Morgunblaðið - 17.10.1968, Qupperneq 4
-j 4
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1968
►
*
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaucaveei 12. Simi 35135.
Eítir lokun 34936 o( 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstíg 31
siM'1-44-44
mmwiR
Hverfisfföta 163.
Simi eftir lokun 31166.
MAGIMÚSAR
ikiph otn21 mmar21190
fftir lokim «)*•■' 403 81 ^
0 Reykingar við stýrið
í SVARI Velvakanda viS bréfi
G.Í.S. 8. þ.m. var sagt, að Vel-
vakanda rámaði 1, að einhvern-
tíma hafi verið bannað að reykja
við akstur bifreiða og einhvers-
staðar væri ef til vill ákvæði um
það. Nú hefur einn lesandi dálk-
anna sent Velvakanda eintak af
umferðarlögunum og vakið at-
hygli hans á ákvæði í 24. grein
þeirra laga. Þar segir: — „Tób-
aksreykingar eru bannaðar við
akstur leigubifreiða til mann-
flutninga“. — Þá vitum við það,
og ekki þarf að draga í efa að
öllum leigubílstjórum sé það
ljóst.
En úr því farið er að minnast
á umferðarlögin er ekki úr vegi
að geta lítillega fleiri ákvæða
þeirra. öllum er ljóst, að ekki má
aka bifreið ef viðkomandi hefur
neytt áfengis, eða deyfandi lyfja.
En það er fleira en áfengi, sem
getur gert menn óhæfa til að
stjórna ökutæki, t.d. ef ökumaður
vegna veikinda, ofreynslu, og
svefnleysis er haldinn slíkri
þreytu ’eða sljóleika, að hann
geti ekki stjórnað ökutæki á
tryggilegan hátt.
Og lítum á 26. greinina. Þar
segir: , .ökumanni er skylt að
sýna prúðmennsku og varkárni
gagnvart farþegum og öðrum veg
farendum. ökumaður skal hafa
góða útsýn úr sæti sínu frameftir
vegi og til hliðar. Hann skal
ávallt gæta þess, að ökutæki og
búnaður þess, einkum stjórntæki,
hemlar, ljósker og merkjatæki
séu í fullkomnu lagi. — ökumað-
ur vélknúins ökutækis skal hafa
gát á, að notkun þess valdi ekki
óþarfa hávaða, reyk, gufu eða
óþef'.
Já, góðir ökumenn, hvernig
væri að kynna sér umferðarlögin
betur. Velvakandi hefur þegar
ákveðið að lesa kverið — og er
þess fullviss að þeim tima, sem í
það fer, er ekki illa varið.
0 Innheimta
afnotagjalda
S.P. VILL meiri ráðdeild við
innheimtu afnotagjalda hljóð-
Ibúðir til sölu
4ra herbergja íbúð við Jörvabakka 14.
Upplýsingar á byggingarstað kl. 8—6 og í síma
35801 og 37419.
MIÐÁS H.F.
varps og sjónvarps. Bréf hans fer
hér á eftir:
„Kæri Velvakandi.
í Ríkisútvarpinu heyrast nú
stöðugt tilkynningar um að N.N.
sé umboðsmaður hljóðvarps og
sjónvarps á einhverjum tiltekn-
um stað, hann hafi sett upp skrif-
stofu og fengið sér síma og eru
menn áminntir að standa skil á
afnotagjöldum til þess heiðurs-
manns.
Gjöldin er rétt að greiða, en
skemmtilegra væri að ekki færi
stór hluti þeirra í innheimtu-
kostnað. Er það kannski í sparn-
aðarskyni, að komið sé upp heil-
um her af embættismönnum ríkis-
útvarpsins í því skyni að inn-
heimta afnotagjöld í stað þess að
nota til þess þann aragrúa af
bankastofnunum, sem fyrir eru i
landinu eða þá pósthúsin? Ég
held að síðari leiðin hljóti að
verða ódýrari og menn geti þá
greitt gjöld sín til hljóðvarps- og
sjónvarps mátulega sannfærðir
um að þar sé ráðdeildarlega með
fjármuni farið. Ég hef líka verið
að velta því fyrir mér, hvort
heimild hafi verið í fjárlögum til
ráðningar þessara innheimtu-
manna. Svari nú þeir, sem vita.
Með kveðju
S.P.“
Q Árangurslaus bið
„Strætóvilltur“ skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Eg hef skrifað þér áður, Vel-
vakandi góður en 1 þetta sinn er
annað mál á dagskrá. Það er
nefnilega með þennan vagn, leið
19 — 20, sem áður hefur verið rit-
að um í Velvakanda. Ég beið
eftir leið 19 — 20 á horni Réttar-
holtsvegar og Bústaðarvegar laug
ardaginn 5. okt. Ég var að fara á
völlinn til að sjá leik Í.B.V. og
K.R. b. Leið 19 —20 gengur alla
leið frá Réttarholtsvegi niður á
torg og þaðan að Melavelli, og
það var í þeim tilgangi að ég
ætlaði að taka leið 19 —20. Ég
varð að bíða til klukkan 2.30, en
þá fór ég að verða óþolinmóður
og spurði næsta vegfaranda, hve-
nær leið 19 —20 kæmi. Hann svar-
aði því til, að vagninn hefði hætt
að ganga kl.l. Ég varð bál-ösku-
vondur, og er engin furða því
nú þurfti ég að taka annan vagn
niður í bæ. Hann kom klukkan
2.30 og var kominn niður í bæ
klukkan 2.45. Ég hljóp upp á
Melavöll og kom kl. 2.55 og hafði
misst af 25 mínútum af leiknum.
Þetta hefur komið fyrir, mig
áður þegar ég ætlaði að fara á
bíó og beið eftir vagninum til kl.
8.40. Þá fór ég heim og var sagt
að hann hefði hætt að ganga kl. 7,
svo ég hélt auðvitað að vagninn
gengi líka til kl. 7 á laugardögum.
Ég vona að bréfið lendi ekki
í „gúanóinu", því að ég ætla að
biðja Strætisvagna Reykjavíkur
að koma upp skilti á öllum stöð-
um þar sem vagninn stoppar og
þar skrifaður áætlunartími vagns-
ins.
Að lokum vil ég skila kærri
kveðju til sjónvarpsins, með von
um skjótan bata, því það hefur
verið svo frámunaniega leiðinlegt
undanfarið, og fréttirnar er varla
hægt að horfa á nema Eiður Guðna
son segi þær. Og allra síðast, Vel-
vakandi minn, kær kveðja til þín,
sem hefur verið annað helzta les
efni mitt í Mogganum (íþróttir
eru númer eitt). Þökk fyrir birt-
inguna. strætóvilltur"
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14976 eða 31748.
Sigurður Jónsson.
Höfum til sölu
Dodge weapon bifreiðar með
bensín. og dísilvélum.
Úrval bifreiða af ýmsum gerð
um ávallt á sölulista hjá
okkur.
Höfum kaupendur að dráttar-
vélum af öllum stærðum.
Bíla- og btivélasalan
við Miklatorg - Símd 23136.
BÍLAR
Mercedes-Benz 200, dísil.
mjög vel með farinn, ’66.
Hillman Minx ’68.
Toyota Crown ’65.
Voikswagen ’68.
Lincoln ’57, einkabíll.
Saab ’66.
Okkur vantar allar tegund-
ir smábíla, Landrover og
Bronco.
guomundar
Bergþórugtitu 3. Simar XM3Z, 20919
SAMKOMUR
K.F.U.M. — A.D.
Fundur í húsi félagsins við
Amtmannsstíg í kvöld kl. 8.30.
Séra Jóhann Hannesson, próf.,
flytur erindi: Sértrúarflokkar
I. Vottar Jehóva. — Allir
karlmenn velkomnir.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma í kvöld
að Óðinsgötu 6 A kl. 20.30.
Allir velkomnir.
FVRIR 1500 KRÓNUR
0 mánuði og 1500
krónur út getið þér
eignazt borðstofu-
borð með eins
mörgum borðstofu-
stólum og þér óskið
EMSTAKT
TLB09
Þér getið valið á milli
10 tegunda af borð-
stofustólum, margra
gerða af borðum og -
80 lita af áklæðum eða
skinnlíki.
i-------- -------------r
r ] i
Sími-22900 Laugaveg 26