Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 Bethlehem ♦Nazareth * Via Dolorosa *• Grátmúrinn Trúarleg upp lifun? 'V, WmmmSm ;■ :■■■•■; . B_. Tiberias, þú drepur varla niöur fæti í ísrael aö þú sért ekki aö stíga á slóö gamla eða nýja testamentis- ins. Þeir sem koma í fyrsta sinn til ísraels ala án efa meö sér sérstak- ar vonir í hjartanu, og flestir búast viö aö finna þar trúarlega upplifun í einhverri mynd. Ég veit ekki gjörla viö hverju ég bjóst þegar ég kom til Bethlehem í fyrsta sinn. Kannski aö tíminn heföi staöiö kyrr í tvö þúsund ár, hiröarnir væru meö fé sitt á völlunum og fjárhúsiö á sínum stað. Vellirnir reyndust uppblásnir og nagaöir og ég gat sagt mér þaö sjálf aö stjörnuna sæi ég ekki, því að ég fór til Bethlehem á björtum degi. Eg byrjaði á því aö missa áttirnar, fannst hriktandi strætis- vagninn frá Jerúsalem — sem heföi sómt sér vel á fornstrætó- safni — keyra í norður en ekki suður. Hann var fullur af Aröbum — og svo mér. Ég fór út þar sem vegpresturinn vísaöi upp í Bethle- hem og rölti af staö áleiðis. Auövitaö heföi ég sem upplýst manneskja átt aö geta sagt mér sjálf aö Bethlehem væri eingöngu Arababorg, þar er varla nokkur Gyöingur. Ég kom inn á torgiö, fann klukkuna sem mér haföi veriö sagt aö hafa sem áttavita og leitaði aö fjárhúsinu. Þaö var auövitaö búiö aö byggja yfir þaö. Reyndar vissi ég nú þaö. Fæöingarkirkjan í Bethléhem sem nú stendur var byggö á 6. öld. Þangað þyrpast þúsundir pílagríma ár hvert og á jólum munu margir kristnir telja sér þaö mestu reynslu lífs síns aö vera þar viö guösþjónustu. Maöur smokrar sér niöur í hellinn, þar sem Jesúbarniö var vafiö reifum og lagt í jötu. Það voru fleiri túristar þar, sumir meö tárin í augum og kveiktu á kertum. En ég flýtti mér upp og aftur út í sólskiniö. Jesúbarniö var ekki lengur í jötunni en kirkjan var falleg. Hins vegar stóðu fyrir utan arabiskir áfjáöir sölukallar aö selja gyöinglega minjagripi. Einn vék sér aö mér harla dulúðugur: hann sagöist hvorki meira né minna en luma á fáeinum flísum úr krossin- um. Hvort ég vildi ekki eignast aldeilis einstæöan grip, sem af skiljanlegum ástæöum kostaöi morö fjár. Ég vildi ekki kaupa flís úr krossinum í þaö sinniö. En ég keypti á öörum staö eina dós af niöursoönu ísraelsku lofti aö færa mér hugþekkum aöila. Þaö er mikiö hægt aö græða á guöi, ef vilji og leikni er fyrir hendi. Þaö gera Arabar ósvikið. Og kannski ekki hægt aö lá þeim þaö, þegar maður sér hvaö feröamenn- irnir láta hafa sig til aö kaupa. Og þó aö platiö sem einlægu kristnu fólki er boöiö upp á sé mikiö í Bethlehem fannst mér þaö út af fyrir sig Ijúfur lítill bær og meö beitingu ímyndunarafls hægt aö lifa sig aldir aftur í tímann og sjá þau fyrir sér bera viö himin — eins og á jólakortunum, Maríu og Jósef, er þau stefna til Bethiehem. Nazareth er tvískiptur bær, efri og neöri. í eldri hlutanum búa einvöröungu Arabar en Gyðingar •hafa setzt aö í hinum. Þessir Arabar eru aöallega kristnir og af mörgu má sjá aö bærinn hefur verið í höndum Gyðinga um langa Golga tíö, m.a. vegna þess hve miklu þreng meiri er þrifnaöur og almenn æpan uppbygging þar. Augljósari vel- buöu megun og kyrrö en til dæmis á garga Arababæjum Vesturbakkans sem ar húi hafa ekki veriö undir ísraelsstjórn óhreir nema rösk tíu ár. skildir Kirkjan í Nazareth var tilkomu- útlenc mikil, hvaö það snertir, aö til grófa hennar hafa ótal þjóöir gefiö lista- meö > verk sem „prýöa“ hana. Þessi viö Vi. listaverk eru ekki í neinu samræmi jafnve eöa samhengi, þar hefur hver stööui málaö eftir sínum geöþótta og í krossi smekkleysu sinni æpa þau hvert á viö ei annað. En þá var þar sem annars græni staöar hægt aö foröa sér aftur út í einhvc sólskiniö. Hér var óhugsandi aö Hva finna anda fortíðar, ég gat ekki séö myrkr Jesúm fyrir mér hlaupandi um Kristu berfættan aö leik eöa starfi. Ekkert fyrir i í þessu þorpi kallaöi fram neina meö þ stemmningu af því tagi, þó svo aö inn á Nazareth sé í sjálfu sér geöþekkur mig a staöur. undir, En mér verður ásamt með gargin Massadaferðinni löngum mest í þrifu hug þegar ég gekk í fyrsta skipti prang. Via Dolorosa, þessa dramatísku Mér e leiö aö Kirkju hinnar heilögu graf- hún A ar, sem reist hefur verið yfir níræöi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.