Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 45
znno') S/fVín MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982 45 ■f? ^ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS y ujjunr^-aa'u u Hver ber ábyrgðina? Kafn Stefánsson skrifar: „Kæri Velvakandi! Arið 1981 var tileinkað fötluð- um og árið 1982 er ár aldraðra. Svoleiðis er, að ég vinn í verslun hér í borginni. A hverjum degi kemur til mín gamall maður til að versla. Heyrn hans fer síhrakandi og er nú svo komið, að það er ill- mögulegt að tala við hann. Hann hefur sagt mér, að hann bíði eftir Þessir hringdu . . . Óviðeigandi mynd á föstudaginn langa Á. B., Hveragerði, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér fannst það afskaplega óviðeigandi hjá þeim í sjónvarpinu að sýna leikritið „ísmaðurinn kemur" á föstudaginn langa. Þarf að rök- styðja slíkt mörgum orðum? Þeir mega taka sig verulega á sem ráða húsum hjá þessari helstu menn- ingarstofnun okkar íslendinga; ég held að flestir okkar geti verið sammála um það. Þá vil ég nota þetta tækifæri til að taka undir raddir þeirra Hvergerðina sem eru á því, að hér séu allt of margir hundar. Það þarf að gera eitthvað róttækt til að sporna við þeirri leiðindaþróun, sem er að verða á því sviði í okkar bæjarfélagi. Sýnið meira frá íþr- óttamótum fatlaðra O.SL, Akureyri, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Núna um heyrnartækjum; þau hafi komið til landsins í janúar, en liggi enn á hafnarbakkanum. Eins hef ég heyrt að rafhlöður í heyrnartæki liggi svo lengi í toll- inum, að þær séu orðnar mjög lé- legar og dugi skammt, þegar not- endur fá þær afhentar. Nú spyr ég: Hver er sá aðili, sem ber ábyrgð á svo skammarlegri þjónustu við fatlað og aldrað fólk?“ helgina fer fram íþróttamót fatl- aðra, bæði í Reykjavík og á Akra- nesi. Mér hefur þótt mikið á það vanta að sjónvarpið gerði þessum mótum verðug skil í fréttaflutn- ingi sínum. í íþróttamálum fatl- aðra er unnið merkilegt starf, sem vert er að vekja athygli á. Verður það ekki síst gert með því að flytja greinargóðar fréttir og frásagnir af íþróttamótunum, þar sem ár- angurinn af þessu starfi kemur fram í dagsljósið. Ég skora á sjón- varpið og aðra fjölmiðla að sinna þessu betur. Orðið að hreinustu plágu Jónas Þórisson, Hveragerði, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að taka heils hugar undir grein Sigrúnar Sigfúsdóttur, fréttaritara Mbl. í Hveragerði, þar sem hún fjallaði um hundahald hér í bænum. Þetta vandamál er orðið að hreinustu plágu á okkur íbúunum. Hundar ganga lausir um göturnar og valda vandræðum, bíta fólk og eltast við bíla, svo að hvergi er friður. Börn þora varla að fara í skólann fyrir þessu. Hér var samþykkt reglu- gerð um hundahald, en þeirri sam- þykkt er ekki fylgt eftir að neinu marki, sumir skulda margra ára afgjöld fyrir hunda sína og óreiða ríkir á öllu í þessu sambandi. Það er óhætt að fullyrða að hér í bæ eru margir óánægðir með ástand- ið. „Arnar Jónsson og Borgar Garðars- son eru alveg óborganlegir i hlut- verkum sinum." Ég ætla aftur Kári, 12 ára, skrifar: „Kæri Velvakandi! „Ég var svo grjótheppinn, að hann faðir minn elskulegur bauð mér með sér í leikhúsið eitt kvöldið um daginn. Við fórum og sáum sýningu Alþýðuleikhússins „Don Kíkóti“ eða Sitthvað má Sanki þola. Nú hef ég að vísu endrum og eins séð teiknimyndaþætti sjón- varpsins um þennan sama ridd- ara og skjaldsveininn hans, Sánkó Pansa, en get ekki sagt að það hafi gert neitt til að vekja áhuga minn á þessu efni. Hins vegar vil ég segja það, eftir að hafa farið í Alþýðuleik- húsið, að ég vil hvetja alla, unga sem gamla, til að fara og sjá þessa sýningu, því ég hef aldrei séð skemmtilegra leikrit og fer ég þó oft í leikhús. Arnar Jóns- son og Borgar Garðarsson eru al- veg óborganlegir í hlutverkum smum. Ég ætla aftur! állSll .«MIUUI tó;4Úoii w/l Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstudaga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kemur orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimilis- föng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar þess óski nafnleyndar. ^ Wm „ Sýnishorn af vinnu úr myndlistarfongum. Ljósmynd Mbl. Sigurgeu. Kynningardagur Fjölbrautaskólans í Vestmannaeyjum Framhaldsskólinn í Vestmanna- eyjum er einn hinna ungu fjöl- brautaskóla og er óhætt að fullyrða að með stofnun hans haustið 1979 hafi orðið þáttaskil í menntamálum Vestmanneyinga. Helgina 13.—14. mars gafst fólki kostur á að skoða sýningu, sem var árangur af vinnu nem- enda og kennara. Þessi sýning gaf lifandi innsýn í þau fræði, sem nemendur leggja stund á og fengu sýningargestir að spreyta sig á ýmsum atriðum, allt frá sálfræðiþrautum til tölvu- stýrðra prófa. Sýningin var fjölsótt og vakti greinilega jafnmikla ánægju barna og bæjarfulltrúa. Mörgum kom það á óvart hversu fjölbreytt og ólík viðfangsefni er glímt við í slíkum fjölbrautaskóla. Nemendur skólans eru um eitt hundrað. Flestir eru á uppeldis- og viðskiptabraut og á vélstjórnar- og iðnbrautum. Áhugi er fyrir að auka náms- framboðið næsta haust. Sérstak- lega var áhugi fyrir því að bæta við tækjabúnað fyrir grunndeild málmiðna, en það mun tefjast vegna ónógra fjárveitinga. Það er vandaverk að byggja upp skóla, sem hæfir vel fimm þúsund mánna bæ, sem byggir allt sitt á sjávarafla. Það kann að koma í Nemendur undirbúa sýningu. ljós að fyrirmyndir af Reykjavík- ursvæðinu henti ekki fullkomlega við slíkar aðstæður. Það er hugs- anlegt að skólarnir í dreifbýlinu verði að finna sitt eigið rekstrar- form og hanna sínar eigin náms- brautir, sem annars vegar opni leiðina upp á við til frekara náms og hins vegar skili fólki með hag- nýta þekkingu og færni út í atvinnu- lífið á staðnum. En umfram allt ætti skóli að efla menningu og mannrækt og auðga þannig líf hvers og eins, en slíkt er erfitt að skipuleggja fyrir fram, segir í fréttatilkynningu frá skólanum. Stiginn dans í góða veðrinu í „opnu húsi“ við Höfða. Akranes: Opið hús á Höfða Akranesi, 7. apríl. í DAG, á alþjóðaheilbrigðisdeginum, var opið hús á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, en þann 2. apríl sl. fór Félagsmálaráð Akraness í sam- vinnu við sjúkravini Rauða krossins og fleiri sjálfboðaliða af stað með félagsmálastarf fyrir eldri borgara á Akranesi. Fyrst um sinn er fyrirhugað að komið verði saman tvisvar í viku á Höfða milli kl. 1.30 og 4.30. Á mið- vikudögum verður boðið upp á ým- is námskeið og verður þyrjað á leirmunagerð. Á föstudögum verð- ur aftur á móti fjölbreyttari dagskrá af ýmsu tagi, m.a. verður spiluð félagsvist, sungið og dans- að. Dvalarheimilið Höfði leggur til húsnæði, aðstöðu og vinnu starfsmanna eftir því sem hægt er. Þá er fyrirhugað að veita þjón- ustu við fótsnyrtingar, hár- greiðslu og því um líkt. Ymsar framkvæmdir eru fyrir- hugaðar að Höfða i vor og sumar. Haldið verður áfram við lóða- framkvæmdir, einnig fram- kvæmdir í kjallara vegna endur- hæfingar og annarrar þjónustu. Þá er fyrirhugað að kanna þátt- töku og hefja framkvæmdir við 6—8 íbúðir í raðhúsum á lóð Höfða, sem tengjast myndu dval- arheimilinu með ýmsa þjónustu. Ibúðirnar yrðu alfarið í eigu aldr- aðra. — Julíus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.