Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGUST 1975 Baráttan gegn regking- um inn á ngjar brautir HEILBRIGÐISYFIRVÖLD i Bandarfkjunum og Bretlandi virðast nú vera að taka f sig rögg og herða baráttu gegn sígarettureykingum og tðbaks- framleiðendum. Jafnframt því hefur árððri þeirra gegn reyk- ingum verið beint inn á nýjar brautir, þ.e. að heilbrigðisyfir- völd og baráttusamtök gegn krabbameini og hjartasjúk- dðmum f þessum löndum eru að hverfa frá þeirri hugsjðna- stefnu að með öflugri upplýs- ingastarfsemi um skaðsemi tðbaksreykinga verði hægt að fá fólk til að hætta að reykja. Reynslan hefur sýnt að þessi stefna hefur borið takmarkað- an árangur. Nú hafa yfirvöld söðfað um, og er nú fögð megin- áherzla á að fræða almenning um það, að f einstökum sfgar- ettutegundum sé meiri tjara og nikðtfn en öðrum, og séu þar af ieiðandi hættulegri. Verzlunarráðið í Banda- ríkjunum hefur gengið svo langt í þessum efnum, að leggja þá kvöð á tóbaksframleiðendur, sem selja vindlinga þar um slóðir, að tilgreina f öllum aug- lýsingum hversu mikið sé af tjöru og nikótíni í þeim. I öllum auglýsingum sem birtast í þar- lendum fjölmiðlum má nú fá upplýsingar um þetta atriði, en auk þess er sem endranær birt viðvörunin um að vindlinga- reykingar geti verið hættulegar heilsu manna. Samkvæmt fréttaskeytum frá Bandaríkjunum ætlar ráðið þó ekki að láta hér við sitja, heldur hefur það nú höfðað skaðabóta- mál á hendur sex tóbaksfyrir- tækjum, sem það telur að hafi brotið reglurnar, þar sem fyrir- tækjunum var gert að vekja athygli á hættunni af sfgarettu- reykingum í auglýsingum. Öll þessi fyrirtæki hafa að vísu birt aðvaranir í auglýsingum sfnum, en ráðið telur þó að það hafi verið gert með hangandi hendi og ekki á fullnægjandi hátt, m.a. vegna þess að letrið sem viðvaranirnar voru prentaðar með bæði í blaðaauglýsingum og á auglýsingaspjöldum hafi verið of smátt í samanburði við sjálfan auglýsingatextann. Fyrirtækin sem hér um ræðir eru American Brands, Incorp., Brown and Williamson Tobacco Corp., Liggett and Myers, Inc., Lorillard Corp., Philip Morris, Inc., og R.J. Reynolds Indu- stries, Inc., og geta þau hvert um sig átt yfir höfði sér allt að 10 þúsund dollara sekt á dag fyrir hvert brot á þessum regl- um. I Bretlandi er þessu dálítið öðru vísu farið því að þar er nú lögð megináherzla á að fá tóbaksframleiðendur til að birta á pökkunum sjálfum upplýsingar um tjöru og nikotín í vindlingunum. Að minnsta kosti hefur brezka heilbrigðisráðið undanfarið birt heilsíðu auglýsingar í brezku blöðunum með þessari yfirskrift: HVAÐA SÍGARETTUR BANA ÞÉR A SKEMMSTUM TlMA? Þar er greint frá því að á síðasta ári einu hafi sígaretturnar kostað a.m.k. 50 þúsund reykinga- menn Iffið. ,,En sumar sígarett- ur eru hættulegri en aðrar. Ef þú getur ekki hætt að reykja, veldu þá þær sígarettur sem hafa minnst af tjöru og nikótini,“ segir það. I auglýs- ingunni, eru tilgreindar allar vindlingategundir á enskum markaði og þær flokkaðar eftir því hversu mikil tjara er í þeim, — og fylgir mynd af pökk- unum, eins og sést hér á með- fylgjandi mynd. Þeim tilmæl- um er sfðan beint til lesenda, að þeir geymi auglýsinguna þar til tóbaksframleiðendur birti þessar upplýsingar á pökkum sínum. „Munið að því fyrr sem þið hættið, þeim mun betri möguleika eigið þið.“ I Bandarfkjunum bendir ýmislegt til, að samþykkt tóbaksframleiðenda um að geta í auglýsingum um tjöru og nikótfn í einstökum tegundum, ætli að leiða til auglýsingastríðs milli framleiðenda ef marka má auglýsingatexta, sem þeir láta birta í þarlendum blöðum og tfmaritum. Eins og vænta mátti hefur reglugerðin leitt til þess að framleiðendur þeirra vindl- inga, sem reyndust hafa minnsta tjöru og nikótfn sam- kvæmt skýrslum Verzlunar- ráðsins, sótt mjög í sig veðrið og hafið auglýsingaherferð, þar sem vitnað er f skýrsluna. Ágætt dæmi um þetta eru aug- lýsingar á Carlton-vindlingum, en í þeim mun vera minnst af tjöru og nikótíni af öllum vindl- ingategundum, sem fram- leiddar eru í veröldinni. I Carlton 70 eru til dæmis aðeins 2 milligrömm af tjöru og 0,2 af nikótíni í hverri sígarettu, sem mun vera nær alveg hættu- laust. Carlton (filter og mentol), sem framleiðendurnir byggja þó söluna fyrst og fremst á, eru aðeins sterkari, 4 mg tjöru og 0.3 mg af nikótfni í hverri sígarettu, en þær eru þó hreinn barnaleikur í saman- burði við hættulegustu vindl- ingana eins og t.d. Pall Mall King Size, sem hafa 36 mg af tjöru og 3,3 af nikótfni sam- kvæmt auglýsingu brezka heil- brigðisráðsins og fyrr er vitnað til. Eðlilega hafa þessar upplýs- ingar komið við kauninn á keppinautum Carltons vestan hafs sem bjóða sígarettur með meiri tjöru og nikótfni og nú má iðulega sjá í bandarískum blaða- og tfmaritaauglýsingum hvernig þau reyna að slá vopn- in úr höndum andstæðingsins með því að höfða til bragðleysis veikari tegundanna. — Við sem reykjum Tareyton viljum held- ur berjast en skipta um tegund, segir t.d. f einni slíkri auglýs- ingu, sem sést hér til hliðar, en hætt er við að mörgum muni reynast það vonlaus barátta þar eð 20 mg af tjöru og 1.3 mg af nikótíni eru f hverri Tareyton- sfgarettu. Annar framleiðandi og öllu þekktari hér á landi reynir að krafsa í bakann á eftirfarandi hátt: — Hvers vegna Viceroy? Vegna þess að ég reyki aldrei leiðinlegar sfgarettur." Viceroy er nær meðallagi að styrkleika með 16 mg af tjöru og 1,0 mg af nikótíni. Líklega eru fram- leiðendur þeirra vindlinga sem eru heldur fyrir neðan meðal- lag allt eins hræddir um að missa spón úr aski sínum og hinir sem bjóða hættulegri teg- undir. Dæmi um þennan ótta birtist t.d. f auglýsingum á Vantage sfgarettum, en þar er nefndur til sögunnar William nokkur Pixley frá West-Stockbridge í Massachusettes og hann látinn segja eftirfarandi sögu: — Mér finnst mjög gott að reykja. Og ég hef alltaf reykt sömu teg- undina. En jafnvel í þessum litla bæ sem ég á heima í hef ég heyrt þetta sem þeir eru að segja gegn reykingum og gegn „tjöru“ og nikótíni. Samt vildi ég ekki hætta. Mér fannst það of gott. Svo að ég reyndi svona annað veifið einhverjá af þessum tjörulausu síga- rettum. Mér þótti þetta eins og að reykja kál. En svo var það einn dag að konan mfn sagði: „Bill hérna er ný sfgarettutegund, sem ég hef verið að lesa um.“ Þetta var Vantage. Ég kveikti tortrygg- inn í, — og hvílík undrun! Hún bragðaðist nákvæmlega eins vel og sígaretturnar sem ég reykti áður. Ég komst að pví að þótt Vantage væri ekki með minnst af tjöru og nikótíni voru þær bestar. I Vantage-sígarettu er ýmist 11 eða 12 mg af tjöru og 0,8 mg af nikótini. Hér á landi hefur þessu máli verið lítill gaumur gefinn ef frá er talin nýleg blaðagrein f Tfmanum eftir Reyni Hugason. Þar birtir hann töflu um tjöru- og nikótín f nokkrum helztu sígarettutegundum sem hér eru á markaðinum. Einnig vekur hann máls á því hvort ekki sé tfmabært að stjórnvöld reyni með skipulagðri „neyzlustýr- ingu“ að beina reykingafólki frá sterkustu tegundunum og að þeim sem hafa minna af tjöru og nikótíni, t.d. með verð- mismunun. Líklegt er að þetta mál komist f brennidepil með haust- inu, en þá hyggst Samstarfs- nefndin gegn sígarettureyking- um standa fyrir nýrri herferð f líkingu við þá sem var fyrr á árinu. Að þvf er einn nefndar- manna, Bjarni Barnason læknir tjáði Mbl„ á nefndin enn eftir að halda með sér fund til að Ieggja á ráðin um það hvernig baráttunni yrði hagað að þessu sinni, en hann taldi alls ekki fráleiít að það yrði að ein- hver'ju leyti farið inn á þessa braut sem lýst hefur verið hér að framan, og almenningi þannig veittar upplýsingar um hvaða vindlingum þeim stendur minnst hætta af vegna tjöru og nikótfns og hvaða teg- undir séu hættulegastar að þessu leyti. Hér verðu þó látin fljóta með tafla um tjöru og nikótín í nokkrum algengustu tegundum vindlinga, og er hún unnin upp úr skýrslu um tilraunir Water- Ioo-háskólans f Kanada f janúar 1973 sem blaðið fékk hjá Krabbameinsfélagi Islands, en auk þess er stuðzt við töflu Reynis Hugasonar, sem áður er getið, og auglýsingu brezka heilbrigðisráðsins. _______ 3_ , 5? C. o. fD Hí Tegund 2 mg/síg. Ransom (KSF) ............ 6 0.3 Hallmark (KSDF) ...... 7 0.4 Hallmark (KDFM) ...... 8 0,4 Goldstream (KSF) ..... 9 0.4 Albany Trims (CF) .......10 0.8 Edinburgh (KSF) .........11 0.7 Players Trent (MCF) ....11 0.7 Rothmans No. 7 (KSF) .. 11 0.6 Cambridge (KSF) .........12 0.9 CravenASpec. (KSDF) 12 0.8 Cambridge (KSFM) ........13 0.8 Capstan (RF) ............13 0.8 Escort (KSF) ............13 0.8 Lambert & Butler (KSF) ...............13 0.9 Players Trent (V FF) .. .13 0.8 Tartan (KSF) ............13 0.7 Turf (RF) ...............13 0.9 Albany (KSF) ............14 1.2 Escort (KSFM) ...........14 0.8 Fiesta (KSFM) ...........14 0.8 Park Drive (RF) .........14 0.9 Peter Jackson (KSF) ....14 1.1 Peter Stuyvesant (KSFM) ..............14 0.9 Viscount (KSF) ..........14 1.1 Alpine (KSFM) ...........15 0.8 Capstan (RP) ............15 1.0 Churchman (KSF) .........15 1.0 Claridge (KSF) ..........15 1.0 Country Life (KSF) ......15 1.0 Peter Stuyvesant (KSF) 15 0.9 Benson &Hedges (SF KSF) ................16 1.1 Craven A (KSF) ..........16 1.2 Galaxy (KSF) ............16 0.9 Kent (KSF) ..............16 1.0 Marlboro (RF) ...........16 0.9 Marlboro (KSFM) .........16 0.8 Park Drive (ÉM) .........16 0.8 Philip Morris (KSF) .....16 0.9 Rothmans (KSF) ..........16 1.1 Virginia Slims (KSF) ....16 0.9 Camel (RP) ..............17 1.1 Chesterfield (KSF) ......17 1.0 Consulate (KSFM) ........17 1.0 Dunhill (KSF) ...........17 1.1 Philip Morris (RP) ......17 0.8 Salem (KSFM) ............17 1.2 Camel (KSF) .............18 1.2 Chesterfield (RP) .......18 1.0 Kool^ (KSFM) ............18 1.2 Philip Morris (KSEX) ..181.0 Winfield (KSF) ..........18 1.1 Players (KSF) ...........19 1.2 Chesterfield (KSP) ......21 1.3 KSF — King Size Filter, CF — Compact Filter. KSFM — King Size Filter Menthol. SF— Special Filter. RF — Regular Filter. RP — Regular Plain. KSP — King Size Plain. KSDF — King Size Dual Filter. KDFM — King Size Dual Filter Menthol. RM — Regular Filter Menthol. KSEX — King Size Executive. V RF — Virginia, Regular Filter. Rétt er að taka fram að í töflu brezka heilbrigðisráðsins og eins töflu Reynis Hugasonar eru tölurnar nokkru hærri en í töflunni hér að ofan, og hér eru heldur ekki nefndar algengar tegundir eins og Viceroy filter sem hefur 16 mg af tjöru og 1.2 af nikótíni í hverri sígarettu, eða Winston, sem hefur 19 mg af tjöru og 1.3 mg af nikótíni Samkvæmt töflu brezka heil- brigðisráðsins er Pall Mall King Size með 36 mg af tjöru og 3.3 af nikótíni. Vonandi sakar enginn okkur um að vera að hampa þessum sígarettutegundum, en öðru vfsi verður varla sýnt hvers konar auglýsingastrfð er nú að hefjast f kjölfar þess að vindlinga- framleiðendum er gert að birta upplýsingar um tjöru og nikótfn í hverri tegund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.