Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.08.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. AGÚST 1975 15 GAMLAR minningar hafa leitað á huga Slagsfðunnar sfðan um verzlun- armannahelgina, er hún birti gamlar Ijósmyndir úr safni öl. K. Mag. Og þvf er efni hennar f dag tengt gömlum ævintýrum, sem Slagsfðan upplifði á unga aldri, sveitaböllum og DELL- blaðalestri f þrjúbfóum. sonar frá Akureyri lék fyrir dansi, þrautreyndir sveitaballa- spilarar, sem vita nokk hvað gengur í lýðinn. Birgir Marinós- son var gítarleikari hljómsveit- arinnar PÓLÓ í eina tíð. örvar Kristjánsson er harmonikku- leikari og trommarinn heitir Steingrímur Stefánsson, bróðir Pálma, sem var fyrirliði PÓLÓ um árið. ÞEIR gerðu tilraun til að halda miðsumarssveitaball í Hrísey ekki alls fyrir löngu. Og Slag- sfðan kom á vettvang, sannfærð um, að þarna kæmist hún loks á ómengað sveitaball í gamla stílnum, eins og hún hafði upp- lifað þau fyrir 15 árum eða svo. Ferjan, sem gengur milli Hrfs- eyjar og lands, er harla lítil og Slagsíðan taldi engar líkur á aö ferjan hefði náð að flytja svo mikið af ómenningu nútímans til Hríseyjar, að sveitaböllin i eynni væru fallin í sama farveg og böllin t.d. sunnanlands, þar sem borgarlýðurinn treðst inn og teyga sitt brennivin í takt við rafmagnstónlist með þrumugný. Nei, Slagsíðan gerði sér vonir um ekta gamaldags sveitaball og fór þegar að rifja upp æsku- minningarnar frá böllunum i sveitinni. Slagsíðan var með eindæmum bráðþroska barn og hóf að stunda sveitaböll löngu fyrir innan fermingu, einhvers staðar á 8—10 ára aldrinum!!! ÞEIR í Hrfsey fréttu náttúru- lega strax af þvf, að Slagsíðan hefði stigið þar á land, og þegar Slagsíðan birtist á ballinu, meinleysisleg og hafði sig lítt i frammi, þá fóru Hríseyingar og vinir þeirra að gjóa til hennar augum og jafnvel að gefa sig á tal við hana einn og einn, svona til að athuga hvort hún væri ekki í góðu skapi og hvort hún ætlaði ekki að skrifa eitthvað fallegt um ballið og hvort þetta væri ekki allt í sómanum og svo framvegis. En Slagsíðan sat lengst af á rassinum, skoðaði skemmtun- ina, saup á kókinu og drakk i sig stemninguna og áhrifin af þessari merkilegu samkomu. Allt var þetta sfðan flokkað i tölvudeild hennar og stillt upp við hliðina á æskuminningun- um úr sveitinni, til að kanna hvort Hríseyjarballið væri eins gott og þau löngu liðnu. Tölva Slagsfðunnar er því miður ekkert fullkomnari en maðurinn sem stýrir henni, en henni tókst þó að skila flokk- uðum samanburði á dansleikja- gæðum f fimmtán liðum með formerkjunum NU og ÞÁ, allt eftir því hvort verið er að fjalla um Hríseyjarballið eða gömlu sveitaböllin. Má líkja saman- burðinum við lotur í hnefa- leikakeppni og er dæmt um það að lokinni hverri lotu, hvor aðilinn vinnur hana á stigum. BÖRNIN NU: 1 Hrísey hafa þeir þann háttinn á að hafa dansleikina tvískipta, þegar unnt er. Byrjar hljómsveitin, að spila klukkan hálfníu á barnaballi, þar sem yngsta kynslóð eyjarinnar dansar af mikilli gleði fram til klukkan tíu. Sfðan fara börnin heim og þá fara þeir eldri að tygja sig til og mæta sfðan á ballið upp úr klukkan ellef u. ÞÁ: I gamla daga mættu und- ir jafnt sem gamlir á ballið á tfunda tímanum og svo var það látið ráðast hvenær börnin fóru heim eða hvort þau fóru yfir- leitt nokkuð heim á undan eldra fólkinu. Þau úthaldsbeztu (og frekustu) fengu því óáreitt að vera ballið á enda og voru að vonum hæstánægð með það. Fyrsta lota: Þá vann. GOSIÐ NU: Slagsíðan tölti strax eftir komuna á ballið að gossölunni og fjárfesti í hressingu. Þar voru þessar venjulegu tegund- ir, kók, appelsín, pilsner ... og Skyldu verið að biðja um lagið aftur ... og aftur ... og aftur! Þriðja lotan: Þá vann. DANSGÓLFIÐ GERT SLEIPT NU: Tvær stúlkur gengu annað slagið um dansgólfið og stráðu einhvers konar flögum yfir það, líklega sápuspæni úr pakka. Dansgólfið var ágætlega hált. ÞÁ: Þá gekk einhver með kerti og hníf um gólfið og tálg- aði kertið niður, þannig að vax- ið mætti gera gólfið hált. Fjórða lota: Þá vann. Dau hafa verið betrl svelta bðllin í gamla daga? MEÐ því að myndavél Slagslðunnar var flasslaus I Hrlseyjarferðinni, varð lítið úr myndatöku á ballinu, nema á fyrri hluta þess — barnaballinu — á meðan sólin varpaði enn birtu inn um gluggana. — Það er trló Birgis Marinóssonar sem þarna fremur tónlist. svo ein tegund, sem Slagsíðan hélt að væri útdauð fyrir löngu, en hefur greinilega lifað góðu llfi I Hrísey, nefnilega Hi-spot! (Hins vegar má svo sem geta þess, að þarna norður frá kalla börn og unglingar suma hluti öðrum nöfnum en við borgar- búar eigum að venjast. Þar heitir appelsínið nefnilega ekki appelsfn, heldur Egils, þ.e. ef það er frá þeirri virðu- legu verksmiðju. „Eina Egils,“ segja börnin og fá appelsfn. Þau tala líka sérkennilega mál- lýzku, tala m.a. um „Pylsur“, með ekta yfsilon-framburði, en að sjálfsögðu er borgarbarnið vant því frá blautu barnsbeini að segja „pulsur". Nóg um það. ÞÁ: I þann tíð var póló aðal- stældrykkurinn hjá börnum og þegar þeim leiddist heima á kvöldin, gátu þau einfaldlega sett sykurmola f gosflosku fulla af vatni, hrist rækilega, og fengið annars flokks póló! Gosdrykkurinn geisli var hins vegar á nokkru undanhaldi. önnur lota: Jafntefli. HLJÓMSVEITIN OG LAGAVALIÐ NU: Trfó Birgis Marinós- Trfóið hélt sig nær eingöngu við lögin, sem verið hafa hvað vinsælust f óskalagaþáttunum „Á frfvaktinni", „Undir tólf“ og „Óskalög sjúklinga" að und- anförnu, þ.e. lög Stuðmanna, Lónlí blú bojs, Gylfa Ægissonar og slíkra kappa. Þetta kunnu Hríseyingar og vinir þeirra vel að meta og dönsuðu sig bull- sveitta. En ekki kætti þetta Slagsfðuna sérlega mikið. ÞÁ: Hljómsveitin hans Geirs einhverssonar var aðalnúmerið og dætur hans Hjördís og Ulf- hildur voru heimsfrægar um allt Suðurland fyrir söng sinn. Ekki man Slagsfðan hvaða lög voru spiluð, en rámar þó eitt- hvað i, að það hafi verið öll vinsælustu lögin úr óskalaga- þáttunum „A frfvaktinni", „Lög unga fólksins" og „Óska- lög sjúklinga". Sá var þó munurinn, að á þeim tfma voru þetta aðaltónlistaruppsprettur Slagsfðunnar, en ekki nú! Sérstaklega er minnisstæður flutningur Geirs og félaga á lag- inu „Mama“, sem Gitte Hænn- ing hin danska hafði gert frægt. Þar sungu þær Hjördfs og Ulla svo vel, að menn táruðust (eða fengu sér tár). Og alltaf var tlTÞRA NU: I Hrisey voru aðstæður allar hinar huggulegustu fyrir þá, sem vildu skreppa út af ballinu og viðra sig. Fjaran nokkra metra frá samkomuhús- inu og götulýsing ekki meiri en svo, að nægir skuggar voru fyr- ir þá, sem þurftu á þeim að halda (líklega ekki margir). ÞÁ: Myrkrið var mikið og svart og móarnir skammt und- an, auk þess sem gömul útihús veittu þeim skjól, sem þurftu á að halda. Þá var stöðugur straumur fólks út úr húsinu og út í myrkrið og einn frændi Slagsfðunnar fræddi hana á því, að það sæist f augunum á kvenfólkinu, hvort nokkuð hefði dregið til tfðinda úti í móanum í myrkrinu. Enginn slíkur glampi sást í augum Hríseyjarkvenna. Fimmta lota: ÞÁ vann. SALERNI NU: í samkomuhúsinu f Hrísey voru þokkalega þrifaleg klósett og ekkert sérstakt um þau að segja. ÞÁ: Utan húss var myndar- legur kamar, oftast rauðmálað- ur, og hann urðu menn að nota — eða þá móana og myrkrið! Sögur hermdu að stundum hafi kamrinum verið velt um koll, þegar líða tók á ballið, og þá gjarnan með einhverjum inni! Sjötta lota: ÞÁ vann. LÖGGÆZLA NU: 1 Hrísey voru engar lögg- ur. Samkomulag er um að dans- leikirnir þar f eyju séu ekki auglýstir opinberlega, og þá þarf enga löggu f gæzluna. Ef heimamenn vilja hins vegar endilega auglýsa böllin sfn, þá verða þeir líka að ráða löggur til gæzlu. Slíkt er hins vegar svo dýrt, að þeim dettur það ekki f hug. ÞÁ: Löggurnar birtust yfir- leitt þegar líða tók á ballið, enda veitti ekki af. Sjöunda lota: NU vann. SLAGSMAL NU: Slagsmál eru fátíð á Hríseyjarböllum og þá sjaldan að þau gerast, þá eiga aðkomu- menn alltaf sökina, að sögn heimamanna. Engin slagsmál urðu á þessu balli og ekkert var brotið. ÞÁ: Slagsmál voru fastur lið- ur, þegar lfða tók að lokum dansleiksins. Nokkrir menn úr sveitinni komust þá alltaf í slík- an ham, að þeir neyddust til að fækka heilum rúðum í félags- heimilinu og heilum tönnum í sveitungum sínum. Attunda lota: ÞÁ vann. AÐKOMUFÓLK NÚ: Þó nokkrir aðkomumenn voru á ballinu i Hrísey, einkum fólk af Árskógsströndinni. Enda hefði aðsóknin ekki orðið nein annars. Líklega hafa um 80 manns komið á ballið til styttri eða lengri dvalar, en aldrei voru fleiri en um 50 manns inni í einu. ÞÁ: Langsamlega flestir ball- gestir voru úr sveitinni eða næsta nágrenni hennar. Þá var borgarlýðurinn ekki farinn að kaupa sér sætaferðir á böllin á þessum stað, eins og nú gerist. Nfundalota: Jafntefli. ALDUR BALLGESTA NU: Meðalaldurinn hefur verið um 20 ár og langflestir voru innan tvítugs, en einstaka maður og kona yfir þrítugt eða fertugt. ÞÁ: Meðalaldurinn hefur verið talsvert nálægt þrítugu, því að fullorðna fólkið í sveit- inni, bændur og búalið, fjöl- mennti á böllin eins og ungling- arnir. Tíunda lota: ÞÁ vann. GRUNDVÖLLUR FYRIR BALLI NU: Þeir höfðu ekki haldið miðsumarsball I Hrísey í óra- langan tíma, töldu, að það myndi ekki borga sig. Nú var ákveðið að gera tilraun, en þar sem aðsóknin var helmingi minni en á dansleikjum á öðr- um árstfmum, þá verður vart framhald á dansleikjahaldi á þessum tíma f Hrísey. ÞÁ: AUir voru ólmir að kom- ast á ball, en einkum þó, ef ballið hét einhverju sérstöku nafni. Þess vegna voru böllin alltaf skfrð einhverju nafni og alltaf var fullt hús. Það voru kvenfélagsböll, kaupakvenna- böll, sláturhúsböll, réttarböll o.s.frv. Ellefta lota: ÞÁ vann. Afengisneyzla NU: Hríseyingar drukku tals- vert af áfengi, þó ekki meira en gengur og gerist á böllum hér sunnanlands eða í borginni. Enginn virtist illa leikinn af áfenginu, heldur báru menn það vel. ÞÁ: Talsvert var drukkið, enda þótt Slagsíðan fylgdist kannski ekki eins vel með því þá og nú. Sumir drukku of mik- Framhald á bls. 47. SI.AUSWAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.