Morgunblaðið - 17.10.1968, Qupperneq 20
20
MORGUNBIiAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 196«
Ashkenazy hyggst
halda jól á islandi
- HUGREKKI
Framhald af bls. 3
hvar sem henni varð við kom
ið“.
Þá minntist sendiherrann á
það frækilega afrek, er áhöfn
Óðins bjargaði skipshöfninni
af Notts Cunty og sagði, að
það væri afrek, sem ætti fáa
sína líka, þegar rætt væri
um frækileg afrek á sjó.
„f þessu tilfelli var - öll
brezka þjóðin sammála um,
að slíkt afrek mætti Land-
helgisgæzlunni íslenzku ekki
leyfast að láta liggja í lág-
inni og vegna þess álits
brezku þjóðarinnar erum við
hér saman komin í dag*‘.
Síðan afhenti sendiherrann
Pétri Sigurðssyni, forstjóra
'Landhelgisgæzlunnar, vegg-
skjöldinn, en í áletruninni er
lýst áðdáun og þökk fyrir
störf Landhelgisgæzlunnar fyrr
og síðar.
Sigurði Árnasyni, skipherra,
afhenti sendiherrann, her-
gráðu orðunnar OBE, sem er
æðsta heiðursmerki, sem
Bretadrottning getur veitt er-
lendum manní Er Sigurður
fyrsti fslendingurinn, sem
hlýtur hergráðu þessarar orðu.
Og sagði um leið: „Það er
ekki erfitt að ímynda sér þá
ábyrgð, sem á yður hvílir
þessa fyrstu daga febrúarmán
aðar. Me'ð þessu heiðursmerki
viljum við tjá skilning okkar
á þessari ábyrgð og aðdáun á
því, hvernig þér brugðuzt við
henni.“
Stýrimönnunum Sigurjóni
Hannessyni og Pálma Hlöð-
verssyni afhenti sendiherrann
gullstig orðunnar „Sea Gall-
antry Medal“ með þessum orð
um: ,,Þið tveir buðust til að
fara með björgunarbátana yf-
ir að hinum strandaða Notts
Country og björguðu áhöfn-
inni. Að þetta skyldi heppn-
ast í slíku veðri sannar ekki
KIRKJUÞING, hið 6. í röðinni
var sett í gær, að lokinni messu
í Nestsfrkju, þar sem séra Þor-
grímur Sigurðsson predikaði. Að
messu lokinni var þingið sett í
safnaðarsai kirkjunnar og var þá
kosin kjörbréfanefnd. Var fundi
síðan slitið, en til annars fundar
boðað kl. 16.
Er fundur hófst að nýju skil-
aði kjörbréfanefnd áliti og kosn-
ir voru fyrsti og annar vara-
forseti, en forseti þingsins er
sjálfskipaður, biskupinn yfir fs-
landi. Fyrsti varaforseti var kjör
inn Þórarinn Þórarinsson, fyrr-
um skólastjóri á Eiðum, en annar
varaforseti séra Gunnar Árnason.
Ritarar þingsins voru kjörnir:
aðeins afburða sjómennsku-
hæfileika ykkar, heldur og
hugrekki og ríka samkennd
með öðrum mönnum".
„Sea Gallantry Medal“ er
eina orðan, sem brezka þingið
veitir, og eru Sigurjón og
Pálmj fyrstu erlendu mennirn
ir, sem hljóta gullstig hennar.
Briam Holt, ræðismaður, las
upp forsendurnar fyrir orðu-
veitingunum.
Að afhendingunni lokinni
hafði svo brezki sendiherrann
boð inn í brezka sendiráðinu.
séra Sigur'ður Guðmundsson,
prófastur á Grenjaðastað og
Steingrímur Benediktsson, skóla-
stjóri í Vestmannaeyjum.
Á fundinum var kosið í fasta-
nefndir, en síðasta dagskrárat-
riðið var skýrsla Kirkjuráðs, er
biskup, herra Sigurbjöm Einars-
son flutti.
- TITANIC
Framhald af bls. 1
angurinn heitir Douglas
Woolley, 32 ára gamall Breti.
Hann sagði að fyrsta stigið
væri að finna flakið, sem tal-
ið er liggja á botninum suður
af Nýfundnalandi. Hann gerði
ráð fyrir að það myndi taka
allt að sex mánuði. Þegar
flakið er fundið verður nælon
belgjum komið fyrir í því og
þeir blásnir upp.
Leiðangur sem þessi er tal-
inn munu kosta a.m.k. tvær
milljónir sterlingspunda.
Woolley kveðst þegar hafa
fundið menn sem viljj kosta
björgunina, en neitar að láta
uppi nöfn þeirra. Hann sagði
og að alltof lengi hefðu verið
uppi getgátur um hvað skeð
hefði nóttina hræðilegu þann
15. apríl 1912, og að nú myndi
kannske allur sannleikurinn
koma í ljós.
Píanósnillingurinn Vladimir
Ashkenazy kom til Islands síð-
degis í gær, frá Glasgow.
, Ashkenazy var að vonum
þreyttur eftir ferðalagið og stöð-
uga tónleika erlendis að undan-
förnu. Kona hans, Þórunn S. Jó-
hannsdóttir, sagði, að Vladimir
væri mjög ánægður yfir að vera
kominn hingað nú og að honum
litizt vel á heimili það, sem þau
- OTA SIK
Framhald af bls. 1
við fréttamenn, m.a. til að gera
ekki gestfjöfum sínum aðstöðuna
erfiðari.
Rússar hafa mjög gagnrýnt Sik
og ásakað hann um að hafa
reynt að koma á auðvaldsskipu-
lagi í Tékkóslóvakíu, og að hafa
aukið mjög viðskipti við vestræn
lönd. Nafn hans var oft nefnt í
hugmyndafræðilegum ri.tum í
Rússlandi, þegar verið var áð
réttlæta og útskýra innrásins í
Tékkóslóvakíu.
- ELDUÐU MAT
Framhald af bls. 1
Eisele sást taka eitt'hvert áhald
sem líktist ryksugu og bera það
að pollinum meðan Schirra út-
skýrði það sem fram fór.
— Hann sogar vatnið í þetta
tæki. Þetta er töluverður pollur
svo að það tekur dálítinn tíma.
Þegar hann er búinn að soga
þetta allt upp, er því sleppt út í
geiminn, um sérstaka ventla. —
Þegar hreingerningunni var lok-
ið var vélinni beint um stjórn-
klefann og sýnd stjórntæki og
mælar.
Þegar sjónvarpsþættinum lauk
reyndu þeir félagar eldflaugar-
hreyfilÍQn sem á að nota til að
stjórna geimhylkinu í tunglferð-
inni og sögðu á eftir að hnykk-
urinn hefði verið svona álíka og
þegar tveir „tívolí bílar“ rekast
saman.
Skömmu síðar fór geimfarið
yfir Kanaríeyjar og Eisele, sem
var við stjórntækin, sagði við
William Pougue, sem var við tal-
stöðina á jörðu niðri:
„Hey Bill, biddu turninn um
flapsa gráðu“ (það gera flug-
menn á farþegavélum þegar þeir
koma inn til lendingar".
„Allt í lagi Don, og þú ættir
að aðgæta hvort eldsneytisgjaf-
irnar séu rétt stilltar."
Það heyrðist hlátur frá geimfar
inu og þeir félagar héldu áfram
að gantast þar til Schirra tók við
stjórninni. (William Popue, er
einn geimfaraefnanna sem kom
til fslands í fyrrasumar).
Seinnihluta dagsins flugu geim
fararnir yfir hvirfilvindinn
Gladys og gáfu upp nákvæma
staðarákvörðun hans. Þessu var
komið áfram tii „Hvirfilvinda
miðstöðvarinnar" og þegar
Sehirra var sagt það sagði hann:
— Biddu þá um að koma hon-
um burt fyrir næsta þriðjudag.
Þá á geimfarið að lenda á þeim
slóðum, og því var að sjálfsögðu
lofað.
hjón hafa stofnað hér á íslandi,
en þegar Ashkenazy var á ferð
hér síðast voru þau hjónin ekki
flutt í húsið.
Ashkenazy hefur aðeins stutta
viðdvöl hér a'ð þessu sinni, en. á
næstunni heldur hann hljómleika
í París, Hollandi, Danmörku, Sví-
þjóð og Bandaríkjunum. Þau
hjón hyggjast þó halda jól hér á
landi í vetur.
- KOSYGIN
Framhald af bls. 1
var frá undirbúningsatriðum
samningsins. AP fréttastofan
segir, að það hafi vakið mikla
athygli, að hvorki Ludvik Svo-
boda, forseti né Alexander Dub-
cek, flokksleiðtogi hafi tekið á
móti Kosygin þar sem allir
æðstu leiðtogar Sovétríkjanna
hafi fagnað Cernik í Moskvu og
með þeim forsætisráðherrum
hafi kveðjur verið kaldar og
hvorki viðhöfðu kossar né faðm
lög, eins og venja sé þegar hátt-
settir fulltrúar kommúnistaríkja
hittist. Stjórnmálafréttaritarar
benda á, að sú staðreynd, að
hvorki Dubcek né Svoboda hafi
tekið á móti Kosygin bendi til
þess, að Tékkóslóvakar vilji með
því sýna leiðtogum Sovétríkj-
anna, að hér sé um algera nauð-
ungarsamninga að ræða. Síðar 1
dag hitti Kosygin þó Alexander
Dubcek að máli.
í ræðu, sem Alexei Kosygin
hélt eftir að samningurinn hafði
verið undirritaður sagði hann,
að megintilgangurinn með hon-
um væri að tryggja öryggi Tékkó
slóvakíu og efla hagsmuni hins
■sósialiska þjóðfélags, svo að það
fengi staðið gegn áhrifum heims
valdasinna og endurskoðunar-
sinna. Hann sagði, að samningur
inn væri byggður á gagnkvæmu
trausti milli kommúnistaflokk-
anna, ríkisstjórnanna og þjóð-
anna í þessum tveimur löndum.
Kosygin sagði, að hersveitir frá
Póllandi, Ungverjalandi, Austur-
Þýzkalandi og Búlgaríu myndu
hverfa frá Tékkóslóvakíu áður
en langt um liði og Sovétríkin
myndu standa við þau skilyrði
samningsins um að flytja meiri-
hluta sovézka hernámsliðsins
einnig á braut. Forsætisráðherr-
ann sagði, að brottflutningur
herjanna væri ákveðinn vegna
þess að leiðtogar Austur-Evrópu
ríkjanna væru sannfærðir um, að
Tékkóslóvakar myndu halda
áfram þeirri viðleitni sinni að
koma ástandinu í landinu í eðli-
legt horf og tékkneska þjóðin
myndi aldrei leyfa and-sósialisk-
um öflum að stöðva þá þróun.
Kosygin sagði að nauðsynlegt
væri að gera allt sem unnt væri
til að efla traust og vináttu milli
þjóðanna tveggja og ekkert
mætti verða til að grafa undan
því. Kosygin réðst á Atlantshafs
bandalagið og Vestur-Þýzkaland
sérstaklega fyrir að hafa sýnt
óeðlilegar áhyggjur af málefn-
um Austur-Evrópuríkja.
NTB fréttastofan segir, að
þetta sé í fyrsta skipti síðan 1946,
að sovézkt herlið er í Tékkó-
slóvakíu með leyfi stjórnarvalda.
Bandaríska blaðið The New
York Times segir frá því á for-
síðu í dag, að Gromyko, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, hafi
nýlega fullvissað Dean Rusk um
að Vestur-Berlín yrði ekki fyrir
neinum ógnunum né valdbeit-
ingu af hálfu Austur-Evrópu-
ríkja í náinnj framtíð. í frétt
blaðsins eru ábyrgar heimildir 1
Vestur-Evrópu bornar fyrir þess
ari staðhæfingu og sagt að
Gromyko hafi fullvissað Rusk um
þetta í New York þann 6. októ-
ber sl. Bandaríska utanríkisráðu
neytið hefur neitað að segja nokk
uð um þessa frétt og vill hvorki
síaðfesta sannleiksgildi hennar
né neita því.
Nauðungaruppboð
amnað og siðasta á hluta í Bragagötu 22, hér í borg,
þkngl. eigm Jóns Brynjólfssonar fer fram á eigninnd sjálfri,
máraudaginm 21. október 1968, kl. 10.30.
Borgarfógctaembættið í Reykjavík.
N auðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og tollstjórans
í Reykjavík fer fram nauðuragaruppboð að Síðumúla 20
hér í borg, (Vöku h.f.) máraudagiran 21. október n.k.
kl. 13.30 og verða þar seldar eftirtaldar bifreiðar:
R-985, R-1375, R-2987, R-3249, R-3880, R-4342, R-4450,
R-5280, R-5531, R-5723, R-6023, R-6360, R-7498, R-7679,
R-8263, R-8792, R-8967, R-9971, R-10638, R-11376,
R-11435, R-11523, R-12569, R-12601, R-13602, R-13913,
R-14256, R-14472, R-14835, R-15468, R-15730, R-16127,
R-16464, R-16832, R-16979, R-17037, R-17293, R-17790,
R-18791, R-19164, R-19279, R-19451, R-19566, R-19620,
R-19672, R-20050, R-20108, R-20447, R-20461, R-20574,
R-20843, R-21230, R-21520, R-21904, R-22167, R-22271,
R-22350, R-22469, R-22482, G-1163, Y-1922, Fiat 600 árg.
’65, Citroen árg. ’63, Volkswagen árg. 1965, Merc. Benz
árg. 1962. Eranfremur traktorsgrafa Rd. 151, 2 skurðgröf
ur, 2 vörulyftarar og 2 loftpressur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
UPPBOD
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og fleiri kröfu-
hafa verða ýmsir lausafjármunir seldir á opinberu
uppboði í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu í Hafn-
arfirði í dag, fimmtudaginn 17. október, kl. 17.00.
Seld verða sjónvarpstæki, útvarpstæki, ísskápar,
þvottavélar, peningaskápar, bækur og húsgögn.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Steingrímur Gautur Krlstjánsson, ftr.
Kirkjuþing sett í gær