Francisco og starfar nú einnig við
}«peruna í Washington." -inníd ijd r.lð
IVAR Orgland er gestur Norræna
hússins um þessar mundir og heldur
þar tvo fyrirlestra; þann fyrri í dag
kl. 16.00 og hinn síðari þriöjudaginn
20. apríl kl. 20.30.
í fyrri fyrirlestrinum, sem nefn-
ist „Kustneren, naturen og even-
Ivar Orgland
Baritonsöngvarinn William Park-
er og píanóleikarinn William Hucka-
by koma fram á Ijóðatónleikum í
Austurbæjarbíói í dag klukkan
14.30.
Á efnisskránni verða Adelaide
eftir Beethoven, lagaflokkur
Schumans við ljóð Heines; Dicht-
erliebe, lagaflokkurinn War Scen-
es eftir Ned Rorem og Banalites,
"1
I