Morgunblaðið - 17.10.1968, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUD^GJII* ’l^’ OKTÓRER 1^8
Dönsku meistar-
arnir mæta FH
Þetta er eitt sterkasta lið á Norður-
löndum segir Geir Hallsteinsson
í KVÖLD gefst íþróttaunnendum
tækifæri á að sjá það bezta í
dönskum og íslenzkum hand-
knattleik. F.H., íslandsmeistar-
ar utanhúss mæta 'H.G., Dan-
merkurmeisturunum innanhúss
og heíst leikurinn kl. 8,30 e.h. í
Laugardalshöllinni. Án :efa verð
ur spennandi að sjá þessi lið eig-
ast við, en rétt er að geta þess
að ekkert íslenzkt lið hefur stað
ið sig eins vel gegn erlendum
liðum og einmitt F.H.
H.G. verður samt ekkert lamb
að leika sér við. Þeir hafa orðið
11 sinnum Danmerkurmeistarar
í handknattleik innanhúss, þar
af nú í þrjú ár í röð. Geir Hall-
steinsson liðsmaður í F.H. og
einn okkar vinsælasti og bezti
handknattleiksmaður segir að
þetta lið sé tvímælalaust eitt
sterkasta lið á Norðurlöndum og
•er þó af mörgu góðu að taka.
Við trúum einhuga á getu F.H. í
kvöld. Þeir hafa oft áður sannað
aií af þeim er alls góðs að vænta
þegar við mjög sterkt lið er að
eiga.
Spurningin er þá: höfum við
sigrazt á hinum svokallaða „Dana
komplex" í eitt skipti fyrir öll,
þá er við sigruðum danska lands
liðið síðastliðið haust? Þessari
spurningu verður svarað að 'ein-
hverju leyti í kvöld og næstu
kvöld.
Fólki er bent á að höllin tek-
ur aðeins um 2,600 manns, svo að
vissara er fyrir fólk að nota sér
forsölu í bókaverzlunum Lárusar
Blöndal, Oft hefur verið þröngt
á þingi í höllinni þegar um stór-
leiki er að ræða, eins og nú, bið-
raðir við miðasölu.
■Hér er um spennandi leik að
ræða sem fæstir ættu að láta
fara fram hjá sér.
HG-menn í baráttu við KR-inga. Það er Palle Nielsen, hættulegur vinstri liandarmaður (með
skegg) sem skorar.
Estudiantes vann Manch.
Utd. og heimsmeistaratitil
Leiknum i gær lauk með jafntefli, en
samanlögb markatala var 2:1
ARGENTÍNSKA liðið Estudiant
es og Manchester Cnited léku í
gær síðari Ieik sinn um heims-
Nú eru menn hættir að kasta úti, en æfingar eru hafnar innanhúss.
Æfingar í köstum inni
INNANHÚSSKASTÆFINGAR
á vegum Kast og kennslunefnd-
ar Stangavefðifélags Reykjavik-
ur, Stangaveiðifélags Hafnar-
fjarðar og Kastklúbbs Reykja-
víkur (áður Kastklúbbur Is-
lands), hófust að þessu sinni
sunnudaginn 13 okt., og verða
í íþróttahöllínni í Laugardal í
vetur alla sunnudagsmorgna kl.
10.20 til 12.00.
Auk leiðsagnar og æfinga í
fluguköstum, eiga menn þess
kost að læra og æfa sig í algeng-
ustu og beztu veiðimannahnút-
um, — og einnig að læra heiti
og stærðarnúmer á helztu laxa-
og silungaflugum.
Á öllum æfingunum eru til
staðar leiðbeinendur á vegum
viðkomandi félaga, reiðubúnir
að aðstoða og leiðbeina þeim er
þess óska.
Hvert námskeið eða tímabil
er 4 eða 5 sunnudagsmorgnar,
þau verða því 2 til áramóta, og
hið fyrra þeirra hefst, eins og
áður segir, n.k. sunnudagsmorg-
un.
Forigangsrétt að æfihgunum
hafa meðlimir stangaveiðifélag-
anna og Kastklúbbs Reykjavík-
ur, en öðrum áhugamönnum er
heimil þát'ttaka eftir því sem
húsrúm'leyfir. Utanfélagsmönn-
um skal á það bent að þátttöku-
rými undangengna vetur hefir
verið langbezt á fyirstu námskeið
um vetrarins, eftir áramót hefir
að jafna'ði verið mjög þröngt á
þingi.
Upplýsingar og þátttökutil-
kynningar hjá Halldóri Erlends-
syni, sími 18382, Sigbirni Eiríks-
syni, sími 34205, Ólafi Ingimund
arsyni (Hafnarfirði, sími 51112)
og á æfingunum.
meistaratitil félagsliða og fór
hann fram í Manchester. Jafn-
tefli var 1-1 eftir sögulegan leik
og með þau úrslit hafa Argentínu
menn hlotið heimsmeistaratitil-
inn, því þeir unnu fyrri leik-
inn 1-0. Þó mikiil hiti væri und-
ir niðri í áhorfendum hylltu
þeir Argentínumenn mjög að
leiklokum. Þúsundir biðu þeirra
í göngum vallarins og hrópuðu
til þeirra fagnarópum og sam-
tímis var blásið í horn þúsunda
bifreiða.
Argentínumenn skoruðu mark
upp úr aukaspyrnu, þegar á 5.
mín. leiksins og þar sem saman-
lögð markatala ræður, voru þeir
nú með 2—0 forystu í keppninni
um titilinn. iÞeir lögðu því aðal-
áherzlu á vömina og æ meir er
á leið, enda sóttu liðsmenn Man-
chester af örvæntingu.
Til marks um það er að mark-
vörður Manch. Utd. kom ekki
n:ma tvisvar eða þrisvar við
knöttinn í síðari hálfleik að sögn
útvarpsins brezka.
Vörn Argentínumanna var
mjög þétt og stóð af 'sér marg-
ar harðar sóknarlotur liðsmanna
í heild eða einstaklingsframtaks
George Best, Dennis Law og
Bobby Charlton. Þó hefði iþessi
sigur ekki unnizt ef argentínski
markvörðurinn hefði ekki átt
frábæran leik og bjangaði 6 sinn
um mústaralega, að sögn AP.
'"5 mín fyrir leikhlé hljóp mark
vörður Argentínumanna út móti
Dennis Law með þeim afleið-
ingum að báðir urðu að hverfa
af velli um stund — og Law
kom ekki inná aftur, enda ný-
risinn upp úr meiðslum.
Tveim mínútum fyrir leikslok
kom til átaka milli Georges Best
og isins og varnarmönnum Argen
tínumanna. Slógu þeir til hvors
annars og dómarinn vísaði þeim
umsvifalaust af velli. Og þeir
héldu barsmíðunum áfram á leið
út af vellinum. Slíkur var hitinn
síðustu mínúturnar.
Meðan æsingurinn stóð út af
þ:ssu jöfnuðu Manchestermenn
og var Morgan að verki.
Maneh. var enn í sókn er flaut
að var til leiksloka, en í hita
leiksins oig ópum fólksins heyrðu
liðsmenn ekki flautið og börðust
áfram og í markið fór knöttur-
inn — en þa'ð var greinilega
eftir leikslok.
Fögnuðurinn yfir sigri Argen-
tínumanna náði alla leið þangað
heim — þar sem þúsundir manna
gengu um götur og torg syngj-
andi af gleði yfir unnum sigri
liðs síns.
Fró GLÍ
ÁRSÞING Glímusambands ís-
lands 1968 verður háð sunnudag-
inn 20. október nk. og hefst kl.
10 árdegis. í Bláa salnum á
Hótel Sögu.
Glímunámskeið á ísafirði
Nýlokið er glímunámskeiði hjá
íþróttabandalagi ísafjarðar. Þátt-
takendur á námskeiðinu voru 50.
Kennarar voru Þorsteinn Kristj-
ánsson, landsþjálfari Glímusam-
bandsins og Gíslí Kristjánsson,
ísafirði.
Tommie Smith á 19,8‘
Tommie Smith reyndist alger
yfirburðarmaður er til úrslit-
anna kom í 200 m hlaupi í gær-
kvöldi. Hann rann skeiðið á 19.8
sek og setti glæsilegt heimsmet,
og eitt af þeim ótrúlegu. Hann
og landi hans John Carlos höfðu
báðir hlaupið á 20,1 í undanúr-
slitum.
200 m hlaup:
Olm. T. Smith, USA, 19,8
2. Peter Norman, Ástralía, 20.0
3. John Carlos, USA, 20.0
4. Edwin Robert, Trinidad, 20.3
5. R. Bambuk, Frakkland, 20.5
6. Larry Questad, USA, 20.6
3000 m hindrunarhlaup:
Olm. Amos Biwott, Kenia, 8:51.0
2. Benjamin Kogo, Kenia, 8:51.6
3. George Young, USA 8:51.8
4. A. Rolants, Belgíu, 8:59.4
Amos Biwott var alveg óþekkt
stjarna fyrir þessa leiki, en vakti
athygli þegar í æfingamótum
þar. Eigi að síður var hann tal-
inn sigurstranglegastur fyrir úr-
slitahlaupið nú, eftir hin ágætu
„sýningarhlaup" sín í undanrás-
um. .
400 m hlaup kvenna:
Olm. C. Besson, Frakklandi, 52.0
2. L. Board, Englandi, 52.1
3. Petsjenkova, Sovét. 52.2
4. Timpson, USA, 52.3
5. A. Penton, Kúbu, 52.7
6. Jarvis Scott, USA, 52.7
Tommie Smith