Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGUST 1975 Og Gu8 hnoðaði deig til a5 búa mann . . . Fyrr hafði ég ekki hugsað að Bakkabræður hafi haft skipu- lagshæfileika þegar þeir rugl- uðu saman fótum sínum forð- um, en að vera þátttakandi í niðurröðun rútubíisins til Arba Minch, kallaði slika hugmynd fram. Þar fór margslungin hleðsla fram. Við vorum mætt á rútubíla- stöðina í Addis Ababa klukkan hálfsex að morgni, hálfri stundu eftir að útgöngu- banni frá miðnætti var af- létt. Séra Bernharður hafði þrætt leiðina að rútubíla- stöðinni um ómerkta borg- ina. Eina gatan með nafni, Churchillvegur, var viðmiðun- in, en síðan áttum við að beygja hjá bakaranum á þvergötunni, inn á götuna með olíustöðinni, fram hjá húsinu með járnþak- inu, niður bröttu götuna og upp þröngu götuna og svo framveg- is. Við náðum á áfangastað og keyrðum inn á stöðina þar sem hundruð manna voru í hópum kring um hina fjölmörgu rútu- bila, sem áttu senn að leggja af um og allt leit út fyrir að ég væri eini farþeginn sem gæti þó rétt úr fótunum. En adam var ekki lengi í paradís. Stanz- laust hópaðist fólk inn i bílinn þótt öll sæti vætru setin og alltaf tókst að koma hverri viðbót fyr- ir. Þegar bíllinn ók af stað klukkustund á eftir áætlun vegna hleðslunnar, voru fót- leggir mínir fléttaðir saman við fótleggi bæði eþiópískra karla og kvenna, einna sjö eða átta og aldrei vissi ég hver átti hvað nema mína þekkti ég þar sem þeir voru ennþá hvítir að mestu. Á gólfinu sátu farþegar og nokkrir lágu uppi i farang- ursgrindunum. Við ókum sem leið lá út úr Addis, 6 tíma keyrsla i þessu ágæta samkvæmi var framund- an. Á leiðinni út úr borginni ókum við framhjá fjölda hunda sem lágu dauðir á götunni. Það er stundum skemmtun hjá bil- stjórunum þarna að keyra yfir hunda því nóg þykir af þeim og heldur meira. Eftir akstur nokkurn spöl út úr borginni var háisi var ekki mögulegt að heyra í sjálfum sér og það var ekkert við þessu að gera nema brosa eins og hinir. Eftir þriggja tima akstur og þrotlausan hávaða skeði óvænt happ, útvarpið biiaði. Stundar- korn heyrðist áfram í villtum röddum farþeganna sem sungu með af hjartans list, en brátt ríkti dauðaþögn og allir horfðu flemtri slegnir á útvarpið. En það dugði ekki til, og ekki heyrðist múkk frá græjunum. Maður tók við af manni að klöngrast fram i og reyna að koma draslinu i gang aftur, en allt kom fyrir ekki, sem betur fer, því síðustu þrjá tímana hafði ekki borizt tónlist úr há- tölurunum, heldur truflanir, ofsalega hljómmiklar. Fjörið í rútunni fjaraði nú snarlega út og þeir sem lágu í farangursgrindunum fengu sér brátt blund. Allt í einu heyrðist ógurlegur hvellur, þvf einn hjólbarðinn hvellsprakk, en þetta olli mikilli upplausn í bílnum því flestir farþeganna virtust halda að herinn væri að gera skotárás. Vegna þrengsla var ekki mikið hægt að hreyfa sig i bílnum, en þegar hvellur- inn dundi yfir köstuðu allir sér niður i gólf og kösin varð ógur- leg. Bíllinn snarhemlaði og ekki leið á löngu þar til ót'ta- slegin augu stóðu á stilkum upp úr kösinni og höfuð og annað i framhaldi hélt sömu leið. Þá lá fyrir að 'gera við eða skipta um dekk. Dyrnar voru opnaðar og farþegarnir streymdu út. Það tók langan tíma að klöngrast út um dyrnar því konurnar settust óðar á hækjur sinar fyrir utan dyrnar, tóku niður um sig og sinntu kölluninni. Skelfing tók það langan tíma, en það veitti víst ekki af fyrir sólbakaða jörðina. Hjólbarðinn var í tætlum og það tók góða stund að skipta um, því mönnum bar ekki sam- an um hvernig ætti að standa að verkinu, en allir farþegarnir nutu þess að horfa á og leggja eitthvað til málanna. Allt rak sig þó að lokum og aftur var hlaðið i bílinn. Á minu svæði fléttuðum við saman fótleggina og konan mín kom sér aftur fyrir í sínu sæti með hné upp að höku allan timann vegna þrengsla. Við vorum eina hvita Eþíópisk móðir með barn sitt og bros. fólkið i bílnum af þeim líklega 60—70 sem voru i 40 manna rútu. Þegar búið var að keyra góða stund og ýmsir voru búnir að banka af og til i útvarpið, dró ég fram kort af Evrópu, Asíu og Ameríku. Hófst nú mikið spjall um kortið og menn vildu vita hvaðan við kæmum. Þegar við bentum á Island sagði einn kampakátur, Amerikanó, en ég reyndi að útskýra að svo væri ekki, en hann stóð fast við sína meiningu, þvi hún var sú að ekkert væri til nema Eþiópía og Ameríka. En menn sáu að við vorum langt að komin og það þótti virðingarvert og menn nikkuðu nú höfðum sinum í mikilli lotningu þrátt fyrir þrengslin. Miðað við heimatil- búnu kenninguna um upphaf Eþíópíu var ekki óeðlilegt að heimamaðurinn teldi veröldina ekki margslungna utan Eþi- ópiu. Eþiópiumenn eru mjög stoltir af uppruna sínum, enda ekki nema von samkvæmt þeirra eigin upplýsingum. Þegar Guð hafði lokið við að skapa jörðina fór hann að hugsa til þess að skapa mann., Það gerði hann með þvi að hnoða deig i köku, láta höfuð, fætur og handleggi á kökuna og Sveitakonur að selja mais a þorpslorginu. fðtleggjum í afrískum rútubiT’ „Að fiétta saman stað þá og þegar út um allar trissur. Við fengum að vita að bíllinn til Arba Minch væri sá rauði með stóra hátalaranum á þakinu og hann væri við hliðina á bláa bílnum. Nú reyndust flestir. bílanna bæði bláir og rauðir og þannig hafa þeir víst alltaf verið, en um síðir fund- um við okkar bíl og þá hófst hleðslan. Það var mikið mál, því sætin eru svo mjó að það er varla hægt að sitja i þeim og það er svo þröngt á milli þeirra að ekki er mögulegt að koma fyrir hnjám og því sem fylgir þar um hring. Ég varó strax mikið vanda- mál í bílnum og aóalástæðan var sú að ég var svo stór og tók svo mikið pláss miðað við þessa álfakroppa sem voru þarna á ferð. Fjórum sinnum þurfti ég að skipta um sæti í hleðslu- framkvæmdum bilstjórans á meðan verið var að kanna hvar hægt væri að koma mér fyrir þannig að plássið nýttist sem bezt. Um siðir fékk ég þó bezta plássið miðsvæðis fremst í bíln- rútan stöðvuð af hermönnum. Allir voru reknir út og leitað var að vopnum. Svo hófst hleðslan á ný, þvi engin vopn fundust og gekk furðu greið- lega að flétta saman fótleggina á ný, þannig að allir urðu sáttir og sælir og ekki var það til að draga úr sælunni að senn skyldi hefjast skemmtilegasti- þáttur rútuferðarinnar, að dómi heimamanna, en það var tón- listarflutningur af segulbandi rútunnar. Það finasta í þessu öllu saman þykir sá tónflutn- ingur, en hátalarar eru bæði inni og utan á bílnum, stórir hátalarar og sá uppi á þakinu þó langstærstur, því það eru ekki aðeins farþegarnir sem skulu fá að njóta tónlistarinnar. Nú þykir bölvuð lágkúra þarna um slóðir að vera að stilla útvarpið öðru vísi en á það hæsta mögulega og er það tii þess að tækið notizt sem bezt. Hófst nú mikið fjör í rút- unni, því allir hátalarar titruðu eins og mögulegt var. Þótt mað- ur syngi einhver hljóð fullum 1 rútunni á leið tii Arba Minch.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.