Morgunblaðið - 17.10.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1968
19
Eggert Hauksson:
Þingmenn úr stjórnum
opinberra stofnana —
Aukaþing SUS leggur til, að óheim-
ilt verði að kjósa Alþingismenn í yfir-
stjórnir ýmissa menningarstofnana og
atvinnufyrirtækja, sem Alþingi kýs
stjórn í.
Hvers vegna?
Ein ástæðan er sú, að ungir Sjálf-
stæðismenn á'líta völd og itök stjórn-
málamanna vera of mikil á hinum ýmsu
sviðs íslenzks þjóðlifs.
Önnur ástæðan er sú, að ungir Sjálf-
stæðismenn telja, að oþinberar stofnan-
ir megni síður að þjóna hlutverki sínu
sem þjónustu- og hagsmunastofnanir al
mennings, ef hætta er á, að stjórnmála-
hagsmunir ríki um of í stjórn og starfi
slíkra stofnana.
Þriðja ástæðan er sú, að ef stjórnum
opinberra stofnana á að vera kleift að
gegna hlutverki sínu, þá krefst það að
öðru jöfnu slíks tima og sérþekkingar á
eðli og starfsemi viðkomandi stofnun-
ar, að vafasamt sé, að slíkt fari endi-
lega saman við störf og annir Alþingis-
manna.
Eins og auðsýnt er, brýtur þessi
krafa ungra Sjálfstæðismanna gjörsam
lega í bága við ríkjandi hefð í þessum
efnum.
Mörgum er ljóst, að það er ekki á-
vallt ásælni þingmanna í aukin völd
og áhrif né vantraust þeirra í garð
annarra manna, sem veldur því, að þeir
tilnefna gjarnan sjálfa sig fremur en
aðra til þess að fara með yfirstjórn op-
inberra stofnana. Léleg laun þing-
manna, sem hrökkva naumast fyrir
nauðþurftum, krefjast þess, að þeir afli
sér víðar viðurværis. Er þá auðveld-
ast að 'leita á eigin náðir, þar sem sam-
an fer ágætt kaup og lítil vinnuharka.
Þótt laun laun þingmanna séu
léleg, er þetta þó síður en svo æskileg
eða eðlileg leið til þess að leysa þann
vanda.
Á þirngi SUS kom fram sú hugmynd
að stjórnarsæti hinna einstijku opin-
beru fyrirtækja yrðu auglýst laus til
umsóknar og þau síðan veitt á grund-
vélli reglna, sem geri auknar kröfur
til hæfni og menntunar stjórnarmanna.
Þessi hugmymd er athyglisverð. Hvort
heldur, sem hún bendir á rétta leið til
úrbóta eða ékki, þá skiptir hitt höfuð-
máli, að sá háttur, sem nú er á hafður
við skipan manna í yfirstjórnir opin-
berra stofnana, tryggir ekki, að nægi-
legs aðhalds sé gætt í starfsemi þeirra.
Aðhaldsleysi og „gæzla stjórnmála-
hagsmuna" í yfirstjórnum opinberra
stofnana er hins vegar ein helzta or-
sök þess, hve il'la þeim gengur stund-
um að ná settu marki.
Á aukaþingi SUS kom ennfremur
fram andstaða gegn því, að bankastjór-
ar ríkisbanka gætu átt sæti á Alþingi.
Rökin sem færð eru fyrir því, eru í
megin atriðum hin sömu og þau, sem
gilda um setu þingmamna í yfirstjórnum
opinberra stofnana, — með þeim á-
herzlumun þó, að enn ríkari ástæða
virðist vera til þess, að bankastjórar
víki af Alþingi heldur en þingmenn úr
stjórnum opinberra stofnana, einkum
þar sem sú hætta er ávallt fyrir hendi
að vinsældir þeirra sem þingmenn stafi
öðru fremur af vinsældum þeirra sem
„góðir“ bankastjórar. Þess eru dæmi í
nágrannalöndum að bankastjórar séu
ekki kjörgengir til löggjafarþings.
Aukaþing SUS hefur orðið tilefni um-
ræðna og umhugsunar innan og utan
raða Sjálfstæðismanna. Þetta þing var
haldið í því skyni að beizla þá orku,
sem er _að leysast úr læðingi hjá ungu
fólki á íslandi. — Það er eins og klaka
stífla sé að bresta og áfram belji straum
urinn, sem engu þyrmir. Hvernig sem
fer og hvaða stefnu sem þessi straum-
ur tekur, þá boðar hann ný viðhorf og
nýja tima á íslandi. Hann fær enginn
stöðvað úr þessu.
Þess verður vart, að fulltrúum þeirr-
ar kynslóðar, sem mótar stjórnmálalíf
þjóðarinnar í dag, finnist æskan fella
þungan dóm byggðan á vanþakklæti
fremur en raunhæfu mati á öllum að-
stæðum fyrr og nú. Það er einnig spurn
ing, hvort þeir, sem nú gagnrýna mest
hefðu gert betur.
Framtíðin skiptir þó höfuð máli. Þeir
stj órnmálamenn og stjómmálaflokkar,
sem hika við að hlýða kalli nýrrar
kynslóðár og nýrra viðhorfa, 'hljóta fyrr
en síðar að heltast úr lestinnL
Sportkruft
Ný verxtun
á Akureyri
Lœknaskortur
vandamál Austfjarða
Breiðdalsvík, 15. október.
ÞETTA sumar var óvenju stutt
til heyöfíunar. Alkunnugt er,
hve seint spratt, sláttur hófst
því um mánuði síðar en venju-
lega, eða um mánaðamót júlí-
ágúst.
Reyndin varð sú, að aðeins
ágústmánuður var sæmilega hag
stæður til heyöfltmar, en síðan
má telja látlausa ótíð og eiga
bændur því enn úti hey og sum-
ir verulegt.
Slátrun gripa :er langt komið,
og að sögn vigtarmanns reynast
íömb í löku meðallagi. Endanleg
ar tölur liggja þó ekki fyrir enn
þá. \
Byggingarframkvæmdir eru tal
verðar, einkum þurrheyshlöður
og peningshús.
Vegabætur eru meiri en venja
er. T.d. var fullgerður vegurinn
sunnan í Breiðdalsheiði og byggð
brú á Breiðdalsá við heiðina.
Nú er unnið í vegi hjá Asunni-
arstöðum, sem ekki verður þó
fulllokið í haust. í Stöðvarfirði
var ýtt upp kafla vestan þorps
ins, en langstærsta átakið í vega
máhim er þó Vattarnesvegur,sem
unnið hefur verið við í allt sum-
ar, enda til hans stærsta fjár-
veiting, sem veitt hefur verið til
vega á Austurlandi.
Eitt alvarlegasta vandamálið
á Austfjörðum er læknaskortur-
inn. Ráðamenn standa ráðþrota
og efast ég þó ekki um góðan
vilja þeirra. En í þessu efni verð
ur að leysa vandann.
— FréttaritarL
Saumakonur óskast
Aðeins vanar koma til greina.
PRJÓNASTOFAN IÐUNN H.F.
Skerjagötu 1, Seitjarnamesi.
#
Hringstigor og pallstigor
í íbúðarhúsnæði og verksmiðjur.
VÉLSMIÐJAN TRAUSTI,
Skipholti 21 — Sími 20850.
Iðnaðarhúsnæði ósknsl
til kaups um 300 ferm. jarðhæð. Til'boð óskast sent
/
Mbl. merkt: „2165“ fyrir 22. október.
var
Akureyri, 13. október.
NÝ verzlun, Sportkraft,
opnuð í Strandigöbu 11 í gær. Eig
endur eru hjóniin Jórunin Sæ-
miundsdóttiir og Jón Ævar Ás-
'gtrímssom. Hjalti Þonsteinsson
hefir vierið með í ráðum um
vöruival, en Davíð Haraldsson
um búrnað verzlumarinner og út-
lát.
í V'erzkunirmi eru til sölu alts
ikonar íþróttavörur til innianhúss-
og utamhússíþrót’ta snrmar og
vetuir, svo sem íþró ttabúniiingar,
skautar, skíðL ísihockeyútbún-
aður, kmettiir o. fl. Einmig eru
sieldar spomtvörur hvens komar,
svo sem rifflaa-, haglaibyssur,
ekotfæri, vedfðistemigur ag veiði-
tæki af morgiu tagi. Þá má nefna
viðlegubúnað, báta úr tnefjiaglieri
og leik'tæki ýmisleg.
Auk alls þessia er til sölu bíla-
lakk og síðar gluggalatkk.
Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu
I 22 - 24
SÍMAR: 30280-32262
Gólfdúkur — plast- vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7 Vixl5, 11x11 og 15x15.
Ameriskar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf„ Málning hf. og Slipp-
fél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgisk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
JAPANSKAR TÁTILJU
Seljum í dag og nœstu daga japanskar tátiljur, fyrir börn, unglinga
og kventólk — Verð krónur 53,oo, krónur 56,oo, krónur 69,oo.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.
SKOVAL
Austurstræti 18,
Eymundssonarkjallara.