Morgunblaðið - 17.10.1968, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1908
27
— Frystigeymslur
Framhald af bls. 28
airsölu á karfaflökum, en þá
hafði ekki ennþá orðið úr sarnn-
ingum.
Mbl. leitaði í gær frétta af
þegsu máli hjá Þorsteini Amalds,
framkvæmdastjóra Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur. Hann sagði, að
eftir upplýsingum,- sem þeir
hefðu fengið, gætu þeir átt von á
að afskipanir á þessum fiski til
Rússland gætu hafizt innan
skamms. Málið ætti því að leys-
ast fljótlega. Þarna væri mest
um að ræða karfa, sem færi á
Rússlandsmarkað.
Um leigugeymslurnar sagði
hann, að auðvitað væru það
vandræði að geta ekki geymt í
sínu eigin húsi.
- SÍLDIN
Framhald af bls. 28
Lestir
Reykjavík .............. 12.018
ísafjörður................. 174
Siglufjöarður .......... 24.386
Ólafsfjörður .............. 497
Dalvík .................... 612
Hrísey .................... 317
Krossanes ................. 536
Húsavík ................. 1.190
Raufarhöfn .............. 4.853
Vopnafjörður ............ 1.401
Seyðisfjörður ........... 8.563
Mjóifjör'ður .............. 504
Neskaupstaðut ........... 2.463
Eskifjörður ............. 3.694
Reyðarfjörður.............. 666
Fáskrúðsfjörður ........... 373
Stöðvarfjörður .......... 1.133
Breiðdalsvík .............. 425
Þýzkaland ............... 4.312
Færeyjar ................ 1.351
Hjaltland ............... 1.394
Skotland ................ 1.201
Noregur .................... 79
Samkvæmt spjaldskrá Fiskifé-
lags íslands hafa 94 skip fengið
einhvem afla á síldveiðum norð-
anlands og austan. Eru 89 þeirra
með 100 lestir eða meira og fer
hér á eftir skrá yfir þau skip.
BÁTASKrA Lestir
Alcurey, Reykjavfck, 241
A'lbert, Grindavík, 238
Arnar, Reykjavík, 373
Arnfirðingur, Reykjavík, 165
Ámi Magnússon, Sandgerði, 1.078
Ársæll Sigurðsson, Hafn<arfirði, 405
Ásberg, Reykjavík, 1.504
Ásgéir, Reykjavík, 1.256
Baldur, Dalvík, 760
Barði Neskaup-stað, 1.478
Bára, Fáskrúðsfirði, 532
Bergur, Vestmannaeyjum, 519
Birtingur, Neskaupstað, 1.037
Bjarmi II., Dalvík, 965
Bjartur, Neskaupstað, 2.174
Brettingur, Vopnafirði, 815
Börkur, Neskaupstað, 400
Dagfari, Húsavík, 827
Eldborg, Haínarfirði, 878
Elliði, Sandgerði, 476
Faxi. Hafnarfirði, 977
Fífill, Hafnarfirði, 2.456
Fylkir, Reykja-vík, 1.854
Gideon, Vesrtmannaeyjum, 166
Gissur hvíti, Hornafirði, 254
Gígja, Reykjavík, 2.462
Gdsli Ámi, Reykjavfk, 1.986
Gjafar, Vestmannaeyjum, 778
Guðbjörg, ísafirði, 2.362
Guðbjörg, Sandgerði, 102
Guðrún, Hafnarfirði, 876
Guðrún Guðleifsdóttir, Hnífsdal, 567
Guðrún I>orkeIsdóttir, Eskiifirði, 709
Gullberg, Seyðisfirði, 116
Gullver, Seyðisfirði, 698
Gunn-ar, Reyðarfirði, 176
Hafdis, Breiðdalsvík, 172
Hafrún, Bolungaviik, 180
Halkion, Vestmannaeyjum, 130
Hannes Hafstein, Dalvík, 243
Harpa, Reykjavíik, 2.298
Heimir, Stöðvarfirði, 1.315
Helga, Reykjavík, 421
Helga II., Reykjavík, 926
Helgi Flóventsson, Húsavíik, 370
Héðinn, Húsavík, 1.813
Hólmanes, Eskifirði, 346
Hrafn Sveinbjarnarson, Grindav. 144
Huginn II., Vestm.annaeyjum, 196
Höfrungur II., Akranesi, 128
Höfrungur III., Akranesi, 214
Ingiber Ólafsson II., Ytri-Njarðv. 596
ísleifur, Vestmannaeyjum 651
ísleifur IV., Vestmanmaeyjum, 915
Jón Finnsson, Garði, S24
Jón Garðar, Garði, 507
Jón Kjartansson, Eskifirði, 1.022
Júlíus Geirmundsson, ísafirði, 419
Jörundur II., Reykjavtk, 900
Jörundur III., Reykja/vík, 997
Keflvíkingur, Keflavfk, 356
Kristján Valgeir, Vopnafirði, 2.072
Krossanes, Eskifirði, 1.107
Ljósfari, Húsavík, 158
Loftur Baldvinsson, Dalvfk, 376
Magnús, Neskaupsttað, 421
Magnús Ólafsson, Ytri-Njarðvík 1.025
Margrét, Siglufirði, 182
Náttfari, Húsavtk, 558
Ólafur Magnússon, Akureyri, 445
Ólafur Sigurðsson, Akranesi, 349
Óskar Halldórsson, Reykjavík 496
Óskar Magnússon, Akranesi, 453
Reykjaborg, Reykjavík, 1.032
Seley Eskifirði, 438
Sigurbjörg, Ólafsfirði, 1.266
Sigurvon, Reykjavfk, 153
Sléttanes, Þingeyri, 602
Sóley, Flateyri, 944
Súlan, Akureyri, 788
Sveinn Sveinbjörnss., Neskaupst., 1.268
Tálknfirðingur, Tálknafirði, 185
Tungufell, Tálknafirði, 509
Ví'kingur, Akranesi, 686
Vörður, Grenivík, 603
Þorsteinn, Reykjavík, 721
Þórður Jónasson, Akureyri, 1.495
Örfirisey, Reykjavík, 762
Örn, Reykjavík, 2.656
— íslenzkt fyrirtæki
Framhald af bls. 28
sýningardeildinni. Guðmundur
tjáði Mbl. í gær, aS Kjartan
Guðjónsson, listmálari, hefði
teiknað íslenzku sýningairdeild-
ina, sem er á 32ja fermetra
svæðj. Þar yrðu mest sýndar
matvælaumbúðir þátttökufyr-
irtækja, til að gefa kaupendum
hugmynd um hvað hér er á boð
stólum af matvælum, og síð-
an yrðu veittar upplýsingar. —
Þetta er til að minna á ísland
sem matvælaframlei’ðanda og
sýna hvað hér er hægt að fá.
Þá er í ráði að hafa sýningu á
kvikmynd um landbúnaðarfram
leiðsluna, sem Samband ísl. sam
vinnufélaga hefur látið gera.
Þetta er 20 mínútna kvikmynd.
Fyrstu 7 mínúturnar fjallar
myndin almenmt um fsland, en
síðan um afurðir landbúnaðar-
ins.
SIAL, Salon International de
l’Alimentation, í París er ein
stærsta alþjóðlega matvælasýn
ingin í Evrópu, sýningin í Köln
ef til vill ein stærri, og er búist
við að matvælaframleiðendur frá
57 þjóðum sýni þar í ár. íslend-
ingar hafa einu sinni á'ður tekið
þátt í sýningunni.
- BRUNI
Framliald af bls. 28
unum út eða svo fannst okkur,
en þegar svona stendur á finnst
manni allt ganga seint. Stórgrip
unum gekk fljótt að ná út.
— Og svo kom slökkviliðið?
— Já, og margir sjálfboðaliðar,
bæði frá Húsavík og héðan úr
sveitinni, segir Björn. Þegar ég
kom til Húsavíkur ræsti ég strax
tvo brunaboða og ók svo að
slökkvistöðinni til að láta vita,
hvar eldur væri laus. Hélt ég svo
strax heim með fyrstu bílunum
og fannst mér slökkviliðfð bregð-
ast fljótt við. Strax og það kom
á staðinn var hafizt handa um að
dæla á hlöðuna og fyrst í suð-
austurhornið, en þar var eldur-
inn mestur. Hann læsti sig þó
um allt þakið og í stofnana sem
voru úr timbri. Þakið brann allt
og féll yfir heystabbann. Þegar
búið var að slökkva var farið
að rífa brakið ofan af heyinu og
skárum við meS heyljá góða geil
meðfram öllum veggjum, og höf
um í dag verið að hreinsa það.
Það var ekki fyrr en kl. 09 í
morgun að heita mátti að allt
væri dautt.
— Þetta hefur verið óhuggu-
legt fyrir ykkur konuirnar?
— Já segir kona Bjöms, Jóna
Þórðardóttir. Ég fór strax í sím-
ann til að tilkynna þetta, þangað
sem ég náði. En svilkona mín,
Sigríður Atladóttir kona Vigfús-
ar fór strax til húsanna til að
hjálpa við a‘ð láta út skepnum-
ar. Síðan fór ég upp eftir og það
var erfitt að horfa á þetta og
geta ekkert aðhafzt. Þegar
slökkviliðið var komið fómm við
konurnar heim, segir Sigríður,
til að hita kaffi og vorum við
með heitt kaffi í alla nótt og mat
eftir því sem menn vildu.
— Ég minnist þess bræður, að
þið sög’ðuð við mig fyrir ári
þegar brunarnir voru svo tíðir á
Húsavík, að ykkur stæði ótti af
þessu alveg eins og okkur Hús-
víkingum.
— Við höfum alltaf haft vara
á okkur gagnvart heyi, og verið
það sem kallað er eldhræddir og
því mælt hita í heyjunum alltaf
stöðugt, en hann hefur á þessu
sumri ekki verið neinn í þessari
hlöðu. í fyrrahaust höfðum við
hundinn úti á nóttunni þegar
þetta var alltaf að gerast á Húsa
vík, en með tímanum verður
máður ekki eins varkár og því
miður var hundurinn ekki úti í
nótt.
— Hvað er tjónið? Var þetta
vátryggt?
FÆREYSKA skipið Blikur er
nú hætt siglingum við ísland
að minnsta kosti um sinn.
Skipið er nú farið til Fær-
eyja, þar sem það mun sigla
leiðina Danmörk — Færeyj-
ar. Blikur hefur unnið mikið
og gott starf hér við land
þau tvö ár sem skipið hefur
verið hér og ávallt hefur á-
höfnin verið færeysk, verkefni
skipsins verið fel af hendi
leyst. Síðasta árið hefur Ámi
Dam verið skipstjóri á Blikur
og hefur hann leyst starf sitt
mjög vel af hendi oft við
erfiðar aðstæður. Eru tslend-
ingar mjög þakklátir Færeyj-
ingum fyrir þeirra þátt í sam
göngumálum landsins.
Við komum um borð í Blik-
ur nokkrum klukkustundum
áður, en skipið fór til Fær-
eyja og röbbuðum við skip-
stjórann, Árna Dam.
— Hvað ert þú búinn að
vara lengi í íslandssiglingum
Árni?
— Ég byrjaði í fyrrahaust
og hef verið að stanzlaust
síðan, en skipið er búið að
vera í 2 ár.
— Hvernig hefur nú geng-
ið?
— Það hefur gengið ágæt-
lega og það hefur yfirleitt
verið mjög mikið að gera, en
í sumar hefur samt ekki verið
um mikla vöruflutninga að
ræða. Þó hefur yfirferðin ver
BLIKUR
— rabbað við Arna Dam skipstjóra
ið mikil og í síðasta mánuði
t.d. komum við á 76 hafnir
og sinntum þar verkefnum.
— Þið siglduð talsvert í
ísnum í fyrra við góðan orð-
stír. Var ekki erfitt að sigla
þá?
— Jú það var mjög erfitt
að sigla í ísnum, en verst var
það þó um páskana, þegar
allt var að lokast. Við vorum
samt alltaf að sigla og okk-
ur seinkaði aðeins einu sinni
um nokkra klukkutíma. Á
norðaustursvæðinu þurftum
við að þræða leið milli ísspang
anna, og það var erfitt, því
að það þarf ekki mikið út af
að bera í íssiglingum til þess
að skipið dældist, eða önnur
óhöpp komi fyrir en allt fór
þetta vel um síðir.
— Var ekki oft erfitt að
þræða inn til hafnanna?
— Jú, ekki er hægt að
neita því, en ég minnist þess
hve skipaafgreiðslan á Húsa-
vík og á Fáskrúðsfirði
var einstaklega góð á þess-
um tíma og fólkið þar lagði
mikið á sig til þess að geta
liðsinnt okkur sem bezt í
innsiglingunni gegnum ísinn.
Það er fyrirtaksfólk á ís-
landi, en þarna var alveg sér
stakt fyrirtaksfólk.
— Hvaða verkefni liggur
nú fyrir hjá Bilkur?
— Nú fer skipið inn í rút-
una fyrir Tjald og siglir á
milli Færeyja og Danmerkur.
— Heldur þú áfram skips-
stjórn?
— Já, ég verð áfram með
skipið.
— Hvernig hefur þér líkað
íslandsdvölin?
— Mjög vel. Ég og mín
skipshöfn þökkum íslending-
um hjartanlega fyrir viðkynn
inguna og þá vinsemd, sem
okkur hefur verið sýnd víða
um land.
— Það er erfitt að meta tjón-
ið. Það eru 200 hestar farnir úr
hlöðunni og vatn hefur eðlilega
komizt 'eitthvað í hitt. Við von-
um að mest af því sem eftir er í
hlöðunni verði nú samt nothæft,
en um það er ekkert hægt að
segja eins og er. Veggirnir á hlöð
unni standa, en þakið er allt
brunnið. Hlaðan var vátryggð
en heyið ekki, enda vorum við
ekki hræddir við sjálfíkveikju
í því, þar sem aldrei hefur verið
hiti í heyinu og svo var ekkert
rafmagn á hlöðunni.
— Hvað er framundan?
— Það vildi nú svo til að það
er síðasti sláturdagur hjá okkur
á morgun, en við munum reyna
að fá keypt hey, svo að við þurf
um ekki að fækka. Við töldum
okkur sæmilega - heyjaða eftir
sumarið, þrátt fyrir margumtal-
að illt vor og kal í túnum, en af
kalinu höfum við ekki farið^var-
hluta.
— Að lokum?
— Við viljum bara biðja þig
að skila innilegu þakklæti okk-
ar allra til hinna mörgu, sem
veittu okkur ómetanlega aðstoð
bæði Húsvíkingar og sveitungar
okkar. Öllu þessu fólki þökkum
við hjartanlega hjálpina.
Þess skal getið, að veður var
hægviðri, þokuúði. Hitinn var
við frostmark en gripunum mun
:ekki hafa orðið meint af.
Laxamýrarbræðurnir, Vigfús til vinstri og Björn Jónssynir við
rústirnar í gær.