Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.04.1982, Blaðsíða 1
48SÍÐUR OGLESBÓK 82. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. KANADAMENN FÁ NÝJA STJÓRNARSKRÁ OtUwa, 16. apríl. AP. Argentlna: Þriggja blaða- manna saknað London, 16. apríl. AP. Gin- og klaufaveiki: Nýtt tilfelli á nýju svæði Kaupmannahöfn. 16. apríl. AP. Slátra vard 48 svínum og nautgrip- um á búgarði nyrst á Fjóni er þar fannst nýtt gin- og klaufaveikitil- felli í dag, hið 18. í röðinni frá því vart varð veikinnar á Fjóni fyrir fjórum vikum. Nýja tilfellið fannst langt utan svæðisins á suðausturhluta eyj- unnar, sem hin tilfellin 17 fund- ust á og sett var í sóttkví. For- mælendur stjórnarinnar óttast að veikin eigi eftir að breiðast út, en danskir embættismenn höfðu nýverið látið í ljós bjartsýni um að tekist hefði að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Hið nýja tilfelli hefur gjör- breytt stöðunni, og ekki er loku fyrir skotið, að hefja verði alls- herjar bólusetningu allra klauf- dýra í Danmörku, en það útilokar afurðir af þessum dýrum til út- flutnings til Bandaríkjanna, Jap- an o.fl. landa. Danir hafa þegar beðið um- talsvert efnahagstjón af völdum veikinnar, en samtals hefur þurft að lóga 3.716 dýrum frá því henn- ar fyrst varð vart. Sett hefur ver- ið bann á innflutning dansks svínakjöts í mörgum löndum. ir myndum frá bandarískum njósna- hnöttum af ferðum brezku flota- deildarinnar, sem er á leið til Falk- landseyja, og bendir allt til að orðið verði við þessari beiðni Argentínu- manna, að sögn brezkrar fréttastofu. Bandarískir ráðamenn óttast að Bretar skjóti niður argentínsk her- skip, „til þess að bjarga andlitinu", eins og hermt er að Reagan forseti hafi sagt við Haig utanríkisráðherra, sem nú er kominn til Buenos Aires til þess að miðla málum í Falklands- eyjadeilunni. Óstaðfestar fregnir herma að Arg- entínumenn hafi fallizt á að draga heri sína frá Falklandseyjum gegn vissum skilyrðum, og urðu þessar fregnir til að styrkja brezka pundið og hleypa lífi í brezka verðbréfa- markaðinn. Formælandi brezku stjórnarinnar kvaðst ekki geta staðfest að Galtieri Argentínuforseti hefði samþykkt að draga heri sína frá Falklandseyjum gegn því að brezku flotasveitinni yrði snúið við til Bretlands. Orðróm- ur þess efnis væri á kreiki í Wash- ington, en engin fullvissa hefði bor- izt um að Galtieri hefði fallizt á brottflutning herjanna. Reagan ræddi við Galtieri í síma í dag og sagði við blaðamenn að því loknu, að langt væri í land til lausnar deil- ELISABET Bretadrottning er kom- in til Kanada, þar sem hún undirrit- ar nýja stjórnarskrá fyrir Kanada. í stjórnarskránni, sem brezka þingið samþykkti fyrr í vetur, er m.a. gert ráð fyrir að einstök fylki í Kanada fái meiri völd til að stjórna sínum eigin málum. Andstaða hefur komið fram við nýju stjórnarskrána í Quebec, þar unni. Kvað hann stríð Argentínu- manna og Breta geta ögrað heims- friði, og sagði að gera þyrfti allt til að koma í veg fyrir átök. Reagan gaf í skyn að Galtieri væri reiöubúinn að semja um frið í anda samþykktar Öryggisráðsins, sem gerði ráð fyrir samningum Breta og Argentínumanna í deilu þeirra um yfirráð á Falklandseyjum, og að Argentínumenn hyrfu á brott með heri sína. Sagði Reagan Galtieri hafa margítrekað þá ósk sína í sam- talinu, að friðsamleg lausn deilunn- sem aðskilnaðarsinnar eru fjöl- mennir. René Levesque, forsætis- ráðherra Quebec, hefur notað þessi tímamót til að koma aðskilnaðar- stefnu sinni enn á framfæri. Hvatti hann til þess að Quebec yrði hið fyrsta gert að sjálfstæðu ríki, sagði nýju stjórnarskrána standa íbúum fylkisins fyrir þrifum og auka mið- stjórnarvald stjórnarinnar í Ottawa. aryrði fundin. Italski sósíalistaflokkurinn lýsti andstöðu sinni við efnahagslegar refsiaðgerðir stjórnar Spadolínis gagnvart Argentínu, sagði þær hvorki réttlætanlegar né gagnlegar. Flokkurinn á aðild að stjórn Spadol- ínis og er þessi ákvörðun talin áfall fyrir forsætisráðherrann. Þá lýsti „Falange Espanola", hægriflokkur- inn sem hjálpaði Franco hershöfð- ingja til valda eftir borgarastyrjöld- ina á Spáni 1939, stuðningi við málstað Argentínumanna i Falk- Þriggja brezkra blaðamanna er sakn- að í Argentinu, og hefur ekkert spurst til þeirra frá því á mánudag. Blaðamennirnir eru Simon Win- chester frá „The Sunday Times“ og lan Mather og Tony Prime Ijósmynd- ari frá „The Observer". Þeir fóru af hóteli í Buenos Aires á sunnudag og ætluðu að sækja ýmsar argentínskar hafnarborgir heim. Undir venjulegum kringum- stæðum hafa þeir daglega samband við ritstjórnir blaðanna í London, en ekkert hefur frést frá þeim, frá því Þá hafi 18 ára unglingur látizt á sjúkrahúsi af sárum er hann hlaut er Arabahópur réðst á varðstöð hersins við Khan Yunis syðst á Gaza-svæðinu. Hópurinn hafi ekki virt aðvaranir né orðið við tilmæl- um um að hverfa á brott og því hafi verið skotið í fætur þeirra. Samtals hafa þrír Arabar fallið í átökum frá því Gyðingur skaut tvo Araba fyrir utan bænahús í Jerú- salem á páskadag. Að minnsta landseyjadeilunni. TASS-fréttastofan fór lofsamleg- um orðum um viðskipti Argentínu- manna og Rússa og efnahagslega samvinnu landanna í dag, og sagði „mikla möguleika" fyrir frekari samvinnu. Langdræg sovézk njósna- flugvél, sem talin er eiga bækistöð á flugvelli sem Kúbumenn reka í Lú- anda í Angóla, sást í dag í námunda við brezku flotadeildina, í aðeins 300 metra hæð yfir sjávarmáli. Sovézkt njósnaskip hefur fylgt flotadeildinni eftir nánast frá því hún lét úr höfn. Prime hringdi til London á mánu- dag frá borginni Comodoro Rivad- avia. Við brottförina frá Buenos Aires sögðust blaðamennirnir koma til baka eftir 2—3 daga, og héldu þeir hótelherbergjum sínum meðan þeir ætluðu að vera í burtu. Af hálfu utanríkisráðuneytisins í London, sendiráðs Sviss í Buenos Aires, og brezka sendiráðsins í Montevideo í Uruguay, er hafin eftirgrennslan eftir blaðamönnunum. kosti 57 ísraelskir hermenn, óbreyttir borgarar og útlendir ferðamenn hafa slasazt er þeir urðu fyrir grjótkasti Araba. Ljósmyndari sá hermenn taka Palestínumenn fasta eftir uppþot á Gazasvæðinu, en hermenn gerðu filmur hans upptækar, brutu lykil í startara bílsins og löskuðu hann með grjótkasti, svo ljósmyndarinn komst ekki leiðar sinnar. Seinna var filmunum skilað og velvirð- ingar beðizt á framferði hermann- anna. Walter Stössel varautanríkis- ráðherra Bandaríkjanna hélt í dag áfram tilraunum til að tryggja brottflutning ísraela frá Sínaí fyrir 25. apríl, og kváðust dipló- matar vongóðir um að ekkert yrði úr hótunum ísraela um að draga brottför úr eyðimörkinni. Einnig þóttust háttsettir embættismenn vongóðir um að engar meiriháttar breytingar yrðu á stefnu Egypta í málefnum Sínaí og hernumdu svæðanna eftir 25. apríl. Máfar drukkna eftir ofát OmIó, 16. apríl. Krá Jan Krik Laurc, fréttariUra Mbl. í HÖFNINNI í Bodö flýtur mikil mergð af dauðum máfum, sem ekki létusl úr neinum sjúkdómi, heldur hreinlega af ofáti. Forsaga málsins er sú, að drekkhlaðinn loðnubátur kom til hafnar og meðan beðið var lönd- unar skruppu skipverjar í land og fengu sér bjórglas. En þeir skildu lestarlúgurnar eftir opnar og þar með má segja að máfun- um hafi verið boðið til veizlu. Máfarnir tylltu sér á skipsfjöl og sporðrenndu loðnu hver í kapp við annan. Og þegar þeir þóttust saddir og ætluðu að lyfta sér frá borði, tókst ekki betur til en svo, að þeim fataðist flugið vegna „ofhleðslunnar", steyptust í sjóinn og drukknuðu. Argentínskir skriðdrekar aka um götur á Falklandseyjum i vikunni. Talið er að lausn deilu Breta og Argentínumanna út af eyjunum sé í augsýn. sím»mynd ai* Híllir undir samkomulag í Falklandseyiadeilunni liOndon. Bucnon AircN. Waxhintrtnn 16. anríl. AP ^ London, BuenoN Aires, Waahington, 16. mprll. AP. ARGENTÍNUMENN hafa óskað eft 2 unglingar falla í átökum á Gaza (>aza-svædinu, 16. apríl. AP. ÍSRAKLSKIR hermenn skutu tvo arabíska unglinga til bana og 16 til viðbótar særðust er til átaka kom milli hersveita og ólátaseggja á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum í dag. Talsmaður hersins sagði 16 ára pilt hafa verið skotinn til bana er hópur Araba hafi ráðizt með bareflum og grjótkasti á gæzlusveit hersins fyrir utan bænahús í Seje’iya-hverfi Gaza-borgar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.