Morgunblaðið - 17.10.1968, Page 24
24
MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDÁéUR 17. * OKTÓBER > 1968
— Það er líka nauðsynleg
kunnátta, góða mín. Og þar
berðu líka af. Þú hefur verið
heþpilegri í þennan leiðangur
en nokkur, sem þangað hefur
komið óvanur.
— Ég er fegin því, sagði Jill.
af því að ég kann svo vel við
mig hérna. Þótt undarlegt sé, þá
er ég enn hrifin af því. Skrif-
stofuvinna er nokkuð, sem mað-
ur gerir aðeins vegna kaupsins,
en þetta vekur áhuga. Maður
finnur sig vera þarfan, þegar
maður er að fæða soltið fólk.
En samt sem áður vildi ég
gjarna vera töfrandi eins og
Sandra. — Hvað er að þér eins
og þú ert. Hann kyssti hana á
hina kinnina. Einhver persónu-
leg hlýja og innileiki gagntók
þau bæði. En þá beygði Móses
fyrir klettsnefið og stíkaði nú
yfir sandinn til gripahúsanna en
þar staðnæmdist hann og lagðist
á hnén. Þegar Oliver reisti Jill
á fætur, kom Davíð brokkandi á
öðrum úlfalda. Hann hlaut að
hafa verið rétt á eftir þeim, svo
að Jill fór að hugsa um, hvort
hannhefði nú séð Otiver kyssa
hana. Ekki svo að skilja, ■ að
hægt væri að lesa mikið út úr
þannig smávægilegum vinahót-
um.
Karlmennirnir fóru að þvo sér
en Jill gekk inn í'eidhúsið til að
ausa upp stórum skömmtum af
kássu og baunum og gulrótum
og bera diskana inn í matartjald
ið. Ai'abastrákarnir voru a'llir
komnir til tjalda sinna og það
mátti heyra gíyminn í strengja-
hljóðfærum og hávaðann af
skrafi þeirra blandast útvarpinu
frá Damaskus. Davíð var einn
við borðið og tók við kúfaða
diskinum sínum með miklum
fögnuði. — Þetta er fögur sjón
■— þakka þér fyrir, Jill. . .Núna
eru það bara tvö hjörtu en ekki
fjögur, eða hvað?
— Er það af því að ég tví-
mennti með honum Oliver? svar
aði hún á móti. Það var enginn
hægðarleikur að stæla neitt við
Davíð. Hann gat svo hæglega
snúið út úr því, sem sagt var og
aíltaf sér í hag.
— En Sandra hin glæsilega,
sá þig samt ekki, sagði Davíð
með fu'llan munninn. — Annars
hefði hún kannski orðið ofurlít-
ið vond, þar sem Oliver er henn
ar eign.
— Já, þeim virðist koma vel
saman. En Sandra er nú líka
altileg við flesta.
— Ekki gæti ég orðið hrifinn
af henni, sagði Davíð. Yfirborðs
kenndar stúlkur, sem eru að lát-
ast vera veraldarvanar ganga
ekki í mín augu. En meðat ann-
arra orða, Jill, ef þú vilt fara
að velviljuðum ráðum, þá reyndu
að stela honum Oliver, ef þig
langar til, því að ég held þú
kunnir nú orðið tökin á henni
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
Söndru. En láttu hann Graham
afskiptalausan, nema þú sért
reiðubúin að takast á við hana
Enid. Hún er frek til fæðunnar
og ég held hún skoði hann sem
sína eign núorðið.
Jffl svaraði kuldalega. — Ég
hef nú annars ekki talað eitt orð
við Graham síðan við lögðum af
stað. Ef ungfrú Cater er skotin
í honum, þá þau um það, því að
ekki varðar mig um það. Og ég
er enginn þfófur, jafnvel þó að
. . . jæja, það getur nú verið
sama.
— Enid mundi steindrepa þig
góða mín. Hún er svo vægðar-
laus á köflum, að það gengur
jafnvel fram af mér.
— Það kemur aldrei til, svo
Fimmtudagur 17. október
KVÖLDVERÐUR
Potage Princesse
(hænsnakjötssúpa)
Escalope de veau au Four
(ofnbakaður kálfakjötsréttur)
—0—
Boeuf braise aux champignons
(gufusteikt uxasteik)
Réttir þessir eru matreiddir af —°—
austurrískum matreiðslumeistara er coupe Meiba
mun dvelja hér um tíma og matreiða _ Q__
fjölbreytta rétti ýmissa þjóða.
Carré d’agneau en Cocotte á
la Bonne-Femme
(lambak j ötsréttur )
að ég þarf ekkert að gera mér lika bezt þannig, finnst mér.
rellu út af því. sagði Jill. — j — Á ég að skilja það þannig
Vil'tu meira brauð? Og svo er að þú sért þá að bíta mig frá
þarna rúsínubúðingur og kara- þér? spurði hann.
melíusósa á eftir. — Nei, ég er bara að kenna
— Gefðu mér búðinginn. Við þér hversdagsleg hyggindi, sagði
fengum ekkert um hádegið. En i hún. Það er alltaf harkalegt að
vel á minnzt, ég hef tekið eftir j bíta menn frá sér og mér dytti
því að okkar háttvirti Skoti er : það heldur ekki í hug við þig,
farinn að glápa á hana Söndru ! Davíð. En nú ætla ég að ná í
með, einkennilegt blik í augun- j búðinginn handa þér og fara að
um, eins og kallað er. Og það | athuga kaffið. Þegar hún kom
gæti orðið alveg stórkostlegt ef inn aftur, voru þeir Oliver og
henni og Enid lenti saman! Ilammond komnir inn, svo að sam
—• Reyndu að koma í veg fyr talið hjá þeim gat ekki orðið
ir það, sagði Jill einbeitt. — Þú lengra.
ert farinn að láta ímyndunarafl- ' Þegar Graham kom aftur frá
ið híaupa með þig í gönur, Davíð . Damaskus, næsta dag, hafði hann
Þetta er ekkert annað en það, j meðferðis falíega sætindaöskju
að Sandra er fyrir karlménn —j handa Söndrú..En Jill fékk aðra
al'la karlmenn. Og þeim lízt líka ! nákvæmlega jafnstóra og svo
vel á hana. Þannig er það og voru ýmsir pakkar handa Enid.
hún getur ekkert að því gert. — Hann er að leggja inn fyrir
Og líklega þeir ekki heldur. En sig, sagði Davíð hlæjandi. þeg-
það hefur engin áhrif á mig. | ar gjöfunum var útbýtt. —
Ég hef alltof mikið að gera í ! Skozkfa varfærnin er sýnilega
eldhúsinu til þess að íenda í efst í honum.
neinvim ævintýrum. Og það er Jill fóy út í eldhúsið til að
ALHLIÐA LYFTUÞJÓNUSTA
UPPSETNINGAR - EFTIRLIT
OTISLYITUR sf.
Grjótagötu 7 sími 2-4250
Hrúturinn 81. mars. — 19. april
Nú reynir á þagmælsku þína. Þig fýsir að fást við ráðagerðir
sem eru ekki nægilega .aunhæfar, en bíddu með pað.
Nautið 20. apríi — 20. maí
Það ei; hættulaust að vera dálítið reikull, ef gætt er hófs.
Tvíburar.iir 21. mai — 30. júní
Margt sr það gott og illt, sem fer huldu höfði. Vandaðu val
kunningjana. Ef bú átt í einhverjum ævintýrum, er víst, að það
verður á alira vitorði á morgun.
Krabbinn 21. jóní — 22. jíiií
Vertu einn, et hægt er Allir eru dálítið málugir.
Ljónið 23. iuli — 22 ágúst
Vertu ekki svona spéhræddur. Gleddu ættingja þína í dag og
kvöld. Reyndu að gera gagn.
Meyjan 23. ági st — 22. sept.
Fáðu sönnur fyrir þeim alvörumálum, sem eru á döfinni. Rann-
sakaðu nánar smáatriðin, áður en þú dómfellir. Þótt vinir þínir
geri að gamni sínu skaltu ekki í fáti eyðileggja neitt fyrir þeim.
Vogin 23. sept. — 22. okt
Aðdráttárafl þitt seiðir fólk og ævintýri... .en farðu vel með
fjármunina.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Karlmenn hafa yfirhöndina í dag, því að konur verða fyrir
meiri og sterkari áhrifum tilfinningalega.
Bogmaðurinn 22. név. — 21. des.
Flýgur fiskisagan. Og þótt þú leggir ekki eyrun við sliku, þá
kann að vera, að þao sért þú, sem ert í klóm og kjafti almennings.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Vinir þír.ir réyna að aívegaleiða þig. Þér er nauðsynleg aðfara
varlega með það, hvaða félaga þú velur þér. Notaðu skipulags-
hæfileikana til að gera þér stranga dagskrá, þér til skjóls.
Vatnsberinn 20. jan. — 13. febr.
Óþolinmæði þín fargar tækifærum dagsins. Athugaðu vel alla
málavöxtu áður en þú semur við nokkurn. Allavega verður samn-
ingurinn aðeins skammvmnur.
Fiskarnir 19. f ebr. — 20. marz
Fólk er annarshugar — jafnvel utan við sig. Notaðu þér þessa
ringulreið að nokkru levti. Geriztu of gírugur, hefur það alvar-
legar afleiðingar,
—