Morgunblaðið - 17.10.1968, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÚDAGUR 17. OKTÓBER 1968
Ný 50 kr. mynt gefin
út 7. desember nk.
í fréttabréfi Landsambands ís
lenzkra frímerkjasafnara er kom
út fyrir skömmu var frá því
skýrt að Seðlabanki tslands
mundi á 50 ára afmæli fullveld-
is Íslands gefa út afmælismynt,
sem ffilti 50 kr.
1 gær sendi Seðiabankinn út
fréttatilkynningu, þar sem frétt
þessi er staðfest. Fer fréttatil-
kynningin hér á eftir.
„Seðlabanki fslands tók, sem
kunnugt er, við myntsláttu á sl..
vori. Var þá gerð grein fyrir
fyrirætlunum bankans um endur
skipulagningu mynt- og seðlaút-
gáfu, er reynt yrði að koma í
framkvæmd á nokkurra ára tíma
bili. Meðal helztu breytinganna
er, að gefnar verða út nýjar
myntir í stað smæstu seðlastærð-
anna, og var fyrsti áfangi þeirra
útgáfa 10 kr. penings, sem kom
í umferð í maímánuði. Meðal
annarra breytinga, sem fyrirhug
aðar hafa verið, er slátta 50 kr.
penings, enda yrðu þá 25 kr.
seðlar smám saman teknir úr um-
ferð.
Nú hefur verið ákveðið að
gera tilraun með útgáfu 50 kr.
penings með þeim hætti, að hann
verði í fyrstu sleginn sem minnis
peningur í tilefni 50 ára full-
véldis íslands hinn 1. desember
n.k. Verður þessi útgáfa með sér
stakri áletrun, en peningurinn er
auk þess atlfrábrugðinn þeim
myntum, sem nú eru í umferð. Á
annarri hlið peningsins verður
mynd' af Alþingishúsinu, en
hinni verðgildi hans. Er pening-
urinn gerður eftir uppdrætti
teiknaranna Þrastar Magnússon
ar og Hilmars Sigurðssonar hjá
auglýsingastofunni Argus.
Verður peningurinn að stærð
30 mm og gerður úr nikkeli.
Hann fær fullt myntgildi frá upp
hafi, en seinni útgáfum verður
breytt með því að fella niður á-
ritunina, sem tengd er fullveld-
isafmælinu. Minnispeningsútgáf-
an verður 100.000. Er upplagið
ákveðið með tilliti til myntsöfn-
unar annars vegar, bæði innan-
lands og utan, og hins vegar
með hliðsjón af því, að hluti upp
lagsins fer í almenna peninga-
umferð. Bankinn mun bjóða til
sölu öskjur með peningnum.
Mynd af peningnum er ekki
fyrir hendi ennþá, en rétt þótti
að birta þessa frétt nú þar sem
birzt hafa villandi fréttir í blöð-
um og útvarpi varðandi þessa
myntútgáfu".
Nóbelsverðlaunahafarnir í IæknisfræSi í ár: Frá vinstri Marshall W. Nirenberg, Har Gobind
Khorana og Robert Holley.
Neitar orðrómi um
stöðvun loftárása
- Báðir aðilar segja að allt sitji við sama
Nóbelsverðlaunin í lceknisfrœði:
Veitt fyrir rannsóknir
á erfðalyklinum
Washington 16. október, AP
JOHNSON, forseti hefur borið
til baka orðróm um að Banda-
ríkin ætli að hætta öllum loft-
árásum á Norður-Vietnam ein-
hvern næstu daga. Þessi orðróm
ur komst á kreik eftir þrjá
fundi sem Ellisworth Bunker, am
bassador, og Van Thieu, forseti,
héldu með sér á miðvikudag að
beiðni hins fyrrnefnda. Það
styrkti orðróminn að Le Duc
Tho, ráðgjafi Norður-Vietnam
við friðarviðræðurnar í París,
hélt heimleiðis í gær og kom við
í Kreml til að ræða við Kosygin.
Johnson, forseti, hafði síma-
símasamband við frambjóðend-
uma þrjá til forsetakjörsins, þá
Nixon, Humphrey og Wallace, til
að segja þeim að ekkert hefði
breytzt.
f tilkynningu sem hann las
upp fyrir þá sagði, að afstaða
Bandaríkjanna til stríðsins í Ví-
et-Nam væri óbreytt og engar
miklar stefnubreytingar væru
Sinfóníu-
tónleikar
d Akranesi
AÐRIR tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar fslands utan
Reykjavíkur verða haldnir á
vegum Tónlistarfélags Akraness
fimmtudaginn 17. þ.m. í Bíóhöll-
inni.
Stjóm hljómsveitarinnar legg-
ur mikla áherzlu á að halda
tónleika sem allra víðast um
landið og hefur um það sam-
vinnu við tónlistarfélög á hverj-
um stað.
f byrjun september hélt hljóm
sveitin tónleika í Vestmanna-
eyjum og fyrirhugaðir eru tón-
leikar hjá Tónlistarfélagi Garða-
hrepps 31. október. Tónleikar á
vegum Tónlistarfélags Keflavík-
ur verða fimmtudaginn 14. nóv.
Á tónleikunum á Akranesi 17.
þ.m. verða flutt verk eftir
Haydn, Halvorsen, Bizet, Rossini
og Strauss.
Hljómsveitarstjóri verður
Sverre Bruland.
ráðgerðar á næstunni.
Um svipað leyti hófst 26. við-
ræðufundur samningasveitanna í
París og hvorugur aðilinn viður
kenndi að miðað hefði í sam-
komulagsátt. Norðurvietnamar
halda enn fast við að Banda-
ríkjamenn hætti loftárásum án
nokkurra skilyrða, en Banda-
ríkjamenn vilja fá tryggingu fyr
ir því að það leiði til alvarlegra
friðarviðræðna, sem strax bæru
einhvern árangur. Þeir vilja einn
ig fá tryggingu fyrir því að
Norðurvietnamar noti sér stöðu
muninn ekki til aukinna hernað-
araðgerða.
Stokkhólmi, 16. okt.
NTB, AP.
ÞRÍR bandarískir vísinda-
menn hlutu Nóbelsverðlaunin
í læknisfræði í ár, sem Kon-
unglega sænska Karolinska-
stofnunin veitir. Þeir heita
Marshall W. Nirenberg, Har.
Gobind Khorana og Robert
W. Holley. í greinargerð stofn
unarinnar segir, að þeir hljóti
verðlaunin fyrir skýringar
sínar á erfðalyklinum og starf
hans við framleiðslu á eggja-
hvituefnum. Verðlaunaupp-
hæðin er að þessu sinni 350
þús. sænskar krónur og skipta
vísindamennirnir upphæðinni
jafnt með sér.
Vísindamennirnir starfa all
ir sjálfstætt að rannsóknum
sínum, en þær beinast að því
að leysa sameiginlega vanda-
mál á sviðum sameindaefna-
fræðinnar. Nirenberg er yfir-
maður lífefnafræðdeildar við
The National Hsart Institute
í Bethesda. Hann er fæddur í
New York ríki árið 1927 og
lauk þrófi frá háskólanum í
Florida og tók síðar doktors-
gráðu sína í lífefnafræði við
Michigan háskóla árið 1957.
Árið 1'965 sæmdi Johnson
Bandaríkjaforseti hann sér-
stöku heiðursmerki fyrir rann
sóknir sínar. Rannsóknarsvið
hans beinist einkum að því —
fyrir utan rannsóknir hans á
erfðalyklinum — hvernig
efnafræðilegri uppbyggingu
kjarnasýru er háttað.
Robert William Holley er
prófessor í lífefnafræði við
Cornell-háskólann í íþöku.
Hann er fæddur árið 1922. Að
alviðfangsefni hans hafa verið
myn(?U|i eggjahvítusamsetn-
inga og kjarnasýra.
Har Gobind Khorana er
prófessor við háskólann í
Wisconsin. Hann er fæddur í
Raipur á Indlandi 1922. Hann
lauk prófi frá indverskum há-
Sonur minn Sinfjötli
kominn út á dönsku
Komin er út á Dönsku bók
Guðmundar Daníelssonar, Sonur
minn Sinfjötli. Forlagið Fremad
gefur bókina út, en það hefur
áður gefið út á dönsku skáld-
sögu Guðmundar, Húsið.
Ekki togarinn
j Víkingur
heldur Víkingur IIIJ
Sonur minn Sinfjötli nefnist
Sværdet og Harpen í hinni
dönsku þýðingu Grethe Bene-
diktsson. Efni skáldsögunnar er
sótt í Eddukvæðin og Völsunga-
sögu og eru aðalpersónur henn-
ar Sigmundur Völsungur, Signý
systir ha-ns og frændsystkini
þeirra, drengurinn Sinfjötli.
Húsið fékk mjög góða dóma í
Danmörku og var m.a. lesin sem
Tshombe ekki
framseldur
Genf 16. október. NTB.
ÞESS skal getið, að frásögn
Morgunblaðsins um sjópróf
ijvarfs hrezka ,t"?ar; SADRUDDIN Aga Khan, prins
ans St. Romanus, sem birtist aj vfjrmn?fl]1. fiöttamannahiálnai
forsíðu Mbl. í gær er byggð á
frásögn brezku blaðanna The
Times og Sunday Times. i
f frásögn brezku blaðannal
er talað um Víking in. Þaul
mistök urðu í þýðingunni aði
talað var um togarann Vík-|
ing, en þar átti auðvitað aðJ
standa vélbáturinn Víkingurl
m. Biður blaðið afsökunar á(
þessum mistökum.
yfirmaður
Sameinuðu þjóðanna sagði á
blaðamannafundi í dag, að Alsír
myndi ekki framselja Moise
Tshombe til Kongó. Prinsinn
sagði þetta á blaðamannafundi
og bætti því við, að stjómin í
Alsír hefði fullvissáð sig um
þetta þegar hann var á ferð þar
fyrir skömmu. Hann sagði að
ríkisstjórnin reyndi að finna
mannúðlega lausn á Tshombe
vandanum.
Kápusíða Sværdet og Harpen.
framhaldssaga í danska útvarp-
ið í fyrra. Báðar þessar bækur
hafa verið lagðar fram af ís-
lands hálfu við úthlutun bók-
menntaverðlauna Norðurlanda
ráðs.
Guðmundur Daníelsson tjáði
Mbl., að bókin væri rituð á ár-
inu 1959-1960 og komið út haust-
ið 1961. Hann sagði, að utan
þessara bóka hefði ekkert ver-
ið þýtt af bókum hans, en smá-
sögur hefðu birzt í bókmennta-
tímaritum í Þýzkalandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Bandaríkjun-
um.
skóla 1943 og síðar háskólan-
um í Liverpool. Khorana hóf
feril sinn sem efnafræðingur
í lífrænni efnafræði og á ár-
unum 1950-1952 starfaði hann
með Nóbalsverðlaunahafan-
um A. Todd í Cambridge á
Englandi við að byggja upp
flókin efnafræðisambönd, sem
eru kölluð nucleotides. Hann
hófst síðar handa um tilraun-
ir til að sameina ýmsar teg-
undir nucleotida í því augna-
miða að byggja upp kjarna-
sýrur með þekktum röðum af
nucleotidum. Með því að
Khorana tókst að framleiða
gervikjarnasýrur á þennan
hátt varð mögulegt að rann-
saka 'erfðafræðilega þætti
ýmissa annarra amminosyra.
í kringum árið 1960 gerðu
vísindamenn um allan heim
víðtækar rannsóknir varðandi
erfðalykilinn og unnu við þær
bæði heimsfrægir vísinda-
menn og lítt þekktir. Það var
Nirenberg sem fann lausnina
1961, en hann var þá óþekkt-
ur með öllu.
Lausnin á erfðalyklinum
hefur valdið gjörbreytingu
hvað snertir lausn margs kon
ar vandamála í lífefnafræði
og hjálpar til að leysa vanda-
mál um byggingu á kjarna-
sýrum og eggjahvítuefnum og
skýrir hvernig gen frumunn-
ar stjórna starfsemi hennar.
Hollur tonn-
læknir lotinn
HALLUR L. Hallsson, einn elzti
tannlæknir landsin3 og sá sem
manna lengst hefur annast tann
viðgerðir Islendinga, er látinn.
Hann lézt á heimili sínu sl. laug
ardag, 78 ára að aldri.
Hallur var fæddur að Syðstu
Görðum í Kolbeinsstaðahreppi
árið 1890. Hann lauk prófi frá
Tannlækningaskólanum í Kaup-
mannahöfn 1923 og stundaði tann
lækningar í Reykjavík frá 1924
og til dauðadags, eða í 44 ár.
Hallur yar í stjórn Tannlækna-
félags Islands frá stofnun þess
1927 og var síðar formaður þess.
Hann var heiðursfélagi félags-
ins. Eftirlifandi kona hans er
Amalína Skúladóttir frá ísafirði.
Fram-íundur
í Hafnarfirði
FUNDUR verður í Landsmála-
félaginu Fram í kvöld. Dóms-
‘málaráðherra Jóhann Hafstein
ræðir þar um viðhorfin í byrj-
un þings. Að lokinni framsögu-
ræðu ráðherrans verða frjálsar
umræður.
Þess er vænzt að flokksfólk
fjölmenni á fundinn, en hann
hefst kl. 20.30.