Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGUST 1975 23 Islendingur og Orðið Guðs Halldór Lárusson, 21 árs kennari með meiru. Hann var nýkominn af kvöldsamkomu, ánægður með lífið og brosandi út undir eyru. Sítt hárið féll niður á herðarnar. og klæðnaðurinn bar þess merki, að hann var táknrænn fulltrúi fslenskrar æsku á stúdenta- mótinu. Halldór, nú ert þú svona hippalega klæddur og ofur venjulegur islendingur og með sítt hár. Hvaða augum lftur þú þessa stúdenta á mót- iiiu? „O, þetta er ofur venju- legt fólk. Það klæðir sig eins og annað fólk, lifir ekki ólfku lffi. Eini munurinn er sá, að það hefur komið auga á gleði- fréttina um Jesú. Það hefur fundið hann, sem gefur lífinu lit og gildi.“ Nú er yfirskrift mótsins: „Orð Guðs til þín.“ Hefur Guð talað til þín. „Já, orð Guðs hefur hljómað og hefur hitt í mark hjá mér. Sér- lega þótti mér boðskapur fimmtudagsins mikilsverður. Þar var talað um dóm Guðs. Samtímis verður lausnin sem hann býður okkur, enn mikil- vægari. Guð er réttlátur dómari og hann hefur sent Jesún Krist til frelsis öllum mönnum. Það er mergurinn málsins." Hvað gerir hinn almenni þátttakandi á mótinu? „Ja, það er nú margt“, sagði Halldór og brosti breitt. Hann leit síðan hugsandi upp í hvelf- ingu Hallarinnar og sagði síðan: „Árla alla morgna hefja þátttakenduf daginn með Biblíulestri, hver út af fyrir sig. Síðan rabba menn við Guð,“ sagði Halldór og brosti. Að loknum morgunverði safn- ast þátttakendur saman í smá- hópa og ræða ákveðna texta í Biblíunni. 10—15 manns eru í hverjum hópi, þannig að f jöldi hópa er um 100. Eftir þá stund hlýða allir á fyrirlestur Bo Giertz biskups, um þætti trúar- játningarinnar." En verður þetta ekki leiðigjarnt að rýna i Bjblíuna dag eftir dag: „O nei“, fullvissaði hann: „Aldrei verður góð vísa of oft kveðin“. Hann hélt áfram lýsingu dagskrár. „Eftir hádegisverð liðka menn liðamót sín við íþróttir og önnur tómstunda- störf. Nú, síðdegis eru svo umræðuhópar um hin ýmsu málefni t.a.m. „kristið-heimili, kristið-barnauppeldi", „trúar- lífið-sálarlífið", „handleiðslu Guðs“. Fyrirlestrar um 15 efni eru haldnir og síðan eru um- ræður þátttakenda um efnið. Margir þekktir fyrirlesarar hafa með höndum stjórn hóp- anna. T.d. stjórnar hjónin Einar og Ragnhild Solli fyrsta hópnum. Hann er fram- kvæmdastjóri norsku kristi- legu stúdentahreyfingarinnar, en hún er varaformaður Kristelig Folkeparti í Noregi, sem er 3. stærsti flokkur Nor- egs, reyndar mun stærri en íslenzki Sjálfstæðisflokkurinn. Eftir kvöldverð er safnast til bæna í smáhópum hér og hvar og síðan hefjast kvöldsamkom- ur. Þar er almennur söngur og sönghópar syngja. Ræðumaður kvöldsins tekur fyrir ákveðinn texta I Biblíunni og leggur út af honum. Þótt hin persónu- legu tengsl smáhópanna skorti á samkomunum er boðskapur- inn hinn sami, Jesús Kristur, sem er Orð Guðs til mín og allra manna." Það voru síðustu orð Halldórs, eins af 160 íslendingum á mótinu. Móts- degi var lokið, flestir komnir á sinn samastað, í sína svefn- poka. Laugardalshöll var myrkvuð, fjölskrúðugt mann- líf stúdentamóts horfið i bili. Torstein: texti, tónlist og trú Tónlistarstjóri mótsins er Torstein Egeland 23 ára gamall læknanemi. Við náðum að kasta nokkrum spurningum á hann: — „1 hverju er starf þitt fólgið?“ — „Starf mitt er I því fólgið að sjá um alla tónlist á mótinu. Ég talaði við norska kórinn og bað hann að koma hingað. Ég sá um að fá íslenska sönghópa og stjórna sjálfur einum þeirra. A mótinu verður svo æfður norrænn kór og honum þarf ég að stjórna og ýmislegt fleira mætti tina til. Hvers konar tónlist er aðallega flutt hér? „Hér er alls konar tónlist. Allt frá klassískri tón- list til soul-tónlistar og negra- sálma. Kórinn sem ég stjórna, Kórbrot, tekur t.d. gospel-soul. — Er hægt að tala um kristna tónlist? — „Svarið við því er bæði já og nei. Það er til tónlist sem grefur undan testanum, en ef texti og innihald fellur við einhverja ákveðna tegund tón- listar, þá getur hún verið tæki til að flytja fagnaðarerindið. I þessu sambandi er nauðsyn- legt að fólk trúi innihaldi text- ans sem það syngur. “ — — Nú ert þú, Torstein, búinn að vera fjögur ár við nám á Islandi. Finnst þér margt ólíkt með fslendingum og norðmönn- um? — — „Ég held að það sé meiri Framhald á bls. 47. Ástfangin hjón, Gunnar og Berit Jeanne og Kári frá Færeyjum. Affrœndum.... 1 kaffiteríunni sátu nokkrir hressilegir færeyingar og skemmtu sér augsýnilega hið besta. Okkur rann blóðið til skyldunnar og tókum tvo af þessum frændum okkar tali. Annar hét Kári Pétursson og var enn í menntaskóla og hinn hét Jeanne Reinart sömuleiðis f menntaskóla. Við spurðum Kára fyrst hvers vegna hann hefði komið til Islands: — „Mér fannst efni mótsins vera mjög áhugavert, — nú og svo langaði mig til að sjá landið þvf ég hef aldrei komið hingað áður.“ Jeanne kvaðst hins vegar hafa verið hér í fyrra með bróður sínum, en hann fæddist á Islandi. Við spurðum hana hvort henni þætti íslendingar vera ólfkir færeyingum. — Nei — alls ekki, íslendingar eru miklu Ifkari okkur en t.d. danir. Hins vegar er landið töluvert frá- brugðið — hér er allt miklu stærra en f Færeyjum. — — Hvað með kristni og kirkjulíf í Færeyjum? — „Kirkjulíf er öflugt hjá okkur“. Nú var það Kári, sem hafði orðið „en Kristilega skóla og stúdentahreyfingin er þó mjög ung. Það eru aðeins þrjú ár síðan hún var stofnuð og þess vegna er hún ekki mjög stór, en fer stækkandi. Niðri í anddyrinu sátu ung hjón og horfðu ástfangin hvort á annað. Hann sagðist heita Gunnar: „Ekki Gunnar á Hlíðarenda, heldur Gunnar Holt,“ sagði hann og hló. Hún sagðist heita Berit og vera f kennaraskóla og bætti þvf við, að maður sinn stundaði nám f norsku og kristinfræði. Þau sögðust vera komin hingað til Islands til að vera á mótinu en einnig til að kynnast landinu. Gunnar sagðist vera hrifin af kristnitöku fslendinga, „hún var ólíkt friðsamlegri heldur en okkar i Noregi" sagði hann að lokum og hló við. Sagt í Helsinki HUFVUDSTADSBLADET f Helsinki birti nýlega stuttar tilvitnanir f ræður 11 leiðtoga á fundinum f Helsinki. Þessar tilvitnanir blaðsins eru birtar hér í fslenzkri þýðingu. „Yfirlýsingin byggir á for- tfðinni, en efni hennar er beint til framtíðarinnar" Leonid Brezhnev, Sovétríkjunum. „Aldrei áður á evrópskri ráðstefnu hafa jafnmargir hátt- settir menn frá jafnmörgum löndum komið saman til fundar. Vfnarfundurinn 1815 og Berlínarfundurinn 1878 virðast við samanburð eins og fundir í saumaklúbbi." Harold Wilson, Bretlandi „I raun réttu er samkomulag- ið sem undirritað verður f dag ekki frábrugðið því sem gert var á timum Faróanna.” Konstantin Karamanlis, Grikklandi „Um tvennt er að velja: Sambúð eða samfelldan dauða.“ Clement Attlee: tilvitnun í ræðu Harold Wilsons, Bretlandi „Þjóðir okkar vænta þess af okkur að góðum áformum sé hrundið f framkvæmd. Hér erum við ekki að reisa nein Potemkintjöld." Geir Hallgrlmsson, tslandi „Yfirlýsingin er ekki friðar- samningur. Hún er samkomu- lag um að stefna að friði." Valéry Giscard d'Estaing, Frakklandi „Minnkum spennu er leiðin frá andstöðu til samvinnu." Joop den Uyl, Hollandi „Mikilvægi ráðstefnunnar felst í því að hún er bæði afleiðing og framlag til minnkandi spennu." Joop den Uyl, Hollandi „Peace is not a piece of paper“ (orðaleikur, sem merkir að friður sé ekkert pappfrsgagn). Gerald Ford, Bandarfkjunum „Evrópa er ekki allur heimurinn". Pierre Trudeau, Kanada „Þegar sagnfræðingar fram- tfðarinnar fjalla um þessa ráð- stefnu munu þeir vafalaust líta á hana sem þáttaskil, upphaf friðsamlegrar sambúðar f Evrópu.“ Josip Broz Tito, Júgóslavfu „Andrúmsloft minnkandi spennu töfrar ekki fram öryggi. Þvert á móti leiðir öryggi til minnkandi spennu." Pierre Graber, Sviss „Sagan kennir okkur að það er skilyrði fyrir minnkandi spennu að valdajafnvægi sé við- haldið." Valéry Giscard d’Estaing „Árangur hinna löngu við- ræðna sem fram hafa farið er sá, að enginn hefur unnið sigur og enginn orðið undir. Enginn hefur fengið sfnu , fram á kostnað annarra. Þetta er sigur skynseminnar." Leonid Brezhnev, Sovétrfkjunum „Samstaðan um að komast hjá stríði þýðir ekki að friður sé tryggður í okkar heimshluta." Olof Paime, Svfþjóð „Ef Sovétríkin og Bandaríkin geta gert með sér samkomulag sem leiðir til þess að geimfarar okkar heilsast og vinna flókin vfsindaleg störf sameiginlega 137 mílur úti í geimnum, ber okkur sem stjórnmálamönnum skylda til að ná sama árangri hér á jörðu niðri." Gerald Ford, Bandarfkjunum lcefood ÍSLEIMZK MATVÆLI Hvaleyrarbraut 4—6, Hafnarfirði. Seljum reyktan lax og graflax Tökum lax í reykingu Útbúum graflax Vacuum pakkað ef óskað er Póstsendum um allan heim. ÍSLENZK MATVÆLI SÍMI 51455 Húsbyggjendur Einangrunar- plast Getum afgreitt einangrunarplast é Stór- Reykjavíkursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆMT VERÐ. GREIÐSLÚSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi sími: 93-7370 Kvöldsími 93-7355. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (iI.YSINGA- SÍMINN KK: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.